Tíminn - 04.05.1965, Blaðsíða 2

Tíminn - 04.05.1965, Blaðsíða 2
2 TÍMINN ÞRIÐJUDAGUR 4. maí 1965 DANIR BJÓRLAUS- IR EFTIR VIKU? Aðils-Khöfn, mánudag. Um 6000 ölgerðarmenn fóru í verkfall í dag og stöðvaðist þar með 20 ölgerðarhús I Danmörku. Búizt er við harðri baráttu og löngu verkfalli, þar sem hvorugur aðilinn vill gefa eftir. Deiluaðilar náðu ekki samkomu lagi um launin, en þau eru eina deilumálið. Telja ölgerðarmennirn ir, að þeir hafi dregizt aftur úr öðrum stéttum í launum. Talið er líklegt, að Vinnuveit- endasambandið danska muni sjá svo um, ef verkfallið stendur lengi, að ölgerðarmennirnir geti ekki fengið sér aðra atvinnu á meðan verkfallið stendur yfir. Útlit er fyrir, að öl- og gos- drykkjalagerar þeir, sem nú eru til, verði tæmdir fyrir lok þessar- ar viku. Ýmsar verzlanir selja nú aðeins öl og gosdrykki til fastra viðskiptavina. Þetta getur haft slæm áhrif fyrir ýmis smærri veitingahús, sem eru fjárhagslega algerlega háð ölsölunni. Alþýðukórínn held- ur ufmælistónleiku GB-Reykjavík, mánudag. Alþýðukórinn á 15 ára afmæli um þessar mundir og efnir í til- efni þess til afmælistónleika í Gamla bíói n. k. miðvikudagskvöld kl. 7,15, undir stjórn dr. Hall- gríms Helgasonar, en einsöngvarar verða Álfheiður L. Guðmundsdótt- ir og Florence Grindlay, en píanó- undirleik annast Jórunn Viðar. Á söngskrá afmælistónleikanna verða 23 verkefni, þar af 14 ís- lenzk og 11 þeirra flutt nú í fyrsta sinn, eftir Guðmund bónda Skúla- son á Keldum' á Rangárvöllum, Ingunni Bjarnadóttur, Kristínu Einarsdóttur, Friðrik Bjarnason, Sigursvein D. Kristinsson og 3 lög eftir dr. Hallgrím Helgason, þar á meðal við kvæðið „Hin hljóðu tár“ eftir Stein Steinarr. En vegna 100 ára afmælis Sibeliusar syngur Álfhéiður Guðmundsdóttir lagið „Svarta rosor“, en skozka söngkonan Florence Grindlay, sem er í kórnum, syngur einsöng í nýju þýzku kórlagi. Ennfremur verður flutt madrígal eftir Mozart og margt fleira. Stofnandi og fyrsti stjórnandi Alþýðukórsins var Sigursveinn D. Kristinsson, en síðan önnuðust stjórn Guðmundur Jóhannsson, Jón S. Jónsson og Ásgeir Ingvars- son þangað til dr. Hallgrímur tók við 1959, og hefur kórinn síðan m. a. flutt messu eftir Schubert og frumflutt Alþingishátíðarkantötu Jóns Leifs, Þjóðhvöt, með Sinfón- íuhljómsveit íslands. SIGLFIRÐCAR UÍINU EJ-Reykjavík, mánudag. Margir hafa fylgzt af miklum áhuga með útvarpskeppninni „Kaupstaðii;nir keppa“, sem lauk s. 1. sunnudag, 2. maí með sigri Siglufjarðar sem keppti við Hafn ; arfjörð I lokaþættinum. í sveit Siglufjarðar voru Pétur Gautur Kristjánsson settur bæjarfógeti,; Hlöðver Sigurðsson, skólastjóri, og Benedikt Sigurðsson, kennari. Stjómendur keppninnar voru þeir Guðni Þórðarson og Birgir ísl. Gunnarsson. Blaðið náði í Guðna í dag og ræddi stuttlega við hann um keppnina. — Hversu margar sveitir tóku þátt í keppninni, Guðni? — Þær voru 14 talsins. — Og hverriig voru menn vald ír í sveitirnar? — Það voru bæjarstjórnirnar á hverjum stað, sem völdu menn í sveitirnar, þrjá talsins. Annars þurftu tveir kaupstaðir að skipta um menn í seinni umferð vegna veikinda. — Og hvaða verðlaun fengu sigurvegararnir? — Þeir fá ókeypis ferð til Kaup mannahafnar og heim aftur. Flug félag íslands býður þeim farið fram og til baka, en útvarpið greiðir dvöl