Morgunblaðið - 20.04.1952, Blaðsíða 7
Sunnudagur 20. apríl 1952
MORGUNBLAÐIÐ
7
Hákon Kristófenson hrepp>
stjórs í Hága 15 ára
EINN af merkustu bændum lands
Ins, Hákon Kristófersson hnípp-
stjóri og fyrrverandi alþm. í Haga
'á Barðaströnd, er 75 ára í dag.
Hákon er fæddur að Hregg-
stöðum á Barðaströnd, sonur
Kristófers Sturlusonar er lengi
bjó síðar að Brekkuvelli á Baiða-
strönd og konu hans Margrétar
** Hákonardóttur bónda á Hregg-
stöðum Snæbjörnssonar. Var
’’ Hákon einn af 17 börnum þeirra
merkis og dugnaðarhjóna. Má
geta nærri hversu frábæran dugn
að og hyggindi hefur þurft íil
þess að koma upp svo stórum
barnahóp svo að vel væri, enda
var heimili foreldranna þekkt að
ágætum, og átti hin frábæra móð-
ir hans ekki hvað minnstan þátt í
því áliti. Við kné móður sinnar
fékk Hákon sína fyrstu fræðslu
eins og svo margir aðrir ágætis-
menn á þeim tímum, og hún var
honum það vegarnesti er reyndist
honum drýgst alla æfi, enda naut
I hann ekki annarrar menntunar,
að undanskyldri þeirri, er hann
aflaði sér sjálfur, með lestri
góðra bóka og frábærri eftirtekt
á öllu nýju, sem fyrir augun bar
/ í skóla sjálfs lífsins. Á árunum
I' 1901—1902 dvaldi hann við verzl-
\ unarstörf á Patreksfirði, en stund
t aði síðan iarðyrkju og ýmsa
vinnu til 1907 að hann gerðist
/ bóndi á hinu mikla höfuðbóli
Haga á Barðaströnd, hvar hann
‘ hefur búið síðan alla tíð, eða í
: hartnær hálfa öid. Má af því
•, marka hversu líf hans og störf
hafa verið samgróin íslenzkri
mold. Hann er aðeins 28 ára að
, íaldri, er hann tekur við hrepp-
stjóraetnbætti í sevit sinni, og
hefur hann gegnt því alla tíð síð-
an, eða í nærri hálfa öld, og jafn-
an með hinum mesta skörungs-
skap. Hann er kjörinn þingn.aður
Barðstrendinga 1913 og er jafnan
endurkosinn til 1931, og hafði þá
setið á Alþingi í 18 ár, eða lengur
en nokkur annar þingmaður fyrir
það kjördæmi. Má af því marka
hversu vinsæll fulltrúi hann hef-
ur verið og hve mikið traust sýslu
búar hafa borið til hans. Urn ára-
tugi hefur hann gegnt oddvita-
störfum fyrir sveit sína og sýalu-
nefndarmaður hefur hann verið
um tugi ára. Öll þessi störf hefur
Hákon leyst af hendi með prýði,
og jafnan haft það efst í huga,
,, sem hann vissi bezt henta fyrir
sveit sína og hérað. Var hann
jafnan fastur í skoðunum, lét
ekki. hlut sinn fyrir neinni and-
stöðu, og var tregur að kasta frá
sér þjóðlegum siðum fyrr. e.n
sannað var að nýrri siðir væru
þjóðinni hollari og eiga því hin
gömlu þjóðíegu verðmæti þarj
traustan fulltrúa. Hann hefur |
hins vegar ávallt verið fús að ljá
þeim nýjungum mikið lið, eri
sýnilegt var, að bætt gæíu hag1
fólksins og þjóðarinar, hvort
heldur það snerti atvinnu íil
lands cða rjávar.
Alla búskapartíð Hákonar heí-
ur Hagi legið um þjóðbraut þvera
o'J flestir, sem um veginn hafa
farið komið þar við, og jafnan
mætt þar gestrisni og miklum
höfðinsskap, hafa bæði hjónin
verið sammála um að halda uppi
. slíkri' rausn, þótt oft hafi það
hlotið að höggva skarð í efnahag-
inn. svo mikill fjöldi sem þar hef-
ur jafnan um garð gengið, en það
hygg ég að Hákoni félli þyngst af
öllu, ef hér yrði að taka upp aðra
siði, og er það ein sönnunin fyrir
fastheldni hans við þjóðlegar
venjur og höfðingsskap.
