Morgunblaðið - 28.03.1951, Qupperneq 4
4
MORGUISBLAÐ I Ð
Miðvikudagur 28. mars 1951
l>7. dagur ársin<»,
Næturlaeknir 'er. í laeknavarSítof-
Tuini. sími 5030.
Ntpiui'órSur er i Reykjavikuí’
Apóteki, simi 1760.
-□
VeSriB
í gaer var hæg vestlæg átt meS
jeljum og síðar súld um vestur-
hluta landsins, en austan lands
úrkomulaust. — 1 Reykjavík var
hiti 1 stig kl. 17, 1 stig á Akur-
eyri, 2 stig i Bolungarvík, 2 st.
frost á Dalatanga. Mestur hiti
mældist hjer. á landi í gær 3 st.
á nokkrum stöðum, en minstui'
á Akureyri, 16 st. frost. — I
London var hitinn 5 stig, 0 st.
í Kaupmannahöfn.
i------------------------n
BrúSfeaiip^)
Laugardaginn fyrir páska voru
t'rfin saman í hjónaband' af sira
ÍSjama Jónssyni, ungfrú Halldóra
Ölafsdóttir frá Raufarhöfn og Gunn-
ar H. Steingrímsson (Arnórssonar
fulltrúa), Laufásvegi 10. Reykjavík.
Ueimili þeirra er á Laufásvegi 10.
S. 1. laugardag voru gefin saman
I hjónahand ungfrú Elín Sigurðar-
dóttir og Ingimundur Þoikelsson,
rjómaður. Hennili þeirra er í Banna-
*i)íð 12.
Nýlega voru gefin saman í hjóna-
hand ungfrú Ingunn Sæmundsdottir
©g Guðmundur Hinriksson. Heimili
hjonanna er að Bjargarstíg 6, Rvik.
Um páskana voru gefin saman í
hjónaband Halldóra Guðlaug Kjart-
nnsdóttir og Guðmundur Már Brynj-
ólísson bifvjelavirki. Heimili þema
er á Hverfisgötu Í04C
Nýlega voru gefin saman i lijóna-
liand, af sjera Jöni Auðuns, ungfrú
Kristjana Sveinsdóttir frá Siglufirði
©g Jóhann Rúnar Guðbergsson, renni
®miður, Austurgötu 3, Hafnarfirði.
Heimili ungu hjónanna verður að
Reýkjavikurvegi 1, Hafnarfirði.
Síðastliðinn laugardag voru gefin
«aman í hjónaband af sjera Bjama
Jónssyni ungfrú Jóna Rútsdóttir og
íjigurhjörtur Pjetursson.
' u:‘ÁseíM®
Siðastliðinn laugaidag opinberuðu
trúlofun sína frk, Fjólá Sigurðardótt-
ir. Bómgötu 22, Akranesi.
' Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína ungfrú Jóhanna Karlsdóttir
kennari frá Valshamri, Geiradal, A,-
Barðastrandas., og hr. Guðni Guð-
mundsson,. - sælgætisgerðarmaðHr,
Keykjavíkurvegi 10. Hafnarfirði.
S.l. laugardag opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Friða Björg Ólafsdóttir,
Laugaveg 30 og stud. theol. Björn
A. Jónsson, Nvja-Garði.
Á laugardaginn fyrir páska opdn-
beruðu trúlofun sína unefrxi Kristi-
nnn Hiartardóttir, starfsstúlka ó Vifils
stiiðum oe Helgi Þorvarðarson, Ei-
ríksgötu 25.
Um páskana ouinberuðu trúlofun
sína ungfrxx Rósbjörg Þorfinnsdóttir
frá Raufarhöfn og Jóhann Helgi ís-
fjörð. Hoitsgötu 9. Rvik.
Á Jaugardag fyrir páska opinber-
tiðu trúlofun sína ungfrú Kolbrún
Heimannsdxjttir, Nesveg 66 og Gísli
Öskar Sessiliusson, lögregluþjónn,
Öðinsgötu 4 .
Á páskadag opinheruðu trúlofun
sína ungfrú Hildigunnur Valdimars
dóttir. Teigi. Vopnafirði og Jón
Haraldsson, Skipasundi 38, Reykja-
Jtík. —»
Á páskadag opinheruðu trúlofun
sina unefrú Jóhanna Sigurðardottir,
Sigtxm 33 oe Karl Símonarson, Borg-
arholtsveg 39.
