Morgunblaðið - 07.12.1951, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 07.12.1951, Blaðsíða 12
Veðiarúflaf í dag: Lcttir til með norSaustím átt.' 281. tbl. — Föstudagur 7. desember 1951. Mú undirbýr sparnaðartíllögur Fjárhagsásflun Reykjavíhur rædd á fimmiudag Á BÆJARSTJÓRNARFUNDI í gær upplýsti borgarstjóri, að fjár- hagsáætlun Reykjavíkurbæjar yrði lögð fyrir bæjarstjórn á fundi, sem haldinn verður næstkomandi fimmtudag. Síðari umræða verð- ur fimmtudaginn 27. desember. ítarleg greinargerð fylgir að þessu sinni hverjum lið fjárhagsáætlunarinnar. jt- * ; ilil SPARNAÐARNEFNÐ í sambandi við undirbúning fjárhagsáætlunarinnar hefur borgarstjóri falið þriggja manna nefnd að semja greinargerð og gera tillögur um sparnað í rekstri bæjarins og bæjarstofnana. í nefndinni eiga sæti þeir Björn Björnsson, hagfræðingur Reykja- víkurbæjar, Guttormur Eerlends- son, forstöðumaður endurskoðun- arskrifstofunnar og Guðmundur Vignir Jósefsson, skrifstofustjóri bæjarverkfræðings. Allir þessir menn eru þaulkunnugir rekstri bæjarins og hafa góða aðstöðu til að gera tillögur í þessu efni. Þeir Björn Björnsson og Gutt- ormur Erlendsson störfuðu fyrir 3 árum að athugun á sparnaði í rekstri bæjarins og gerðu ýmsar gagnlegar tillögur, sem notaðar hafa verið. Taka þeir nú upp þráðinn þar sem frá var horfið ásamt Guðmundi. Kvaðst borgarstjóri hafa borið ráðstöfun þessa undir félags- málaráðuneytið, sem taldi hana mjög heppilega og í góðu sam- ræmi við tilgang bréfs þess er sent var bæjarstjórnum landsins varðandi aukinn sparnað. BREYTT VÍIÍIIORF Þau tíðindi gerðust á fundin- um að Þórður Björnsson, sem mestan úlfaþyt gerði út af bréfi ráðuneytisins fyrir mánuði síð- an, fann ástæðu til að lýsa ánægju sinni yfir röggsamlegum athöfnum borgarstjóra í sparnað- armálunum og minntist nú ekki á þá „hirtingu", sem hann taldi þá, að bærinn hefði fengið með bréfi ráðuneytisins. Á skammri stund skipast veður í lofti. FORSEIiNN ER FOUSETI íslands er nú á heimleið. — Tekur hann sér far með Gullfossi frá Bret- landi. Þar hefur forsetinn dvalist um nokkra hríð, en ' sem kunnugt er gekk hann þar undir uppskurð er tókst vel. Gullfoss kemur hingað til lands á mánudaginn. bágstöddum STJÓRN Rauða krossins hefur ákveðið að efna til fjársöfnunar fyrir hið nauðstadda fólk á flóða- svæðunum í Pódalnum á Norður- Italíu, en giskað er á, að um 200 þúsund manns hafi misst heimili sín og eigur í flóðunum. Stjórnin skýrði blaðamönnum frá þessu í gær. Gat stjómin þess, að hún hefði þegar leitað til ríkis- stjómarinnar um stuðning við söfnunina, svo og til bæjarins. Hefði málaleitaninni verið vel tek- ið. Eauði krossinn mun Ieita til annarra bæjarfélaga úti um land. Fjársöfnunin hefst í dag og mun ljúka eftir 14 daga. — Á bls. 2 er birt ávarp frá Rauða kross- inum til almennings vegna söfn- unarinnar. STORÞJOFNAÐUR VAR tm FRAMIIMIM í GÆR ÖVENJU djarflegur peningaþjófnaður var framinn hér í bænum í gærdag. Meðan húsmóðirin brá sér úr stofu sinni í annað herbergi, læddist þjófur inn í stofuna og stal þar 2000 krónum íslenzkum og 2000 kr. dönskum. Þetta gerðist í Hlíðarhverfi í®------- gærdag um klukkan fimm. Pen-1 ingarnir v.oru. geymdir í ólæstum peningakassa og var hann geymd- ur í skáp sem er í stofunni. VAR A NÆSTU HÆÐ Húsmóðirin átti erindi upp á þu rrkloft og lokaði hún eklci hurð- inni að íbúð sinni á meðan. — Er hún var þar uppi, heyrði hún umgahg niðri og kaliaði nafn þess, er hún hélt þar vera. ,— Sá, sem var- á ferð svaraði ekki og hugs- aði konan ekki frekar út í það. PENINGAR