Persónulega kynntist ég ekki
Hákoni fyrr en 1937, en síðan heíi
ég áít við hann ýms viðskipti
bæði sém íorvígismann sveitar
sinnar, bónda og vin. Hefur íram-
koma hans í þeim viðskiptum
ávallt markast fvrst og fremst af
á.st hans til héraðsins og um-
hyggju hans fyrir framtíð þess,
og þess fólks, sem þar býr. Er hér
sjálfsagt að einhverju leyti um
að ræða arf frá þeim timum, er
hann sjálfur stóð í baráttunni íyr
ir umbótum, er sterkur vilji og
enn meiri þörf var að koma á, en
geta engin. Þó speglast hér einnig
skýrt óbilandi trú hans á íram-
tíð héraðsins og sterk löngun til
þess að sjá það blómgast og bless-
ast.
Því hefur stundum verið haldið
fram, af þeim, sem ekki hafa vilj-
að skoða alla hluti í ljósi sann-
girninnar, að barátta Hákonar
fyrir umbótum í sýslunni á þeim.
árum er hann var þingmaður,
hafi ekki borið tilhlýðilegan ár-
angur. En hér er um mikinn mis-
skilning að ræða. í fyrsta lagi
verður að skoða þessi mál og
dæma með tilliti til þess efnahags
sem þjóðin þá átti við að búa, en
ekki við ánnan og miklu betri
efnahag síðári tíma, en auk þess
er það fullvíst, að margar þær
umbætur, sem héraðinu hlotnað-
ist síðar, voru undirbúnar að
fullu af Hákoni, er hann var þing
maður, þó þær kæmu ekki til
framkvæmda fvrr en annar mað-
ur hafði tekið við umboðinu, enda
er það víst, að hann ruddi veginn
og varðaði hann á ýmsum svið-
um, svo að hægara varð fyrir þá
sem á eftir komu, og verður það
aldrei fullmetið. Þá ber því held-
ur ekki að gleyma, að Hákon
var jafnan á.Alþingi sterkur bar-
áttumaður fýrir fullu frelsi þjóð-
ar sinnar, en það var hornsteinn-
inn a& efnaiegu og andlegu sjálf-
stæði hgnnar.
Þegar hann nú í dag er 75 ár.a,
v.il ég færa honum þakkir og virð
ingu mína fyrir öll þau störf, sem
hann hefur ynnt af hendi fyrir
hérað sitt og þjóð, um leið og ég.
vona og óska að Barðstrendingar
eignist marga menn honum líka
að skapgerð, dugnaði, drengskap
og höfðingsskap á allan hátt.
Persónulega bakka écr honum alla
vináttu og mörg heilræði í sam-
bandi við þjóðmálastarfið. Eng-
inn hefur kennt mér betur en
hann, að skilja líf og baráttu
bóndans og meta gildi verka hans
fyrir þjóðarbúið, enginn getað
sannað mér betur en hann, hve
aldagömul menning bændanna er
þjóðinni mikils virði, og hve rétt
mætt það er og nauðsynlegt að
berjast fyrir því að hún haldi'
velli, en skolist ékki brott í flóð-
öldum yfirborðsmenningu nýrra
tíma.
Heill sé honum og heiður og
blessuð séu störf hans öll. Megi
honum hlotnast fögur og friðsæl
ár, það sem eftir er af lönguni'
og merkum starfstírha;
Gísli Jónsson.
Til hreingerninga
Eimir
Hildibrmidssozi
# ti
C B n
í DAG 20. apríl er Einar Hildi-
brandsson, Ásvallagötu 23 hér í
bænum, sjötugur. Hann er fædd
ur að Brekku í Þykkvabæ 20.
apríl 1882. Foreldrar Einars voru.
Hildibrandur Gíslason og Sigríð-
ur Einarsdóttir. Áttu bau hjón
fjölda barna, en af þeim eru nú
aðeins tvö á lífi, Einar og Sigríð
ur, sem nú dvelst í Hafnarfirði.
Þegar Einar var þriggja ára
fluttust foreldrar hans að Vetleifs
holti og þar ólst hann upp íil
fullorðinsára. Var Einar snemma
fjörmaður mikill og kappsainur
til verka. Fór hann á yngri árum
oft í leitir á haustin og er síðan
þaulkunnugur afréttarlöndun-
um upp af Rangárvallasýslu. Á
þessum árum fór hann einnig
iðulega lestaferðir til Reykjavik
ur og voru slíkar ferðir í bátíð
stundum hinar mesíu svaðilfarir
og ekki heiglum hentar.
Árið 1908 fluttist Einar til
Reykjavíkur og hefur átt hér
heima síðan. Vann hann um nokk
urra ára skeið hjá MiRjónafélag-
inu svonefnda, en tók síðan að
stunda akstur á eigin spýtur. —
Vann Einar sér fljótlega traust
allra viðskiptavina sinna fyrir
dugnað, áreiðanleik og heiðarleik
í stóru og smáu.