þeirra úti. Munu þeir líklega dvelja þar í 3 daga eða eða þar um bil. STJÓRNARFRUMVARPIÐ Framhald at 1. síðu varpinu þá vísað til 3. um- ræðu. Hún hófst í dag og stóð til kvölds. Fór fram lokaatkvæðagreiðsla um frumvarpið kl. 7,30 í kvöld. Þeir, sem tóku þátt í um- ræðum við 3. umræðu máls- ins í dag, voru Sigurvin Einarsson, Lúðvík Jóseps- son, Hannibal Valdimars- son, Eðvarð Sigurðsson, Björn Pálsson og Ingólfur Jónsson. Seint í gærkvöldí stóð yf- ir fundur í Félagi ísl. at- vinnuflugmanna og ræddu flugmenn um hin nýskipuðu lög. Stefán Gíslason, form. samninganefndar flug- manna, tjáði blaðinu, að fé- lagið myndi taka einhverj ar ákvarðanir á fundinum og taldí líklegt, að flug- menn ákvæðu vinnutíma sinn sjálfir. Fundurinn stóð enn yfir, þegar blaðið fór í prentun. Menningarvika hernáms- andstæðinga hóf st 1. maí EJ-Reykjavík, mánudag. S. 1. laugardag, 1. maí, var Menningarvika hernámsandstæð- inga sett í Lindarbæ og flutti Þóroddur Guðmundsson, rithöfund ur, ávarp. Menningarvikan stend- ur dagana 1.—9. maí og verða fjölbreyttar menningardagskrár fluttar í Lindarbæ og 35 mynd- listarmenn sýna þar verk sín. í gær, sunnudag, var frumsýnd- ur leikþáttur eftir Thor Vilhjálms- son á Litla sviðinu í Lindarbæ og hét hann: „Ætlar blessuð mann- eskjan að gefa upp andann?" Leik stjóri var Brynja Benediktsdóttir, en aðalhlutverk léku Erlingur Gíslason og Þorsteinn Ö. Stephen- sen. Atli Heimir Sveinsson lék einleik á píanó verk eftir íslenzka höfunda, Jón úr Vör og Þorberg- ur Þórðarson lásu upp úr verkum sínum og dansflokkur undir stjórn Þórhildar Þorleifsdóttur sýndi dansa, er hún hefur gert við lög eftir Bela Bartok. í dansflokknum voru Aðalheiður N. Ólafsdóttir, Hlíf Svavarsdóttir, Margrét Brands dóttir og Sigríður Sigurðardóttir. Þá las Þórarinn Guðnason Limbur eftir Þorstein Valdimarsson. í kvöld, mánudag, var frumsýnd ur á sama stað leikþáttur eftir Odd Björnsson, Jóðlíf, leikstjóri var Erlingur Gíslason en þeir Þor- steinn Ö. Stephensen og Baldvin Halldórsson fluttu. Þá var leikþátt ur Thors endurtekinn og fimm höfundar lásu úr verkum sínum, þeir Guðbergur Bergsson, Guð- mundur Böðvarsson, Halldóra B. Björnsson, Ingimar Erlendur Sig- urðsson og Jóhannes úr Kötlum. Þriðjudagskvöldið verður eink- um helgað ungu fólki: — Dans- flokkur undir stjórn Þórhildar Þorleifsdóttur, tónlist og upplestur ungra skálda. Þá verður fluttur ljóðaflokkurinn Sóleyjarkvæði eft ir Jóhannes úr Kötlum, lesinn og sunginn af átta ungum flytjendum. Á föstudagskvöldið verður flutt samfelld dagskrá um sjálfstæðis- baráttu fslendinga á 19. öld og hefur Einar Laxness búið hana til flutnings. Þá flytur Sverrir Hólm- arsson erindi um gömul dans- kvæði og söngmenn undir stjórn dr. Hallgríms Helgasonar flétta inn í nokkur tóndæmi. Menningarvikunni lýkur með Keflavíkurgöngu sunnudaginn 9. maí og útifundi í Lækjargötu kl. 22,45 um kvöldið, en þá um nótt- ina, aðfaranótt 10. maí, eru rétt 25 ár liðin síðan ísland var her- numið í fyrsta sinn. Myndlistarsýningin er á 2. hæð í Lindarbæ og verður opin daglega frá kl. 14—23. 