Morgunblaðið - 12.07.1951, Síða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 12. júlí 1951
Minningarorð
Cuðmundur Jónssou járnsmiður
í DAG fer fram útför eins af
mætustu borgurum Hafnarfjarð-
ar, og fremstu Tðnaðarmönnum
þessa lands, Guðmundar Jónsson-
ar, járnsmiðs. Hann ljest að heim
ili sínu Ölduslóð 7 hinn 4 þ.m.
Löngum og merkum starfsdegi
er lokið. Fæddur var Guðmund-
ur af Dufþaksholti í Hvolhreppi
hinn 25. ágúst 1870. Var hann
sonur hjónanna Jóns Jónssonar
og konu hans Ingibjargar Einars-
dóttur.
Þegar í æsku var starfið hafið
á æskuheimilinu í foreldrahúsum.
Snemma hneigðist hugur hans til
þess að afla sjer menntunar og
stóð hugur hans þegar til þess
að læra járnsmíði.
Ákvörðunin var tekin og var
henni fylgt fram af þeim mann-
dómi, festu og trúmennsku er svo
mjög einkenndi öll hans störf.
Árið 1-889 hóf Guðmundur járn-
smíðanám hjá Gísla Finnssyni,
járnsmið í Reykjavik og lauk
námi með mikilli prýði. Nú á
dögum þykir það vart tíðindum
sæta þótt ungur maður hefji iðn
aðarnám, en á þeim tíma, er Guð
mundur hóf nám sitt var öðru
máli að gegna. Þá krafðist það
karlmennsku, þreks og vdjafestu
af ungum manni að taka sig upp
frá æskulieimili sínu, og leggja
leið sína austan úr Rangárvalla-
sýsíu til Reykjavíkur til þess að
hefja slílct nám til undirbúnings
því lífsstarfi er hugurinn þráði.
En förin lieppnaðist í fyllsta
máta.
Er Guðmundur hafði lokið
nómi sínu, .starfaði hann um
nokkurt árabil að iðn sinni í
Reykjavík. Árið 1899 rjeðist Guð
mundur síðan til Patreksfjarðar.
Veitti hann þar forstöðu vjela-
verkstæði um 20 ára skeið. Frá
Patreksfirði fluttist hann svo til
Hafnarfjarðar árið 1919. Þar hefir
hann starfað síðan allt til þess
er starfsorkuna þraut skömmu
fyrir andlát hans. í meir en
sextíu ár voru kraftarnir helg-
aðir starfinu, sem vígst var til í
æsku. Guðmundur Jónsson var
enginn miðlungsmaður í starfi
sínu. Meðfæddir hæfileikar og ó-
svikin virðing fyrir starfinu,
gerðu hann að þeim snillingi að
lengi verður minnst af öllum
þeim, er með honum störfuðu um
lengri eða skemmri tima eða
nutu verka hans á margvíslegan
hátt. Eru þeir orðnir æðimargir,
sem um dagana hafa leitað til
Guðmundar með vandkvæði sín
til úrlausnar.
Oft reyndi á góða útsjón, verk-
hyggni, vandvirkni og mikil-
virkni til þess að ráða fram úr
örðugum verkefnum oft við ó-
hagstæð skilyrði hvað efnivið og
tæki snerti, en þessir eiginleikar
brugðust Guðmundi aldrei. Tæki
hann verk að sjer og fengi
að leysa það á þann hátt,
sem hann taldi rjett, gátu allir
öruggir látið hann leysa vandan.
Allt var starfið svo af hendi leyst
að á betra varð eigi kosið og
harla oft á þann veg að aðdáun
vakti. Vegna þessa varð hann svo
mikilsmetinn sem iðnaðarmaður
Aliir, sem með Gúðmundi störf-
uðu hlutu að veita honum sjer-
staka athygli og báru fyrir hon-
um óskipta virðingu. Rjeði þar
um miklu hagleikur hans, er.
f’eira kom þó til. GLæsimenni var
hann hið mesta og setti svip á
umhverfi sitt. Karlmannlegur,
traustur og ábyggilegur svo af
bar gekk hann fram í orði og
verki. Vinátta hans var traust og
undinnálalaus. Einlægur og ei.n-
beittur fylgdi hann hverju þvi
máli fram, er hann taldi rjett og
til heiíia horfa.
Guðn'.undur var einn af sfpín-
endum Iðnaðarmannafjel. Hafn-
arfjarðar. Naut hann í þeim fje-
lagsskap, sem annarsstaöár,
trausts og vivðingar og gengdi
harm ýmsum trúnaðarstörfum
innan samtaka iðnaðármanna. 5r
langt síðan að Iðnaðarmannafje-
lagið gerði Guðmund að heiðurs-
fjelaga.
