Morgunblaðið - 01.03.1952, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.03.1952, Blaðsíða 1
16 síður 29. árgangux. 50. tbl. — Laugardagur 1. marz 1952. FrenttmlSJa Mergonblaðsint, Réltarhöldin í Aþenu varða öll lýðfrjáls ríki segir innanríkisréðherra Grikklands RÉTTARHÖLDIN, sem nú fara fram í Aþenu yfir 29 kommún- istum, sem sakaðir eru um njósnir og landráð, hafa vakið heims- athygli. Hér er um að ræða umfangsmestu landráðaréttarhöld, sem fram hafa farið fyrir vestan járntjald síðan kalda stríðið hófst, og fyrstu tilraunina, sem gerð hefur verið til að staðreyna það sem heimurinn hefur raunar vitað um langt skeið, að kommúnista- flokkar lýðræðislandanna séu kostaðir og þeim stjórnað erlendis frá. Frakkland: Foure buðst lausnar — Reynaud gerir tilruun til stjórnarmyndunur ískyggilegar horfur á fjármálum Frakklands Venizelos LEYNISTOÐVAR AFHJÚPAÐAR Saga þessarar víðtæku njósna- j og landráðastarfsemi hófst fyrir j tveimur og hálfu ári, er upp- reisn kommúnista hafði verið bæld niður í Grikklandi. Lög- reglan komst þá á snoðir um dulmálssendingar, sem áttu sér stað milli leynistöðva í Grikk- landi og stöðvar í Rúmeníu, skammt frá Búkarest. í heilt ár ’ leitaði lögreglan grísku stöðv- anna, en án árangurs. í nóvem-! bermánuði síðastliðnum gerði lögreglan loks húsrannsóknir á tveim stöðum, þar sem hún fann sendi- og móttökutækl kommún- j ista og dulmálslykil til að ráða skeyti þau, sem hún hafði safn- að frá því sendinganna varð vart. Á báðum stöðunum fundust skjöl þar sem á voru letraðar fyrir- skipanir til grísku neð.anjarðar- hreyfingarinnar frá Búkarest. NICHOLAS ZACHARIADES Flestar fyrirskipanirnar voru undirritaðar af gríska kommún- istanum Nicholasi Zachariadesi, sem dvelst í útlegð í Rúmeníu. Þessar athafnir lögreglunnar leiddu til handtöku fjölda komm- únista, sem veitt höfðu njósna- hreyfingunni að málum. I HERRÉTTI Herréttur fer með mál allra sakborninganna samkvæmt grísk' um lögum frá 1936 og er búizt við að réttarhöldum ljúki að mánuði liðnum. Innanríkisráðherra Grikklands hefur látið svo ummælt, að rétt- arhöld þessi varði öll lýðfrjáls ríki þar sem samtök starfa, sem kalla sig kommúnistaflokka, en séu í rauninni ofstækisfullir og typtaðir óvinaherir .... j IHcCormick íLundúnum LUNDtJNUM, 29. febr. — Mc-. Cormick flotaforijigi Atlantshafs- bandalágsins er nú staddur í Lundúnum á ferðalagi sínu um aðildarríki bandalagsins. 1 fylgd með honum er aðstoðarflotaforingi hans Bretinn William Andrews. Mc-Cormick sagði í dag við fréttamenn, að Atlantshafsbanda- lagið þarfnaðist ekki flotastöðva á Spáni eða í spönsku Marokkó, þar eð bækistöðvar í frönsku Marokkó mundu fullnægja þörf- um þess. Hann boðaði flotaæfing- ar í sumar eða haust á Atlants- hafi. Aðalbækistöðvar flota Atlants- hafsríkjanna verða í Virginía í Bandaríkjunum sagði Mc-Cormick. Hann fer frá Lundúnum á þriðjudag til Kaupmannahafnar. _____________■—Reuter. BOSTON. — Skipsskuturinn af Fort Mercer, þar sem 13 menn höfðust við, hefir nú náð landi með aðstoð tveggja dráttarbáta. Einnig tókst að koma vél skips- ins í gang. utanríkisráðherra Grikklands, tók í fyrsta sinn þátt í störfum AtlantshafsráÖsins á fundum þess í Lissabon fyrir skömmu. Vinmæli í Róm RÓMABORG, 29. febr. — Veni- zelos, utanríkisráðherra Grikk- lands hafði viðdvöl í Rómaborg á leið sinni til Aþenu, en hann