Hiúskaparheit sitt hafa nýiega
Lunngiört ungfrú Ástriður E. Bjöms-
dóttir frá Sveinatungu og Jón Jak-
ohsson, húsasm., frá Lundi í Þverár-
hlíð.
Afmæli
Sextug var síðastliðinn föstudag,
S53. mars. Jónína Ámadóttir. hús-
freyia að H'Utöðum í Helgafellssveit
cr hefir húið þar um 20 ára bil
tmnöar- og rausnarbúi.
Frú Signý Eiríksdóttir, Hrisateig
4. kona Haraldar Sigurðar póstmanns
tr 65 ára í dag.
Norska skógræktar-
kvikmyndin
Skógræktarmyndin frá Tromsfylki
í Noregi, sem gefin var Skógrækt
rikisins í vetur, er hin fróðlegasta,
sem þegar hefir verið frá skýft hjer.
Hefir hún verið stytt nokkuð frá því
sem hún var upprunaiega.
Nokkfmn. sinnum hefir h ún verið
sýnd hjer í bænum, og fengið mikið
lof meðal áhorfendanna.
Hákon Bjarnason skógræktarstjóri
mun sýna myndina í B.óhöllinni á
Akranesi annað kvöld. að Hvanneyri
á föstudaginn. í Bæjarsveitinni á
laugardagskvöld og í Borgamesi á
sunuudag. Skýrir skógræktarstjóri
myndina, og flytur stutt erindi um
skógrækt í Troms, en þar eru veður-
skilyrði hin sömu og hjer á landi.
Svo af mjndinni fá menn augljósan
fróðleik um ,hvers má vænta af skóg-
rækt hjer á landi.
Málfundadeild
Iðnnemasambands íslands
Fundur veiður í kvöíd að Hverfis-
götu 21 kl. 9 e. h. Umræðuefni: —
Lög og reglugerð um iðnnám. ■—
Fiamsögumenn: Svanur Jóhannesson
og Þorkell B. Björgvinsson. — Leið-
beinandi: Guðjón Benediktsson.
Fjelagið Ísland-Noregur
efnir til kvöldskemmtunar í Tjarn-
arcafé á föstudagskvöldið kl. 8.30.
Þar segir Valtýr Stefánsson fró Nor-
egsför. Þar verður upplestur á norsk
um ljóðum. Og þar verður sýnd norsk
kvikmynd. Loks verður þar stíginn
dans.
Þarna verður gott tækifæri til að
kynnast starfsemi hins nvstofnaða fie
lags, en því hefir frá byrjun verið
vel tekið. Væntanlega á það eftir að
eflast að þátttöku margra, sem áhuga
hafa fyrir aukinni kynningu og sam-
vinnu frændþjóáanna Nörðmanna og
Islendinga.
Frosthiirkur í Svíþjóð
Þegar Alexander prófessor Jó-
hannesson var á ferð í Svíþjóð rjett
fyrir páskana, voru þar svo miklar
frosthörkur, að eina nóttina komst
frostið í Stokkhólmi og Uppsölum
upp í 23 gróður. Alsnjóa var bæði i
Danmörku og eins í Skotlandi, er
hann fór þar um.
Alísber til Mexico
Svo segir í hinu nýja tímariti er
,.Samfundet — Sverige-Island er far
ið að gefa út. að Guðmundur Daniels
son rithöfundur muni vera eini mað-
urinn, sem komið hafi alsnakinn til
Mexico-rikis. Hann var á ferð í
Bandaríkjunum og varð þá fyrir því
óhappi, að vegabrjefi hans var stolið
Svo honum var neitað um að fara
yfir landamærin til Mexxco. Gerði
hann sjer þá hægt um hönd, og synti
allsber yfir á, sem rennur á landa-
I mærum Bandaríkjanna og Mexico.
Erindið þangað yfirum var, að hafa
stigið fæti á mexicanska gnxnd.
i
j Flugferðir
Flugfjelag íslands:
j Innanlandsflugt — X dag er ráð-
gert að fljúga til Akureyrar, Vest-
mannaeyja og Hellísands. — Á morg
un eru áætlaðar flugferðir til Akur-
eyrar, Vestmannaeyja, Reyðarfjarð-
ar, Fáskrúðsfjarðar, Neskaupstaðar,
Seyðisf jar&ir og Sauðárkróks, —
Millilandaflug: „Gullfaxi“ er væntan
legur til Reykjavíkur frá Prestwick
og Kaupmannahöín um kl. 18,00 í
dag. —
Drengjakór Fríkirkjunnar
• Áheit frá Kristinu Hefgadóttur, kr.
