Morgunblaðið - 13.12.1951, Síða 16
VsðurúHiÍ í dag:
Suiman 05 SA-átt. Víða stinn-
ingskaldi eða súld.
M -dagai
12 ,ív«
Stjðrnarandstaðan var rökþrota
í útvarpsumræðuiHim í gærkvöldi
r >
Asekaíilr hennar hrakfar
I ÚTVARPSUMEÆÐUNUM í gærkveldi voru staðhæfingar stjórn-
arandstæðinga hraktar hver af annari af ræðumönnum þeirra
flokka er styðja ríkisstjórnina, og var frammistaða stjómarand-
stæðsnga þeim aðeins til vansæmdar, og gerði þá aðeins bera að
því að standa algjörlega rökþrota fyrir hinum ábyrgðarlausu árás-
II m sínum á ríkisstjórnina. — Af hálfu Sjálfstæðisflokksins töluðu
Ólaíur Thors atvinnumálaráðherra og Jón Sigurðsson annar þing-
maður Skagfirðinga.
» ............. ...........
RÍKISSTJÓRNINNI HEFIR
TEKIZT AÐ BÆGJA FRÁ
ALMENNU ATVINNULEYSI
í hinni rökföstu ræðu sinni svar
aði Ólafur Thors atvinnumálaráð
herra, ádeilum stjórnarandstæð-
inga á störf ríkisstjórnarinnar.
Lauk hann ræðu sinni með því
að benda á, að það væri ekki auð-
leikið að stórauka útgjöld ríkis-
sjóðsins, en lækka þó jafnframt
tekjur hans svo um muni, eins og
stjórnarandstaðan vill.
Ollum væri fullkomlega ljóst
að þær sakargiftir á hendur rikis
stjórninni, að hún héldi verndar-
hendi sinni yfir okri eða óheiðar
legri fjársöfnun væru ekkert
nema staðlausir stafir. Kvaðst
ráðherrann treysta því, að sann-
gjarnir menn viðurkenni, að rík-
isstjórnin hafi sýnt áhuga og
atorku í baráttunni gegn því
almenna atvinnuleysi, sem yfir-
vofði og án alls efa hefði skollið
á, ef stjórninni hefði ekki tekizt
að bægja því frá með algjörri
stefnubreytingu og róttækum að-
gerðum á sviði efnahagsmála
þjóðarinnar.
Jón Sigurðsson annar þingmað-
hr Skagfirðinga, talaði næst á
eftir Ólafi Thors. Var ræða hans
hin snjallasta og mjög greinar-
góð.
Rakti hann hver nauðsyn þjóð
arbúskapnum væri á því að auka
og efla landbúnaðinn, sem mest
og bezt.
Verða ræður þessar birtar síðar
hér x biaðinu.
Af hálfu Framsóknarflokksins
töluðu ráðherrarnir Steingrímur
Steinþórsson og Eysteinn Jóns-
son, fyrir Alþýðuflokkinn þeir
Haraldur Guðmundsson og
Hannibal Valdimarsson og fyrir
kommúnista Ásmundur Sigurðs-
son.
Þjéfur var hand-
lekinn í gærdag
í FYRRINÓTT var framinn þjófn
aður í kjallaraíbúð inni í Klepps-
holti. — Þjófurinn var handtek-
inn í gær.
Þjófnum tókst að komast inn í
þvottahúsið í kjallaranum en það
an gat hann komist inn í stofu
íbúðarinnar þar niðri og í skáp,
þar tók hann 700 kr. í peningum
auk fimm ríkisskuldabréfa.
Fólkið sem býr í íbúðinni varð
vatt við umgang í íbúðinni en
þjófurinn varð fyrri til yið að
komast út úr húsinu. — í gær-
morgun handtók lögreglan hami.
Þetta er tvítugur maður og
hefur aldrei áður verið dæmdur
og með tilliti til þess verður nafn
hans ekki birt.
Vilja fðnaðarfoanka
FUNDUR í Iðnaðarmannafélag-
inu í Reykjavík, haldinn þriðju-
daginn 11. des. 1951, beinir þeirri
eindregnu ósk til Aiþingis, að það
afgreiði frumvarp til laga um
Iðnaðarbanka sem lcg frá þingi
því, er nú situr.