35 listamenn sýna þar verk sín, þar á meðal Gunn- laugur Scheving, Jón Engilberts, Ríkharður Jónsson, Sigurjón Ólafs son, Svavar Guðnason, ÞorvaJdnr Skúlason o. fl. Ásmundur Sveins- son, myndhöggvari, tekur þátt í Menningarvikunni með sýningu verka sinna í sýningarsalnum við Sigtún. FLUGSLYS Framhalp aí 1. síðu. Slökkvilið og lögreglulið af Keflavíkurflugvelli kom mjög fljótt á vettvang og var slysstaðn- um þegar lokað fyrir óviðkomandi. Robert R. Sparks var yfirmað ur Keflavíkurflugvallar og her- stöðvarinnar í Hvalfirði, og næst æðsti maður Varnarliðsins, næstur á eftir Weymouth aðmírál. Eins og fyrr getur þá voru fimm menn í þyrlunni ásamt þeim Spark og House, þeir voru John Brink, sem hefur starfað í 17 ár á Keflavíkur velli, sem borgaralegur starfsmað ur, og flugmaðurinn Clinton L. Tuttle, og aðstoðarmaður hans, Billy W. Reynolds. Þyrlan hafði farið með fimm- menningana upp í Hvalfjörð fyrr um daginn í vanalega eftirlitsferð. Allt gekk að óskum í ferðinní, og ekkert óvanalegt hafði komið fyr ir er flugstjórinn talaði víð turn ana á Reykjavíkurvelli og Kefla- víkurvelli og virtist allt í lagi, þar til hún steyptist fyrirvaralaust til jarðar um 10 km. norðaustur af Keflavíkurvelli. Þyrlan varð strax alelda og brann að mestu. Ekki er vitað hvort nokkur af mönnunum var á lífi, eftir að vélin skall á jörðina. Herinn setti strax upp hervörð umhverfis svæðið, og voru þeir aðstoðaðir af íslenzkum lögreglu- þjónum frá Vellinum. Þetta var gert í varúðarskyni. Það var mjög nauðsynlegt fyrir rannsóknarnefnd ina, að allt væri á staðnum, eins og þegar slysið bar að höndum, syo að hægt væri að rannsaka brakið nákvæmlega. Rannsóknar- nefnd, sem skipuð er sérfræðing um, kom strax í gær, sunnudag, til landsins, og vinnur nú að rann sókn á orsök slyssins. Ekki er hægt að búast víð neinum niður- stöðum fyrst um sinn þar sem slíkar rannsóknir taka jafnan lang an tíma. Þegar slysið skeði var Ralph Weymouth aðmíráll ekki á land inu. Hann hafði farið til aðal- stöðva flotans í Norfolk í Banda- ríkjunum, til að vera við yfir- mannaskipti þar, þegar Smíth að- míráll, léti af störfum sem einn af æðstu sjóliðsmönnum NATO-ríkj anna, og T. H. Moorer, aðmíráll, tók við starfinu. Weymouth sneri strax til fslands, og kom hingað í gær, sunnudag. Skömmu eftir að slysið varð, tóku nokkrir vegfarendur myndir á slysstað, og sökum þess hve taugaóstyrkir verðirnir voru, þá í heimtuðu þeir filmurnar af I þessu fólki, og fengu þær, Þeir höfðu að vísu aldrei fengið nein ar fyrirskipanir frá yfirmönnum' sínum að taka filmurnar af fólk ínu, og gerðu það þar af leiðandi í algjöru óleyfi. í öllum látunum gleymdu þeir að taka niður nöfn in á myndasmiðunum, og nú vill herinn skila þessum filmum aft ur til viðkomandi, en því miður vita þeir ekki hverjir þeir eru. Þegar er búið að flytja sum líkin til Bandaríkjanna, en hin verða flutt mjög fljótlega. Á morgun, þriðjudag, verða tvær minningaguðsþjónustur haldnar á Keflavíkurvelli. Sú fyrri er fyrir kaþólska og hefst klukkan 4 e. h. í herkirkjunni á Vellinum, en hín er fyrir mótmælendur og hefst klukkan 4.30. Penfield, sendi herra Bandaríkjanna, tjáði blaðinu að hann myndi verða við báðar minningarþjónusturnar, auk all margra sendiráðsstarfsmanna. ís- lenzkir kunningjar og vinir þeirra sem fórust með þyrlunní, eru vel komnir, og verður allt auðveldað fyrir þá, til þess að þeir komizt inn á Völlinn. Þeir, sem fórust með þyrlunni voru: Capt. Robert R. Sparks, yfirmað ur herstöðvarinnar