Morgunblaðið - 11.08.1951, Síða 6

Morgunblaðið - 11.08.1951, Síða 6
MORGUNBLAÐIfí Laugardagur 11. ágúst 1951 JlttgmiM&Mjifr Jtg.. H.f. ArvaKur, Reylrjavi* ^ramkv.stj.: Sigfús Jónsson . -ritstion Valtýr Stefánsson (ábyrgOarm.) Oesbók: Árni Óla, sími 304S vugiysingar: Árni Garðar Kristinsaon Utstjórn, auglýsingar og afgreiðsl* \usturstræti 8. — Sími 1600 \sKriitaraiald kr. 16.00 á mánuði, ínnamana* I lausasölu tð aura eintakið. 1 krónu með Lesbófc Tel eðliiegf að handritin sjen á ísEandi Skýtur skökku við ÞAÐ skýtur sannarlega skökku við þegar minnihlutaflokkarnir í bæjarstjórn Reykjavíkur ætlast til þess að almenningur trúi því að þeir vilji vernda hann gegn opinberum álögum og skattkúg- un. Það liggur nefnilega fyrir skjallega sannað að þessir flokk- at hafa á liðnum árum haft alla forystu um að leggja drápsklyfj- ar, beinna og óbeinna skatta á þjóðina. Kommúnís'tar og kratar hafa það beinlínis á stefnuskrá sinni að koma í veg íyrir að einstak- hngar geti á heiðarlegan hátt komist til bjargálna með dugn- aði og sparsemi. Þessir flokkar hafa bókstaflega prjedikað það ár eftir ár og áratug eftir áratug að þess yrði að gæta í lengstu lög að koma í veg fyrir hóflega eigna- söfnun einstaklinga. Það er í sam ræmi við þessa stefnu þeirra, sem löggjafarsamkoman hefur staðið nieð skattasvipuna á lofti yfir höfðum fólksins, ekki aðeins þeirra, sem háar tekjur hafa, heldur einnig hinna, sem hafa miðlungs tekjur eða jafnvel lægri. > ★ Hver einasti maður, sem eitt- hvað þekkir til í íslenskum stjórnmálum veit að þetta er satt og rjett. Þannig hefur afstaða þessara flokka verið til skatta- mála. Þeir hafa í stuttu máli sagt verið í stöðugu stríði við heil brigða efnahagsstarfsemi í land- inu. Það er eftirtektarvert að það er vegna þess að Fram- sóknarflokkurinn hefur mjög oft hallast að síefnu þessara eignaránsflokka, að skattalög- gjöfin er eins harðsvíruð og hún er í dag. Hinir svokölluðu vinstri flokkar hafa með öðr- um orðum staðið saman um að þyngja opinberar álögur á þjóðinni. í kjölfar þessarar ráðabreytni hafa siglt skattsvik og margvís- legt brask og laumuspil. Þess er heldur engan veginn að dyljast að skattalöggjöfin hefur beinlínis lamað sjálfsbjargarviðleitni fjölda manns. Hún hefur dregið úr áhuga þeirra fyrir að halda áfram að vinna og hafa hagnað af starfi sínu. Hefur það að sjálf- sögðu haft í för með sjer þjóð- fjelagslegt tap. ★ Afstaða Sjálfstæðisflokksins til skattamála er sú að af háum tekj- um beri að sjáífsögðu að greiða háa skatta. Þjóðfjelagið þarfnast mikilla tekna til þess að rísa und- ir margvíslegum framkvæmdum. En skattarnir mega þó ekki vera það háir að þeir kyrki athafna- lífið og lami efnahagsstarfsemi þjóðarinnar. — Einstaklingarnir verða að hafa hagnað af því að leggja sig fram um að treysta hag sinn og aðstóðu. Þjóðfjelagið get- ur því aðeins orðið sterkt að í því búi bjargálna einstaklingar. Gegn þessari stefnu Sj'álfstæð- ismanna hafa kommúnistar og kratar barist af alefli. Þeir hafa brugðið Sjálfstæðisflokknum um það að hann væri „flokkur hinna ríku“. Þess vegna væri hpnn mót- fallinn ránsstefnu þeirra í skatta- máiunum. ★ Ekkert er eðlilegra en að á þetta sje bent í sambandi við þá aukaniðurjöfnun, sem bæj- arsjórn Reykjavíkur hefur ný- lcga samþykit. Minnihluta- flokkarnir áfellast Sjálfstæðis- menn fyrir hana, Þessir sömu flokkar hafa í sambandi við hverja einustu fjárhagsáætlun fyrir bæinn flutt tillögur um stórfelld