Tillaga um rannsókn
á slysum á sjó
samþykkf
í GÆR var samþykkt samhljóða
í sameinuðu þingi þingsályktunar
tillaga um rannsókn á slysum á
íslenzkum togurum og öðrum
veiðiskipum.
Allsherjarnefnd hafði haft til-
löguna til athugunar og gert á
henni nokkrar breytingar, og var
tillagan samþykkt með þeim
breytingum.
Er tillagan á þessa leið:
Alþingi ályktar að skora á ríkis
stjórnina að láta fram fara ýtar-
lega rannsókn á slysum þeim,
sem, sem orðið hafa á íslenzkum
togurum og öðrum veiðiskipum
frá ársbyrjun 1948 og hverjar 1
höfuðorsakir megi telja til slys- !
anna. j
Á grundvelli þessarar rann- |
sóknar og með hliðsjón af löggjöf
annarra þjóða um öryggisráðstaf
anir á skipum skal ríkisstjórnin
undirbúa og fá lögfest svo fljótt
sem verða má ákvæði, sem tryggi
svo sem auðið er öryggi skipverja
gegn slysum.
Dómurinn kveðlnn
npp í næslu viku
OSLÓA*;ÚTVARPIÐ skýrði
frá því í gær, að á mánu-
dag eða þriðjudag, væri að
vænta dóms í landheigismáli
Norðmanna og Breta, sem sótt
hefur verið og varið fyrir
Haagdómstólnum. — G.A.
Ný bók effir Þer-
sleln jésefsion
FYRIR skömrnu er komin út ný
bók eftir Þorstein Jósefsson
blaðamann. Ber hún titilinn Um
farna stigu.
í bók þessari segir frá ferðum
höfundar um þrjár heimsálfur.
Flestar þeirra hefur hann farið
s.l. 20 ár.
I ferðaþáttum þessum er víða
komið við, eins og að líkum læt-
ur. Mun höfundurinn vera einna
víðförlastur íslenzkra blaða-
manna. Margar myndir eru í bók
inni, enda er Þorsteinn Jósefsson
áreiðanlega meðal fremstu Ijós-
myndara hérlendis.
Eftir Þorstein hafa áður komið
út ferðabækur, sem orðið hafa
fjöliesnar og vinsælar.
Bókaútgáfa Pálma H. Jónsson-
ar á Akureyri gefur bókina út.
Prinsinn stal
MUNCHEN: — Þeir eru illa fjáðir
prinsamir í Mið-Evrópu. Nýlega var
einn dæmdur í 18 ménaða iarigelsi
fyrir að stela fatnaði fyrir 30 þús.
Þessi prins aí Hohenlohe kom land-
flótta frá Ungverjalandi til Austur-
rikis eftir strið. Seinna fluttist hann
til Bæjaralands.
Jén Þoileiísson opnar snálverkasýningu
í vinnusfoðu sinni
Jón Þorleifsson listmálari opnaði málverkasýningu í gær í vinnu-
stofu sinni að Blátúni við Kaplaskjólsveg. Sýnir hann þar 35 mynd-
ir, 8 vatnslitamyndir og hitt olíumálverk. Eru þetta myndir, sem
liann hefir málað á síðustu tveim árum, síðan hann hélt hér sýn-
ingu síðast.
Þarna eru málverk frá Siglufirði, frá Hafnarfirði, úr nágrenni
Reykjavíkur, frá Þingvöllum og af Snæfellsnesi. Þarna eru líka
nokkrar samstillingar, og myndin, sem ljósmynd er af með línum
þessum, er heitir „í vinnustofunni.“
Sýning Jóns verður opinn næstu daga frá kl. 1 miðd., til kl. 9
að kvöldi. — í gær komu um 100 manns á sýningu þessa. —
Þrjár myndir seldust.
Reknefaveiðamar
hlaut
Guflfosi
Skipsfjóra bikarinn
Skipstjórabikarinn sem Gullfoss-
liðið vann. (Ljósm. P. Thomsen)
hann skipverjar á brezka skip-
inu. Dearne. Nú hJaut Gullfoss
bikarinn og er nafn beggja skip-
anna grafið á hann með ártali
fyrir aftan. — Er þetta hinn
mesti kjörgripur.
VEGNA hins óvenju storma-
sama tíðarfars, eru nú allir bátar
hættir reknetaveiðum. Síðustu
bátarnir, sem eru frá Akranesi,
hættu í gær og búa sig undir að
hefja línuveiðar.
