Morgunblaðið - 13.12.1951, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 13.12.1951, Qupperneq 8
MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 13. des. 1951 Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgCarm.) Lesbók: Árni Óla, sími 3045. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjóm, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 16.00 á mánuði, innanlands. í lausasölu 75 aura eintakið. 1 króna með Lesbók. Þegar Hermann Flade var dæmdur til dauða Verðbölguhættan vofir yfir þjoðunum SEGJA MÁ að öllum fregnum, hvaðanæva úr heiminum, beri saman um það, að ótti þjóðanna við hina vaxandi dýrtíð og verð- bólgu færist stöðugt í aukana. S. 1. tvö ár hefur verðlag yfir- leitt sífellt farið hækkandi. Hef- ur það bitnað á öllu athafnalífi og lífskjörum fólksins í fjölmörg- um löndum. Um ástæður þessarar þróunar þarf ekki að fjölyrða. Styrjald- aróttinn og það öryggisleysi, sem ofbeldisstefna kommúnista hef- ur leitt yfir þjóðirnar, er þar frumorsökin. Það er vegna ótt- ans við kommúnistiska árás, sem vestrænar þjóðir hafa orðið að leggja hart að sér um eflingu Varna sinna og herbúnaðar. Hið Stórfellda vígbúnaðarkapphlaup, sem nú á sér stað milli hins frjálsa heims og Sovét Rússlands og fylgiríkja þess, á ríkasta þátt- inn í hinu ört hækkandi verð- lagi, dýrtíð og verðbólgu. Þessi þróun verðlagsrnál- anna á heimsmarkaðinum hlýtur að bitna sérstaklega hart á okkur íslendingum af ýmsum ástæðum. í fyrsta lagi vegna þess að afurðir okkar hafa ekki hækkað að sama skapi í verði og hinar erlendu nauðsynjar. í öðru lagi vegna þess að við höfum fyrir skömmu neyðst til þess að lækka gengi íslenzkrar krónu tvívegis. Þessi breyting geng- isins var óhjákvæmileg til þess að leiðrétta það ósam- ræmi sem orðið var á milli hins skráða gengis og raun- verulegs gengis íslenzkrar krónu. Sú blekking, sem fólst í hinu rangskráða gengi bitn- aði svo harkalega á aðalút- flutningsframleiðslu þjóðar- innar að hún var gjörsamlega komin í þrot. En orsök vaxandi verðbólgu hér innanlands sprettur ekki ein- göngu af hækkun á hinu erlenda verðlagi. Við höfum látið freist- ast til þess að trúa því, að nokk- ur hluti þjóðarinnar gæti rétt hag sinn gagnvart utanaðkom- andi dýrtíð með því að láta kaup- gjaldið að verulegu leyti hækka í samræmi við verðlagið, án þess að aðstaða framleiðslunnar til að greiða það hafi batnað. Af þessum kuphækkunum leið- ir mjög aukin rekstrarkostnað allra atvinnutækja í landinu og stóraukin útgjöld ríkisins og bæjar- og sveitarfélaga. Utgjöld ríkisins á fjárlögum næsta árs munu að öllum líkindum verða 70—80 millj. kr. hærri en á fjár- lögum þessa árs. Bæjar- og sveitarfélög eiga af sömu ástæð- um við stórfellda efnahagserfið- leika að etja. Er varla sjáanlegt að mörg þeirra geti komið sam- an fjárhagsáætlunum sínum fyr- ir næsta ár. Af öllu þessu er auðsætt að verðbólguhættan vofir á ný yfir íslenzku þjóðinni. Dýrtíðarskrúf- an hefur verið samningsbundin milli atvinnuveitenda og verlca- lýðssamtakanna og milli ríkis og bæjar og starfsmanna hins opinbera. Mjög mikil hætta er á, svo ekki sé dýpra tekið árinni, að enginn kjarabót fljóti raun- verulega í kjölfar þessara ráð- stafana, enda þótt þeim sé ætl- að að rétta hlut launþeganna gagnvart hinni erlendu verð- hækkun. ! Þetta verður íslenzka þjóðin að gera sér ljóst. Hún þarf að vísu ekki að telja sér trú um, að verðbólguhættan sé vandamál hennar einnar um þessar mund- ir. Flestar þjóðir heimsins