Morgunblaðið - 24.05.1951, Page 10
10
SIOUGLNBLAÐH*
Fimtudagur 24. maí 1951.
£tiiimilltiiiiinmmiliilil p^ <*1 1 rl QH T1 ]_ itiiiiiiiiiiimiiiiiiiitiiMiiiiiiiiiitliiftlilliliiitiimiiiiiimmiiimmitmiiliitiiniiiiiiiiiiiimi'1^
RFÐA
g
iiiiiiimiiiiiiiiiim
Skáldsaga eftir Neliu Gardner White
imiimiiimimiiim*
BÆRINN TRIGO li?s;ur niðri í
dalnum. Allt í kring um hann eru
ávalar hæðir og kjarrivaxnir ás-
ar. Trigo er lítiil bær og bæjar-
lifið snýst aðallega í kring um
stóra verksmiðju sem framleiðir
púður í skotfæri. Verksmiðian
stendur á bökkum Combe-árinn-
ar og vegna hennar er bærinn í
uppvexti. í kring um verksmiðj-
una er rauður múrsteinsvesfgur
og við innganginn er skilti þar
sem stendur að óviðkomandi
mönnum sje bannaður aðgangur.
Annars er ekkert sem gefur það
til kvnna hvílíkt banvænt efni
er framleitt þar. Bærinn er ina
legur og fallegur.
Eigandi verksmiðjunnar þegar
þessi saea hefst. var maður að
nafni Zachary Thorne. SaPan
fjallar lítið um verksmiðjurekst-
urinn en Zachary Thorne kemur
allmjö" við sögu. Hann er álitinn
hálfverðui sjervitringur í hessu
litla þjóðíjelagi. þar sem sjer-
vitringar uxu á öðru hverju strái.
Thorne bjó i húsi sem kallað
var Prestshúsið. Það stóð á hæð
sem kennt var við samkomuhús-
ið, enda þótt hað væri löngu horf-
ið. Samkomuhúsið hafði líka ver-
ið kirkju og klukkuhúsið hafði
staðið lengi eftir að kirkjan sjálf
hafði brunnið til grunna. Loks
var klukkuhúsið lika tekið niður
og gefið annarri lítilli sveitar-
kirkju. Prestshúsið var gamalt og
vandað hús, enda þótt það væri
sjálfsagt farið að nálgast það að
verða tvö hundruð ára. Hár stein
vegeur skýldi því.frá vötunni og
yfir vegginn uxu vafningsviðir.
Garðurinn var ekki skipulagður,
en hjer og þar stóðu stór trje og
liljur og rósir uxu á víð oa dreif
eins og þeim hefði verið plantað
þar af hendingu. Thorne hafði
keypt húsið af John gamla Dreed
rúmum tuttugu árum áður en
þessi sr"- hefst o'r hafði búið
þar einn síðan. Tom Bridges,
sem líka var kominn til ára sinna,
dundaði í garðinum þegar hann
hafði tíma til þess en Thorne mat-
bjó annað hvort fyrir sig sjálfur
eða borðaði niðri í bænum. Kona
Toms kom við og við og gerði
hreint í húsinu.
Síðla dags í nóvember ók
Zachary Thorne upp hæðina frá
Trigo. Það var kallt í veðri og
hyssincslegt. Blöðin voru fölnuð
á trjánum og veröldin var öll
heldur grá og óskenrmtileg. Tom
Bridges var að raka saman laufin
í garinum. Hann leit varla upp
þeear Thorne lokaði bílhurðinni
og.eekk upp að húsinu. Tom var
krypplingur og siervitringur, eins
og Thorne, nöldursamur og þver.
„Það þarf að klippa niður af
vegnum“ sagði Thorne.
„Jeg veit það“, sagði Tom
Bridges. „Geri það seinna“. Hann
hjelt áfram að raka án þess að
líta á Thorne.
„Kemur Ike og þeir hinir að
sækja þig?“
„Þeir eru vanir því,„ sagði
Tom.
„Biddu þá að koma snöggvast
inn til mín áður en þið farið“.
Tom svaraði engu. Thorne stóð
þegiandi dálitla stund. Hann var
hár maður, ófríður en skarpur
á svip. Það var næstum hægt að
sjá bað á honum að honum var
kallt, en hann átti vel við um-
hverfið .... nóvember-kuldann
og fölnuðu laufin.
„Það þýðir ekki að reyna að
brenna laufin í kvöld. Þau eru
of blaut“, sagði hann loks.
„Jeg ætlaði heldur ekki að gera
það“. sagði Tom.
