Morgunblaðið - 04.01.1952, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 04.01.1952, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Föstudagur 4. janúar 1952 llýrin standa Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Bramkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) framar Lesbók: Árni Óla, sími 3045. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 18.00 á mánuði, innanlands. í lausasölu 1 krónu eintakið. Kr. 1,25 með Lesbók. Alhiiða framfarir er takmark GREININ SÚ ARNA, cr eftir dýrasálfræðing við Dýrgarðinn í Kaupmannahöfn. Þegar við segjum í niðrandi merkingu, að eitthvað sé dýrslegt, ! ættum við heldur að kalla það j mennskt. Dýrin standa mönnunum langtum framar að siðgæði, eink- um í ástamálum. ÓRJÚFANDI ÁST • a ÞAÐ er ekki ný bóla að minni- hlutaflokkarnir í bæjarstjórn Reykjavíkur haldi því fram við afgreiðslu fjárhagsáætlunar að íjárhagur höfuðborgarinnar sé í kalda koli, dregið sé úr framkvæmdum og íhald og afturhald setji svip sinn á alla stjórnarstefnu Sjálfstæðis- manna, sem fara með stjórn bæj- arfélagsins. — Almenningur í Revkjavík er ekkert ókunnugur þessum órökstuddu og fleipur- kenndu fullyrðingum. En hann hefur raunveruleikann fyrir augunum. Hann veit að undan- farna áratugi hefur hvergi verið unnið jafn ötullega og markvíst að fjölþættum umbótum og ein- mitt í Reykjavík undir forystu Sjálfstæðisflokksins. Þar hefur hver stórframkvæmdin rekið aðra í þágu fólksins í bænum. Ein meginorsök þessara staðreynda er sú, að bæjarfé- laginu hefur verið stjórnað af forsjálni og víðsýni, að fjár- hagur þess hefur verið góður og það hefur hvarvetna notið trausts. Þetta komast andstæðingar Sjálfstæðisflokksins heldur ekki hjá að viðurkenna. Er þess skemmst að minnast er einn þrautreyndasti bæjar- fulltrúi bæjarstjórnarminni- hlutans, Jón Axel Pétursson, komst þannig að orði á fundi í bæjarstjórninni á s.1. hausti, að Reykjavík væri fjárhags- lega vel stætt bæjarfélag. Þá má einnig minna á þau ummæli bæjarstjóra Alþýðu- flokksins í Hafnarfirði í sam- tali við erlent blað, að sér fyndist Reykjavík ein feg- ursta og bezta borg í heimi. En ótrúlegt er að hún væri svo góð borg, ef stjórn henn- ar hefði jafnan mótazt af aft- urhaldi og skilningsleysi á þörfum íbúa hennar. Ef litið er á fjárhagsáætlun bæjarins fyrir næsta ár verður það fyrst fyrir, að athuga út- gjaldahækkunina frá því, sem var á s.l. ári. í áætluninni er reiknað með kaupgjaldsvísitölunni 155 stig. Á síðasta ári var vísitalan í árs- byrjun 123 stig. Þessi vísitölu- hækkun þýðir ein 26% hækkun á útgjöldum bæjarins. En þrátt fyrir það varð niðurstaðan sú,- að heildarútgjaldahækkunin sam kvæmt fjárhagsáætlun verður ekki nema 20%. Ber það greini- ltgan vott um að stjórnendur bæjarins hafa' lagt áherzlu á sparnað í rekstri hans. Á sama tíma hafa útgjöld 'ríkisins sam- kvæmt fjárlögum hækkað um 25% undir forystu fjármálaráð- herra Framsóknarflokksins. Það situr því sannarlega illa á mál- gagni Framsóknar að deila á Gunnar Thoroddseh fyrir 20% hækkun útgjalda hjá Reykjavík- urbæ. Það er líka vitað að borgar- stjóri hefur haft forystu um víð- tæka sparnaðarviðleitni. Skipaði hann á s.l. hausti nefnd til þess ao gera tillögur um sparnað í rekstri bæjarins og stofnana hans. Hefur hún lagt fram marg- a; tillögur, sem Sjálfstæðismenn fjuttu við afgreiðslu fjárhags- áætlunar fyrir þetta ár. Aðal „sparnaðartillaga“ bæj- arfulltrúa Framsóknarflokks- ins var hins vegar sú að fjölgað skyldi