Morgunblaðið - 04.01.1952, Page 1
í sölum egvpzka þingsins er Nahas Pasha forsætisráðherra skýrði
þinginu frá vilja ríkisstjórnarinnar um að segja uþp samningum
við Breta frá 1899 og 1936, er veitir Bretum heimild til að hafa
heri við Suez-skurðinn.
Arangur náðist enginn
s Panmunjons i gær
Tiilögum 5. S>. um fangaskipti var hafnað
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
TÍKÍÓ, 3. janúar. — Aðalblað kommúnista í Peking ræðir í for-
ystugrein um Kóreustríðið í dag. Þar segir m. a., að kínverska
alþýðulýðveldið og Norður-Kórea muni greiða óvinunum ægilegri
hogg en nokkru sinni fyrr, ef vopnahlésviðræðurnar fari út um
þúfur. Kínverjar muni leggjast á sveif með Norður-Kóreumönnum
til að fá hrakið heimsvaldasinnana og árásarseggina brott úr Kóreu.
«------------------------------
TILLAGA S. Þ. FELLD
í dag náðist enginn árangur í
fangaskiptanefndinni, sem situr í
Panmunjom. Ekki heldur í
neíndinni, sem ræðir eftirlit með,
að væntanlegt vopnahlé verði
haldið.
Fulltrúar norðurherjanna höfn
uðu tillögu fulltrúa S. Þ. um að
skila bæði föngum og óbreyttum
borgurum. Var tillagan á þá lund,
að báðir aðilar skyldu skila jafn-
mörgum föngum. Þeir stríðsfang-
ar, sem þá kynnu að verða eftir,
yrðu látnir í skiptum fyrir ó-
brevtta borgara, er kysu að
hverfa heim.
VILJA GERA
NÝJA FLUGVELLI
Samningamaður S. Þ. lýsti því
yfir, að í tillögunni fælist raun-
ar, að menn gætu farið frjálsir
ferða sinna hvort sem væru stríðs
fangar, borgarar, flóttamenn eða
aðrir.
Fulltrúar S. Þ. í eftirlitsnefnd-
inni synja norðanmönnum enn
leyfis til að gera nýja flugvelli
eða laga gamla, ef til vopnahlés
skyldi koma.
Franska stjórnin iafði
PARÍSAPvBORG, 3. jan.—Traust-
yfirlýsing var samþykkt til handa
frönsku stjórninni í kvöld. Féllu
atkvæði 254 gegn 247.
—Reuter-NTB.
Ungur útilegumaöur
á Kristjánssandi
KRISTJÁNSSANDI, 3. jan. —
Á Kristjánssandi í Noregi hefir
13 ára drengs verið saknað siðan
á nýjársdag. 1 nótt urðu foreldr-
arnir þó varir við hann, er hann
kom í skyndiheimsókn heim til sín.
Heyrðu þeir einhvern umgang í
stiganum, og þegar þau hugðu að,
sáu þau stráksa bregða fyrir. Kom
á daginn, að hann hafði reynt að
ná í sængurföt. En hann komst
undan og hafa menn ekki hugboð
um, hvar hans sé að leita. Hefir
hann greinilega lagzt út. —NTB.
Enn verða Bretar að
herða sulfarólina
LUNDÚNUM, 3. jan. — Brezka
stjórnin ræddi í dag nauðsynleg-
ar ráðstafanir, sem fyrir liggur
að gera í efnahagsmálum, svo að
ljóst er, að Bretar verða enn að
herða sultarólina. Á fundinum
voru lögð fram ýmis skilaboð
Churchills, forsætisráðherra, sem
hann sendi frá hafskipinu Queen
Mary. Það er nú úti á regin
Atlantshafi, og hefir tafizt vegna
ofveðurs. —Reuter-NTB.
Er Vishinskí
hræddur!
