Morgunblaðið - 28.07.1951, Page 10
lb
MORGUNBLAÐIÐ
Laagarda-gur 23. júlí 1951.
O
- Framhaldssagan 24
STIÍLRAN OG DAÐBINN
Skáldsaga eítir Quentin Patrick
Hinum megin á örkinni voru
nriktu erfiðari atriði.
Það sem jeg má ekki segja
Trant:
1) Að Grace hringdi til Hud-
nutt frá bensínstöðinni.
2) Að það var Steve sem
keyrði hana að grjótnámunni.
3) Að það var Steve sem fór
með brjefið til sjúkrahússins og
til Hudnutts.
4> Að annað brjefið var til
Penelope Hudnutt, Marcia Parr-
ish tók það og jeg brenndi það.
5) Að Robert, Penelope og
Marcia voru öll úti í bílum sín-
um um nóttina um það leyti sem
morðið var framið.
6) Hvar Robert Hudnutt fjekk
örið á gagnaugað.
Og svo bætti jeg við, og það
var aðeins vegna Jerry:
7) Að það var Norma Sayler
sem reif brjefið frá Grace til
Jerry.
Þegar jeg las yfir það sem jeg
hafði skrifað, fór hrollur um mig.
Og ennþá óhugnanlegra var að
hugsa til þess að þrjár persónur
áttu velferð sína undir mjer
komna.
Jeg las enn einu sinni það sem
jeg hafði skrifað. Allt í einu
heyrði jeg rödd að baki mjer:
„Viljið þjer kannske segja
mjer strax það sem jeg má fá
að vita?“
Jeg braut saman öikina og
sneri mjer við. Lögreglufulltrú-
inn stóð við bókahillurnar með
hendurnar í vösum og brosti
glettnislega.
„Það er ánægjulegt að þjer
gátuð notað yður af þessu sem
jeg kenndi yður, Lee Lovering,"
sagði hann. „Þetta er lang auð-
yeldasta aðferðin.“
Aður en mjer vannst tími til að
svara, benti hann á skiltið þar
sem stóð að samtöl væru bönnuð,
tók um handlegg mjer og dró
mig með sjer inn í lítið herbergi
innar af salnum. Hann lokaði
dyrunum á eítir okkur. Jeg hjelt
ennþá á örkinni og jeg beið að-
eins eftir því að hann tæki hana
af mjer. En hann gerði það ekki.
Það var eins og hann hefði
gleymt að hún væri íil. Hann
gekk að borði við gluggann og
fór að blaða í gömlum eintök-
um af „Wentworth Glarion“.
,JHöfðuð þjer nokkurn tímann
áður lánað Grace eitthvað r.em
þjer áttuð?“ spurði hann loks
mjer til mikillar undrunar.
„Já. Það er að ségja.... Grace
var lítið um að fá lánað hjá öðr-
um.“ Mjer Ijetti svo af þessari
saklausu spurningu að jeg varð
óþarflega lausmál. „Hún var svo
viðkvæm af því áður hafði hún
getað veitt sjer allt sem hún
girntist. Ef hún fjekk eitthvað
iánað flýtti hún sjer allaf að
skila því aftur.“
Hann svaraði engu, en jeg fann
að þetta þótti honum góðar upp-
Jýsingar.
„Vður þætti kannske gaman
að fá að vita, að hverju jeg hef
komist síðan síðast. Það er ekki
mikið. Jeg veit ekki enn hver
átti rauðu regnkápuna og jeg hef
ekki fundið loðkápuna yðar. En
það sást til Grace í anddyrinu í
hljeinu eftir annan þátt Hún sat
og skrifaði brjef. Það er vissu-
lega óvenjulegt að ung stúlka
sitji við brjefaskriftir í leikhúsi.
En því meira sem við fáum að
vita um það sem Grace tók sjer
íyrir hendur, þeim mun undar-
legra verður allt. Að öllum lík-
indum skrifaði hún þessi þrjú
brjef, sem við vitum svo lítið um.
Það sást lílca tíl hennar þegar
hún fór frá Ieikhúsinu í fylgd
með rauðhærða sjóliðsforingjan-
um.“ Hann þagnaði en oætti svo
if:
„Þessi leyndardómsfulli sjó-
liðsforingi gat ekki hafa verið
ébreyttur sjóliði, eða hvað?“
Jeg hristi höfuðið.