LÁGU Á GÓLFINU Er hún kom niður til sín, stund- arkorni síðar, sá hún að framan við skápinn, sem peningakassinn var í, lágu peningar. — Við at- hugun kom í ljós, að allir þeir peningar, sem í kassanum voru, höfðu horfið, 2000 kr. íslenzkar og annað eins í dönskum pening- um. Isiendingar í Osló minnast 1. desember SVO' sem venia er til gekkst Islend- ingafélagið í Osló fyrir fagnaði 1. desember Hinn nýkjörni formaður félagsins, Albert Sigurðsson, magister, stjórn- aði hófinu og flutti ávarp, en Ing- ólfur Guðmundsson, stud. theol., frá Laugarvatni, flutti ræðu. Þá las og Sigurður Blöndal, stud. agr., upp ’kvæði eftir Tómas Guðmundsson og Guðmund Böðvarsson. Skeyti barst frá Bjarna Ásgeirs- syni, sendiherra, sem um þessar mundir var í Varsjá. Hófið sóttu um sjötiu manns, og fór það hið be/.ta fram. Þjóðháííðardagyr Finna í GÆRDAG, á þjóðhátíðardegi PARÍS. — Nýlega tilkynntu Finna, hafði ræðismaður þeirra Egyptar, að þeir hefðu fest kaup hér á landi, Eiríkur Leifsson mót- á vopnabirgðum í Sviss. Bretar, I töku gesta á heimili sínu. Um Bandaríkjamenn og Svíar höfðu kvöldið efr.di Finnlandsvinafélag- áður neitað að selja Egyptumlið „Suorni“ til kvöldvöku í tilefni þergögn. I dagsins. ENGIN jólatré verða flutt til landsins i ár» og þeim gmn þegat* eru á skipsfjöl komin, mun að öllum líkindum verða sökkt I sjóinn. — Er þetta bann sett á Innflutning trjánna vegna gin- og klaufa- veikishættunnar, sem af innflutningi þeirra kynni að staía og þar eð hugsanlegar sóttvarnir eru af hinum fróðustu mösmum ekki taldar nægilega öruggar. Bannið nær ekki aSeins til Narðurland- anna, heldur og allra Evrópulanda. Hafþár Guðmunds- son vor gerð í París ^ Með Gullíossi, se«v kom til Leith í gær, var aliwúkið af trjám, sem keypt höfðu verið S Damnörku. Þá átti DrottningÍB að taka þar jólatré. Loks var von á Osló-trénu meS Reykjafossi. ÚT er komið ljóðaúrval eftir Leif Leirs (Loft Guðmundsson, blaðamann), er hann nefnir „Óöldin okkar.“ Loftur er þegar orðinn svo kunnur fyrir gamanþætti sína og skemmtiljóð, að óþarfi er að kynna hann. Sum ljó'ðin í þessari bók hafa áður birzt í „Brotnum pennum“, en einnig er þarna fjöldi kvæða, sem nú eru prentuð í fyrsta sinn. Bókin er prýdd teikningum eftir Halldór Pétursson. ÁLIT yfir.oýsalær:nanna Sigurður HMðar yfirdýraiækii- ir, hafði samráð við yfirdýra- HAFÞÓR Guðmundsson, lögfræðing læknana í Danmörku og Norogi,, ur, varði 1. desember siðastliðinn doktorsritgerð í þjóðréttarfræði við Sorbonne-háskólann í Paris. Ritgerð Flafþórs fjallaði um sjálf- stæði Islands. Hafþór Lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1941 og fjórum árum siðar liiðfravðiprófi við Iláskóla Islandis og hlaut þar mjög háa einkunn.______________ PARlS: — Brezka skáldið T.S. Elliot hefur verið sæmdur heiðurs- doktorsnafnWt við Parísarháskólann. Bæjarstjórn ræðir leyfisveitinp Kommúnistar andvígir nýrri bifreiasSið NOKKRAR umræður urðu í bæjarstjórn í gær um leyfi til rekstrar nýrrar bifreiðastöðvar á lendunni Hafnarstræti 21. Voru kommún- istar mjög andvígir því, að leyfið yrði veitt og þyrlaði málpípa þeirra upp firrum og rökleysum tli að sfugga við málinu, en fékk ekki að gert. MÁL KOMMÚNISTA Kommúnistar vildu halda því frarri, að slík leyfisveiting mundi hafa alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir bifreiðastjórastétt- ina vegna atvinnuástandsins og virtust hallast að því, að einokun ætti að ríkja í þessum atvinnu- vegi undir forystu samvinnufé- lagsins Hreyfils. Skírskotuðu þeir til samnings milli bifreiða- stöðvanna