borgarstjórum. Um það þarf ekki að fara í neinar grafgötur að útgjalda- hækkunin hjá Reykjavíkurbæ sprettur fyrst og fremst af hækkuðu kaupgjaldi og vaxandi dýrtíð. Mjög stór hluti af út- gjöldum bæjarins eru kaup- greiðslur, bæði til verkamanna og fastra starfsmanna. Kaup- gjaldsvísitalan hækkaði á s.l. ári úr 123 stigum í 144 stig. Eins og áður er sagt er fjárhagsáætlun þessa árs^miðuð við vísitöluna 155. — Af þessu hlýtur öllum hugsandi mönnum að vera Ijóst, að óhjákvæmilegt er fyrir bæinn að afla sér aukinna tekna til þess að standast þessi viðbótar- útgjöld, sem leiða af hækkuðu kaupgjaldi. Það kemur því sann- arlega úr hörðustu ótt, þegar kommúnistar og kratar, sem mest stæra sig af þessari þróun kaupgjaldsmálanna, hamast gegn því að fjár sé aflað til þess að borga verkamönnum og öðrum launþegum fleiri krónur í kaup. En það sýnir heilindi þessara flokka í stjórnmálabaráttu þeirra. Framsóknarflokkurinn læt- ur blað sitt um þessar mundir halda uppi hörðum ádeilum á Gunnar Thoroddsen borgar- stjóra fyrir hækkun útgjalda bæjarins. Þetta gerist þrátt fyr ir það að fjármálaráðherra Framsóknar hefur hækkað út- gjöld ríkissjóðs um 25% sam- kvæmt fjárlögum þessa árs á meðan útgjöld Reykjavíkur hæka um 20%. Þetta gerðist einnig þrátt fyrir það að heild arútgjöld ríkisins hafa hækk- að um nær 100 millj. kr. síðan Eysteinn Jónsson varð fjár- málaráðherra. í þriðja lagi er svo þess að geta að árið 1950 fóru heildar- útgjöld ríkisins um það bil 90 millj. kr. fram úr áætlun f jár- laga en á þessu ári um 55 millj. kr. samkvæmt yfirlýs- ingu fjármálaráðherrans sjálfs. Svo kemur blað Eysteins Jóns- sonar og ræðst á Gunnar Thor- oddsen fyrir ógætilega fjármála- stjórn og hækkun útgjalda hjá Reykj avíkurbæ!!! Annars ætti blað Framsóknar- flokksins að vara sig á því að gera málflutning fulltrúa síns í bæjarstjórn að mæniás í áróðri sínum. Allir þeir, sem sit.ja fundi bæjarstjórnarinnar vita að eini Tímamaðurinn, sem þar á sæti er orðinn að viðundri fyrir ógreindarlega og afkáralega málafylgju. En það er að sjálf- sögðu verst fyrir Framsóknar- flokkinn sjálfan. Um f járhagsáætlunina er það annars að segja í stuttu máli, að hún ber þess greini- legt vitni að þar er haldið í horfinu um verklegar fram- kvæmdir og umbætur í bæn- um. Þannig hækka t.d. fram- lög til gatnagerðar um 35%. Hálfri þriðju millj. kr. er var- ið til byggingar bæjarsjúkra- húss og heilsuverndarstöðvar og fé er veitt til fjölmargra annara framkvæmda í bæn- um. Stórframkvæmdir halda áfram v>ð Sogsfossa. Takmark Sjálfstæðismanna er alhliða framfarir í Reykjavík. Að því vinna þeir af forsjáíni og dugnaði. Svanir, sem fellt hafa hugi sam- an, elskast til hinztu stundar. •—• Hvorugt hjónanna gerist nokkru sinni sekt um daður, enda eru álftir og villigæsir allra fulga traustastar í ástamálum. Þegar maki deyr, tjóar ekki fyrir ein- hleypingana að fara á fjörurnar við ekkilinn eða ekkjuna. — Þau kjósa yfirleitt ekki að gefa sig framar við ástum. SIÐGÆÐI ÓFRJÁLSRA DÝRA LAKARA Aftur á móti hafa menn veitt því athygli, að siðferði húsdýra og dýra í búrum, siðmenntra dýra, er mun lakara en villtra. Húsdýr- in gerast tíðum sek um sifjaspell, foreldrar og systkini eiga saman afkvæmi. Hitt er annað mál, að hegðun dýranna sprettur ekki af siðgæð- iskennd í venjulegri merkingu þess orðs. Allt, sem dýr hafast að, á rætur að rekja til arfgengra eiginleika, sem dýrin hafa engin áhrif á sjálf, eða hvatanna, hor- mónanna, í líkama þeirra. Ófrjáls dýr