„Hann var of fullorðinn til
þess. Og hann var allur borða-
lagður. Hann hlaut að vera hátt-
settur, eftir því sem jeg best
sá.“
„Undarlegt" tautaði Trant. —
„Jeg hef haft tal við skriístofur
sjóliðsins í New York og Phila-
delphia. Við höfum haldið uppi
fyrirspurnum í öllum bækistöðv
um sjóhersins og í öllum skipum
allt frá Boston til Norfolk. Og
eftir því sem við höfum komist
að er það mjög ósennilegt að
rauðhætður sjóliðsforingi hafi
verið í New York þetta kvöld.“
„En hann var það nú samt,“
sagði jeg. Jeg hugsaði mig um
dálitla stund og spurði svo: „Get
ið þjer ekki náð í hann í gegnum
póstskrifstofurnar? Hraðbrjef-
in....?“
„Jeg hef verið á pósthúsinu í
Wentworth. Þeir muna vel eftir
hraðbrjefunum til Grace, af því
þau voru svo mörg, en þeir halda
að flest þeirra hafi komið hjeð-
an.“
Jeg starði undrandi á hann.
„Eigið þjer við að hann hafi
verið hjcr einhvers staðar í ná-
grenninu eða beinlínis hjer í
skólanum? “
Trant svaraði ekki spurningu
minni. Hann gekk meðfram bóka
hillunum og virtist vera niður-
sokkinn í að lesa bókatitlana.
„Jeg hrtngdi til Wheeler fólks-
ins, þar sem Grace var vön að
vera í fríunum. Wheeler læknir
sagði að Grace hefði verið mjög
dauf í dáikinn þegar hún var hjá
þeim síðast og varla farið út fyr-
ir hússins dyr. Hann var alveg
viss um að hún hefði ekki hitt
neinn sjóliðsforingja þar.“ Trant
sneri sjer skyndilega að mjer.
„Hvar haldið þjer að hún hafi
hitt hann?“
Jeg gat ekki svarað því. Trant
kom nær rnjer og hjelt áfram:
„Við skulum sleppa sjóliðsfor-
ingjanum, Lee Lovering. Þekkið
þjer nokkurn hjer, sem heíur
getað skrifað brjefin?“
„Nei,“ sagði jeg ákveðin.
„Ekki Robert Hudnutt til dæín-
is, Eða ungi stúdentinn.. . . hvað
hjet hann.... Steve Carteris?“
„Nei, það er alveg óhugsandi."
„Getum við ekki sagt sem svo
að hún hafi hitt sjóliðsforingj-
ann af hendingu í leikhúsirru? Og
að hún hafi verið 'myrt af ein-
hverjum hjerna í skólanum?"
„Hún hafði ekki hitt hann af
hendingu í leikhúsinu,“ sagði jeg
æst. „Jeg talaði við hann. Grace
kynnti mig fyrir honum. Hún
sagði að hann væri gamall kunn-
ingi sinn.“
„Að minnsta kosti er ekkert
sem bendir til þess að hann hafi
keyrt hana heim eða komið ná-
lægt Wentworth um nóttina."
„Jú. Hann keyrði hana að ben-
sínstöðinni hjer rjett hjá.“
Orðin hrukku út úr mjer áður
en jeg vissi af.
Trant lögreglufulltrúi varð um
leið rósemdin og hæverskan upp-
máluð. Jeg sá bregða fyrir brosi
í augnakrókum hans, þegar hann
leit á örkina, sem jeg hjelt enn-
þá á.
„Þetta voru merkilegar upp-
lýsingar. Mjer þætti gaman að
vita hvort þetta er eitt af því
sem þjer getið sagt Trant lög-
reglufulltrúa, eða eitt af því sem
þjer getið ekki sagt honum.“
Jg brosti, og bros mitt hefur
sjálfsagt verið vandræðalegt.
„Það er eitt af því sem jeg get
sagt^ yður.“
„Ágætt.“
Jeg sagði honum það sem hafði
skeð á bensínstöðinni og hvérnig
sjóliðsforinginn hafði farið leið-
ar sinnar og Grace hafði látið
keyra sig að grjótnámunni,- En
auðvitað nefndi jeg ekki nafn
Steve. Jeg sagði heldur ekkert
um upphringingu hennar til Hud-
nutt eða um brjefið til Penelope.
Þegar jeg hafði lokið frásögn-
inni, þagði Trant góða stund.
„Og hver hefur sagt yður
þetta?“ spurði hann loks.
„Það er þvíémiður eitt af því
sem jeg get ekki sagt yður,“ sagði
jeg.
Hann hló við en spurði ekki
frekar um það.