og Bifreiðastjórafé- lagsins Hreyfils um takmörkun bifreiðafjölda við stöðvarnar. Guðmundur Vigfússon lýsti því yfir að aðstandendur hinnar nýju stöðvar væru sérhyggju- menn, sem þættust geta haft það skárra en félagar þeirra. Fannst honum sjálfbjargarviðleitnin hin mesta goðgá. ENGIN FJÖLGUN Borgarstjóri benti á að rétta leiðin til þess að hindra offjölgun í stétt atvinnubifreiðastjóra væri ekki sú, að veita einhverjum að- ilum einokunaraðstöðu. Það væri óeðlilegt að neyða menn til á- framhaldandi þátttöku í þeim fé- lagsskap þar sem þeir yndu ekki hag sínum, en bifreiðastjórar þeir, sem starfa munu á hinni nýju stöð hafa einmitt verið starfandi við Hreyfil. Hér væri því ekki um neina fjölgun að ræða, en hins vegar yrðu Hreyfilsmenn að ráða það við sig sjálfir, hvort þeir fjölguðu aftur bifreiðastjórum við stöðina og stofnuðu atvinnumálum stétt- arinnar í hættu. NEFND STARFAR Borgarstjóri taldi æskilegt, að lagaheimild fengizt til þess, að viðkomandi ráðuneyti eða bæjar- yfirvöld mættu ákveða hámarks- tölu leigubifreiða. Fyrir tveim árum starfaði nefnd að athugun á þessum mál- um og aflaði hún ýmissa gagna því viðkomandi. Nefnd þessi' hef- ur nú tekið til starfa aftur, upp- lýsti borgarstjóri, og skilar hún áliti á næstunni um leiðir til úr- bóta. Vinnu bætt við Lax- irvirkjynina þefta ár GRENJAÐARSTAÐ 4. des. — í gær lauk síðustu vinnu við Lax- árvirkjun á þessu ári. Nokkuð var þó eftir að steypa af því sem áformað var bæði af grunni stöðv arhúss og stíflunni, en sökum harðrar vetrarveðráttu undanfar- ið reyndist ekki unnt að halda verkinu áfram. Ætluðu starfs- menn virkjunarinnar heim í dag, en stórhríðarveður og samgöngu- erfiðleikar trufluðu þá áætiun. Bíða þeir bantandi veðurs. Kostnaður við Laxárvirkjun- ina er orðinn um 3.5 til 4 millj. en eins og kunnugt er hefur byggingarfélagið Stoð frá Reykja vík séð um alla framkvæmd við hina nýju virkjun. — H. er hann fjallaði um þetta mál. —• Sá norsM taldi það alrangt hjá ísl. yfirvöldum að leyfa innflutn- ing trjánna. Siíkt vaari að bjóða hættunni heim, jafnvel þó þam væru sótthremsuð. — Danski yf- irdýralæknirmn taldi sig ekki vilja ráðleggj a innflutnir.gj trjánna. Sigurður Hlíðar yfirdýralækn- ir var og Jæirrar skoðunar, að o< mikið væri í húfi, og því bært að stöðva innflutning á jólatrjám frá öllum Evrópulöndum. Ekki var vitað með vissu hvovt jólatrjánurss, sem Gullfoss flutti, hafði veríð skipað í land í Leith við komu skipsins þangað í gær, eða hvort þeim verði sökkt í sjó-* inn úti á reginhafi. ENGIN fSE, TRÉ FÁANI.EG Hákon Bjamason skógræktar- stjóri skýrði Mbl. svo frá í gær„ að Skógrækt ríkisins hefðí ekka nein tré íil sölu. Það væri til- gangslaust með öllu fyrir fólk að ætla sér að leita til skógræktar- innar í þfirri von að fá úrlausn. FIIRUGR13NAR SELDAR Hinsvegar, sagði Hákon skóg- ræktarstjóri, munum við hafa á boðstólum nókkuð af furugrein- um og nauíi sala þeirra hefjast um miðjan mánuðinn. íu stig hér, 14 á Akureyri í GÆRKVELDI var niu stiga frost í Reykjavík, en á Akureyri 14. Var hvergi eins mikið frost á landinu og þar. Veðurstofan taldi. sennilegt að frost myndi fara minnkandi er kæmi fram á nóttina, en þá myndi bregða til snjókomu og hvass- viðris hér um slóðir, en létta svo til í dag með norðaustan átt. Stjórniiiélanáimkeið Heimdaiiar STJÓRNMÁL AN ÁK SKEIÖ ííeimdaFlar heldur áfram í d;ig kl. 5.30. VerSa þá fluttar fram söguj’æðsirnar, sem ákvcðnar vorn á síðasta fundi. — Fjril- mennið stundvíslega. . j

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.