Morgunblaðið - 13.02.1952, Page 10
T 10
MORGUNBLAÐIÐ '
Miðvikudagur 13. febr. 1953
j* r. í i *- 'i';» - "iJ. &&
•iítdiXiii'i H
Framhaldssagan 5
að vita að ég er leynilögreglu-
þjónn að atvinnu?“
„Ja .. jú. Eg er hræddur um að
hann mundi hlæja að mér. Hann
er ákaflega gamansamur. Ég vil
, heldur að hann fái ekki að vita
um J3að“.
„Eg skal ekki segja honum
það“, sagði Mark. „En hvar er
allt fólkið? Ég hef ekki séð
nokkra sál, að yður og þjóninum
undanskildum“.
„Jú, við erum mörg á heimil-
inu. „Það er nú fyrst og fremst
Perrin, hann sem vísaði yður til
herhergis í gaerkvöldi. .. ég ætla
að tala um það við yður seinna.
Og svo eru stúlkurnar litlu Anne
og Ivy. Anne er átta ára. Ivy er
tveggja ára, held ég. Indæl börn.
Yður mun vera farið að þykja
vænt um þær fyrr en varir.“
„Það virðist ekki vera nokkur
vafi á að mér eigi eftir að líka
vel við alla“.
„Einmitt, einmitt“, sagði Stone
man. „Anne er að vísu dálítið ..
þroskuð, ef svq mætti segja, eftir
aldri. Þér megið ekki misskilja
mig, en ég held . . jæja, það skipt
ir ekki máli. Og svo er auðvitað
Jim“.
„Jim er líklega að reyna að
vera kurteis og heldur sér í hæfi-
legri fjarlægð á meðan ég sit á
tali við nýja starfsmanninn. Og
Laura hefur ekki farið úr her-
bergi sínu i nokkra daga núna.
Dálítið þunglvnd, en það liður
hjá. Það er veðrið og kyrrðin
hérna sem hefur svona áhrif á
hana. En....“.
„En andlitið á mér og tilbreyt-
ingin á eftir að lækna það. Ég
veit“.
„Jú, þér hafið góða kímnigáfu",
sagði Stoneman og hló. „Já, ekki
er það lakara. Börnin éru ein-
hvers staðaF úti, skyldi ég halda,
með annari stúlkunni. Þær fara
yenjulega út fyrri hluta dags“.
„Er margt þjónustufólk?“
ipurði Mark.
„Ekki eins máirgt og við þyrf.t-
um á að halda. Húsið ér gríðar-
lega stórt, og Laura vildi flytja
með sér sín húsgögn og húsbún-
að, borðbúnaðinn, gólfteppin, mál
verkin og rúmfatnaðinn . . auð-
vitað var það hreinn óþarfi. Hús
}ð var nógu vel útbúið en þér vit-
jð hvernig kvenfólk er. Og það
þúna, þegar ekki er hægt að fá
nokkra sómasamlega þjónustu-
stúlku. -Ég undanskil auðvitað
Perrin. Hitt er allt héðan úr sveit
inni og kann ekki mannasiði frek
ar en ég veit ekki hvað“.
„Hvað eru það margir?“
„Perrin, frú Lacey, Violet og
Élorence. Hvers vegna spyrjið
þár að því?“
„Til þess að ég rugli ekki sam-
4n frúnni og þjónustustúlkunum.
jlvernig eru stúlkurnar í útliti?"
; „Violet er ákaflega . . hraustleg
v . . rjóðar kinnar og sterklega
byggð. Florence er rólynd. Það er
varla að maður.verði var við hana.
Og frú Lacey . . . ég efast reyndar
ym að þér eigið eftir að sjá hana.
Hún býr til matinn . . og er reynd- j
ar mjög dugleg við það, en vesal-
ings konan er eins og pyi amidi
5 laginu og fer varla nokkurrr
tímann úr eldhúsinu. Hún er, held
ég líka nokkuð heimsk. Að minnsta
kosti er það mín reynsla“.