„Þessi sem þjer getið ekki sagt
mjer hver er, keyrði hann þá að
grjótnámunni?“
„Já.“
„Og hann var því sá sem síð-
astur sá hana á lífi?“
„Nei. G-'race sagði að hún ætl-
aði að hitta einhvern í grjótnám-
unni.“
ARNALESSOff
1 jTlcrcjuublaðsms *
Á veiðimannaslóðum
EFTIR LAWRENCE E. SLADE.
13.
Beggi sá slóðina eftir tvo sleða skammt frá kofanum. Önnur
lá beint að kofanum, en hin inn í skóginn fyrir norðan hann. Það
var ekkert Um það að efast ,að Ragnar hafði orðið á undan. Hann
var kominn inn í kofann á undan Begga, en hann gat þó ekki hafa
verið þar lengi.
Beggi ók nú sleðanum hljóðlega upp að kofanum. Svo læddist
hann að kofahurðinni og opnaði hana skyndilega. Ljós var á borð-
inu við hiiðina á rúminu, sem Connor iá í. Ragnar var hálfboginn
yfir drykkjarglasLsjúklingsins og virtist ætla að setja eitthvað efni
í glasið.
Ragnar leit upp og þeir horfðust í augu sitt hvoru megin við
rúm Connors. Sjúklingurinn virtist hafa náð meðvitund, en svaf
værum svefni og var rjóður I kinnum.
Allt í einu kipptist Ragnar við og kastaði hvítri töflu á arin-
eldinn.
• — Já, jeg veit hvað þetta var, sem þú kastaðir á eldinn, Ragnar,
sagði Beggi.
Ben gekk ihn rjett í þessu og Beggi ákvað, að nú skyldi til skar-
• ar skríða. Hann tók að ákæra Ragnar fyrir margvíslega glæpi.
— Jeg véit það, sagði hann, að þú heíur stolið loðfeldum og
‘ sclt þýfið'itil Bolla. Jeg veit, að það varst líka þú sem stalst loð-
t'c-idunum frá Connor og að þú qrt kominn hingað afíur ti^ að
gera út af við hann.
Ben stóð hjá alveg hreyfingarlaus og horfði á þá með galopnum
augurn. — Hvað er það eiginlega, sem gengur á hjerna.
Ragnar hafði náfölná.ð meðan á ræðu Begga stóð. En skyndi-
Jega velti hann um borðinu. Skothvellur heyrðist. Beggi fann
sársauka í öðrum úlnliðnum og blóð streymdi úr handlegg hans.
SkenruntLin
verður sunnudaginn 29. þessa mánaðar
í ÞRASTASKÓGI
---- Hefst klukkan 4 e. h. --
SKEMMTIATRIÐI:
1. Ræða: Sjera Emil Björnsson,
2. Söngur, með guitarundirleik.
3. Fimleikastúlkur úr Ármanni sýna.
4. DANS — SOS-kvartettinn leikur.
•-- VEITINGAR --------
U. M. F. IIVÖT.
Ferðir frá bifreiðastöðinni Bifröst kl. 2 e. h.
Opnumí dag
nýja brauða og kökuúlsölu
að Veslurgölu 15,
(á horai Vesturgötu og Garðastrætis).
Þar verða til sölu allar þær tegundir af
KÖKUM og BRAUÐUM, sem brauða- og
kökugerð KRON framleiðir.
KRON
BOKAMEMN!
Lítið í glugga Fornbókaverslunar Krist-
jáns Kristjánssonar um helgina.
Þar getur að líta margt eigulegra bólca
T i I d æ m i s :
Andvari
Morgunn
Iðunn, cldri og yngri
Árbók ferðafjeíagsins
Lýsing íslands
Landfræðisagan
Allar bækur Kiljans
Sögufjelagið, compl.
Menn og menntir
Sögur herlæknisins
íslensk fornrit og
ýmasr flciri eigulegar
b æ k u r .
Habot
Universal Food Mixer rafmagns- !
hrærivjel lil heimilisnolkunar
ER NYKOMIN. — Rabot-hrærivjelin er mjög vönduð
að öllum frágangi. — Þeir, sem eiga RABOT-
hrærivjelar í pöntun hjá okkur, gjörið svo vel og vitjið
þeirra hið fyrsta. — Aðeins nokkur stykki óseld. -
Jánrvörudeild Jes Zimsen h.f.
Skrifstofnstúlka
óskast bálfan daginn.
Þarf að kunna ensku og vjeíritun.
Tilbcð mcrkt: Pósthólf 985.
m
: