Tíminn - 04.05.1965, Qupperneq 13
ÞRIÐJUDAGUK 4. maí 1965
ÍÞRÓTTIR TÍMINN ÍÞRÓTTIR
Þorbergur Atlason skrifar um bikarúrslitin á Wembley:
Liverpool enskur bikar-
meistari í fyrsta sinn
Mesti viðburður enskrar knattspyrmx, úrslitaleikurinn í bik-
arkeppninni, var háður á Wembley á laugardag. Liverpool og
Leeds háðu „þunga orrustu“ og leikurinn þótti heldur slakur.
Þegar venjulegum leiktíma var lokið hafði hvorugu liðinu tekizt
að skora mark, en í framlengingu — fyrstu framlengingu í úr-
slitaleik enskrar bikarkeppni í 18 ár — skoraði Liverpool 2
mörk gegn 1 marki Leeds. Liverpool er því enskur bikarmeist-
ari 1965 og er þetta í fyrsta skipti, sem liðið hlýtur þann titil.
Til gamans má geta þess, að 7 af leikmönnum Liverpool á
Wembley, léku gegn KR á Lau.gardalsvellinum í fyrrasumar.
— Fögnuður Liverpoolbúa yfir sigri liðsins var gífurlegur og
þegar leikmennirnir komu til Liverpool á sunnudaginn, er talið,
að hálf milljón manns hafi tekið á móti þeim. Nokkrar róstur
urðu og 6 hundruð manns varð að flytja í sjúkrahús borgarinnar.
Nokkrir íslendingar sáu leik
Liverpool og Leeds á laugar-
dag, þ. á. m. Þorbergur Atla-
son, 17 ára gamall markvörð-
ur í Fram en síðasta mán. hef-
ur Þorbergur dvalið við æfing
ar hjá Arsenal í London. Hér
á eftir fer lýsing Þorbergs á
leiknum:
Augu allra í London beind-
ust að Wemibley á laugardag
inn vegna bikarúrslitanna. Frá
Liverpool og Leeds streymdi
íólk þúsundum saiban og er
gizkað á, að um 30 þús. manns
frá hvorri borg hafi séð leik
inn. Hvert einasta sætí var
skipað — 100 þúsund manns
sáu leikinn og ótaldar eru
millj., sem fylgdust með hon-
um í sjónvarpinu.
Veður var ágætt, þegar leik
urinn hófst, en eftir nokkrar
mínútnr tók að rigna. Fyrir-
liðar Ron Yeates hjá Liver-
pool og Bobby Collins hjá
Leeds heilsuðust og síðan
hófst leikurinn.
Fyrsta upphlaupið, sem kvað
að, var á 3. mín., þegar Rean
ey, bakvörður Leeds, óð upp
allan völlinn í átt að Liver-
pool-markinu og gaf knöttinn
fyrir, en Tommy Lawrence,
markvörður Liverpool, greip
knöttinn. Á 1. mínútu meidd
ist Byme, vinstri bakvörður
Liverpool. Meiðslin virtust lít
ilsháttar, en eftir leikinn kom
í Ijós, að hann var viðbeins-
brotinn. Byrne lék allan leik-
inn eíns og ekkert hefði í skor-
izt og var 'einn bezti maður
vallarins. Storrie, hægri inn-
herji Leeds, meiddist á 7. min.,
og haltraði það sem eftir var
leiksíps. Þá meiddist annar
Leeds-leikmaður mínútu síð-
ar, Bremner, framvörður.
Liverpool átti mun hættu- 1
legri tækifæri í fyrri hálfleik
og var Leeds heppið að fá ekki
á sig mark, sérstaklega síðustu
10 mín. — Liverpool byrjaði
síðari hálfleikinn vel. Hunt á
skot, en rétt yfir. Rétt á eftir
á svo Callaghan hörkuskot á
Leeds-markið, en bakvörðurinn
Bell bjargaði — heppnir Leeds
menn. Fyrsta skotið á Liver-
pool- markið í slðari hálfleik
átti Giles, fallegt skot af
löngu færi, en Lawrence bjarg
aði. Á 20. mín. léku Liverpool-
leikmennirnir fallega saman í
gegnum Leeds-vörnina og Pet-
er Thompson skaút föstu skoti,
en varnarmaður náði að stýra
knettinum í horn. Á 33. mín.