PARÍSARBORG, 3. jan. —
Vishinskí utanríkisráðherra Rússa,
lagði fram þá tillögu í Stjórn-
málanefndinni í dag, að Öryggis-
ráðið verði kallað saman til að
reyna að draga úr viðsjám í heim-
inum og stöðva Kóreustríðið.
| Vesturveldin hyggja, að Vish-
inskí óski að hætt verði að ræða
öryggistillögur þeirra í Allsherj-
arþinginu, en þær verði í staðinn
teknar fyrir í öryggisráðinu, og
Rússar séu fúsir til að taka þátt
í viðræðum um öll vandamál, sem
leitt hafa til ólgunnar í heimin-
um, ef Vesturveldin láti af fyrir-
ætiunum sínum um sameiginlegan
j öryggisher bandalagsþj óðanna.
Horskur hæsfa-
réttardómur
ÓSLÓARBORG, 3. jan. — Hæsti-
réttur Noregs hefir kveðið upp úr-
skurð um, að ekki megi draga fé
af barnalífeyrinum til greiðslu á
sköttum móðurinnar. Áður hafði
sams konar úrskurður verið kveð-
inn upp í undirrétti. —NTB.
Dean Rusk.
Hann hefir verið aðstoðarutan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna til
skamms tíma. Nú hefir hann aft-
ur á móti gerzt forseti Rocke-
feller-stofnunarinnar.
Skipsfjórinn er enn um borð
í bandaríska farmskipinu
Björgun þess ekki óhugsandi, ef veðrið lægir
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter—NTB
LUNDÚNUM, 3. janúar. — Fyrir fimm sólarhringum laskaðist
bandaríska farmskipið Flying Enterprice svo, þar sem það var á
siglingu suðvestur af írlandsströndum, að menn hugðu það ekki
fiamar haffært. Skipshöfninni var bjargað nema skipstjóranum,
sem neitaði að fara úr skipi sínu, allt um fyrirskipanir útgerðar-
félagsins og bráða hættu.
fSTAÐFASTUR SKIPSTJÓRI
Carlson, skipstjóri, hefur hald-
Tillaga gagnrýnd í
Vestur-Þýzkalandi
BÉRLÍNARBORG, 3. jan. —
Ríkisstjórn Austur-Þýzkalands
samþykkti í dag einum rómi frum-
varp til laga um kosningar í öllu
Þýzkalandi, sem stjórnskipuð
nefnd lagði fram í gær.
Tillagan fer nú til þingsins.
1 henni er gert ráð fyrir, að
einstök félög og stofnanir hafi
rétt til að bjóða fram auk stjórn-
málafélaga, einnig að kosninga-
rétt fái menn 18 ára.
Blöðin í Vestur-Þýzkalandi gera
tillögurnar að umræðuefni í dag,
en þeim er hafnað. Einkum eru
2 fyrrgreind atriði þyrnir í aug-
um Vestur-Þjóðverj a.
. •—Reuter-NTÉ.
Landskjálfti
i Tyrklandi
ið þeirri kröfu sinni mjög til
streitu, að skípinu verði bjargað,
enda hverfi hann ekki frá borði,
fyrr en það sé komið í höfn eða
það sokkið.
Veður hefur verið illt á At-
lantshafinu undanfarna sólar-
hringa og hefur enn ekki verið
komið við neinni björgun, eri
bandarískur tundurspillir hefur
ivlgzt með skipinu upp á síð-
kustið, þar sem það rekur með
öllu stjórnlaust. Halli þess er
feikilegur eða 80 gráður, svo aiS
sér á kjöl þess og aðra skrúfuna.
DRÁTTARBÁTUR
Á VETTVANG
Bandaríski dráttarbáturinil
Turmoil er nú á leið til farm-
skipsins með 22 mílna hraða, og
er líklegt, að hann komist á vett-
vang seint í kvöld. Verður reynt
að koma dráttartaugum í skipið,
og lítur út fyrir, að veðurguð-
irnir ætli að verða Carlson hlið-
hollir, þar sem vind lægir nú á
þeim slóðum, sem skipið er statt,
og loftvog er stígandi.