„Ég þakka þér fyrir upplýsing-
ainar", sagði Mark. „En hvað
setluðuð þér að segja um herbergi
)úitt?“
* „Já, einmitt. Ég var ekki búinn
að gleyma því. Ég hef ágætt
m#mi, ungi maður. Það verður
ekki skafið af mér. Perrin vísaði
yður inn í leiðinlegasta svefnher-
fcergið sem fyrirfinnst í húsinu.
Ef yður er sama, þá ætla ég að
biðja yður að skipta.
Mig langar til að þér séuð í
herberginu við þliðina á mér. —-
Baðherbergið er á milli okkar . . .
og þar getum við unnið í ró og
næði. Fallist þér á það?“
„yissulega. Á ég eð flytja dót-
ið mitt :núna?“
„Það verðyr gert fyrir yður . . .
en þér verðið að segja mér hvern,-
ig þér viljið helat eyða deginum.
Ef til vill viljið þér fá lánaðat
bækur og við höfum líka ágætt
útvarp . . . “.
„Ég er að hugsa um að fara í
gönguferð. Mig langar til að sjá
umhverfið í dagsljósi".
Stoneman leit skelfdur á hann.
„En snjóirnn, hann er mjög var-
hugaverður. Gangstígarnir ,eru
mjög biattir og klettárnlr . . þér
gætuð dottið og meitt ýðtir“.
„Var það þannig, sem þér meidd-
uð yður í úlnliðnum?“, spurði
Mark.
Aftur færðist daufur roði í
kinnar gamla mannsins og haon
leit á einhvern blett fyrir ofan
höfuð Marks. „Nei, það er í sam-
bandi við áfallið mitt síðasta. Ég
held að ég hafi minnst a þau við
yður fyrr . . . ókaflega óþægijeg
. . . ég missi jafnvægið, ég dctt
í þetta sinn í kjallaratröppunum,
en hafði þá vit á að halda niér
í handriðið".
„En þessi skráma, sem þér haíið
yfir auganu?“, spurði Mark.
„Þessi?“. Stoneman strauk
fingrunum laust yfir hana. „Þér
eruð sannarlega athugull ungur
maður. Ég vonaði að þér tækjuð
ekki eftir henni. Ég vil ekki að
þér haldið að ég sé einhver vesal-
ingur, sem getur ekki séð um sig
sjálfur. En satt að segja er það
vegna þessarar skrámu, sem ég
ræð yður frá því að fara í göngu-
ferð. I gær vogaði ég mér út og
skyndilega losnaði lítill steinn úr
klettunum og lenti hérna á mér
. . . ÉK hef ákveðið að vera innan
dyra þangað til veðrið -breytiSt tíf (
batnaðar“.
Hann hefur verið drukkinn;
hugsaði Mark með sjálfum sérj
Dauðadrukkinn, þegar hann datt
niður kjallaratröppurnar, en h%nn
vill ekki viðurkenna það. Drykk-
felldur og dálítið bilaður á geðs-
munum. Þetta verður skemmtilegrt.
fyrir mig. Ég verð um kyrrt
nokkra daga og athuga minn gang,
Upphátt sagði h.ann „Það er ósköp
að heyra þetta. En ég held að
ég fari út fyrir það. Nema þér
bannið mér það. Þér eruð yfir-
mafiur ipjnn, eins og þér vitið“.
,0, nei, nei, ég banna ekkért.;
Ég vil að yður geti liðið vel hér.
En munið að vera kominn heim
fyrir klukkan eitt. Þá borðum við
hádegisverð. Ætlið þér . . . haldið
þér að þér farið niður eftir til
Crestwood?“
„Mér datt það í hug. Á ég að
gera nokkuð fyrir yður þar“.
„Nei, nei. Þáð er ekkert eftir-
sóknarvert í Crestwood, eins og
þér munuð brátt komast að raun
um. En farið nú varlega og gætið
að stígunum, Þeir eru hættulegir".