Þá spurði Zaehary Thorne und
arlegrar snurningar. Eða hún
hefði að minnsta kosti verið und-
arleg. ef einhver annar en hann
hefði spurt þannig einhvern ann ■
anan en Tom Bridges. „Tom, bið-
ur þú til guðs eða fjandans?“
Bridges rjetti svolítið úr sjer,
en þó var hann styttri en hrífu-
andlitið hrukkótt. „Jeg bið
aldrei" sagði hann stuttur í
spuna.
„Þarft líklega aldrei á hjálp að
halda, eða hvað?“
„Jeg hjálpa mjer sjálfur“, sagði
Bridges. Það var eitthvað virðu-
le«t við vanskapaðan líkama
hans í hálfrökkrinu. „Það ætlar
að verða þoka“, sagði hann.
,.Já. Jæja, þú lætur mennina
koma snöggvast inn til mín“.
Hann snjeri við og gekk upp
að húsi sínu, yfir lágan pallinn
Ný framhaldssaga
hefsf í dag.
Fylglsf með frá
upphafð.
fyrir framan húsið og inn um
dyrnar. Hann kveikti engin Ijrs
fyrr en hann var komiisn inn í
stofu, sem var nokkurs konar
sambland af bókaherbergi og
setustofu. Þar kveikti hann ljós
en slökkti það strax aftur og
gekk út að glugganum. Þokan var
að skella á niðri í dalnum, cn
ennþá sá ofan á hæðirnar. Thornr.
stóð við gluggann góða stund cg
fylgdist með gráum þokubökkun
um sem breiddu úr sjer í cífeUu.
svo gekk hann að vömlu skrif-
borði sem stóð í einu horni stof-
unnar, kveikti á borðlampanum
tók fram biað og settist v ;ð ',ð
skrifa.
Hálftíma siðar komu kunn’ngj -
ar Toms við á leið sinni frá vinn
unni í sögunarmyllunni. Sahra
Bridges, gildvaxinn með rjóðar
kinnar, fylgdi þeim inn í stofuna.
„Viljið þjer fá alla þessa menn
inn til yðar, T'norne?" spurði hún.
„Tom sagði að þeir ættu að koma
inn“.
Zachary Thorne kinkaði kolli.
„Já“, sagði hann. „Jeg ætla að
biðia ykkur að vera vottar að
erfðaskrá minni“. Þeir munld-
uðu eitthvað til samþykkis og
hann lagði blaðið á borðið og
skrifaði fyrst nafn sitt undir.
„Hjerna, þar sem stendur „vott-
ar“ sagði hann og rjetti Ike Lawe
pennann.
Sahra horfði angistarfull á,
meðan mennirnir skrifuðu nöfn
sín klunnle«a undir. Hún minnt-
ist bess að móðir hennar hafði
einhverntímann sagt við hana:
„Sahra, skrifaðu aldrei nafn hitt
undir neitt, nema bú hafir lesið
það fyrst“.
„Jeg þakka ykkur kærlega fyr-
ir“^&avði Thorne op stakk blað-
inu í umslag. Umslaginu stakk
hann í skrifborðsskúffuna.
„Jeg geri hreint í eldhúsinu á
morgun“, sagði Sarah.
Thorne hikaði, en sagði svo:
„Já, ávætt“.
„Hafið þjer rekist á nokkra
fleiri kakalakka síðan jeg var
hjerna síðast?“
„Nei, hað hef 1®« ekki .... jeg
skal ekki tefja ykkur lengur. Þok
an verður orðin þjett áður en þið
komist heim“.
„Jeg kem þá á morgun" sagði
Sarah.
Þegar þau voru farin, var kyrrt
og hljótt í húsinu. Stofan var hlý
leg. Bókaskáoarnir náðu niður
undir Ioftið og legubekkir stóðu
sitt hvorum megin við arininn,
ogwið stóra glu""ann var bekk-
ur með margþtum púðum. Stof-
an vgr K'mnig úr garði gerð að
hún hlaut að vera hlýleg, en þetta
nóvemberkvöld varpaði yfir hana
drungale^um blæ. Það var eins
og bækurnar í bókaskápunum
hefðu aldrei verið lesnar, eins og
aldrei hefði verið setið á legu-
bekkjunum og aldrei kveikt í
arninum.
„Jæja, bá er stundin komin",
sagði Zachary Thorne skyndilega.
Hann skrifaði nokkur orð á lítinn
miða, fór með hann fram í eld-
húsið oa stakk honum undir
mjólkurflösku sem stóð á borð-
inu. Síðan fór hann inn í litla
skrifstofu, handan við borðstof-
una, tók skambyssu upp úr skúffu
gekk inn í bókaherbergið, mið-
aði bvssunni á "’>«nauga sjer og
spennti »ikkinn.
