Morgunblaðið - 01.03.1952, Side 8

Morgunblaðið - 01.03.1952, Side 8
B MORGVISBLAÐIÐ Laugardagur 1. marz 1952 Útg.: H.f. Árvtkur, Keykjavík. Framkv.stJ.: Sigfúa Jónsson. Ritstjóxl: Valtýr Stefánsson (ábyrgffarmj Lesbók: Áml Óla, sími 3045. Auglýsingar: Áml GarCar Krfstinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 18,00 á mánuði, lnnanlands. I lausasölu 1 krónu eintakið. Kr. 1,25 með LesbóK. Hvaða verndar þarfnast inn- lendur iðnaður ? ÝMSAR greinar íslenzks iðnaðar hafa undanfarið átt við erfiðleika að etja. Framleiðsla þeirra hefur dregizt saman og allverulegt at- vinnuleysi skapazt hjá iðnaðar- fólki. Meginástæða þessara erfiðleika er sú, að hinn innlendi iðnaður hefur ekki þolað samkeppnina við ýmsar erlendar iðnaðarvörur, seih fluttar hafa verið til landsins síðan rýmkað var um verzlun og innflutning. Undanfarin ár, með- an höft og hömlur settu svip sinn á verzlun og viðskipti, var ekki um slíka samkeppni að ræða. Atvinnuleysi iðnaðarfólks er að sjálfsögðu vandamál, sem varðar fleiri menn en þá, sem misst hafa atvinnu sína eða réka verk- smiðjur og iðnfyrirtæki. Allri þjóðinni er það mikilvægt hags- munamál að unnt verði að efla innlendan iðnað og gera atvinnu- líf þjóðarinnar þar með fjöl- breyttara og lífvænlegra. Hitt hlýtur öllum að vera ljóst, að fráleitt er að ætla sér að vernda innlenda iðnframleiðslu til lengd- ar með innflutningshömlum og allsherjar haftapólitík. Því færi víðsfjarri að hagsmuna almenn- ings væri gætt með slíkri stefnu. Kjarni málsins er sá, að hags- munir almennings krefjast frjálsr ar verzlunar og samkeppni um viðskiptin. En jafnhliða verður að freista þess að treysta grund- völl innlends iðnaðar og veita honum þann stuðning, sem frek- ast er unnt. ★ Þess vegna verður að vænta þess að hið opinbera og sam- tök iðnaðarins sjálfs taki höndum saman um víðtæka rannsókn á leiðum, sem til greina koma í því skyni. Að henni lokinni er hægt að gera dæmið upp. Þá ættu að liggja fyrir upplýsingar um, hvers konar og hve mikils stuðnings einstakar iðngreinar þarfnast til þess að geta haldið uppi framleiðslu og atvinnu. Þá verður það væntanlega einnig ljóst, hvaða iðnaður er heil- hrigður og á vernd skilið og hver ekki. Hvar er spamaðar- nefnd Eysfeins! + Að því verður fyrst og fremst að stefna að géra innlenda iðn- framleiðslu samkeppnisfæra við hina erlendu. Ef það ekki er hægt verður að athuga, hvaða stuðning einstakar iðngreinar þurfa til þess að geta borið sig og staðizt samkeppnina. Um það blandast áreiðanlega fáum hugur að sjálf- sagt er og eðlilegt að ívilna inn- lendum iðnaði. Slíkt má þó ekki gerast á þann hátt að honum sé sköpuð alger einokunaraðstaða. Sá stuðningur væri of dýr fyrir þjóðina og ennfremur fjarri því að vera heppilegur fyrir iðnaðinn sjálfan. Hófleg samkeppni er allt- af líklegasta leiðin til þess að skapa vöruvöndun og stuðla 'að framförum og umbótum í fram- leiðslunni. Á Varðarfundi, sem haldinn var fyrir nokkrum vikum, benti Bjami Benediktsson ut- anríkisráðherra á það, að nauðsynlegt væri að rannsókn yrði látin fara fram á því, hvaða stuðnings þær iðngrein- ar þörfnuðust, sem orðið hafa að lúta í lægra haldi fyrir er- lendum iðnvarningi, sem inn hefur verið fluttur síðan rýmkað var um verzlunina. Hann taldi að auðvelt ætti að vera að framkvæma slíka rannsókn. ★ Fyllsta ástæða er til þess að taka undir þessa tillögu