Mark stóð upp. „Frakkinn minn
er í skápnum undir stiganum. Ég'
rata sjálfur út“. Hann sá hvernig
svitadropar söfnuðust saman á
enni gamla mannsins. „Eruð þér
vissir um að ég get ekki gert neitt
fyrir yður?“
„Nei, ekkert. Hreint ekkert. Ég
sit bara hérna við arininn og bíð
eftir að þér komið aftur. Getur
jafnvel verið að ég fái mér blund“.
Mark gekk hlóðlega út, tók hatt-
inn og frakkann út úr skánum.
Þegar hann gekk aftur fram hjá
dyrunum inn í bókaherbergið, sá
hann að Stoneman hafði snúið
stólnum, svo hann sneri fram
að dyrunum. •
Veggdúkur
ásamf tiíheyfandi chrom-
oðtirn iisfum og skinnum.
— fítmig fyrifiiggjandl
chromaðir lisfar fyrir 5
mm og 7 mm veggklæðn-
ingu.
Helgi Magnússon
& Cq.
Hafnarstræti 19. — Sími 3184.
Hitadunkar
Nokkur stykki af hinum vinsælu
BERRY’S og HARBRIX hitadunk-
um nýkomin. Sjóðandi yatn til
reiðu allan sólarhringinn. Ómiss-
andi þar sem ekki er hitaveita.
Þeir, sem eiga ósóttar pantanir
vitji þeirra sem fyrst.
Vesturgötu 2. Sími 80946.
ÆVINTÝRI MIKKA IV.
Gíraldi
Eftir Andrew Gladwin
8.
þetta er líka alvarlegt, athugaðu það. Þetta er sjaldgæf
skepna frá fjarlægu landi, skepna sem vísindin hafa aldreþ .
rekizt á áður. líverjir eru lifnaðarhættir Gíraldans? Hver ;
er staða hans í konungsríki dýranna? Og til hvers geta
mennirnir notað hann? __
Þetta eru spurningarnar, sem mestu varða. Og, svörin'
við þeim geta verið mikils virði. I
— Ja, auðvitað, samþykkti Mikki og reyndi að stilla sig. ■
Ég ætlaði alls ekki að hlæja, en .... nú, hann er svo und-^
arlegur.
Gíraldinn virtist allur í uppnámi vegna hléturs Mikka.
Hann varð mjög reiður, stappaði löppunum, hrissti haus-
inn og sveiflaði hölunum af meiri krafti en áður. Hann
reis upp á afturíæturna og prjónaði ógnandi með framlöpp-
unum. Og loks opnaði hann ginið og gaf frá sér hljóð, en
það var .hvórki öskur né ýlfur, heldur hænugagg! Hann
gaggaði fullum hálsi bæði hátt og lágt.
Undrun Mikka varð svo mikil að hann gleymdi að hlæja
og Gíraldinn, sem virtist hinn ánægðasti yfir því, hélt nú
áfram rölti sínu fram og aftur um búrið.
Prófessorinn hafði tekið minnisblokk úpp úr vasa sínum
og skrifaði af ákafa í hana.
— Ég skrifa hjá mér allar athuganir mínar á Gíraldanum,
sagði hann þegar hann hafði lokið við að skrifa. — Og þetta
var mjög eftirtektarvert. Honum var illa við að þú hlæðir
að honum, og ég skal segja þér bversvegna. Gíraldinn er
mjög tilfinninganæmt dýr, já, rnjög svo tilíinninganæmt!
* ..
Til sölu
er mikil hlunnindajörð í Strandasýslu.
Jörðin er vel húsuð; tún að mestu véltækt og mikið land
auðræktanlegt. Jörðin liggur vel til hverskonar útgerð-
ar, enda góð hafnarskilyrði. Af hlunnindum má nefna,
æðarvarp, selveiði, silungsveiði og trjáreka.
Nánari upplýsingar gefa
SVEINBJÖRN JÓNSSON og
GUNNAR ÞORSTEINSSON
hæstaréttarlögmenn.
Spilakvöld
Sjálfstæðisfélögin í Hafnarfirði halda sameigin-
legt spilakvöld í Sjálfstæðishúsinú fimmtudaginn
14. þ. m. kl. 8,30.
S)já ífá tœ (\iáfélöcjin