50,00, — Kærar þákkir. — H.G.
Sumarbústaðalönd við
Rauðavaín
Síðustu forvöð eru ! dag fyrir há-
degi, að endumýja umsóknir sinar
um sumarbústaðalönd við Rauðavatn.
Umsóknirnar eiga að sendast skrif-
stofu bæjarx'erkfræðings.
Fannirnar í Esjunni
Hjer á árum áður voru fannir, ein
eða fleiri altaf í Gunnlaúgsskarði
sunnan í Esjunni. Þær tók aldrei
upp yfir sumarið. Þangað til hlý-
indatímabilið hófst hjer. Á síðustu
árum hefir ekki sjeð votta þar fyrir
neinni fönr. á sumrin.
Jeg man ekki betur, en jeg sæi
Esjuna í fyrsta sinn snjólausa á jóla-
föstu árið 1927. Þann vetur gekk jeg
daglega norður eftir Suðurgötunni,
og hafði þvi Esjuna blasandi á móti
mjer.
1 desember þetta ár gengu hjer
miklar hlákur. Mig minnir fastlega
að einmitt þá, hafi síðustu leifar af
fönnunum horfið í Gunnlaugsskarði
hjeðan frá bænum að sjá.
Ef einhverjum finst mig rang-
minna þetta, og viti harni betur,
þætti mjer vænt um að hann gerði
blaðinu aðvart.
Eins væri mjög fróðlegt að fá
mynd af Esjunni hjeðan frá bænum
að sjá með fönnunum í eins og þær
voru á sumrin.
Eða skyldu menn muna Esjuna
snjólausa fyrr á árum, en á tímabil-
inu frá 1927 og fram til þessa?
V. St.
apríl til Reykjavíkur. Tovelii fermir
áburð i Rotterdam 8.—20. apríl.
Ríkisskip:
Hekla er í Reykjavik og fer þaðan
á morgun austur um land til Siglu-
fjarðar, Esja verður væntanlega á
Akureyri í dag. Herðubreið fer frá
Reykjavík í kvöld til Breiðafjarðar
og Vestfjarðahafna. Þyrill er í Rvík.
Ármann var i Vestmannaeyjum í
gær. —
Skipadeild SÍS:
Arnarfell er i Aalborg. Hvassafell
losar sement í Keflavík og Akranesi.
Eimskip Rvíkur:
M.s. Katla er i GendS.
Gengisskráning
1 £ ____________
1 USA dollar ---
kr.
100 danskar kr.......
100 norskar kr....—
100 sænskar kr. ----
100 finnsk mörk
1000 fr. fíankar
100 belg. frankar _
100 svissn. fiankar
100 tjekkn. kr. ----
100 gyllini --------
45.70
16.32
236.30
228.50
315.50
7.00
46.63
. 32.67
373.70
32.64
429.90
Eimskip h.f.:
Brúarfoss kom til Reykjavíkur í
gærkveldi frá Leith. Dettifoss kom til
Reykjavikur 24. þ.m. frá New York.
Fjallfoss fór frá Leith 26. þ.m. til
Fredérikstád, Gravarna, Gautaborg-
ar og Kaupmannahafnar. Goðafoss
kom til Antwerpen 25. þ.m., fer það-
an til Rotterdam. Lagarfoss fer frá
New York 8. apríl til Reykjavíkur.
Selfoss fer frá Reykjavik í kvöld 27.
þan. til Vestmannaeyja, Leith, Ant-
werpen og Gautaborgar. Tröllafoss
hefir væntanlega farið frá Baltimore
26. þ. m. Vatnajökull kom til
Reykjavíkur 25. þ.m. frá Hámborg.
Dux fór frá Heroya 20. þ.m. til Gauta
borgar og Kaupmannahafnar. Skagen
er í London, fermir sykur til Rvikur.
Hesnes fermbir i Hamborg um 2.
Fimm mínúfna krossqátð
Stefnir
tímarit SjálfstæSismanna, er fjöl
breyttasta og vandaðasta timarit
um þjóðfjelagsmál, sem gcfið er út
á fslandi. Þessvegna verða allir
þeir, er fylgjast vilja með þeim
málum, að kaupa Stefni. Nýjiun
áskrifendum veitt móttaka í skrif-
stofum Sjálfstæðisflokksins í Rvík
og á Akureyri og hjá umboðsmönn
um ritsins um Iand allt. — Kaup-
ið og útbreiðið Stefni.
