Morgunblaðið - 18.09.1951, Page 14
r 14 —vs—
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 18. sept. 1951 ^
' Framhaldssagan 66
iiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiimin
STÚLKflN OG DAUBINN
™,.,« Skáldsaga eftir Quentin Patrick
ar. Jeg vildi ekki sjá Steve í lög
reglubílnum.
Jeg sá hvar Trant kom niður
tröppurnar á Pigot Hall. Hann
gekk hratt að lögreglubílnum og
Siakk höfðinu inn um bílglugg-
hnn. Svo kom Jordan úr bílnum
og þeir gengu saman upp að skrif
stofubyggingunni.
Það var barið hljóðlega að dyr
um og Elaine kom inn. Hún var
komin í hversdagsfötin aftur, föl
og áhyggjufull á svipinn. Hún
kom til mín og lagði höndina á
Öxl mína.
: „Jeg varð að segja þeim það.
Það var hann sem stakk uppá
því að jeg færi upp á svalirnar
þar sem Ijósið var og snjeri bak-
xnu að fólkinu niðri. Mjer fannst
Þetta bara vera leikur. Mjer datt
ekki í hug .... Ef til vill var
ekki rjett af mjer að segja það,
en það var hann sem myrti
ílormu..“
„Auðvitað áttir þú að segja
þeim það“ sagði jeg.
„En jeg skil hve þungbært það
er fyrir þig, Lee. Þú sem varst
svo ástfangin af honum".
„Það er ekki verra fyrir mig
en þig“.
Jeg leit aftur út um gluggann.
Trant og Jordan komu út aftur
og gengu að lögreglubílnum.
„Lee“, sagði Elaine vandræða-
lcga. „Jeg mætti Trant í tröppun-
\xm og hann ljet mig fá þetta
brjef. Hann bað mig að fá þjer
það“.
Hún tók umslag upp úr tösku
sinni og rjetti mjer það. Jeg leit
á það. Nafn mitt var skrifað
með ritvjel ú umslagið.
Jeg ætlaði einmitt að opna það
þegar Elaine rak upp hljóð.
„Lee. Sjáðu .... Þeir eru farn
ir að slást .. eða hvað er þetta“. ‘
Það var. ekki hægt að sjá það
greinilega fyrir tránum, en jeg
sá margt fólk á hreifingu við lög-
rcglubílinn. Jeg sá að bílhurðin
opnaðist og óeinkennisklæddur
lögregluþjónn datt aftur á bak.!
Jeg heyrði hróp og köll og skoti
var hleypt af. Annar lögreglu-
þjónn hljóp frá bílnum.
Og svo kom jeg auga á þann
þriðja sem hljóp sem fætur tog-
uðu í áttina að bíl Steve. Jeg
heyrði að bíldyrnar opnuðust og
þeim var skellt aftur. Aftur
heyrðust viðvörunarhróp og bíll
inn rann af stað.
„Leej Hann kemst undan“,
hrópaði Elaine.
Jeg sá að bíll Steve kom ak-
andi á fleygifeið og beygði fram
hjá lögregluþjónunum. Jordan
gerði árangurslausa tilraun til að
stöðva bílinn en hraðinn á hon-
um jókst óðum. Trant greip í
handlegginn á honum og dró
fcann til hliðar u mleið og bíllinn
þau framhjá.
Það var eins og bíllinn æki
stjórnlaust. Hann fór ekki í átt-
Ina að hliðinu heldur að leikfimis
íúsinu. Þetta var brjálæðislegt.
Ailt í einu var honum beygt
út af veginum og hann þaut með
4fsahraða yfir grasflötina. Jeg
4á stórt trje beint fyrir íraman
íann, Jeg stirnaði af skelfingu.
it Geysilegt brak og brestir
kváðu við, brothljóð og náml-
þljóð um leið og bíllinn skall
a trjábolinn kastaðist upp í loftið
og kom svo niður á hliðina.
Jeg riðaði á fótunum og flutti
lig frá glugganum. Jeg hafði
jeð nóg. Jeg vissi að sá sem
tafði setið í þessum bíl, gat ekki
Jerið lifandi lehguf.
Jeg ljet fallast niður á rúm-
'jbríkina, allt af skelfingu lostin til
’að geta hugsað. Elaine settist við
hliðina á mjer. Góða stund horfð
um við þegjandi ^hvor á aðra.
Loks rauf Elaine þögnina.