óð Thompson upp að Leeds-
markinu og s-kaut af vítateíg
og knötturinn stefndi efst
í Leeds-markið. Á síðustu
stundu flaug Sprake, mark-
vörður, eins og tígri$dýr
upp og sló yfir. Á 43. skaut
St. John góðu skoti af víta-
teig, en Sprake varði. Áður
en maður áttaði sig voru 90
min. liðnar — ekkert mark
skorað og framlengíng.
Framlengingin.
Framlengingin var 2x15 mín.
Á 4. mín. lék Stevenson á
fjóra Leeds-menn og gaf á
Byrne, sem kominn var upp
að endamörkum, en hann gaf
síðan fyrir á Hunt, sem skall-
aði í mark af sex metra færi,
1:0 fyrir Liverpool. Þetta var
glæsilegt mark. Þremur mín.
síðar átti Liverpool dauðafærí,
en Stevenson lét Sprake verja
Fyrra mark Liverpool, Hunt hefur skallaS Inn.
frá sér. Á næstu mínútum
átti Liverpool góð tækifæri, er
runnu þó út í sandinn.
Á 12. mín. skoraði Leeds
svo sitt eina mark. Hunter gaf
á Oharlton, sem skallaði fyrir
fætur Bremners. Það var ekk-
er hik á þessum leikmanni og
hann skaut viðstöðulaust í
mark Liverpool. Lawrence
hafði enga möguleika á að
verja, 1:1.
Mikil spenna var í loftinu,
þegar síðari hálfleikur fram-
lengingarinnar hófst. Og strax
á 2. mín. er mikil hætta við
Leeds-markið, en Sprake ver
hörkuskot frá Strong. Á 6. mín.
kemur svo úrslitamarkið, mark-
ið, sem færði Liverpool sigur
inn. Callaghan hljóp með ofsa
hraða upp allan hægri kant
ó# gaf'íýrir; Hinn skozki mið-
herji Liverpool, St. John, kast
aði sér fram og skallaði glæsi-
lega í mark, 2:1. Mörkin urðu
ekki fleiri, en Hunt var litlu
síðar í góðu færi en mistókst
að skora.
Beztu menn Liverpool í þess
um leik voru Byme, vinstri
bakvörður, sem hafði Giles al-
veg í vasanum, Stevenson var
bezti maður vallarins, vann
eins og þræll á miðjunni. Einn
ig voru Smlth og Yeats góðir.
Liverpool lék dálítið einkenni
lega leikaðferð, sem Leeds átt
aði sig aldrei á. Bæði St. John
og Hunt léku mjög framarlega
allan tímann. Smith, v. inn-
herji, dró síg aftur var eigin-
lega annar miðvörður. Aðal-
tengiliðirnir voru svo Steven-
son og Strong, þótt Strong
léki framar. Bezti maður fram
línunnar var Callaghan, en
einnig var Hunt nokkuð góður.
Það var mjög sanngjarnt, að
Liverpool skyldi vinna, allan
tíman kom líðið fyrir sjónir,
sem sterkari aðilinn — og ég
tel, að Sprake í Leedsmarkinu,
hafi bjargað liði sínu frá stór-
tapi. Vömin hjá Leeds var
betri hluti liðsins — framlínan
gersamlega bitlaus.
Það má að lokum geta þess,
að fögnuður Liverpool-búa, er
komu til London að sjá leikinn,
var geysilegur. Og á laugar-
dagskvöldið mátti sjá þá káta
og fjöruga skemmta sér og
dansa á Trafalgartorgi við
styttu Nelsons flotaforingja.
Þeir höfðu sannarlega ekki far
ið erindísleysu til London.
Aðstaða til íþróttaiðk-
ana i Hafnarfirði slæm
Sigurglaðir KR-ingar. Þarna sjást fyrirllðarnir í meistara- og 1. flokki
KR í körfuknattleik að afloknu íslandsmótinu. Einar Bollason er til vinstri
með Panam-tyttuna, en til hægri er Kristján Ragnarsson með sigurlaun
í 1. fJoldd.
