Morgunblaðið - 04.01.1952, Blaðsíða 12
Veðurúliii í <fag:
AlIIivass eða hvass SV.
Skúrir eSa slydduéljar.
2. tbl. -— Föstudagur 4. janúar 1952.
Aburðarverksmiðjan
Álit sérfræðing-anefndarinnar
birt.
Skipastóll landsmanaia
rúmar 100 þús. rúmlestir
Skipunum ijölgaði um 21 á s. I. ári
SKIPAFLOTI landsmanna er nú meiri að burðarmagni til en hann
hefur aður verið. Alls eru nú 673 skip í flotanum, frá 12—4893
rúmlestir. Nemur rúmlestafjöldinn alls 100.234 lestum.
Frá þessu er skýrt I síðustu^
Hagtíðindum. Eru uppl. byggðar
á útdrætti úr skipaskrá Sjó-
mannaalmanaksins fyrir 1952.
Að þessu sinni eru í fyrsta
sinni taldir með sldpastólnum
nokkrir bátar (aðallega bátar
hafnarsjóða o. þ. h.), sem áður
hefur verið sleppt. Eru þeir 7
talsins, og rúmlestatalan 107
brúttó. Raunveruleg fjölgun skip-
anna frá árinu á undan er því 2
skip, og aukning brúttólesta-
fjöldans 8810 lestir.
566 FISKISKIP
Fiskiskip flotans eru alls 566.
Þar af eru botnvörpungar taldir
58 og er rúmlestatala þeirra alls
32.587. — Flest fiskiskipanna eru
undir 30 rúmlestum, eða 304.
Önnur skip, svo sem vöru-
flutninga-, farþega-, olíuflutn-
inga-, varð- og björgunarskip o.
fl. eru alls 42. —- Nemur rúm-
lestafjöldi þeirra alls 42.501.
AUKNINGIN NF.MUR
RÚMLEGA 11.800 LESTUM
Síðastliðið ár voru strikuð út
af skipaskrá 19 skip, að rúmlesta-
tölu alls 3038 lestir brúttó. Þar
af fórust 11, 4 voru talin ónýt og
4 voru seld úr landi. Við bætt-
ust 21 skip, þ. e. 8 botnvörpu-
skip, 4 hvalveiðabátar, 2 vöru-
flutningaskip (Jökulfell og
Reykjafoss), varðskipið Þór og 6
fiskveiðabátar. Skipin, sem við
bættust, voru samtals 11.848 rúm-
Iestir brúttó. Hér eru ekki með-
taldir ofangreindir 7 bátar, sem
voru komnir til landsins áður. Af
viðbótinni voru 18 skip innflutt
— 10 þeirra nýbyggð — 1 var ný-
smíðað innanlands og loks var 2
opnum bátum breytt í dekkbáta.
Hitalögn íþrótlahúss-
ins fraus svo aflýsa
varð keppni
KÖRFUKNATTLEIKSKEPPNI
sú, er fram átti að fara í gær-
kvöldi í íþróttahúsinu við Há-
logaland milli ÍR og ameríska
liðsins „Eagles“, var aflýst sök-
um þess að frosið hafði í hitalögn
hússins, og henni ekki komið í
lag á tilsettum tíma.
Ameríska liðið hélt til Kefla-
víkurflugvallar í gærkvöldi, en
þar sem flugvélinni, sem þeir
fara með vestur hefur seinkað,
getur komið til mála að þeir
keppi hér í kvöld, ef viðgerð á
húsinu hefur þá verið lokið. Ef
svo verður, verður tilkynnt um
það í hádegisútvarpinu í dag.
Framkvæmdanefnd keppninn-
ar bað blaðið um að geta þess,
að keyptir aðgöngumiðar verði
endurgreiddir í Ritfangaverzlun
Isafoldar.
Sigurður Haildórsson
irésmíðameistari,
láiinn
90-100 nemendur ú sjó-
vínnunáinskelði í Rvik
NÝLEGA er lokið sjóvinnunámskeiði hér í Reykjavík og er þa<5
hið annað í röðinni, er haldið er á vegum Reykjavlkurbæjar. Alls
voru innritaðir á námskeiðið 90—100 nemendur, mest unglingar,
Ekki luku þó svo margir prófi, þar sem margir, atvinnu sinnac
vegna urðu að hverfa frá áður en námskeiðinu lyki.
„Germanía" heldur
þrettándafagnað
Á ÞRETTÁNDAKVÖLD heldur
félagið „Germania“ annan
skemmtifund sinn á þeásum
vetri, í Tjarnarcafé.
Verður þar ýmislegt til
skemmtunar og það fyrst, að
prófessor Guðbrandur Jónsson
flytur erindi, er hann nefnir
„Die Heiligen Drei Könge in
Köln“. — Meðal þýzkumælandi
þjóða er þrettándinn kenndur við
Austurlandavitringana þrjá og
mun prófessor Guðbrandur skýra
frá hinum skrítnu sögusögnum af
beinum vitringanna þriggja, og
ýmsu, sem út af því hefir spunn-
ist í gegnum aldirnar. Munnmæla
sögur segja svo frá, að jarðnesk-
ar leifar vitringanna séu varð-
veittar í skríni einu merkilegu i
Köln og hefir prófessor Guð-
brandur átt þess kost að skoða
skrínið. Mun hann lýsa því fyrir
áheyrendum.