ný útgjöld, sem kostað hefðu nýjar álögur á bæjarbúa. Nú þegar hækkað kaupgjald og vaxandi dýrtíð skapar bænum nauðsyn á aukn um tekjum til þess að greiða iaunauppbæturnar og halda uppi verklegum framkvæmd- um þykjast skattkúgunarpost- ularnir allt í einu vera oiðnir að verndurum almennings. — Hvílík hræsni og yfirdreps- skapur!! Um sparnaðartillögur þessara flokka er það sama að segja. — Sjest það greinilegast á afstöðu kommúnista til endurskipulagn- ingar áhaldahússins á s.l. vetri. Þar var látin fara fram gagnger endurskoðun á rekstri þessarar bæjarstofnunar og verulegur sparnaður framkvæmdur. — En kommúnistar máttu ekki til þess hugsa að þarna yrði fækkað mönnum og reksturinn dreginn saman. Þeir æptu sig hása gegn því á bæjarstjórnarfundum. Nú er það ein af „sparnaðar- tillögum“ kommúnista að rekstur áhaldahússins verði endurskoð- aður!!! Sjá menn ekki þann skrípaleik, sem þarna er verið að leika? Reykvíkingar mega annars vera þess fullvissir að Sjálf- stæðismenn taka öllum raun- verulegum sparnaðartillögum af velvilja og skilningi. Þeir hafa jafnan lagt á það kapp að gæta fyllstu hagsýni og gætni í bæjarrekstrinum. Það munu þeir gera framvegis sem hingað til. HeiSarleg samkspni „GJALDEYRISÁSTANDIÐ fer batnandi nú í þessum mánuði og er gert ráð fyrir talsvert miklum útflutningi næstu mánuði, sem á ao geta staðið undir allri venju- legri eftirspurn um gjaldeyri. Stefna ríkisstjórnarinnar er ákveðin og eindregin sú, að við- halda því frjálsræði í versluninni sem nú hefur fengist og verður ekki hikað við að gera, hvaða ráðstafanir, sem nauðsynlegar eru til þess að ná því marki. Um afturhvarf til haftanna er ekki að iæða“. Þannig komst Björn Ólafsson viðskiptamálaráðherra m. a. að orði í útvarpsræðu þeirri, sem hann flutti á frídegi verslunar- manna. Er fyllsta ástæða til þess að fagna þessum ummælum og ltggja á þau áherslu. Algert versl unarfrelsi er takmark núverandi rikisstjórnar. En frjáls verslun þjðir samkeppni í verslun eins i.g ráðherrann einnig benti á. Hann lagði einnig áherslu á það, að vöruverð hefði að miklu leyti verið gefið frjálst í trausti þess að heiðarleg sam keppni tr.vggi almenningi hag' síæða verslun. Ef einhverjir brygðnst þessu trausti og mis- notuðu verslunarfrelsið til þess að fjefletta almenning gæti það hafl þær afleiðingar að leggja nýja verslunarfjötra á þjóðina. MARTIN LARSEN, sendikannari og blaðafulltrúi hjá danska séndi- ráðinu hjer í Reykjavík, er ný- lega farin hjeðan, ásamt fjöl- skyldu sinni, heim til Danmerkur. Rjett áður en hann fór hitti Mbl. hann að má!i og ræddi ýmislegt við hann um dvöl hans hjer heima. — Þegar jeg kom hingað árið 1946, segir Martin Larsen, var það ætlun mín að vera hjer að- eins 1 /2 ár sem sendikennari við háskólann. Danskur sendikennari hafði þá ekki verið hjer um 20 ára skeið. En niðurstaðan varð sú að jeg er búinn að vera hjer í hálft sjötta ár. TALAÐI ALLTAF ÍSLENSKU i — Kunnuð þjer nokkuð í ís- lensku þegar þjer komuð? | — Já, jeg hafði tekið próf í nor- rænum fræðum við Hafnarhá- ! skóla og þar að auki lært nútíma íslensku í einkatímum. Jeg byrj- aði svo strax að tala málið þegar jeg kom hingað. | — Hvenær hófuð þjer svo starf ið í sendiiá'ðinu? -- — Það var haustið 1947. Brun, sendiherra, rjeð mig þangað og hefi jeg unniö þar til 1. ágúst s.l. — Hvernig fjell yður stariið við Háskóla íslands? — Ágætlega. Jeg álít að Ká- skóli Islands sje nú þegar orðinn miðstöð norrærina