Ungbarnavemd Líknar
Templarasundi 3 er opin: Þriðju
daga kl. 3.15—4 e.h. og fimmtudagx-
Rl. 1.30—2.30 e.h. Einungis tekið é
móti börnum, er fengið hafa kíg
hósta eða hlotið hafa ónæmisaðgerð
gégn honum. Ekki tekið á móti kvef
uðum l örnunT.
Bágstadda fjölskyldan
Áheit krónur 50,00; Einar krónur
100,00. —
8,30 Morgunútvarp. — 9,10 Veðúr
fregnir). 12,10—13,15 HádegisiVtvarp.
15,30--16,30 Miðdegisútyarp. —
15.55 -'Frjethr og veðurfregnid); 18,15
Framburðarkennsla í ensku. — 18,25
Veðurfregnir. 18,30 Islenskukennsla
II. fi. —- 19,00 Þýzkukennsla; I. fl.
19.25 Tónleikar: Operulög (plötur).
19.45 Auglýsingar. 20,00 Frjettir.
20,30 Kvöldvaka: a) Sjera Sigurður
Einaisson í Holti flytur erindi: Mælt
mál. b) Karlakórinn Vísir á Siglufirði
Syngur; Þormóður Eyjólfsson stjórn-
— ■ 1 rlötii"! c) Andi'jes Bjönxsson
flytur fiásöguþátt eftir Kiistin
fjniiisson: (jengið í beitifjöru fyrir
sextíu árum. d) Stefán Júliusson
kennari les úr ferðapistlum Vilbergs
Júlíussonar: Á Miðjarðarhafi. 22,00
Frjettir og veðurfregnir. 22,10 Dans-
lög (plötur). 22,30 Dagskrár! ik.
Erlendar útvarpsstöSvar:
(íslenskur timi).
Noregur. Bylgjulengdir: 41.61 —•
25.56 — 31.22 og 19.79. — Frjettir:
kl. 11.05 — 17.05 og 20.10
Auk bess m. a.: Kl. 15;05 Síðdeg-
hljómleikar. Kl. 17,35 Hljómleikar.
Kl. 18,05 Háskólafyrirlestur, prófess-
or dr. Bjöm Hougen, Kl. 18,30
FilhiiljJeikur. Kl. 20,30 Danslög.
Svíþjóð. Bylgjulengdir: 27.83 og
19.80 m. — Frjettir kl 17 00 og
20.15.
Auk þess m. a.: Kl. 15,40 Hljóm-
leikar af plötum. Kl. 17,55 Gömul
danslög. Kl. 18,50 Hljómleikar. Kl.
20,30 Jazz. Kl. 21,00 Náttuglan.
Danmörk. Bylgjulengdir: 1224 og
41.32 m. — Frjettir kl. 16.40 og 20.00
Auk þess m. a.: Kl. 17,00 Lands-
keppni í skák milli Finnlands og
Danmerkur. Eero Böök, Finnlandi og
Jens Enevaldsen, Danmörku, koma
fram. Kl. 17,45 Kabarethljómleikar
og frh. skákkeppninnar. KI. 18,45
Skákkeppnin enn. Kl. 18,50 Dansk-
sænsk lög. Kl. 19,55 Skálckeppnin og
við og við allt kvöldið. Kl. 20,35
Orgelhljómleikar.
England. (Gen. Overs. Serv.).
Bylgjulengdir: 19.76 — 25.53 —
31.55 og 16.86 m. — Frjettir kl. 02
— 03 — 05 — 06 — 10 — 12 —15
— 17 — 19 — 22 og 00:
Xokkrar aðrar stöðvar:
Finnland. — Friettir á ensku kl.
23.25 á 15.85 m. og kl. 11.15 á 31.40
— 19.75 — 1685 og 49,02 m. —
Belgía. Frjettir á frönsku kl 17.45
— 20.00 0g 20.55 á 16.85 og 13.89 m
— Frakkland. Frjettir á ensku mánu
daga, miðvikudaga og föstudaga kl.
15.15 og alla daga kl. 22.45 á 25.64
og 31.41 m. — Sviss. Stuttbylgju-
útvarp á ensku kl. 21.30—22.50 á
31.45 — 25.39 og 19.58 m. — USA.