hef- ur setið fundi Atlantshafsráðsins að undanförnu. Á flugvellinum lét hann þau orð falla að hann vonaði að heim- sóknin hefði orðið til þess að treysta vinfengi Grikkja og ítala. De Gasperi forsætisráðherra svar- aði í sama dúr og skildust þeir með kærleikum. ■—Reuter. Lánadeild smáibúða hefur nú fekið fil starfa Lán aðeins veitt lil eigin íbúða Barnafjölskyldur og ungt fólk gengur fyrir um lán EINS GG kunnugt er ráðstafaði síðasta Alþingi fyrir forgöngu Sjálfstæðisflokksins 12 millj. kr. af rekstrarafgangi ríkissjóðs árið 1951 til framkvæmda í húsnæðismálum kaupstaða og sjávarþorpa. Skyldi 4 millj. kr. af því fé varið til bygginga verkamannabústaða, 4 millj. kr. til útrýmingar heilsuspillandi húsnæðis á vegum bæjar- og sveitarstjórn og með 4 millj. kr. var stofnuð sérstök lánadeild smáíbúða. Tilgangur hennar á að vera sá, að veita efnalitlu fólki lán til þess að byggja og eignast hentugar smáíbúðir. Var í þessn sambandi höfð hliðsjón af íbúðum þeim, sem hafizt hefur verið handa um að byggja fyrir frumkvæði bæjarstjórnar Reykjavíkur. — Félagsmálaráðuneytið gaf í gær út starfsreglur fyrir fyrrgreinda lánadeild smáíbúða. Fara þær hér á eftir. AÐEINS TIL EIGIN IBUÐA ' Lánadeild smáíbúðarhúsa veit- ir einstaklingum í kaupstöðum og kauptúnum lán, eftir því sem fé er fyrir hendi í sjóði lánadeild- íirinnar hverju sinni, til bygging- 1 ar smárra sérstæðra íbúðarhúsa og einlyftra, sambyggðra smá- húsa, er þeir hvggjast að koma upp, að verulegu leyti með eigin vinnu sinni og fjölskyldu sinnar. Fraxnh. á bls. S Álexander tekur við störfum LUNDÚNUM, 29. febr. — Alex- ander, fyrrum stjórnarfulltrúi Breta í Kanada, sór embættiseið sinn í dag, en hann tekur nú við störfum landvarnaráðherra af Churchill, sem hefur gengt því embætti frá því stjórnin var mynd- uð. ■—Reuter. Bófakröhir í Kaíró KAÍRÓ, 29. febr. — Talsmaður brezka sendiráðsins í Kaíró til- kynnti í dag, að þegar hefðu bor- ist 73 skaðabótakröfur frá brezk- um fyrirtækjum vegna tjóns í ó- eirðunum miklu 26. janúar s. I. Nema þær samtals 520 þúsund egypzkum sterlingspundum. Að auki hefðu 26 aðrar brezkar stofn- anir sett fram kröfur, en enn ætti eftir að meta tjón þeirra. Að- standendur þeirra sem myrtir voru í óeirðunum og þeir sem særðust hafa enn ekki gert bótakröfur. ■—Eeuter-NTB. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. PARÍS og Washington 29. febrúar. — Stjórnarkreppa er nú enii einu sinni skollin á í Frakklandi og er það í þriðja sinn á einu ári. Eftir að samþykktar höfðu verið flestar greinar fjáraukalagafrum- varps stjórnarinnar um aukin útgjöld til landvarna, laut hún loka í lægra haldi við atkvæðagreiðslu um þann lið frumvarpsins, sera fjallar um fjáröflun til þeirra ráðstafana, sem þegar var búið acS samþykkja. Atkvæði féllu þannig að stjórnin hlaut 283 atkvæðx gegn 309, en meðal þeirra sem snerust gegn stjórninni voru margip flokksmenn Faures forsætisráðherra. Frakklandsforseti hefur þegar; rætt við leiðtoga flokkanna um hið alvarlega ástand. Helgóland afhent í dag <*PAUL REYNAUD Auriol sneri sér til Paulá Reynauds fyrrum forsætisráð- herra, sem hann hafði kvatt heira frá Englandi í skyndi, en þar var hann á ferðalagi, og fól honura að gera tilraun til stjórnarmynd- FRANKFÚRT, 29. febr. — Vest- j unar. Reynaud er talinn atkvæða- ur-þýzkum yfirvöldum veröur af- mesti