ráðherr- ans. Atvinnuleysið hjá iðnaðin- um er orðið svo tilfinnanlegt að óhjákvæmilegt er að athugaðar verði leiðir til ,þess að bæta úr því. Það hlýtur og að sjálfsögðu að vera takmark þjóðarinnar á hverjum tíma að framleiða sem allra mest af nauðsynjum okkar í landinu sjálfu. Margar stoðir renna því undir þá kröfu, að hið allra fyrsta verði snúizt að því að gera sér það Ijóst, hvað þurfi að gera til þess að létta iðnaðin- um rekstur sinn, án þess þó að skapa honum einokunaraðstöðu með innflutningsbönnum og höft- um. í FRAMHALDI af umræðunum um sparnaðarnefnd Reykjavíkur, sem starfað hefur>síðan árið 1947 fyrir frumkvæði Sjálfstæðis- manna væri ástæða til þess að spyrja Tímann, sem hefur verið með tilburði til að þakka þessa sparnaðarviðleitni, Framsókn og fulltrúa hennar í bæjarstjórn, að því, hvar sparnaðarnefnd Ey- steins Jónssonar sé. Þá mætti einnig varpa fram þeirri spurn- ingu, hver árangur hafi orðið af starfi hennar? Það væri mjög fróðlegt að fá upplýsingar um þetta. Raunar er óþarfi að gera ráð fyrir að þær verði mjög jákvæð- ar. Skammt er síðan Alþingi lauk afgreiðslu hæstu fjárlaga hins íslenzka ríkis. í sambandi við hana-birtust engar sparnað- artillögur frá fjármálaráðherran- um. Útgjöld ríkisins hafa hlut- fallslega hækkað allmiklu meira en útgjöld Reykjavíkurbæjar. — Stórkostlegar umframgreiðslur hafa einnig átt sér stað utan fjár- laga. Vegna stóraukinna tolla- og skattatekna ríkis hefur þó tekizt að halda ríkisbúskapnum greiðslu hallalausum. ★ Allt bendir til þess að ríkið muni á næstunni ekki komast hjá að hafa svipaðan hátt á og Reykjavíkurbær. Það verður að fela reyndustu og beztu starfs- mönnum sínum að gera tillögur um hagkvæmari rekstur og ódýi- ari framkvæmd ýmis konar starf- semi. Það skal engan veginn dregið í efa að núverandi fjár- málaráðherra vilji gjarnan stuðla að slíkri sparnaðarviðleitni. En ennþá hefur hún ekki séð dags- ins ljós. Tíminn, blað Framsóknar- flokksins, veit þetta. Þess vegna reynir það af veikum burðum að þakka félagsmála- ráðuneytinu og fulltrúa sínum í bæjarstjórn forsjálni og ráð- deild borgarstjóra og Sjálf- stæðismeirihlutans, sem stjóm ar málum höfuðborgarinnar. ' Djarfasti njósnari neimS' styrjaidarinnar síðari Hafi nokkur maður nokkru sinni kunnað að leika tveim skjöldum, er það Richard Sorge. Hann var fæddur í Baku fyrir aldamótin, rúss- neskur að mcðerni,en þýzkur að faðerni. Ólst upp í Þýzka landi og barðist með Þjóð- verjum í fyrri heimsstyrjöld- inni. Eftir það las hann hag- fræði, gerðist síðar blaða- maður og fluttist til Austur- ríkis, en þar gerðist sú saga, sem hér er sögð. STÓRKOSTLEGASTA njósna- mál síðustu heimsstyrjaldar er órjúfanlega tengt nafninu Richard Sorge. Hann var um langan aldur fréttaritari þýzka stórblaðsins „Frankfurter Zeitung“ í Tókíó. Þegar Mac Arthur gaf á sínum tíma opinbera skýrslu um mál, Sorges, lét hann svo um mælt, að öll önnur njósnamál á síð- ast liðnum tíu árum væru barna- leikur einn í samanburði við það, sem Sorge hafði afrekað. FÆDDUR í BAKU Sorge fæddist 1907 í Baku við Kaspíahaf. Faðir hans var þýzk- ur, en móðirin rússnesk. Allt frá bernsku var hann hinn gjörfu- legasti að velli; tók hann því snemma þátt í íþróttum við góð- an orðstír. Hann tók þátt í heims- styrjöldinni fyrri og særðist oft. Eftir styrjöldina las hann hag- fræði og starfaði um skeið sem námaverkfræðingur í Belgíu