hegða sér óeðlilega af því að þau eiga of góða daga. Hvatimar krefjast útrásar, sem getur tekið á sig furðulegar myndir. Til dæmis éta ófrjáls dýr alltaf meira en þau hafa gott af og eins er ásthneigð þeirra meiri en hentar þeim. En rangt væri að kalla þau sneydd öllu siðgæði. Dýrin fara að Aðalfundur Þingey- ingafélagsins AÐALFUNDUR Þingeyingafé- lagsins í Reykjavík var haldinn síðast í nóvember. Guðmundur V. Hjálmar’sson, fráfarandi formaður félagsins flutti skýrslu stjórnarinnar. — Starfsemi félagsins hafði verði með líku sniði og áður. Félags- mönnum hafði fjölgað allmikið á árinu, og í félagið gengu 51 mað- ur á fundinum. Af störfum á árinu er helzt að geta skógræktarstarfsins í Heið- mörk, þar sem félagið hefir land til umráða. Þátttaka í skógræktar ferðum félagsins var góð og voru alls gróðursettar nær þrjú þús- und plöntur í landinu, og voru 255 þeirra gjöf frá Kristjáni Jak- obssyni, formanni skógræktar- nefndarinnar. Sögunefnd félagsins, sem sér um útgáfu á ritsafni Þingeyinga, sem út er komin tvö bindi af, eftir þá dr. Björn Sigfússon og Indriða Þorkelsson á Fjalli, vinn- ur a ðnæsta bindi. Verður þaö héraðslýsing eftir Jón Sigurðs- son á Yztafelli. Er bók sú nú í prentun. Verður það mikið rit og vandað, prýtt fjölda mynda. Má vænta útkomu þess á næsta vori. Formaður félagsins var kosinn Barði Friðriksson, lögfræðingur, en meðstjórnendur Valdemar Helgason, Kristján Friðriksson, Indriði Indriðason og Andrés Kristjánsson. í Heiðmerkurnefnd félagsins eru nú fimm menn; og er Krjstján Jakobsson íormað- ur hennar. Ákveðið er nú, að félagið haldi árshátíð sína í Breiðfirðingabúð á þrettánda í jólum, sunnudag- inn 6. janúar. n þau eiga sér ekkert má eins og hvatimar orka á þau. Ef fugli er gefinn skammtur að vetr- inum, hefur hann þegar upp söng sinn. Annars syngja fuglar ekki á veturna, af því að þeir eru ekki i biðilshug þá. DÝRAMÁL ER EKKI TIL Þegar menn tala um dýr, dæma þeir þau oft eftir sjálfum sér, og margir segja þau hafa mál. Það er ekki rétt. Ef ég gef frá mér ýmiss konar smelli með tungunni, get ég fengið apana til að svara mér með sömu hljóðum. En þeir eru þá ekki að tala eftir okkar skilningi. í mesta lagi mætti líkja því við, að þeir segðu góðan dag- inn. Flóknar hugsanir geta dýrin engan veginn tjáð. Þegar bavían- arnir, vinir mínir, vilja sýna mér, að þeir séu í góðu skapi, þá gefa þeir það til kynna með táknmáli. Þeir snúa í mig bakhlutanum og hneigja sig djúpt. Eins ræðast þeir við innbyrðis, ef vel liggur á þeim. MIKILL MISSKILNINGUR Önnur apategund er í dýragarð inum, hún grettir sig, þegar vel liggur á henni. Aftur á móti gretta bavíanarnir sig ekki nema þegar þeir vilja fljúgast á. Þess vegna geta þesar 2 tegundir ekki verið saman, því að þá lendir allt í háalofti. Þegar bavíanarnir sjá hina skæla sig, í bezta hug að vísu, þá líta þeir svo á, að verið sé að skora sig á hólm. TILBURÐIR BÝFLUGNANNA Þegar ég segi, að dýrin hafi ekki mál, verð ég þó að viðurkenna, að þau eiga mjög athyglisvei-t merkjamál.Ef býfluga finnur engi með mörgum blómum, sem eru býjunum hagstæð, flýgur hún heim og vísar allri hersingunni leið að hinu ný ja nægtabúri. Hinar bý- flugurnar geta gert sér í hugar- lund um vegalendina að blóm- vanginu eftir danshraða finnand- ans. Og af öðru látbragði geta þær, sem heima sitja, getið sér til um, í hvaða átt fengurinn er. ófrjáls spendýr nema mál, sem villtir frændur þeirra þekkja ekki. Bavíani er í Dýragarðinum, sem numið hefur einföld