stjórnmálamaðurinn meðal lient eyjan Helgóland á morgun, * hægrima'ina í franska þinginu ogj laugardag, til fullra umráða, með er einmitt sérfræðingur í þeira þeim skilmálum, að á henni verði j málum, sem nú er mest aðkall- aldrei reist vígvirki, sem beint sé! andi að ráða fram úr. Reynaud gegn Bretum. tilkynnti, er hann hafði rætt vi?S Helgóland hefur um 7 ára skeið forseta þingsins, að hann teldi sig verið skotmark brezkra æfinga- flugvéla og var síðustu sprengj- unum varpað á eyna 21. febrúar síðastliðinn. Þýzkir lögreglumenn hafa dval- izt á Helgóland undanfama dága til þess að hindra að íbúarir flytt- ust til sinna fyrri heimkynna fyrr en fo'i'mleg afhendmg hefði átt sér stað, en þeir eru um 2500 talsins. Helgólandsbúar' vsenta á annað hundrað milljón króna framlags frá ríkinu til endurreisnarinnar. Kórea: Enn er deilt um hlutleysi Rússa TÓKÍÓ, 29. febr. — Fulltrúar Sameinuðu þjóðanna lýstu því yfir á samningafundi í Panmunjom í dag, að þeir mundu aldrei fallast á að Rússar tækju cuti í hlutlausri eftirlitsnefnd, sem áformað er að koma á fót, og því væri þýðingar- laust að minnast á það mál fram- ar. 1 fangaskiptanefndinni situr að heita má við það sama. Samkomu- lag varð um aukaatriði í dag, en megin ágreiningsefnið er sem fyrr sjálfsákvörðunarréttur fanga. Skriðdrekar S. Þ. gerðu harð- vítuga árás á miðvígstöðvunum í dag með góðum árangri. —Reuter. 9 vegnir í Malaja KÚALA LÚMPÚR, 29. febr. — Brezkur verkfræðingur og ' inn- fæddur lögregluþjónn voru skotn- ir til bana í Malaja í dag, er hi’yðjuverkamenn gerðu þeim fyr- irsát í skógarrjóðri, þar sem þeir áttu leið um. Tveir menn aðrir hlutu áverka í skothríðinni. —- Undanfarna 2 daga hafa Bretar vegið 7 hryðju- verkamenn í bardögum. —Reuter. hafa möguleika til að koma nýrri stjórn á laggirnar, en óvíst væri hvort hún hlyti tilskilinn stuðn- ing í þinginu, sem er 314 atkv. NÆTURFUNDIR í nótt hyggst Reynaud ræða við leiðtoga flokkanna og í fyrra- málið (laugardag) gengur hann á fund forsetans. Kunnugir menn telja að jafnaðarmenn verði treg- astir til þátttöku í þeirri sam- steypustjórn, sem talið er afí, reynt verði að mynda. ÁÆTLANIR ÚT UM ÞÚFUR Stjórnarkreppan í Frakklandl hefur valdið stjórnmálamönnura vestan hafs og í bækistöðvura Atlantshafsbandalagsins miklura áhyggjum. Líkurnar til þess, a5 Frakkar fái risið undir skuldbind ingum sínum við bandalagsríkin og varnir Vestur-Evrópu hafa nú rýrnað að mun. Getur það bein- línis haft þau áhrif, að áætlanir og tímaákvarðanir í þeim málura fari að miklu leyti út um þúfur. Engar líkur voru til þess, a<3 Frakkar gætu staðið í skilura nema tillaga stjórnarinnar ura 15% 'skattahækkun yrði sam- þykkt. 25 MILLJARÐA FRANKA LÁN Vegna hins óhugnanlega efna- hagsöngþveitis, sem af stjórnar- ^kreppunni leiðir samþykkti franska þingið í kvöld með 408 atkvæðum gegn 101 tillögu stjórn arinnar um 25 milljarða franka neyðarlán hjá Frakklandsbanka til að standa straum af útgjöldura franska ríkisins, en dagleg út- gjöld eru nú miklum mun meiri1 en tekjurnar. ÁHYGGJUEFNI Hin tíðu stjórnarskipti í Frakk- landi eru orðin mikið áhyggju- efni manna þar í landi. Óttasfi þeir að vonum að ríkisvaldicS missi tiltrú fólksins og aðstaða þess veikist þannig að til ískyggi- legra atburða geti dregið, ef á- framhald verður á.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.