og Þýzkalandi. Hann tók síðan að fást við blaðamennsku, og 1931 var hann sendur til Kína á kostn- að blaðs þess, er hann starfaði við. Átti hann að kynna sér bún- aðarhætti þar. Síðar var hann sendur til Japan í sömu erinda- gjörðum. í ÞJÓNUSTU RÚSSA Er hann var handtekinn í Tókíó, í októbermánuði árið 1941, kom í Ijós, að hann hafði verið skráð- ur meðlimur þýzka kommúnista- flokksins allt frá 1918. Nokkrum árum eftir fyrra stríðið, gerðist hann leynifulltrúi Rússa, og hafði hann því starfað lengi í þeirra þjónustu, er hann var sendur til Austurlanda. Á síðustu áAim áð- ur en hann var handtekinn, stóð hann í nánu sambandi við fjórðu skrifstofu rauða hersins. TIL JAPAN Sorge kom fyrst til Japan árið 1933, og vegna töfrandi fram- komu og óvenju glæsilegra gáfna, aflaði hann sér skjótt margra vina. Hann var í meðallagi hár, herðibreiður, og jafnan vel bú- inn. Ungu stúlkurnar í Tókíó urðu frá sér numdar af hrifningu og fannst hann vera ímynd hins fullkomna kvikmyndaleikara. FJÖLBREYTT STARFSEMI Njósnastarfsemi Sorges í Japan var fólgin í því, að á hverju kvöldi milli kl. 19 og 20, á ár- unum 1933—1941, sendi hann skeyti um leynilega sendistöð, sem fólgin var í bústað þýzka sendi- herrans í Tókíó. Sorge til að- stoðar við útsendingar þessar, var útvarpssérfræðingur, Max Klau- sen, að nafni. Þeir fálagar sendu daglega fregnir af því, sem gerð- ist á fundum japönsku stjómar- innar; enn fremur létu þeir hin- um rússnesku yfirboðurum sínum í té mikilvægar upplýsingar, sem þeir öfluðu sér á þýzku ræðis- mannsskrifstofunni. Svo var Sorge fyrir að þakka, að Rússar vissu löngu fyrir fram um andkomin- tern- samninginn, þríveldasátt- málann og öll samskipti Banda- ríkjanna og Japana. Hann gerði Rússum viðvart um árás Þióð- verja, fjórum vikum áður en hún var gerð (Stalin hafði einnig fengið upplýsingar frá Churchill um þetta atriði, en látið þær sem Pýzká klaöaiTisð^riíin, sesn vas* náinn vinur sendiherra verja í Tokíó9 en jafnframf skæd- asti njésnari Rússa í vind um eyrun þjóta). Einnig skýrði hann Rússum frá því, að þeir myndu ekki þurfa að óttast japanska árás. Síðustu skeyti hans, sem send voru í október 1941, voru á þá leið, að Japanir myndu að öllum líkindum ráðast á Bandaríkin og England í nóv- ember eða desember s.á. NÁKVÆMAR UPPLÝSINGAR Öll þau ár, sem hann dvaldi í Japan, lét hann Rússum í té nákvæmar skýrslur um hergagna framleiðslu og herstyrk Japana, staðsetningu einstakra herdeilda, iðnaðarframleiðslu, kola- og oUu- birgðir o. s. frv. Þessar upplýs- ingar gerðu Rússum kleyft að snú- ast á réttan hátt við flóknum vandamálum, hernaðarlegs og stjórnmálalegs eðlis. í augúm Rússa var Richard Sorge dýr- mætari en heilt herfylki. EINKALÍF OG NJÓSNARI 1 njósnaraflokki þeim, er Rich- ard Sorge hafði um sig, var helzt- ur valdamaður Japaninn Hozumi Ozaki, sem hafði yfir að ráða mjög góðum samböndum. Var hann t. d. um skeið einkaritari forsætisráðherra Japana, Konoye fursta. Sjálfur var Sorge náinn vinur þýzka sendiherrans, Ott. —• Einnig stóð hann í nánu sambandi við þýzka hermálaíulltrúann og aðra starfsmenn sendiráðsins, og sem blaðamaður hafði hann prýði- I lega aðstöðu til að afla marg- | víslegra upplýsinga. I Um margra ára skeið lifði Sorge tvíþættu lífi. Það var ein- göngu að þákka viljaþreki hans og þrautseigju, að hann lét ekki |bugast. Fyrir tilviljun eina komst jhann í náin