standa í svipuðum sporum. En vegna einhæfni íslenzks atvinnulífs er hættan meiri á því hér en víða annarsstaðar , að bjargræðisveg- ina beri á skömmurn tima upp á sker ef framleiðslukostnaður- inn heldur stöðugt áfram að vaxa og verðbólguhjólið að snúast. Sannleikurinn er sá, að það eina, sem bætt getur útlitið í efnahagsmálum okkar nú er raunveruleg aukning fram- leiðslunnar og hækkun á verð- lagi íslenzkra útflutningsaf- urða. Ef annað hvort þetta gerist ekki eru miklir erfið- leikar á næsta Ieiti. Varnir gegn þjófnaði. ÞJÓFNAÐARFARALDUR sá, sem gengið hefur yfir hér í Reykjavík og raunar víðar um land undanfarið, er svo alvarleg- ur að full ástæða er til þess að snúast hart til varnar gegn þess- um ófögnuði. Almenningur get- ur bókstaflega hvergi notið ör- yggis um muni sína og eignir fyrir lausungarlýð, sem gengur um rænandi og ruplandi. Það er ekki nóg með að þau verðmæti, sem samábyrgð borgaranna á að vernda, séu í hershöndum. Sjálf heimili einstaklinganna eru einn- ig orðinn vettvangur þjófa og ránsmanna, sem vaða hús úr húsi. Almenningur hlýtur að sjálf- sögðu að treysta verulega á vernd löggæzlumanna gegn því fólki, sem leggur þjófnað og gripdeildir í vana sinn. En hversu árvökur, sem lögreglan kann að vera, er henni ómögu- legt að hafa auga á hverjum fingri. Einstaklingarnir verða sjálfir að vera rækilega á verði gagnvart því. ,.Þeir verða að gæta fyllstu varkárni og hafa nákvæmt eftirlit með munum sínum, þeim verðmætum, sem á glámbekk liggja, og heimilum sínum. Opin hús og ólæstar íbúð- ir bjóða trantaralýðnum bein- línis heim. Þessvegna er fullkom- in varúð fólksins eitt af frum- skilyrðum þess að takast megi að hindra hann í skemmdarverk- um sínum. Um orsakir þessa óvenju- lega þjófnaðarfaraldurs skal ekki fjölyrt að sinni. Ýmis- legt bendir til þess að spillt og afvegaleidd siðferðisvitund unglinga sé meginorsök hans. Margir unglingar hafa ekki þolað hin auknu fjárráð, sem þcir hafa haft nokkur undan- farin ár. Nú þegar að þrengst hefur um þau, virðast nokkr- ir þeirra hverfa til þess óynd- isúrræðis, að grípa til þjófn- aða og lögbrota. Hér er um að ræða vandamál, sem full ástæða er til þess að gefa gaum. Ekki aðeins vegna per- sónulegs öryggis þess fólks, sem verður fyrir barði óreið- unnar, heldur einnig vegna óláns þeirra unglinga, sem lenda á slíkum glapstigum, ÁR ER NÚ síðan lögreglan í Dresden rakst á skólapiltinn Hermann Flade, þar sem hann var að láta áróðursrit gegn stjórn Austur-Þýskalands í póstkassa í úthverfi borgarinnar. Hermann var 19 ára. Hann særði einn lög- reglumanna með litlum vasa- hnífi og slapp, en þekktist nokkr um dögum seinna og var hand- tekinn. LEIKURINN UNDIRBÚINN Hér bar vel í veiði fyrir Fechn- er, dómsmálaráðherra. Hann var einmitt á hnotskóg eftir svona máli. Mennirnir í Kreml voru orðnir óánægðir vegna vaxandi neðanjarðarstarfsemi í Austur- Þýzkalandi og vildu, að eitthvað væri aðhafzt. Fechner, ráðherra, heimtaði að haldin yrðu réttar- höld, sem væru saga til næsta bæjar. Stórri danshöll var breytt í réttarsal til að sem flestir gætu fylgzt með. Ljóskastarar voru festir upp og gjallarhornum kom ið fyrir á götum úti. Um 50 tryggir flokkssnatar voru leigðir til að vera við réttarhöldin. Þeir áttu að sjá um þau hljóð og sköll, er æskileg þóttu. Tveir fylgispökustu alþýðu- dómendurnir fjölluðu um málið. Hermann Flade var sakaður um alvarleg brot á lögunum til verndar friðinum, en þyngstu viðurlög fyrir brot á þeim, eru