Frjettir m. a.: Kl. 13.00 á 25 — 31 og
49 m. bandinu. Kl. 16.30 á 13 — 14
og 19 m. b„ kl. 18.00 á 13 — 16 —
19 og 25 m. b„ kl. 21.15 é 15 — 17
— 25 og 31 m. b., kl. 22.00 á 13 —-
16 og 19 m. b.
Skýringar.
Lárjett: — 1 gróða — 6 skyld-
menni — 8 blóm — 10 ómelt fæða —
12 landi — 14 ósamatæðir — 15 sam-
hljóðar — 16 skel — 18 fjáðri.
Lóðrjett: -— 2 erfiðleikar — 3
forsetning — 4 veldi — 5 laglegra —
7 frelsaranum —• 9 reykja — 11
mann -— 13 tómu — 16 samtengmg
— 17 fangamark.
Lausn síðustu kressgátu
Lárjett: — 1 skiök — 6 rán — 8
krá — 10 nit — 12 rostung — 14
ok — 15 Na —■ 16 ári —* 18 kenn-
ing.
Lóðrjelt: — 2 krás — 3 rá — 4
Önnu — 5 skrokk — 7 útgang — 9
rok — 11 inn — 13 turn — 16 án
— 17 IL
Sverðgleypirinn hafði fengið
slæmsku í magann. Læknir fyrirskip
aði að hann yrði að breyta um mat-
aræði — láta sjer nægja ávaxtahnifa.
★
Ungskáldið Anersen las upp
kvæði eftir sig á kvöldskemmtun
einni. Hann fjekk daufar undirtektir.
Flann sagðíst hafa ort fleiri kvæði,
en þa’t sem ólesin væru mætti eng-
inn lesa fyrr en hann væri, dauður.
Þá heyrðist hróþað frainnu í saln-
um: „Lengi lifi Andersen!“
★
Saga þessi er sögð úr enskum smá
hæ:
Mr. Jones kom einn góðnn veður-
dag heim til' sín með hest i taumi.
Nágranni hans Smith mætti honum
fyrir utan húsið og spurði hvað hann
ætlaði að gera við klárinn. Jarxes var
sfignafár. En hestinn teymdi hann
upp húströppurnar og inn ' íbúð
sína og alla leið inn í baðklefa sinn.
Fr bangað var komið skaut Jones
hestirn.
Þegar Jones kom aftur xtt, g.at
Smith ekki ■ stillt sig um að spyrja,
hvað þessar kúnstir ættU að þýða. I
Jones svaraði þessu til:
— Jeg skil það vel, vinur, að þúi
furðar þig á þessu framferði mínu. |
En nú skal jeg segja þjer, hvemig
í öllu þessu liggur. 1 20 ár hefi jeg
nú umgengist mág minn. Mjer hefir|
gramist það að hann skuli alltaf þykj
ast vita fyrirfram um allt, sem jeg
vek máls á. Ef talið berst að hænsna-
rækt þá veit hann allt um það efhi.
Sje minnst á kafbáta, þá þekkir hann
allt, sem að þeirn lýtur. Og ef farið
er að minnast á hernað, þá hefir
hann verið í allskonar hernaði og
þykist allt vita.
Jeg á von á honum í heims'kn á
morgun. Hann fer þá upp í haðher-
bergið til'þess að bvo sjer um hend-
urnar. En þegar hann rekur xugun
í hrossið dautt þar, þá kemur liann
hlaupandi til þess að segja mjer hvar
þar sje að sjá. Og þá loksins get jeg
sagt við hann það sama og haun hef
ir svo oft sagt við mig: „Það vissi jeg
fyrr“.
Ung hjón voru á ferðalagi og mun-
aði mirmstu að bíll æki yfir þeu. Bíll
inn ók í hurtu á fleygiférð, en
skömmu síðar har að lögregluþjón.
Hiónin voru í æstu skapi út af ó-
svífni bílstjórans og þó einkum kon-
an. —
— Tókuð þjer eftir númmeri bíls-
ins? spurði lögregluþjónninn.
— Já, svaraði húsbóndinn. —Það
stóð svo einkennilega á að jeg lók
eftir því, vegna þess að tveir fýrstu
tölustnfirnir voru þeir sömu % ald-
ur minn, en hinir tveir seinni komu
heim við aldur konu minnar.
— Jóhn, sagði konan allt í einu,
r:.—_ vjg nokkuð að vera að kæra
þetta?