fræða þó að hin fornu íslensku handrit sjeu ennþá í Danmörku. EÐLILEGT AÐ HANO- RITUNUM SJE SKILAO Það er að mínu áliti vel hægt að fást við fornbókmenntirnar sem listaverk án þess að nota bandritin alltaf um leið. En það er ekki hægt að vinna að útgáfu- starfsemi án þess að hafa aðgang að þeim. Þar sem Háskóli íslands er nú þegar orðinn miðstöð nor- rænna fræða tel jeg eðlilegt að handritin sjeu hjer á íslandi. Flutningur þeirra frá Dan- mörku er mjer alls ekkert til- finningamál. Mjer finnst hann vera eðlilegur. SAMBÚÐ ÍSLENDINGA OG DANA — Hvernig virðist yður sam- búð íslendinga og Dana vera um þessar mundir? — Af afstöðu Dana, sem yfir- þióðar hjer á íslandi leiddi það að þeir gátu varla verið hjer vin- sælir meðan sjálfstæðisbaráttan stóð yfir. Einstakir Danir voru að vísu vel látnir hjer og jeg hygg að íslendingar hafi kunnað að greina á milli dönsku þjóðarinn- ai sem yfirþjóðar og danskra manna sem einstaklinga. Þannig eru ýms dæmi þess að danskir kaupmenn hafi verið vinsælir og að heimili þeirra hafi jafnvel ver- ið menningarmiðstöðvar. Átti það t.d. við um ,,Húsið“ á Eyrar- bakka. Þar bjó danski kaup- maðurinn Nielsen ásamt sinni ís- lensku konu, við vinsældir og álit. Annars voru kaupmenn þeirra tíma, hverrar þjóðar sem þeir voru, yfirleitt ekki vinsælir. Á það má einnig benda að t.d. Jónas Hallgrímsson, sem var að- aiskáld hinnar íslensku frelsis- baráttu, var góður vinur danskra skálda og rithöfunda og fann einskonar griðastað í Sorö á Sjá- iandi. Þetta gerði ekki Jónas að dönskum íslendingi. Jeg álít að dvöl íslenskra náms- manna í Danmörku og danskra á íslandi eigi nú og í íramtíðinní ríkan þátt í að efla vináttu og skilning milli þessara þjóða á högum hvor annarar. AUÐVELT AÐ UMGANGAST ÍSLENDINGA — Þjer hafið ferðast víða um ísland? — Já. Og jeg hefi haft að því mikla ánægju. Lífið hjer er svo frjálsmannlegt og það er svo auð- velt að umgangast íslendinga, ekki hvað síst á ferðalögum. Að n:örgu leyti finnst mjer auðveld- ara að umgangast þá en landa Samial við Harfin Larsen, sendikennara. Martin Larsen. Iáta sjer smámuninn í Ijettu ri'imi li'Tcria T’eir taka öllu með +ó eí þeir hafa einu sinni ákveðið a eiga goða daga. Við Darúr verðum oft súrir á svip yfir óstundvísi og skórti á skipulagi. En það verða íslendingar aldrei. Mjer finnst skakkt að segja að ísleod- ingar sjeu yfirleitt þunglyndir. Mjer finnst þeir vera Ijettlyndari en við Danir. Það getur að vísu haft bæði kosti og galla. Frá sjónarmiði þjóðfjelagsins getur bjartsýní íslendinga stundum ver ið bættuleg vegna þess að stund visi og nákvæmni er oft nauðsyn- 'eg. Það getur þess vegna vel verið að hið íslenska þjóðfjelag verði aldrei eins íast mótað og Yióofjelög aanara norræna bjóða. En jeg held að það verðí rdrei leiðinlegt að lifa hjer. Og mjer er næst að balcla a|5 útlend- ngur, sem hjer hefur áit heima muni sakna margs þess sem hann efur qskað norður og niður meðan hann var hjer. Þannig fórust Martin Larsen oi'8. Iiánn er nú kominn heixn Ul Danmerkur, en þar tckur hann við starfi við rneir itc skóla í Kaui» mannahöfn. Kvaðsí hann hafá nægan tima til þess að halda þar áfram-að iðka r.orræn. fræði. Martin Larsen hefur náð 6- venjulegri leikni op þekkingu á islenskri tungu eins og greini- Iaga köm í Ijós er hann flutti útvarpsf.v yirlestra hjer heima fyrir skömmu. Áliugi iians á ís- lenskum fræðum er mikill og einlægur. Fylgja honum hjeðan óslcir um gengi og velfarnað