M I
SENDING FRÁ
TUNDURSPILLINUM
Carlson hefur eins og fyrr er
greint verið einn um borð und-
anfarna fimm sólarhringa. Hefur
hann hafzt við í klefa miðskips.
Brezkir fiskimenn munu sækja
tii Grænlands og iliffundnafands
ÍSTAMBÚL, 3. jan. — Að
minnsta kosti hafa 33 manns
látið lífið og 40 meiðzt í land
skjálftum, er geisað hafa í
dag í Erzerum-héraðinu í
Tyrklandi. í 17 þorpum hefir' þar sem hvorki er ljós né hita
tjón orðið mikið. aö fá. Enga hefur hann haft nær-
Annars er ekki hægt um b.guna nema ruður. í dag síðdeg-
vik að gera sér grein fyrir i1-’ lánaðist að skjóta böggli frá
manntjóninu, því a/5 frost og tundurspillinum yfir í farmskip-
bvlur torvelda alla björgun. ið- Þar var heitt kaffi, smurt
Er nú 25 stiga frost í bæn- brauð> sætindi, vindlingar og bloð
um Erzerum. Landskjálfta-' handa skipstjóranum.
kippurinn stóð í 20 sek. .
Carlson hefur ekki haft önnur
tengsl við umheiminn en tal-
samband við tundurspillinn við
og við. Hann er í afbragðsskapi
og segist þess fullvís, að takast
megi að draga Flying Enterprice
til hafnar, ef veður versni ekki.
Skipið er 7000 smál.
-Reuter-NTB.
Vegna úrskurðar Haagdómsins missa þeir auöug miö
SAMKVÆMT frétt frá United Press, er birtist nokkru eftir að
dómurinn féll í Haag í landhelgismáli Norðmanna, er búizt við
að. brezkir togarar leiti 1 framtíðinni meira til Grænlands og
Nýfundnalandsmiða eftir að veiðisvæði þeirra var minnkað við
Norður-Noreg.
SJÓMENN AÐVARAÐIR
Brezkir útgerðarmenn vænta
þess að norska stjórnin ákveði
fljótlega nákvæmlega landhelgis-
línuna við Norður-Noreg sam-
kvæmt úrskurði dómstólsins í
Haag. Hefur brezka fiskimála-
ráðuneytið brýnt það fyrir tog-
aramönnum að þeir gjaldi var-
huga við að fara ekki inn í land-
helgi Noregs á þessum slóðum
meðan línan er ekki ákveðin.
SENNILEGT AÐ FISKVERÐ
HÆKKI í BRETLANDI
í The Times er frá því skýrt
að brezka stjórnin og brezkir
embættismenn, sem hafa afskipti
af fiskveiðamálum geri allt sem
í þeirra valdi stendur til þess að
brezkir fiskimenn fari eftif
dómsniðurstöðunni í hvívetna.
„Financial Times“, segir að
brezkir fiskikaupmenn búist við,
að þessi útvíkkun á landhelgi
Noregs muni gera brezkum sjó-
mönnum erfiðara fyrir um veiðar
á úrvalsfiski, sem er í hæsta
verði og yfirleitt muni þessi
dómsniðurstaða verða til þess að
verð á togarafiski hækki þar í
landi.
MANHDRÁPf
EGYPTALANDI 1
ISMAILIA, 3. jan. — Innan-
ríkisráðuneyti Egyptalands
sagði í tilkynningu í dag, að 15
brezkir hermenn heifðu verifi
drepnir í bardaga, er sló í ár-
degis. Auk þess særðust 7 lög-
reglumenn egy.pzkir og 7 borg-
arar.
Yfirvöld Breta hafa enga til-
kynningu gefið um þessa at-
burði, en segja, að þeir hafi orð-
ið að skjóta á egypzka ‘fepell-
virkja, er þeir reyndu að skera
á símalínurnar með Súez-skurði
16 km vestan Ismailia. Segja
Bretar, að 2 skemmdarverka-
mannanna liafi orðið fyrir skot-
um, en hinir hafi flúið.
—Reuter-NTB. \