Hinn 14. maí 1899 giftist Guð-
mundur eftirlifandi konu sinni,
Guðrúnu Jónsdóttur, hinni ágæt-
ustu konu. í meir en 52 ár hefur
hún verið manni sínum hinn
trausti og góði lífsförunautur, og
hefur sambúð þeirra og heinúlis-
líf jafnan verið með miklum á-
gætum og heimili þeirra með
mesta myndarbrag. Sameiginlega
var staðið að hinu merka æfi-
starfi, sameiginlega var notið sól-
skinsstundanna og sameiginlega
varist áföllum og mætt hinum
erfiðari viðfangsefnum. Eignuð-
ust þau hjónin 6 börn, 3 drengi
og 3 stúlkur. Dóttur sína eina
misstu þau uppkomna, en 5 börn-
in eru á lífi og öll uppkomin, en
þau eru þessi: Reynir, Jón Ingi,
Hermann og dætur tvær, Fanney
og Svava, er býr hjá móður sinni.
Eru eiginkonu, börnum og öðr-
um aðstandendum sendar hlýjar
samúðarkveðj ur.
Feginn vildi jeg að skilnaði eft-
ir 20 ára ánægjulegt samstarf við
Guðmund Jónsson mega þrýsta
hönd hans, þakka starfið allt og
trygga og fölskvalausa vináttu
hans. Þess í stað verð jeg og aðr-
ir samstarfsmcnn hans og vinir,
að láta okkur nægja að senda
kveðjur og þakkir og þrýsta
hönd hans í anda um leið og hon-
um er óskað fararheilia.
Far þú í friði — friður guðs
þig blessi.
Haf þú þökk fyrir allt og allt.
Blessuð sje minning hins mæta
manns. Stefán Jónsson.
Drongjaméf
SAUÐÁRKRÓKI, 7. júlí: — í
dag fór fram hjcr á Sauðárkróki
frjálsíþróttamót drengja á veg-
um Ungmennasambands Skaga-
fjarðar. Þrjú fjelög tóku þátt i
mótinu: UMF Hjalti, UMF Holts-
hrepps og UMF Tindastóll.
Þrístökk vann Hörður Pálsson
T 12,72 m (Skagf. met). Hástökk
vann Sigmundur Pálsson T 1,55
m. 100 m hlaup vann Gísli L.
Blöndal T 11,8 sek. 1500 m lvlaup
vann Stefán Guðmundsson T
1:40,8 mín. (Skagf. met). Kúlu-
varp vann Hörður Pálsson T
.3,92 m. 4x100 m boðhlaup vann
sveit Tindastóls á 49,5 sek.
UMF Tindastóll vann mótið
með 66 stigum. UMF Holtshrepps
ííaut 12 stig. og UMF Hjalti 10
stig. ■— Jón',________
— Þjóðdansafíokkurinn
Framh. af bis. 2
ar haldið þjer að hafi verið til-
iinningar okkar þegar við kom-
im að borholunni í Krísuvík,
þar sem gufan spýttist upp með
mörg hundruð hestafla krafti?
Jeg held að við höfum verið orð-
laus af undrun langan tíma á
eftir. Þessum stórkostlegu undr-
un var alls ekki hægt að lýsa með
oröum. Þannig býst jeg við að
endurminningin um ísland verði
í hugum okkar, sem hingað kom-
um, ótrúlegt land, yndisfagurt og
undur stórkostleg. Og við mun-
um það einnig, að ísland á ekki
aðeins heitar laugar, heldur líka
heit hjörtu, sem hafa alltaf sýnt
okkur vináttu.
m að banna
kommúnisfafiokkinn
BONN, 11. júlí — Innanríkisráð-
herra V.-Þýskalands, Robert Lehr,
hefir sagt frjettarnönnum, að
Bonnstjórnin gerði rjettast í því
að banna kommúnistaflokkinn. Því
næst ætti að koma á fót 90 þús.
manna sambandslögreglu og varð-
liði til að koma í veg íyrir
skemmdaj-verk.
Handan járnfjaSdsins:
ámiEmennirnir em
kommúnistum óþægir
LUNDÚNUM, 9. júlí: — Ailmikils óróa og kurrs gætir nú með
námumönnum í Tjekkó-Slóvakíu, Póllandi og Ungverjalandi. Af-
köstin við Ostrava-námurnar í Tjekkó-Slóvakíu voru svo ljeleg í
maí, að herliði hefur verið skipað þangað til að hjálpa til. Sagði
aðalblað kommúnista, að kolnámur þessar hefðu víðs fjarri staðið
í skilum við líkið, svo að nú vantaði yfir 300 þús. smál. upp á.