í staríi hans. S. Bj. Forn peningur LONDON — Sex ára gamall diengur Joseph Werner gióf ný- lega upp silíurpening sem gefinn var út árið 1783. Velvakandi skrifar: ÚR DAGLEGA LÍFIMU mína heima 'fyrir. íslendingar Undir forsæti Ingólfs Arnarsonar í BLÍÐUNNI í fyrradag voru nokkrir öldungar komnir saman á Arnarhóli. Þeir sátu þarna á steinbekknum fyrir sunnan hann Ingólf Arnarson og spjölluðu. Raunar var það aðallega einn, sem hafði orðið, maður með harð- kúluhatt og tóbakstauma niður í munn. Hann talaði lágri, tilbreyt- ingarlausri röddu. Auðheyrt var, sð hjer sat ekki kjaftaskúmur á rökstólum, heldur hljedrægur maður, sem vissi hvað hann söng. Bók, sem vantaði upphaf o" endi OG SEM mig ber þarna að, segir hann frá því, að fyrr á árum hafi hann lent í að hreinsa til hjá ein- hverri konu, liklega heldri konu, og hann átti að brenna draslinu, sem til einskis þótti nýtt. „Allt í einu vaið jeg var við bókar- skræðu, svo sem þetta þykka“, og hann gefur til kynna, að þetta hafi ekki verið nein smáræðis bók. „Það vantaði bæði framan við hana og aftan. Jeg spyr kon- una, hvað jeg eigi að gera við þetta rifrildi. og hún vildi láta það fara sömu leið, í eldinn. Þá spurði jeg hana, hvort jeg mætti ekki heldur eiga bókina og var það mál auðsótt. Slitur, sem komu að noium EOKIN var eins og nýkomin úr prentsmiðjunni að öðru leyti en þessu, að það vantaði í hana framan við og aftan við. Daginn eítir fór jeg með hana og sýndi Jóni Þorkelssyni, bókaveiði. — Hann spurði mig, hvort jeg vildi ekki gefa sjer hana eða selja, jeg man ekki nú hvort var. Jeg gaf honum bókina, sem reyndist vera fyrsta útg,áfa Vídalínspostillu, ef jeg man rjett. Jón var eins og menn vita vakinn og sofinn í ao viða að sjer gömlum bókum og bókaræksnum. Löngu seinna frjetti jeg að hann hefði komist yfir ritýur úr Vídalír.sposlillu ein- hværs staðar norður í landi. Með' því að leggja nú þessi tvö brot saman fjekk hann heilt og ó- skemmt eintak af bókinni“. Lengi von á einum NÚ RUMDI í hinum körlunum. Einhver kom með athugasemd um blað það úr Heiðarvígasögu, sem íyrir skömmu fannst í Lands bókasafninu, fannst á að það þóttl honum merkilegur fundur. Öðr- um fannst minna til þess koma og ekki varða nema fáa menn. Því var skotið að sögumanní, að af sögu sinni um Jón Þorkels- son og guðsorðabókina mætti hann sjá, að lengi væri von þeirr- ar bókar, sem hann sjálfur leit- aði nú að og heíði lengi verið á hnotskóg eftir. Ekki vissi jeg, hver hún var þessi bók. Hirðuleysi SÖGUMAÐUR kvaðst nú alveg' vonlaus um þá bók. Heiði hanr» ritað mörgum mönnum í öllurm landsfjórðungum brjef og meira Sð segja lagt frímerki með, svo að þeir gæti a.m.k. svarað um hæl að kostnaðarlausu. Enginn hefðí þó enn virt sig svars. Þær eru margar sögurnar urr» hirðuleysi íslendinga um að svara brjefum. Sinnuleysi þeirrá i þeim efnum er oft mjög baga- legt, auk þess, sem þar er um tví- mælalausa ókurteisi að ræða. Vökum yíir gömlum bókum og blöðum GAMLI þulurinn á Arnarhóli var að rumska við okkur. Enn eiga rnargir í fórum sínum gamalt „drasl“, sem lítt hefur verið kanr» að eða ekki, en þar gætu legið slitur, sem ekki eru alls ómerk. Og margt það, sem lítill fengur þótti að fyrir 20 til -30 árum get- ur nú hafa aukist að gildi. Það á að vera metnaðarmál þessarar bókaþjóðar, að ekkert fari íram- ar í suginn. Við höfum þegar |sjeð á bak of mörgum letur- staf í eld og skóbætur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.