20. ársþing Í.B.H. var háð dag-j
: ana 30. marz og 9. apríl 1965. Þing)
;ið samþykkti einróma eftirfprandi |
' lillögur:
1. 20. ársþrng Í.B.H. teiur bygg:
ingu íþróttahússins brýnasta verk
cfnið i íþróttamálum bæjarins og
beinir þeirri eindregnu áskórun
til bæjarstjórnar Hafnarfjarðar,
, að hún leggi höfuðáherziu á að
! hraða framkvæmdnm við byggingu
hússins.
Þingið minni á ályktun bæjar-
stjórnar frá 5. apríl 1964 varðandi
byggingu íþróttahússins og harm
ar. að ekki skuli hafa verið stað-
ið við þá áætlun, sem þá var sam-
þykkt.
Það er iágmarkskrafa í. B. H.,
: ..ö lokið verði við 1. og 2. áfanga
samkvæmt áætluninni eigi síðar
' en svo, að íþróttasalurinn verði
í ilbúinn til notkunar fyrir haust
iið 1966.
Þingið vekur athygli á því, að
! ekki er unnt að halda uppi lög-;
bunctinni íþróttakennslu í skólum
Hafnarf jarðar vegna húsnæðis-'
skorts og telur óverjandi að brjóta
þannig fræðslulög á kostnað skóla
æsku bæjarins.
2. 20. ársþing Í.B.H. mælist til
þess við háttvirta bæjarstjórn, að
fjölgað verði svæðum i bænum
þar sem börn og unglingar geti
kpmið saman til knattleika, Þing
ið telur einnig nauðsynlegt, . að
gert sé ráð fyrir slíkum svæðum
þegar ný hverfi eru skipulögð.
Einnig vill þingið mælast til að
þau svæði á gildandi skipulagi
kaupstaðarins, spm ætluð eru und
ir íþróttamannvirki séu eigi skert
eða felld niður og tekin undir
annað, nema annað jafngott komi
í staðinn.
3. 20. ársþing Í.B.H., beinir
þeim tilmælum til bæjarstjórnar,
að nauðsymlegt sé, fyrir vöxt og
viðgang íþróttahreyfingarinnar í
bænum, að bæjarsjóður leggi
fram sérstakan styrk til íþrótta-
félaganna í sambandi við bygging
arframkvæmdir þeirra á svipaðan
hátt og tíðkast í Reykjavík, þó án
þess að fjárframlög til íþróttahúss
ins séu skert.
4. Um Ieið og 20. ársþing í. B. H.
þakkar háttvirtri bæjarstjórn fyr
ir veitt fjárframlög, mælist þing
ið til þess að reynt verði að hraða
meir en gert hefur verið greiðsl
um á þeim framlögnm, sem hún
veitir íþróttahreyfingunni hverju
I sinni.
i 5. 20. ársþing Í.B.H. telur, að
jekki sé hægt ;fí skipta þeirri að-
[stöðu sem nú er til iþróttaiðkana
í Hafnarfirði milli fleiri aðiia en
þegar er, og að ný félög innan
! Í.B.H. geti ckki vænzt aðstöðu til
æfinga að óbreyttum aðstæðum.
6. 20. ársþing Í.B.H., þakkar
stjórn Í.S.Í. fyrir framkvæmd sína
á landshappdrættinu. Þingið skor
i ar á Í.S.Í., að Iáta eigi staðar num
ið með hina ákjósanlegu fjáröfl-
unarleið. Jafnframt beinir þingið
því til framkvæmdastjórnar happ-
drættisins, hvort eigi sé annar
árstími heppilegri til framkvæmda
t.d. 15. nóv. til þess að miðar geti
orðið til sölu i ágúst.
7. 20 ársþing Í.B.H. skorar á
aðildarfélög sín, að ná betri ár-
angri á sölu á happdrættismið
um Í.S.Í.
Sjtórn í. B. H. 1965 — 1966 er
þannig skipuð:
Yngvi Rafn Baidvinsson, for-
maður, Jón Egilsson, ritari, Ög-
mundur Ilaukur Guðmundsson,
gjaldkeri, Guðmundur Geir Jóns
son, varaformaður, Anna Kristín
Þórðardóttír, meðstjómandi.
(Frá ÍH.H.)