dauðarefsing. Auk þess var hann kærður fyrir morðtilraun. Leik- urinn gat hafizt. FRELSIÐ DÝRMÆTARA EN HÖFUÐIÐ En Fechner, ráðherra, sá ekki, Ihvern mann Hermann hafði að ' geyma. Þar skjöplaðist honum. Þessi dökkhærði piltur hegðaði jsér ekki eins og vant var um I ákærða fyrir alþýðudómstóli. Hann svaraði spurningunum með öryggi og festu: „Ég skil svo frelsið, að það geri mönnum kleift að segja sannleikann. Ef lögin banna það eins og ykkar lög, þá verð ég að taka mér þann j Taubert, dómari, sem er kona, var kunn fyrir illkvitni sína og j harðskeytni við tugi réttar- • halda, er haldin voru í áróðurs- skyni. Hún spurði: „Er þér ljóst, að þú leikur þér að þínu eigin höfði með því að láta þetta út úr þér?“ Pilturinn brosti. „Veit ég vel. En mér er frelsið dýr- mætara en höfuð mitt.“ Áheyrendur stóðu á öndinni. Útvarpsmennirnir og þeir, sem fengust við gjallarhornin, flýttu sér að rjúfa sambandið, svo að ekkert heyrðist utan réttarsalar- ins. Það fór viðurkenningarklið- ur um salinn. Dómararnir og sak sóknarinn urðu hvumsa. HALLAÐI Á DÓMENDUR Harlich, yfirdómari, reyndi að fá Hermann til að játa, að hann ynni í einhverri leynihreyfingu. En pilturinn þverneitaði því. Hann kvaðst ekki þarfnast neins leynifélagsskapar. Hann hefði unnið upp á eigin spýtur. Hann hefði nú eftir 5 ár komizt að þeirri óyggjandi niðurstöðu, að frá kommúnismanum gæti ekk- ert gott komið. „Ég gerði ekki annað en það, sem venjulegur Þjóðverji ætti að gera og gæti gert.‘ Eftir því sem leið á réttarhöld- in virtist eins og dómararnir væri fyrir rétti en ekki ákærð- ur. Taubert, dómari, æpti: „En hvers vegna ertu okkur andvíg- ur?“ Og hann hélt áfram: „Þú getur þó ekki neitað því, að við vinnum stöðugt að bættum kjör- um fólksins." Þegar Hermann hikaði, bætti hún við: „Þú virð- ist ekkert hafa fram að færa.“ „Ég hefi raunar margt að gegja,“ sagði pilturinn stillt og prúðmannlega, og 1200 áheyr- endur réttarsalarins teygðu fram álkurnar til að nema hvert orð. Hann sagði frá reynslu sinni er hann vann í úrannámum Wis- mut-félagsins, sem Rússar stjórna í Marienberg. Hann sagði frá drukknun fjölda manns í einni gryfjunni, hvernig aðrir drápust unnvörpum vegna lé- legra öryggistækja. Hann sagði frá hinum hræði- legu þrælavinnuflokkum, hrylli- legum misþyrmingum, er menn sættu, ef Rússum þótti ekki nógu vel unnið og frá sinni eigin krom Hann rambaði á barmi heljar vegna þess að hann skorti alla hjúkrun. LEIGUSNOTUNUM FÉLLUST HENDUR Leigusnatarnir hefðu átt að hrópa „lygari“ og „spellvirki“, en þeir þögðu. Margir voru sjálf- ir námumenn og þekktu Wismut- félagið. En heyra mátti á mann- skapnum, að honum líkaði vel, þótt enginn þyrði að klappa. „Þetta eru nú umbæturnar, sem rússnesku frelsendurnir hafa fært okkur. Þeir stela ekki aðeins afurðum landsins, ekki einungis kúm og svínum, þeir cru líka sálnaþjófar." Yfirdómarinn reis úr sæti sínu og þaggaði niður í Hermanni. Sagði þetta ekki vera neinn stjórnmálafund. [DÆMDUR TIL BAUÐA Þegar rétti var frestað um há- degi, settust dómendur og sak- sóknari á ráðstefnu. Taubert krafðist, að Hermann yrði dæmd- 1 ur til dauða. Kviðdómandi and- mælti. Hermann hafði þó ekki annað gert en setja 200 flugrit í póstinn. Hann hafði ekki verið nærri því að kúla lögreglumann- inum. Vopnið var vasahnífur, svo lítill, að sár lögreglumannsins voru ekki annað en skrámur. En Taubert var ósveigjanleg. Eftir nokkrar klukkustundir gat Hermann lesið dóminn, sekur um landráð, sekur um