SVIPA A VERKAMENN *
Þá átaldi blaöiö kocnnán-
isía fyrir að sækja ekki fundi,
þar sem rædd væri framleiðslu
mál. Blað verklýðshreyfingar-
innar kennir verklýðsfjelög-
unum um slen það, sem verka
mennirnir sýni. Kemur þar í
Ijós eins og oft áður, að í
kommúnistaríkjunum er meg-
inverkefni verklýðsfjelaganna
að knýja verkamcnn til eins
mikilla átaka og þeim fram-
ast er unnt. Iíjör þeirra skipta
engu máli.
SPELLVIRIÍI í
CNGVERJALANDI
Ekki er skemmtilegra að lit
ast um fyrir ungverska kom-
múnistana. Þar ganga verka-
mennirnir svo langt, að eng-
inn hluíur er óhultur fyrir
spellvirkjum. í Putnok í N-
Ungvcrjalandi eru raímagns-
og símaþræðir skornir dag-
lega. í Tolapa hafa svo mikl-
ar og tíðar skemmdir verið
unnar á vatnsveitunni, að iðn-
aður hefur stöðvast um nokk-
urra vikria skeið. Mjög ber á
íjarvistum verkamanna.
HANDTÖKUR í PÓLLANÐI
Póiska stjórnin hefur krafist
aukavinnu af verkamönnum og
mælist afar illa fyrir. í nokkrum
námum kom meira að segja til
virkrar andstöðu. — Fjölmargir
áróðursmenn kommúnista voru
sendir frá Varsjá til að reyna að
fá verkamenn til að verða við til-
mælum stjórnarinnar. — Sægur
manna var handtekinn.
Koupmenn!
Exico Co. Ltd., Tjekkóslóvakíu, sem eru stærstu skóverksmiðjur Evrópu, bjóða yður
glæsilegt úrval af hverskonar gúmmískófatnaði á karlmenn konur og börn.
Gúmmístígvjel,
Snjóhlífar,
Skóhlífar,
Gúmmískó,
Strigaskó,
Allar ofangreindar vörur eru á frílista. Afgreiðsla fer fram í ágúst-—október n. k.
Athugið að minni fyrirframgreiðslu er kraíist fyrir vörur frá „clearing“ löndun-
um, heldur cn öðrum löndum. Kynnið yður myndaiista of fáið aðrar nauðsynlegar
upplýsingar hjá neðanskráðum umboðsmönnum á íslandi fyrir
0>
C o. I t d.,
IMPOU AND 6XPORI OF lEATHER AND RUBBER
PRODUCTS AND R A V/ MATERlAtS
GOTTWAlOOV-ZtfN, CZECHOStOVAKIA
LÁftiJS G. LUPÍGSSOH IH. BEHiÁMÍNSSOK & (0.
skóverslun Búnaðarbankahúsinu
Sími 3882 — Reykjavík Sími 3166 — Reykjavík
MMMtlMltltMtlfttltMltMlllllltttlllltl
nsmii iiiiiMMiiMMMiMMic(MMMiiiiiiiiiiii(miimiiiiimimiMmi|iiei'-*..».*MMM«»-<
Markúá
&
£
Eftir Ed Ortddl
.MlfalllMltt MMIIMMIIIMMIIIMMBIIMMimilMfMIIMMIMMMIMM
iiimMMmiiifMumicuM
f TAKS IT TA3X WINKIE, HONEy i
i...TKEy'HE OOiNG EV6RVTHING
jTHEV CAN POR 8!G PAPA, AND
, llT'S BETIW r-OR U5 TO WAIT
I I'M SORRý m
-/ AVR. TBAfL...OLtR SOCIETy ^
LOCATES A LOT OT LOST DCGS,
eUT WE HAVEN'T HAD ANy <
REPORTS ON A ST. BERNARD j
ú'Vv... 1;
GOSH, IF I DON'T /
FINO ANCVy -y'-
SOON, HE tL
EORGET
EVER
5» A G
■ NAMED
MVIK TgAIL/ 1
, HE tL ; ar;. I
■ET He /-/V k í'V J
úí"i/-Vf í,
f/4
1) Jakob er boi inn út af svið-- á iækna pg þeir gera allt sem ■
inu,. þeír geta fyrir afa þinn, ... j
2) r—— Gráttu ekki svopa rnikið 3) Á meðari heldur Markús á-|
elskan ir.ín. Jeg er búinn að kalía fram leitinni 'að Andá.
, I 4— Mjer þykir það leitt, hcrra
: - Vl'.7 hu’.dum að vísu skr;
l 'ii- r”r. 1 ’ d. I.UBda, sem finn
; .jer. En við höfum ekki feng
iö tiikynningu um einn einast
Sankli EeriJiarðs-hutid.
—'Þetta er slæmt. Ef j
t:kki í'inn Anda von bráðar,
bættir hann að rnuna eftir
hann hafi nokkru sinni þbi
mig.