Morgunblaðið - 24.08.1952, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 24.08.1952, Qupperneq 6
MORGUNBLAÐIB Sunnudagur 24. ágúst 1952 Útg.: H.f. Arvakur, Reykjavik. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Lesbók: Árni Óla, sími 3045. tuglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla- Austurstræti 8. — Sími 1600 Asfcriftargjald kr. 20.00 á mánuði, innamands í lausasölu 1 krónu eintakið. Bætt skipulag lan dh elgisgæslunn ar SÚ RÁÐSTÖFUN Bjarna Bene- diktssonar dómsmálaráðherra að fá sérstökum manni yfirstjórn landhelgisgæzlunnar hefur yfir- leitt mælzt mjög vel fyrir. Þjóð- inni er ljóst, að með setningu reglugerðarinnar um hin nýju fiskveiðitakmörk bar brýna nauð syn til þess að vanda sem mest til landhelgisgæz’unnar og fram- kvæmdar hennar. Öhjákvæmi- legt var að greina þessa réttar- vörzlu frá rekstri hins umfangs- mikla samgöngufyrirtækis, sem hún var í hominu hjá. I°ví fer víðsfjarri að sú ráðabreytni þurfi að teljast vantraust á forstjóra Skipaútgerðar ríkisins, sem er yfirhlaðinn störfum við stjórn fyrirtækis síns. Má segja að framkvæmdastjórn þess sé ærið verkefni einum manni. Ber og mikla nauðsyn til þess að reynt verði að draga úr milljónatapi á rekstri þessa ríkisfyrirtækis. Allir eru líka sammála um að mjög vel hafi tekizt til með vali Péturs Sigurðssonar sjó- tiðsforingja til yfirstjórnar landhelgisgæzlunnar. Liggja til þess ýms rök. Hann hefur í fyrsta lagi hlotið menntun, sem er hin ákjósanlegasta fyr- ir mann, sem slík störf hefur með höndum. í öðru lagi hef- ur hann víðtæka reynslu sem sjómaður á skipum landhelg- isgæzlunnar. í»að er ennfrem- ur vitað að Pétur Sigurðsson er sérstaklega fær og hæfur maður. Allir þeir, sem eitt- hvað þekkja íil hans og starfa hans víta að hann vinnur hvert verk af einstakri ná- kvæmni og samvizkusemi. íslerzks hlaðs, og það mál- gagns forsætisráðherrans, um að skipulagsbreytingin á land- helgisgæzlunni sé gerð til þess að þóknast innlendum veiðiþjófum, eru þess vegna háskalegt tilræði við íslenzka hagsmuni. Nei, slíkur málflutningur er ekki aðeins ósamboðinn - ábyrg- um stjórnmálaflokki og aðal málgagni hans. Hann er stór- hættulegur og gæti háft örlága- ríkar afleiðingar ef mark væri á honum tekið. Kjarni málsins er sá, að með hinni nýju yfirstjórn land- helgisgæzlunnar er stefnt að eflingu hennar, bættri og ör- uggari réttarvörzlu. Ekkert er eðlilegra en að sjómenn og útgerðarmenn, sem hér eiga mikið í húfi, fylgist vendilega með framkvæmd hennar. Ef einhverjir misbrestir verða á henni éiga þeir að gera yfir- stjórn landhelgisgæzlunnar aðvart eða benda á mistökin opinberlega. Allir þcir, sem af einlægni vilja sem mest ör- yggi og fullkomnasta réttar- vörzlu á þessu sviði verða að taka höndum saman um að ná því takmarki. Það er áreiðan- lega vilji núverandi dóms- málaráðherra og þess hæfa og dugandi manns, sem fengin hefur verið yfirstjórn land- helgisgæzlunnar. Á móti rannsékn! VEGNA blaðaskrifa um eitur- byrlun af hálfu varnarliðsmanna á Hótel Borg hefur dómsmála- Með núverondi verðlngi æfti nð vera hægt nð framl Þegar á allt þetta er litið hlýt- ur það að teljast mikill fengur að hafa fengið þennan mann til þess að stjórna landhelgisgæzlu okkar nú, þegar mest ríður á að vel sé til hennar vandað. Hæfi- leikar hans og hið breytta skipu- lag hennar eru trygging þess að vel verði haldið á þessum þýð- ingarmiklu máium í framtíðinni. Það sætir því ekki lítilli furðu þegar