Árið 1930 réðst Einar í þjón-
ustu Reykjavíkurbæjar. Vann
hann í fyrstu við akstur, en siðar
við gatnahreinsun bæjarins og
þar vinnur hann enn. Hefur hann'
í þessum störfum sýnt hina sönnu
dyggð og trúmennsku sem í öðru.
Einar kvæntist 1908 Önnu
Magnúsdóttur frá Hæringsstaða-
hjáleigu í Flóa. Anna er af Bergs
ætt og er hin mesta myndar- og
rausnarkona. Eru þau hjón bæði
gestrisin með afbrigðum, og er
tíðum gestkvæmt á heimiii
þeirra, bæði af kunningjum
þeirra í Reykjavík og ættingjum
og kunningjum Einars úr Rang-
árþingi, en hann hefur aldrei rof
ið tengslin við átthagana og hef-
ur farið austur í flestum sumar-
leyfum sínum. Þau Einar og
Anna eiga einn son Guðmund
Oskar, sem kvæntur er Guðrúnu
Davíðsdþttur.
Einar Hildibrandsson er f'inn
þeirra manna, sem menn fá því
meiri mætur á sem þeir kynnast
þeim þetur. Hann er heiðursmað-
Einar HiMibrandsson
ur, sem ekki má vamm sitt viia
í einu né neinu, rausnarmaður og
höfðingi heim að sækja, enda á
hann efiaust kyn sitt að rekja til
Oddverja hinna "ornu, - — Hartn
er einarður í máli og hreinskil-
inn við hverr. sem er og fer þar
ekki í manngreinarálit. Alltaf er
Einar glaðvser og hress í fasi og
heíur spaugsyrði á reiðum hönd-
um, en alli er gaman hans
græzkulaust. Hann er einn þeirra
manna sem kemur manni alltaf
í gott skap, enda er Einar vinsæll
maður, bæði í Reykjavík og
Rangárvallasýslu. Það er því ekhi
að efa, að þeir verða margir, seia
senda þessum heiðursmanni hlýj
ar kveðjur á sjötugsaímæli han»
og árna honum og fjölskylck*
hans heiila. _
Ólafur Hansson.
Efnainníhalti i
í FRÁSÖGN af samanburði at-
vinnudeildar Háskólans á ís-
lenzku Stjörnubóni og erlendri
bóntegund í blaðinu í gær, var3>
slæm viUa í töflunni um eína-
innihald bóntegundanna. Þat»
efni er sögð voru í ísl. tegimð-
inni eru í hinni erlendu og öfugt.
Rétt lítur taflan út þannig:
Upplausnar efni Erl.teg. ísl.teg. 70.0% 54.0%
\axblanda 30.0% 46.0%
Bræðslumark 72.0°C 72.0“
J'oðtala 2.5 2.0
Sýrutala 2.13 2.5a
Sáputala 12.0 13.3
Ósápuhæf efni 75.9% 58.6%
Aóalumhoðsmenn fyrir
KLÖCKNEE-HLMBOLDT-DEUTZ A. G.
Hsniar hf.9 Tryggvagötu, sími 1695
Húsgögn
Eftirtalin húsgögn höfum við á boðstólum:
úsgögn
Boi'ðstofuborð úr eik,
Borðstofuborð úr birki,
Borðstofustólar, eik, birlci,
Barðstofuskápar,
Sófaborð,
Innskotsborð,
Reykborð,
Blómaborð,
Standlampar,
Skrifborðsstólar,
Sófasett, margar gerðir,
Armstólasett, 2 gerðir,
A.rmstólar, 4 gerðir,
Ruggustólar,
Recocosett, og stakir stclar,
Kallstólar
Svefnsófar, 2 gerðir,
Ottomanar,
F j aðramadressur,
Fjaðrabotnar og dýnur.
Nýja gerðin af sófasettunum, scm margir hafa beðið efíir, er nú fuílgerð. Að okk-
ar áliti, og þeirra sem séð hafa, eru þessi sett, mörgum sinnum glæsilegri en öll
önnur sófasett sem boðin hafa verið til sölu hér í bæ. Öll vinna, bólstrun og tré-
verk, er urmin af færustu fagmcnnum. Engir smíðagallar eru til og gerðin á sett-
unum alveg sérstök. Sjáið grindurnar i glugga Bólsturgerðarinnar, Brautarholti 22.
Kaupið húsgögnin þar sem þau eru búin til af íagmönnum. Það borgar sig% Við
höfum eingöngu fagmcnnum á að skipa, þes? vcgna verzla hinir vandlátu við "okkur.
Höfum úrvals húsgagnaáklæði, ullartau, damask, plyds og gobilin í mörgum litum.
FLJÓT AFGREIÐSLA
>olótuF£^eröin
Sími 80388 < 1