Tíminn - 04.05.1965, Síða 3
ÞRIÐJUDAGUR 4. maí 1965
TÍMINN
-furla-smiörltki er hieilsusamlegt og
bragðgott, og því tilvalið ofan á. brauð
m og kex.
Þér þurfið að reyna Jurla- smiörliki
til að sannfærast um gæði þess.
AFGREIÐSLA SMJÖRLÍKISGERÐANNA h.f.
Jörð til sölu
Gerðar í V-Landeyjum Rang. er til sölu og ábúðar
í næstu fardögum: Nýlegt 16 kúa fjós, sæmilegt
íbúðarhús tún ca. 12 til 15 hektarar mikið og gott
beitiland ágætt vegasamband, rafmagn, og sími.
Semja ber sem fyrst við Grím Thorarensen,
Hellu.
Stort innflutningsíyrirtæki
vantar tæknifræðing eða mann vanan bifreiða-
sölu til að selja fólksbíla, vörubíla og sérbyggða
bíla, fyrir hverskonar verktaka og sérhæfða flutn
inga.
Tilboð sendist Tímanum fyrir 15. þ. m.
Merkt, „Bílar".
SUMARDVÖL
Eins og að undanförnu rekur félag vort sumar-
dvalarheimili fyrir fötluð börn að Reykjadal í
Mosfellssveit.
Umsóknir um sumardvöl sendist skrifstofu
félagsins sími 12 5 23 og 19 9 04.
Stjórn styrktarfélags Fatlaðra og lamaðra.
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
RÍKISÚTVARPIÐ
TÓNLEIKAR
í Háskólabíói fimmtud. 6. maí kl. 21
Stjórnandi: Igor Buketoff
Einleikari: Vaclav Rabl frá Prag
Efnisskrá: Páll ísólfsson: Leikhúsforleikur
Dvorak: Fiðlukonsert í a moll
Beethoven: Sinfónía nr. 8
Enesco: Rúmensk rapsódía
Aðgöngumiðar seldir í bókaverzl. Sigfúsar Ey-
mundssonar og bókabúðum Lárusar Blöndal,
Vesturveri og Skólavörðustíg.
Tilkynning
Það tilkynnist hér með, að við höfum tekið við,
umboði fyrir Rootes-bifreiðaverksmiðjurnar
brezku, sem eru framleiðendur eftirtalinna bif-
reiða:
HUMBER, HILLMAN, SUNBEAM, SINGER,
COMMER o.fl.
Rootes-bifreiðar væntanlegar
með næsta skipi. — Leitið uppl.
um verð og gæði.
Egill Vilhjálmsson h.f.
ALLT A SAMA STAO Laugavegi 11S. Siml 22240
! ‘tfiaiJtíðdi?. xiiffimifi s-ir OOi
Val unga fólksins — Heklubuxurnar —
amerískt efni nyion nankin — vandaður
frágangur. Betri buxur í leik og starfi
ma-
Á VÍÐAVANGI
Verkalýðsflokkurinn
mikli
Morgunblaðið hafði eftirfar-
andi boðskap að flytja verka-
lýðsstéttum latudsins á hátíðis-
degi þeirra, 1. maí s.I. og birti
hann að sjálfsögðu í forystu-
grein:
„Það er af þessu auðsætt, að
stefna Sjálfstæðisflokksins hef-
ur verið raunhæfasta kjara-
bótastefnan, sem fært hefur ís-
lenzkum verkalýð mestar um-
bætur og unnið stærstu sigrana
í þágu hans“. Það er því engum
blöðum um það að fletta leng-
ur, að íhaldið á íslaindi er hinn
eini, sanni verkalýðsflokkur
þjóðarinnar, 0g enginn flokkur
ber hag þessara stétta fremur
fyrir brjósti. Og svo bætir
Moggi við til frekari áherzlu
Iitlu s'íðar:
„Sjálfstæðismenn hafa jafn-
an lagt áherzlu á það, að því
meira sein þjóðarbúið í heild
aflar, þeim mun meira kemur
til skiptanna í hlut hvers el«-
staks“.
Þetta hefur Sjálfstæðisflokk-
urinn auðvitað sýnt bezt í verki
á síðustu árum, með því að
berjast sem ljón gegn því, að
Iaunastétirnar fengju rétta hlut
deild í þeirri miklu aukningu
þjóðartekina, sem orðið hefur
síðustu árin vegna einstakra
aflauppgripa. Svo mikið kapp
hefur stjórnin lagt á það, að
aukning þjóðarteknanna kæmi
til skipta hjá verkalýðsstéttum
þjóðarínnar, að hún hefur ekki
skirrzt við að vinna skemmdar-
verk á efuiahagskerfinu til þess,
fella gengi hvað eftir annað,
magna dýrtíðina og láta hana
éta upp meira en kauphækk-
anir o.s.frv.
Þegar íhaldið talar fallega
um að afla mikils, svo að meira
„komi til skiptanna í hlut
hvers og éins“, á það aðeins við
sína útvöldu gróðastétt.
„Jafnvægi haldist"
Loks ber Moggi eftirfarandl
gullkorn á borðið í þessari
merkilegu forystugrein á há-
tíðisdegi verkamanna;
,Það er vonlaust, að íslenzkur
verkalýður fái bætt kjör sín á
næstu árum, ef hér ríkir glund-
roði og upplausn í efnahags-
málum. Það er þess vegna í
dag stærsta hagsmunamál
verkalýðsins að efnahagslegt
jafnvægi haldist, að þjóðin geti
haldið áfram að auka afköst
framleiðslutækja siinna og heil-
brigð þróun haldið áfram“.
Það er sem sé meginatriðið í
kjairabaráttu verkalýðsins að
dómi Mogga, „að efnahagslegt
jafnvægi haldist“, „og heil-
brígð þróun haldi áfram“, —
nehnilega „vdðreisnatstefnau".
Hvernig lízt mönnum á „Jafn-
vægið“, sem hefur „haldizt"
dýrtíðarmálunum síðustu árin?
Og finnst þeim það ef til vUl
„stærsta hagsmunamál verka-
Iýðsins“, að sú „heilbrigða þró-
un haldi áfram“, svo að notuð
séu orð Mbl.? Geta vinnandi
stéttiir á íslandi sameinazt um
slík kjörorð á baráttudegi um
þessar mundir? Hefur þessi
„jafnvægisstefna“ stjórnarinn-
ar borið svo glæsilegan kjara-
bótaárangur síðustu árin?
Góðar undirtektir
Alþýðublaðið segir svo í for-
ystugrein 1. maí:
„Framundan er eitt mesta
Framhaid ð 14. siðu