Fimm bátar eru byrjaðir róðra
þaðan og hafa verið með fjögur
til fimm tonn eftir róður, og hef-
ur það verið fallegur fiskur.
HIÐ SIGURSÆLA knattspyrnulið á Gullfossi, varð hlutskarpast í
fótboltakeppni þeirri, er fram fer milli skipa, sem halda uppi reglu-
legum ferðum til Kaupmannahafnar. — Þegar Gullfoss kom nú
síðast frá Kaupmannahöfn, færði knattspyrnuflokkurinn bikarinn
hingað heim. —
Bikarinn, sem ber nafnið ® --------------------------
„Skipstjórabikarinn“, munu Eng- VERÐUR í REYKINGASAL
lendingar hafa gefið til þessarar Fyrirliði Gullfossmanna, Jón
keppni. Var keppt um hann í
fyrra í fyrsta skipti. Þá hlutu
Jónasson (úr KR, Jón á 11) af-
henti Guðmundi Vilhjálmssyni,
framkvæmdastjóra Eimskips,
bikarinn í fyrradag. Framkv.stj.
lagði svo fyrir að bikarnum
skyldi valinn staður í hinum veg-
lega reykingasal 1. farrýmis.
MIKILL IIUGUR í
LIÐSMÖNNUM
Knattspyrnuflokkurinn á Gull-
fossi keppti alls fimm leiki í þess
ari keppni, en um 20 skip tóku
þátt í henni. Tapaði hann eng-
um leik. Hefur hið sigursæla lið
fullan hug á að halda bikarnum
næsta sumar, er Skipakeppnin
Kaupmannahöfn hefst á ný.
eru nú
Eldhúsið áfram 'j
í kvöld j
SÍÐARI hlirti útvarpsumræðn-
arnia fer fram í kvöld og hefzl
kl. 20.15, Verða ræðuumferð-
ir þrjár 25, 15 og 10 mínútur.
Af háMu Sjálfstæðisflokks-
ins tala ráðherrarnir Bjarnl
Benediktsson og Björn Ólafs-
son en af hálfu Framsóknar-
flokksins munu allir ráðherr-
ar hans tala. ;
-------------------- j
Frjáls innflutningur!
á beimilisdráltar- i
vélum, jeppum o. II.
SVOHLJÓÐANDI tillaga var
samþykkt í sam. þingi 1 gær og
afgreidd til ríkisstjórnurinnar
sem ályktun Alþingis:
Till. til þál. um frálsan innflutn
ing á heixnilisdráttarvélum og
bifreiðum til landbúnaðarþarfa
var samþykkt í gær í sam. þingi;
Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjórninni: '■
a. að gefa nú þegar frjálsan inxi
flutning á heimilisdráttarvélum,
ásamt tilheyrandi verkfærum og
tækjum, svo sem prjónavélum;
b. að gefa á árinu 1952 frjálsan
innflutning á landbúnaðarbifreið
um (jeppum og landrover), ef
nægur gjaldeyrir er fyrir hendi,
enda verSi jafnframt settar regl-.
ur, sem komi í veg fyrir, að bif-
reiðarnar fari til annarra en
þeirra, sem stunda landbúnaðar-
störf að aðálatvinnu.
------------------ 1
Veggklokku sfolið ]
Á MÁNUDAGSKVÖLD var út-
skorinni veggklukku stolið úr
kjallarageymslu húsi við Garða-
stræti. Ekki er talið ósennilegt að
þjófurinn hafi boðið hana ein-
hverjum til kaups. Þessi þjófn-
aður hefur verið kærður til rann-
sóknarlögreglunnar. .
----------------- , j
Samþykktir bæjar- ]
ráðs Akureyrar I
AKUREYRI, miðvikudag. — Á’
fundi bæjarráðs Akureyrar, sem
nýlega var haldinn, var sam-
þykkt að halda uppi vinnu til
áramóta fyrix 70—80 manns. Er
þetta gert vegna aukins atvinnu-
leysis í bænum.
Síðan veðrátta versnaði og snjð
ar lögðust yfir, var rætt um að
haldið yrði áfram við byggingu
hafnargárðsins á Oddeyri og cð
auka vinnu við grjótnám bæjar-
ins. — H. Vald. j