Að erindinu loknu verða tón-
leikar og verður leikið þar á ýms
blásturshljóðfæri og m.a. trio fyr
ir flautu, óbó og píanó, eftir J.J.
Quantz, en hann var kennari
Friðriks mikla í flautuleik.
Þá verður að lokum stiginn
dans, en í danshléum mun Ernst
Rúhmling segja gestum skemmti-
sögur.______________
Álfabrennan
ÞÁTTTAKENDUR í Álfadans-
inum eiga að mæta við íþróttahús
Háskólans kl. 8 e. h„ en ekki í
Hálogalandi eins og áður var
ákveðið.
Aðeins um 20 þús.
skömmtunarseðlar
í DAG lýkur úthlutun fyrsta
skömmtunarseðils fyrir hið ný-
byrjaða ár. Fer afhending seðl-
anna fram i Góðtemplarahúsinu.
í gærkvöldi höfðu aðeins um
20,000 manr.s vitjað seðla sinna.
Á skömmtunarseðiinum eru nú
bæði smjörlík-is- og smjörmiðar.
Afhendingu skömmtunarseðl-
anna lýkur kl. 5 siðdegis.
SIGURÐUR Halldórsson, íré-
smíðameistari, andaðist að heimili
sínu hér í bæ 2. janúar, 76 ára
að aldri.
Hann hafði alið allan aldur sinn
hér í Reykjavik, þótt vænt um
bæinn og fagnaði öllu því, er hér
gerðist og til framfara horfði. ■—
Hann var fæddur að Litlu-Grund
við Bergstaðastræti, en Grundar-
stígurinn mun draga nafn sitt af
því býli.
Byggingarsögu bæjarins þekkti
hann flestum mönnum betur. Um
langa ævi var hann í röð fremstu
og áhugasömustu iðnaðarmanna
höfuðstaðarins.
Hann var meðal stofnenda Frí-
kirkjusafnaðarins, vann og ann
kirkjunni af alhug. Traustur mað-
ur og skildurækinn.
Ófærð innaiÚKjar
í gærkveidi
SEINT í gærkveldi var svo
komið, að færð í úthverfi bæj-
arins var orðin mjög vond og
það jafnvel svo að algerlega
var ófært bílum t.d. inn í
Sogamýri. — Allmargir bílar
urðu fastir um skemmri eða
lengri tíma.
Ameríska körfuknattleiks-
liðið, sem ætlaði til Keflavík-
ur í gærkveldi, komst ekk;
nema suður á Hafnarfjarðar-
veg. IIjá Vífilsstöðum lenti
bíll þess útaf veginum, og
urðu íþróttamennirnir að gista
í Reykjavík í nótt.
Vaxandi kolaíramleiðsla
LUNDÚNUM, 3. jan. — Kola-
framleiðsla Breta var 222 millj.
smálesta 29. des. s. 1. Árið 1950
varð hún 216 milljónir smálesta
eða milljón smálesta meiri en í
hittiðfyrra.
Hlýnandi veður
um alft land
í FYRRINÓTT var mest 11,6
stiga frost hér í Reykjavík, en
annars ekki nema 5—6 stig á
annnesjum og með ströndum
fram víðasthvar um landið. — í
innsveitum var frostið aftur á
móti 10—17 stig og á Þingvöllum
var það sagt yfir 20 stig.
Samkvæmt upplýsingum Veð-
urstofunnar í gær gengur í suð-
austan átt og veður hlýnar um
ailt land.
Vinsæl spilakeppni í GT-húsHiu
■
274 visimenn á Elli-
beimilinu Grund
VISTMENN á Elliheimilinu
Grund voru 274 um síðustu ára-
mót, eða fjórum færri en um ára-
mótin 1950—51, en árið 1951 voru
vistmenn þó mun fleiri að meðal-
tali á dag en 1950, eða 278 í stað
264.
Konur voru í miklum meiri-
hluta á Elliheimilinu, eða 205, en
karlar 69. — 40 vistmenn létust
á Eiliheimilinu á s.l. ári, og var
meðalaldur þeirra 79 ár og 5
mánuðir. Elstur var Hildibrand-
ur Tómasson, 94 ára að aldri.
Frá árinu 1935 hafa 1522 vist-
menn komið á Elliheimilið. 983
þeirra hafa verið konur, en 539
karlmenn.
Námskeiðið hófst 25. október
og fór kennslan fyrst fram í húsa
kynnum Stýrimannaskólans, en
síðan var hún flutt í húsakynni
saltfiskverkunarstöðvar Bæjarút-
gerðarinnar. Námskeiðinu lauk í
vikunni milli jóla og nýárs.