C
ARNALESBQff
2? loT£unblaðsins *
Hákon Hákonarson
126.
því að það er venjan, a ðskipstjórinn taki sjálfur á móti gestum
sínum, þegar konur eru meðal þeirra.
Það var farið með þau inn í stóran og fallegan sal. Þar gljáði á
gull og silfur og húsgögn úr dýrum viði. Á gólfinu var mjúkt teppi
og stólarnir voru með áklæði úr fegursta silki. Þetta var eins og
ævintýrahöll. Að minnsta kosti hafði þessi fjölskylda aldrei sjeð
annað eins.
Stýrimaðurinn skildi þau ein eftir í salnum.
„Þetta er það einkennilegasta, sem jeg hef lent í“, sagði Hákon
tldri og hristi höfuðið. „Ekki skil jeg, hverskonar skip þetta er“.
Loksins opnaðist hurð, og inn gekk maður í hásetafötum.
„Er skipstjórinn ekki um bórð?“ spurði Háokn eldri.
„Skipstjórinn er um borð, og skipstjórinn er jeg,“ svaraði mað-
urinn og hneigði sig.
Allt í einu hrópaði frúin:
„Jens! Já, en, — þetta er Jens! Jens frá Gæsaey!“
„Rjett, frú.“
„En ert þú orðinn sjóræningi? Eða ertu þrælasali?"
„Hvorugt. Jeg er með kveðju til ykkar.“
„Frá hverjum?“
„Frá Hákoni.“
Það varð þögn í salnum. Frúin greip um borðrönd til að styðja
sig við, og aftur runnu tár niður vanga hennar. Svo leit hún upp
og spurði kyrrlátlega:
„Hvernig dó drengurinn minn?“
„Hákon er ekki dáinn.“
„Er-------er hann ekki dáinn? Er hann lifandi? Ó-“
„Jeg hugsa, að hann geti best svarað því sjálfur. Það er líklega
ekki úr vegi að jeg sæki hann.“
skaftið sem hann studdi sig við.) Stór °S sterklegur piltur stóð í dyrunum. Gömlu hjónin störðu
Augun í honum voru örlítil og á hann eins og lömuð. Það var hann. Það var Hákon-. (
SjómaiMiafjelag Reykfavíkur
Allsherjaratkvæðagreiðsla um uppsögn farmanna-
samninga o. fl. fer fram í skrifstofu fjelagsins, Hverfis-
götu 8—10 dagana, fimmtudag 24. maí og föstudag 25.
maí kl. 10—22 báða dagana.
Samkvæmt 9. gr. fjelagslaganna eiga aðeins far-
menn atkvæðisrjett.
STJÓRNIN
Versluiitarhúsið nr. 11
við Samtún
hjer í bæ, er til sölu nú þegar ásamt tilheyrandi kæli-
vjelum og áhöldum, allt í því ástandi, sem það nú er í.
Uppl. gefnar á skrifstofu Sveinbjarnar Jónssonar og
Gunnars Þorsteinssonar, hæstarjettariögmanna, og á
staðnum kl. 1—6 e. h. í dag.
Stálkur ftakið eftir
25 ára maður, sem á góða íbúð, óskar eftir að hafa
samband við ekkju >eða aðrar konur, sem hefðu áhuga
á að stofna mjög arðberandi fyrirtæki. Aðeins þær,
sem hafa 50—60 þúsund krónur í reiðu fje, koma til
greina. Tilboð sendist afgr. Morgbl. sem fyrst, merkt:
„Góð 'framtíð“ —932.
Sníðum og saumum kjóla eftir máli
úr tillögðum efnum.
ÍRiS
Ægisgötu 7. Sími 7563.
1I£K¥NNIMG
frá Síldarverksmiðjum ríkisins.
Útgerðarmenn og útgerðarfjelög, sem óska að leggja
inn síld af skipum sínum hjá oss á komandi síldarvertíð
eru vinsamlegast beðnir að tilkynna það til skrifstofu
vorrar á Siglufirði fyrir 5. júni n. k.
Samningsbundnir viðskiptamenn ganga fyrir öðrum
um móttöku síldar.
Síldarverksmiðjur ríkisins.
Stúlkn
i sem er vön að smyrja brauð vantar í eldhús Vífilsstaða-
■ hælis nú þegar eða í júníbyrjun. Uppl. hjá ráðskonunni,
• sími 9332.
La^veiði
Þeir, sem talað hafa við mig um laxveiði í Grímsá í
sumar, geri svo vel og endurnýji pantanir sínar fyrir 27.
þessa mánaðar.
HERLUF CLAUSEN, Vitastíg 3.