„Það var sjálfsagt best þannig,
Lee. Þú verður að reyna að sk'ilja
I.jö. Nú verða engar yfirheyrslur.
’.ngin rjettarhóld og engar í'rá*
agnir í blöðunu.;. ''
„Já‘, sagði jeg. „Það er 1
dagt bést.æn þu. - ivðui-.aó
gefa. Mig langar til að .... mig
langar til að biðja þig að fara.“
„Já, auðvitað skal jeg fara“.
Hún beygði sig niður og kyssti
á vanga minn. Svo læddist hún
út,
Jeg sat hreyfingarlaus lengi
eftir að hún var farin. Jeg heyr‘ö;
mannamál að utan. Svo heyrði
jeg að bíl var ekið af stað. En
jeg leit ekki út um gluggann.
Smátt og smátt kom jeg aftur
til sjálfrar mín. Jeg tók eftir þvi
í.ð jeg hjelt ennþá á umslaginu
.... umslaginu sem Elaine hafði
fengið mjer frá Trant. Jeg reif
það upp. Það voru tvö brjef
innan í því. Jeg opnaði það sem
skrifað var utan á með rithönd
Trant.
„Kæra Lee,
Jeg hefði kannske átt að segja
yður það sjálfur, en jeg hjelt að
betra væri fyrir yður að fá að
vita það á þennan hátt. Þjer haf
ið lesið eða heyrt innihaldið af
öllum skýrslum sem snerta þetta
mál nema eitt. Jeg legg hjer msð
afrit af því. Bútarnir háfa núna
verið settir saman á lögreglustöð
inni. Missið ekki hugrekkið Lee.
T.“
Mjer fannst hjarta mitt herp-
ast saman þegar jeg bretti sund-
ur brjefið og las það sem þar.
stóð. Það var vjelritað aírit af
brjefi.
„Afrit af brjefi frá Grace
Hough til bróður hennar skrifað
sama kvöldið og hún fyrirfór
sjer“.
„Kæri Jerry.
„Fyrst verður þú að lofa rnjer
að eyðileggja þetta brjef strax
og þú hefur lesið það. Ef þú getur
ekki gert það sjálfur á sjúkra-
húsinu, þá verður þú að biðja
Lee eða einhvern annan að gera
það fyrir þig. Jeg veit að jeg á
ekki að skrifa það, en jeg get
ekki gert það sem jeg hef ákveð-
ið að gera, ef jeg fæ eklci að
kveðja þig fyrst.
Jerry, þú mátt ekki verða sorg
bitinn þegar þú hefur lesið þetta
brjef. í kvöld hef jeg fengið að
vita nokkuð sem gerir mjer
ómögulegt að lifa lífinu lengur.
Jeg ætla að fyrirfara mjer. Jeg
veit að það hljómar hræðilega, I
en jeg á einskis annars kost. Það j
væri heimskulegt af mjer að
reyna að telja mjer trú um að
jeg geti nokkurn tímann fengið
það sem jeg vill í þessu lífi.
Engum þykir vænt um mig. Jeg
held að flestir hati mig. Allir
hafa verið mjer vondir. Lifið
hefur verið mjer óbærilégt. Þú
ert sá eini sem mjer þykir vænt
um .... þú og Lee. En þú getur
ekki alltaf verið bundinn mjer.
Jeg vil ekki vera þjer byrði, því
rnjer þykir svo vænt um þig og
jeg vil að þú verðir hamingju-
samur.
Kæri Jerry, enginn fær að vita
að jeg hef fyrirfarið mjer. Jeg
hef komið öllu þannig fyrir. Jeg
held að það verði ekkert hneyksli
eins og þegar pabbi framdi sjálfs
morð. En eitt hef jeg gert sem þú
átt kannske eftir að hata mig
fyrir. Þú verður að muna að jeg
gerði það í bestu meiningu. Jeg
veit að þú gafst Normu stúdents
merkið þitt í dag. Jeg get ekki
afborið umhugsunina um það að
þú sjert trúlofaður henni. Jeg
skil hve mikil áhrif hún hefur
á þig núna. Og jeg hef sagt þjer
það áður, að ef þú færð pening-
ana mína, þá losnar þú aldrei úr
klóm hennar. Þess vegna hef jeg
skrifað erfðaskrá og arfleitt Lee
að öllu. Hún elskar þig. Hún er
þúsundfallt meira virði en
Norma. Það gleddi mig óumræð-
anlega ef jeg gæti treyst því að
þú ættir eftir að giftast henni.