Kennsla á námskeiðinu vap
með svipuðum hætti og áður. —
Eftirtaldar greinar voru kenndar:
Netjabætingar, kaðal- og víra-
smeygingar og uppsetning línu.
Ekki var unnt að koma því vi5
að þessu sinni að kenna aðgeríS
og söltun á fiski vegna erfið-
leika á að fá hentugan fisk á
þeim txma, sem námskeiðið stóiS
yfir. Kennarar á námskeiðinu
voru að mestu hinir sömu og |
fyrra. Forstöðumaður var Guð-
mundur Ingvarsson, en aðrir
kennarar voru Ágúst Oddsson,
Jóhann Bjarnason og Sigurðu?
Jónsson.
Bæjarráð fól á sínum tíma sér-
stakri nefnd að annast um fram-
kvæmd námskeiðsins, en í henni
eru þeir Davíð Ólafsson fiski-
málastjóri, Friðrik Ólafssom
skólastjóri, Jón Axel Pétur’ssom
framkv.stj. og Ragnar Lárusson
framfærslufulltrúi.
í kvöld kl. 8,30 verður nám-
skeiðinu slitið í Sjómannaskól-
anum og verða við það tækifæri
afhent prófskirteini til 33 nem-
enda, sem luku prófi. Auk þess
verður haldinn fyrirlestur um'
sjóvinnu og gerir það Jónas Jón-
asson fyrrv. skipstjóri. — Loks
verður sýnd kvikmynd af skozk-
um síldveiðum, en Fiskifélagið
hefur nýlega fengið þá mynd til
sýninga hér.
____________________I
[SPILAKEPPNI S. G. T. í Góðtemplarahúsinu, sem stóð yfir frá
5. október til 7. desember s.i„ lauk með sigri þeirra Ingunnar
Stefánsdóttur, er hafði 1634 slagi samtals og Aðalsteins Þorgeirs-
scnar, er hafði 1631 slag samtals.
Næst að slagafjölda urðu þau
Guðrún Jacobsen með 1617 slagi
og Halldór Kolbeins með 1630
slagi, en þau hlutu aukaverðlaun
100,00 kr. hvort. Aðalverðlaunin
voru hins vegar 500.00 kr. handa
dömunni og 500.00 kr. handa herr
anum.
Myndin sýnir þegar formaður
S. G. T., Björgvin Jónsson, og
spilastjórinn, Freymóður Jó-
hannsson, afhenda sigurvegurun-
um verðlaunin.
Talið frá vinstri: Björgvin
Jónsson, Halldór Kolbeins, Guð-
rún Jacobsen, Aðalsteinn Þor-
geirsson, Ingunn Stefánsdóttir og
Freymóður Jóhannsson.
Húsfyllir var jafnan á þessari
spilakeppni, sem þótti hin
skemmtilegasta.
Önnur sams konar spilakeppni
hefst í Góðtemplarahúsinu í
kvöld með 500.00 kr. verðlaunum
eftir 10 spilakvöld til þeirrar
dömu og þess herra, sem hæst
verða þá. Mun vissara að tryggja
sér aðgöngumiða í tíma, eftir
ver.junni að dæma.
Gulifaxi veSurteppt-
ur í Prestvík
MILLILANDAFLUGVÉLIN Gull
faxi átti að koma hingað til
Reykjavíkur í gærkvöldi, en
vegna veðurs hélt hún kyrru
fyrir í Prestvík í nótt.
Ráðgert er að vélin komi hing-
að um hádegi í dag.
Mjög ill færð á veg-
um sunnanlands
i
. FÆRÐ á vegum hér sunnanlandg
var enn mjög erfið í gær. Krýsu-
víkurleiðin var sú eina, sem opin
var austur í sveitir, en þar vac
þó þungfært á köflum. Þá var og
allmikill snjór á vegum á Suður-
landsundirlendi, og voru mjólkur
flutningar til Flóabúsins erfið-
leikum bundnir.
í gær var enn ófært fyrir Hval-
fjörð, og í gærkvöldi var búizfc
við að Keflavíkurleiðin myndi
lokast og féll síðasta áætlunar-
ferðin þangað niður. Ekki er þó
ósennilegt að hægt verði að gera
þá leið færa aftur í dag, ef ckki
snjóar eða skefur því meira.
W' 1 fÝ) ’ ^
Spánn fær 100 millj.
dala aðstcð
PARÍSARBÓRG, 3. jan. — Yfir-
maður Evrópudeildar hinnar gagn
kvæmu öryggisaðstoðar lýsti yfir
í dag, að Bandaríkjastjói'n mundi
ekki binda dollarahjálp til Spán-
ar neinu skilyrði né heldur beita
henni í því skyni að hafa áhrif á
stjói’nmálalíf landsins. Er yfir-
maðui'inn rétt kominn frá Spáni,
en stofnunin hefir veitt Spánverj-
um 100 millj. dala. —Reuter-NTB.