á Keflavíkur velli, og næstæðsti maður þar. Hann var 46 ára gamall, kvænt- ur og átti þrjú börn. Fjölskyldan býr á Vellínum. Sparks er fædd ur í Kalifomíu og gekk 1 skóla þar, og hafði próf í verkfræði, auk þess sem hann lauk magisterprófi í verzlunarfræðum skömmu áður en hann kom til íslands 1964. Hann gekk í herinn 1941 og tók þátt í bardögunum í Kyrrahafi. Síðan stríðinu lauk hefur hann þjónað bæði í heimalandi sínu, og svo erlendis, og nú síðast hér á fslandi. Hann var vel kynntur meðal landsmanna og átti marga kunningja hér. Lt. Col. Arthur E. House, var yfirmaður landgönguliðs fliotans hér á Vellinum, en hann kom hingað frá skóla landgönguliðsins í Quantice í Virgina-ríki, í júlí 1963. House var 42 ára að aldri, kvæntur og átti tvö börn. Fjöl- skyldan býr hér á Vellinum. Hann tók þátt í Kyrrahafsbardögunum í stríðinu og einnig í Kóreustríð- inu. House var frá Anchorage í Alaska. John Brink var borgaralegur starfsmaður á Keflavíkurvelli, og hafði verið hér á landi í 17 ár. Hann var 39 ára og kom hingað j fyrst á vegum Lockheed flug- I vélaverksmiðjanna, en starfaði síð an hjá amerísku byggingafélagi á flugvellinum, og nú síðast í þjón ustu hersins. Brink sá m. a. um íþróttamálin hjá hernum, og kynntist því mörgum íslending um, og átti marga góða vini á með al þeirra. Hann talaði íslenzku mjög vel, og var lengi giftur ís- lenzkri konu, sem hann var skilinn við, en þau áttu sex börn. Brink var nú giftur bandarískri konu og átti með henni 8 mánaða gam- allt barn. Eftirlifandi kona hans býr í Keflavík. Lt. Col. Clinton L. Tuttle, 3> ára, var flugstjórinn á þyrlunni, og hefur starfað, í björgunarsveit flotans síðan hann kom til lands ins í október s. 1. Hann var kvæntur og átti eitt barn, og fjölskyldan býr hér á landi. Bill W. Reynolds var aðstoðar- flugmaður og vélamaður, 27 ára að aldri og hafði verið í flotan- um í 10 ár. Ekki var hægt að grafa upp hvort hann væri 'fjöl- skyldumaður eða ekki. í þessu sviplega og hörmulega flugslsyi misstu 13 börn feður sína, þar af sex sem eru íslenzkir ríkisborgarar. Aðstoðarmaður Brinks, sem er svo til nýkominn tíl landsins, og heitir R. C. James, 1 mun gegna störfum látins yfir- manns síns þar til flotinn sendir nýjan mann. VILJA í NORÐURL.RÁÐ Framh. af bls. 16. um og fjallar þingnefnd um mál- ið sem stendur. Ef sundrungin milli stjórnarflokkanna endar með þíngkosningum, má búast við, að staða Færeyja verði eitt helzta kosningamálið! Mohr Dam þingmaður hefur lagt fram þrjár óskir í sínum óform- legu viðræðum við dönsku stjórn ina. í fyrsta lagi vill hann, að danska ríkisstjórnin gefi út yfír- lýsingu, þar sem skýrt sé tekið fram, að færeyski fáninn skuli not aður þar sem Færeyingar koma saman, jafnt á Færeyjum sem er lendis, án þess að danski fáninn þurfi að blakta við hlíð hans. Þessi réttur hefur ekki verið virt- ur t. d. á íslandi og í Noregi. Þá fer Dam fram á, að gefin skulu út færeysk frímerki og bendir á, að póstmálastjórnin hafi gefið út grænlenzk frímerkí. Og að lokum vill hann, að Færeyjar verði beinn aðili að Norðurlandaráði og að þing Færeyja fái að kjósa full- trúa sinn í það ráð. Til þess að síðasta krafan nái fram að ganga, þarf að breyta samþykktum Norð urlandaráðs.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.