morðtilraun, dauðadómur. Því hafði verið spáð, að mikil gremja mundi láta á sér kræla, ef Hermann yrði dæmdur til dauða. Og þær urðu raunir á. Fólkið var gripið bræði beggja vegna járhtjaldsins. Dómsmála- ráðherrann sá, að þessi leiksýn- ing hans hafði ekki haft sem bezt áhrif. Hann lét því æðri dómstól breyta líflátsdóminum £ 15 ára fangelsi. Mál Hermanns gleymist seint. Fólkið talar um það bæði í Vest- ur- og Austur-Þýzkalandi. Ný- lega fórust Austur-Þjóðverja orð á þessa leið: „Réttarhöldin sjálf setti okkur vitaskuld í uppnám. Mikið, að nokkur skyldi þora að segja annað eins fyrir alþýðu- dómstóli. En okkur var þó enn ^meira virði, að þessi vesalings 'piltur hefði upp á eigin spýtur I iMMIlMi&L Framh. á bk. 12 Velvokondi skrifar: tíM DAGLEGA LÍFINU Ekki ráð nema í tíma sé tekið SINN er siður í landi hverju datt mér í hug, þegar ég frétti, hvernig þær berjast fyrir hugðarmálum sínum, konurnar í Suður-Afriku. í stórum bæ þar, hefir bandalag bindindiskvenna komið á skyldufræðslu barna á aldrinum 3 til 5 ára að vísu ekki í landafræði né sögu, heldur um áhrif áfengis. Ekki ómerkt starf það. Hver samdi fyrstu sömbuna? UM SÖMU mundir efna okkar góðtemplarar til feikilegrar danslagakeppni. Það fer ekki milli mála, að þarna er mesta áhuga- og hitamál samtakanna um sinn. Menn eru brýndir lög- eggjan að taka þátt í keppninni og skírskotað til sams konar keppni s.l. vor. Árangurinn varð ekki heldur beygjulegur þá. Einn þátttakand- inn samdi fyrsta sambalagið allra íslendinga eða var það fyrsta kongalagið? Seinna varð þó ein- hver kurr vegna þessarar yfir- lýsingar, það þóttist nefnilega annar íslendingur hafa samið la samba áður en til keppninnar var efnt. Ekki vissi ég, hvernig þessum styr lauk. í tveimur heimsálfum GÁMAN væri að vita, hvor fylk ingin kemst lengra, kerling- arnar í Suður-Afríku, sem taka krakkana um leið og þau skreið- ast úr vöggunni, og teygja þá og hnoða eins og gert var við um- skiptinga að fornu, eða okkar bindindisfélög. Þeim kynnumst við helzt vegna danslagakeppni, spilakeppni og dansleika. Hvernig væri, að tekin yrði upo samvinna þeirra í Afríku og á fslandi? Færðir úr hverri spjör ÞAÐ þykir nú varla lengur í frá sögur færandi, þó að naenn séu berháttaðir og þvegnir hátt og lágt, þegar þeir koma úr sigl- ingu. Einnig hafurtaskinu er skellt í þrifabaðið, ásamt konum þeirra og börnum. Sem sagt, við kyngjum þessum fréttum ásamt með okkar daglegu brauði. Þetta er nauðsynleg böðun vegna þess sjúkdóms, sem ó- kenndur er hérlendis og gengur undir nafninu gin- og klaufa- veiki. Ekki er vafa bundið, að þrifabaðið er eins rækilegt og lög standa til. Flórgoðinn með gin- og klaufaveikina EN NÚ hefir nýtt vandamál skotið upp kolinum. Setjum nú svo, að innflytjendurnir hafi sjálfir tekið veikina. Ekkert þrifa bað fengi skolað hana af þeim. Þá væri tryggara að læknir liti upp í þá, að líkindum þó ekki dýralæknir. Það hefir reyndar komið á dag- inn, að menn geta tekið gin- og klaufaveiki. Úti á Fjóni fannst maður með hana. Þessi maður umgekkst kýrnar, því að hann var það, sem við köllum á illri dönsku og auðlærðri fjósameist- ari. Þess konar menn gengu hér einu sinni undir nafninu fjósa- menn. Helgi Hjörvar vill aftur á móti kalla þá flórgoða. Með því vinnst það tvennt, að hvorir tveggja fá rétting sinna mála, þeir, sem eru þau meinhorn að líta dönskuna illu auga og eins hinir, sem eru of fínir fyrir venjulega íslenzku.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.