tákn, einnig simpansarnir, en tákn þeirra eru naumast fullkomnari en reifa- barna. ÞURFA ENGA KENNSLU Það er eftirtektarvert, að dýrin þurfa ekki að ganga í skóla hjá foreldrunum til að sjá sér far- borða. Andersen talar fallega um gömlu storkana, sem kenna ung- unum flugið. Ég hefi gert tilraun með álftarunga. Hann var alveg einangraður, en þegar ég sleppti honum úr búrinu á ungum aldri, kunni hann umsvifalaust full skil á ílugíþróttinni. Sams konar tilraun gerði ég til að reyna sönghæfnina. Ég komst að þeirri raun, að ungarnir hófu söng sinn án nokkurs náms. Velvakandi skrifar: ÚR DAGLEGA LÉFINU Margir gefa smáfuglunum Ú harðnar á dalnum hjá smá- fuglunum, enda láta menn ekki sitt eftir liggja að gefa þeim. Áreiðanlega fellur margt það til á flestum heimilum, sem sólskríkjunni frá í sumar kemur vel að fá, þótt annars sé það iítt eða ekki nýtt. En það er ekki nóg að fleygja molunum út á hjarnið, fuglarnir verða að fá næði til að tína þá. Þess vegna ættu foreldrarnir að brýna fyrir krökkunum að var- ast að styggja litlu angana, þeg- ar þeir setjast að krásunum. — Áreiðanlega taka krakkarnir vel í það, því að engum þykir vænna um þá en þeim. Berjahratið er lostæti ¥ SUMAR vissi ég til, að fólk -A þurrkaði berjahratið, þegar saftið hafði verið síað frá, og nú er það eftirsóknarverður fugla- matur. Áður fyrr var siður í sveitum að kasta moði út á sjó- inn, þar fundu fuglarnir margt ætilegt kornið. Sennilega er þess um hætti haldið enn. Af þessu má sjá, að ekki þarf neinu til að kosta til að seðja hungur smáfuglanna, aðeins að hugulsemin sé á réttum stað. Endurvarp á .jólaÞveð.ium h UNDANFÖRNUM árum hef- „ ir það verið föst venja fyrir jólin, að Ríkisútvarpið tæki að sér að endurvarpa jólakveðjum frá Danmörku til Grænlands. Mun endurvarp þetta hafa mælzt mjög vel fyrir hjá Grænlending- um. En því miður hefjr stundum tekizt misjafnlega til með endur- varpið, t. d. fyrstu 2-—3 kvöldin fyrir þessi jól, sem mun hafa staf að af lélegum hlustunarskilyrð- um í viðtökustöðinni í Gufunesi. Enda er sjaldan um góða viðtöku að ræða í Reykjavík frá lang- bylgjuútvarpsstöðvunum á Norð- urlöndum. Önnur viðtökustöð. ÉR er nú spurn; hefur verið reynt að láta viðtökuna fara fram á öðrum stað? Má í því sam bandi benda á Vestmannaeyjar, Höfn, Búðareyri eða Seyðisfjörð. Á öllum þessum stöðum heyrist yfirleitt ágætlega til útvarpsstöðv anna á Norðurlöndum. Auk þess eru þessir staðir vel útbúnir fjöl- símasambandi við Reykjavík, sem flytur hið móttekna tal nærri ótruflað frá viðtökustöð- inni til útvarpsstöðvarinnar í Reykjavík. Endurvarpið fer frarn á þeim tíma sólarhringsins, að notkun einnar talrásar fjölsíma ætti ekki að tefja önnur viðskipti á honum. f Vestmannaeyjum. ÚNA fyrir jólin var ég staddur í Vestmannaeyjum, og hlust- aði á jólakveðjurnar í útvarpinu beint frá Danmörku, bæði á mið- og langbylgju, og var það ágæt- lega skýrt og vel heyranlegt, en á Reykjavíkurstöðina var oft varla hlustandi vegna truflana. Ef þessari tiihögun yrði kom- ið á við endurvarp frá Norður- löndum, mundi mun oftar vera hægt að endurvarpa þaðan cn gert hefur verið.“ „Hlustari". Þar sem mér er kunnugt um, að hér talar maður, sem veit, hvað hann syngur, þá er ekki ólíklegt, að hlutaðeigendur leggi eyrun við rödd hans. Eins og „Hlustari" bendir á, er hér ekki um jóla- kveðjurnar til Grænlands einar að ræða, endurvarp frá Norður- löndum mætti oftar vera hér á boðstólum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.