kynni við ýms fórn- I arlamba sinna. Margir þeirra, sem ,hann vann gen á laun, dáðu hann og virtu, og alla tið umgekkst hann mikið óvini sína. ÖRLAGARÍK „MISTÖK“ Þótt undarlegd; megi virðast, urðu kommúnistar sjálfir til þess Framh. á bls. 12. Velvakandi skriíai: tm DASLSGA KÍFZNV Vanhelgun arfsins. VELVAKANDI. í augum þjóð- arinnar hefir aldrei og verð- ur aldrei til nema ein Snorralaug, laugin þar sem Snorri fór í bað. Og þessi laug er ótvíræður dýr- gripur, óvenjuleg finnst okkur, þar sem hún ber raunar af flest- um fornmingjum hérlendis. Það eru því málspjöll af verstu tegund, þegar nafn hennar er tek ið bessaleyfi Qg því klínt á gróða- fyrirtæki í Reykjavík. Sannar- lega hlýtur hlutverk væntanlegr- ar málverndarstofnunar m. a, að vera að koma í veg fyrir slíka vanhelgun á sögu og tungu þjóð- arinnar. Einhvern góðan veðurdag get- um við búizt við að rekast á daunilla bjórknæpu í Hafnar- stræti með skræpóttu skilti, þar sem á stendur Þingvöllur. Ég mótmæli þessu, og fullyrði að ráðizt hafi verið inn í vé ís- lenzkrar tungu og menningar. /E. S.“ '■< ’ Hún smíðar með manni sínum KONAN, sem sendir þetta bréf, lætur sig hafa það að aðstoða mann sinn við húsasmíðarnar. ,;Kæri Velvakandi. Ég get ekki stillt mig um að skrifa þér fáar línur. Hinn 15. febrúar talaðir þú um lán til smá- íbúðarhúsa, og langar mig nú að spyrja: Er eingöngu miðað við lítil hús eða hús undir 100 ferm.? Ef svo er, hvers eiga þá þeir að gjalda, sem eru komnir á veg að . . . húsfreyjan vinnur með manni sínum. reisa sér stærri hús, en hefðu viljað njóta góðs af lánunum? Það er hver sjálfum sér næst- ur, og á ég hér við mig og minn mann. Við erum að koma okkur upp húsi utan við bæinn, ein hæð 110 ferm. Vantar peninga VIÐ fáum barnfóstru til að vera hjá börnunum öll kvöld og helgar til þess að geta verið bæði við vinnu í húsinu langt fram á nætur. Ekki kemur til greina að' kaupa út handtak, því að pening- ar eru af skornum skammti. Annars þykir mér virðingar- vert, hve margir leggja hart að sér til að eignast heimili og hús eins og nú er ástatt, að þurfa að sækja um leyfi á leyfi ofan. Það er líka vonandi, að innan skamms verði þetta frjálst, svo að allur eltingarleikur úr einu horninu í annað stöðvist. . Kona í byggingarvinnu." Breyting til batnaðar. ÞAÐ er sannarlega illt í efni, að allir skuli ekki geta fengið lán til að eignast þak yfir höfuð- ið, en því verður þó ekki í móti mælt, að vel hefir miðað í áttina. Úr því að ekki reyndist kleift að verða við allra óskum, þá er eðli- legt, að lánin séu bundin við til tekna stærð, nokkur stórhýsi gætu svelgt allt lánsféð að öðrum kosti. Tólf milljónir Iánaðar til húsasmíða. SEINASTA alþingi samþykkti, að ríkissjóður skyldi lána 12 milljónir tekjuafgangsins til húsa smíða. Renna 4 milljónir til smá- íbúða og sitja þessir fyrir lánum til þeirra: Barnafjölskyldur, ungt fólk, sem stofnar til hjúskapar, fólk, sem býr í heilsuspillandi nús næði, er ekki verður útrýmt sam- kvæmt III. kafla laga um opin- bera aðstoð við byggingar íbúðar- húsa í kaupstöðum og kauptún- um. Aðrar 4 milljónir verða lánaðar fólki í samræmi við fyrrnefndan III. kafla. (Ef til vill gæti „kona í byggingarvinnu" fengið lán sam kvæmt því :ákvæði, því að þar er ekjki bundið við ,,smáíl»úðir“). — Loks eiga 4 milljónir að renna til verkamannabústaða.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.