Þú þarft á einhverjum að halda
sem er sterkur og góður ....
alveg eins og jeg þurfti á því að
halda. Það er svo margt sem við
verðum að berjast gegn. Við höf-
um fengið svo marga slæma eig-
inleika að erfðum. Jeg held að
jeg hafi vitað fyrir að þetta átti
eftir að koma fyrir mig .... jeg
hef vitað það allt frá því um
kvöldið þegar við frjettum
hvernig hafði farið fyrir pabba.
Vertu sæll, kæri Jerry.
Grace.“
0 9 «9
EILISH ELECTRIC RITEilP
ÞVOTTAVJELARIilAR
ARNAlíESBOff
SIMONARNIR SJÖ
Gömul rússnesk þjóðsaga
Sjóménnirnir hneigðu sig og hurfu á brott, en kóngurinn sat
eftir í gullna stólnum sínum við sjávarströndina og hugsaði. En
hugsanir hans voru eins og flækja af svörtu bandi. Hann gat aldrei
komist til botns í þeim.
Douda var dapur, en svo hugsaði hann: Ef jeg fer á veiðar og
skemti mjer, þá ætti það að geta lyft mjer svolítið upp. Það þýðir
ekki að liggja hjer í sorg og með kveinstöfum. Ef mjer hlær aftur
skap í góðum leik, getur verið að mjer hugsist. eitthvað ráð til
þess að ná fundum þessarar fögru kóngsdóttur.
Svo sagt, svo gert. Kóngur ljet söðla reiðhest sinn og hann kall-
aði hirðina saman og veiðimennina. Þeir klæddu sig allir í reið-
buxur og svo var þeyst af stað út í skógana, undir lúðraþyt og
glaðværum hlátri.
Þeir riðu yfir sljettur og gegnum dimma skóga, upp hæðir og
niður dali og leituðu að grágæsum og álftum, að skógarbjörnum
og rauðrefum. En allt í einu birtist fyrir framan þá gróðursæl
bújörð, niðri í svolítilli kvos milli fjalla. Þar liðaðist gullið, full-
þroska hveitið á akrinum, dásamlega þroskað og þrungið af lífs-
magni.
Kóngurinn nam staðar og horfði á akurinn með augijósri hrifn-
ingu.
— Þetta er óvenju gott hveiti, sagði hann. — Jeg get næstum
því sjeð fyrir mjer manninn, sem plægði þennan akur. Hann hlýt-
ur að vera mikill verkmaður. Ef allir væru svo natnir við að rækta
akra sína, þá væri svo mikið korn í ríki mínu, og brauðið svo
mikið að fólkið gæti ekki klárað það, þó það gerði ekkert annað
cn að jeta.
Og kóngurinn skipaði svo fyrir að finna skyldi m'anninn, sem
hafði plægt þennan akur. Riddararnir riðu a brott til að fram-
fylgja skipun konungs og hltlu brátt .7 unga ni'erui, i se;m sátu
ulldu' m :
eru komnar til afgreiðslu {
Allir varahlutir einnig fyrirliggjandi. ? ;
€» K II€41F
Þeir, sem hafa pantað hjá öss kerrur, eru beðnir að
vitja þeirra sem fyrst, annars seldar öðrum.
VARÐAN hf.
Laugaveg 60.
Varahlufir
Við hofum loksins fengið gjaldeyris- og innflutn-
ingsleyfi fyrir varahlutum í Skilsaw og Millers
Falls rafmagnsverkfæri.
Þá, sem vantar varahluti i ofangreind rafmagns-
verkfæri eru beðnir að láta okkur vita fyrir
næstu helgi.
3
1
verólunin
ynfa
Sími 4160.
- zs m
3
3
3
H
i
H
*
E1 eiisuve r n dai námskeið
Ileilsuverndarnámskeið mun hefjast að nýju í október.
Kennt verður: heimaæfingar, öndunaræfingar, hvíldar-
æfingar, húðstrokur, fótæfingar við ilsigi, fótnudd, og
leiðbeiningar um afmcgrun, ahnenna snyrtingu og
heilsuvernd. — Upplýsingar og ir.r- itun á Egilsgötu 22,
kl. 7—9 e. h. n. :stu daga.
Vignir Andrjcsson, íþróttakennarl.
,XM IM.t fi|J VMMJJJJ1 ■ ■•■■■■■ ■■■<!■[■ ■■fHMiuumim ■■■•'■■ ■ ■ •_§
* s£**&*t* rerz****. < í