Tíminn leyfir sér að bera þá ósvífnu blekkingu á borð fyrir lesendur sína, að hið nýja skipu- lag landhelgisgæzlunnar sé bein- línis upp tekið til þess að auð- velda landhelgisbrot íslenzkra skipa!! Þessi staðhæfing er svo dólgsleg, að til eindæma verður að telja, jafnvel í dálkum Tím- ans. Hver trúir því að þessi ásökun eigi við allra minnstu rök að styðjast? Áreiðanlega enginn viti oorinn maður, ekki heldur rit- stjóri Tímans, sem stendur á- oyrgur fyrir birtingu hennar í olaði sínu. Sannleikurinn ev líka sá, að slíkur málflutnir.gur er mjög hættulegur vegna aðstöðu okk ar út á við. Þær ráðstafanir, sem gerðar hafa verið til/ verndar íslenzkum fiskimið- um ná jafní til innlendra skipa sem útiendra. Það er mikilsvert að þær þjóðir, sem hafa véfengt rétt okkar til þeirra sjái og viti, að fram- kvæmd landhelgisgæzlunnar gangi jafnt yfir aiia. Dylgjur [ ráðuneytið nú fyrirskipað opin- |bera rannsókn. Er með henni stefnt að því að kanna sannleiks- gildi fregna um slíka glæpi og að sjálfsögðu að draga þá, sem sekir kynnu að reynast til á- byrgðar fyrir þá. Það er fyrst og fremst blað kommúnista, sem flutt hefur fregnir um þessa eiturbyrlun. — Mætti því ætla að það yrði alls- hugar fegið er rannsókn er fyrir- skipuð til þess að grafast fyrir rætur málsins. En því fer víðs- fjarri að blaðið fagni henni. Það snýst þvert á móti hið versta við. — Ritstjóri þess neitar að gefa nokkrar upplýsingar um heim- ildir sínar fyrir frásögn þess. — Hann lýsir því jafnvel yfir að „rannsókn á einu tilteknu atviki“ sé „vitanlega alveg út í bláinn“!i ★ Á þessu stigi málsins skal ekk- ert fullyrt um niðurstöðu rann- sóknarinnar. — En óneitanlega hlýtur þessi afstaða kommúnista- blaðsins að vekja grun um, að að það hafi ekki alveg hreint mjöl í pokanum og að ekki hafi verið rækilega vandað til heim- ilda þess fyrir „frygðarpillu"- fregnum þess! ' ★ En almenr.ingur á rétt á að vita sannleikann í þessu efni. Þess vegna er rannsóknin sjálfsögð og sömuleiðis á- byrgð á hendur þeim, sem kynnu að reynast sekir um þau alvarlegu afbrot, sem úm- rædd blaðaskrif hafa gefið í skyn að framin hafi verið. UNDANFARIN ár hefur Gunnar Böðvarsson verkfræðingur rann- sakað sérstaklega jarðhitann hér á landi, allt sem að honum lýtur, að hvaða gagni jarðbitinn getur komið, svo og jarðefni þau, sem sérstaklega eru eða verða fundin á jarðhitasvæðum. BYRJUNIN í FYRRA Nýlega spurði ég Gunnar sér- staklega um boranirnar sem farið hafa fram í Námáskarði við Reykjahlíð. Að þeim var unnið í allt fyrra sumar og þeim haldið ! áfram í sumar. Ég spurði Guniiar hvaðá fyrirætlanir verkfræðing- i arnir hefðu viðvíkjandi hugsan- j legum námurekstri þar nyrðra, ■ og fékk m. a. hjá honum nokkra ! skýringu á því hvernig brenni- steinsmyndunin í Námaskarði fer fram að áliti vísindamanna. Hann skýrði svo frá: Við gerðum tvær borholur á námasvæðinu í fyrrasumar. Þær | voru til þess að gera mjög grunn- ’ ar, 35 og 56 m djúpar. Upp úr þeim komu 2Ö lestir af gufu á klst. En sú gufa hafði að geyma það mikið af brennisteini að hægt mundi vera að vinna úr henni 200 tonn af brennisteini á ári. HRAUNKVIKUHLEIFUR í FJALLINU Mér virðist, segir Gunnar, allir vera sammála um, að jarðhitinn í Námafjalli myndist þar vegna þess að kvikuhleifur eða óstorkn- , að hraun er þarna tiltölulega jskammt frá yfirborði jarðar, j grunnvatnið sígur það langt nið- , ur, að hringrás myndast (líkt og í miðstöðvarkerfi) kringum þenn an heita hleif. Við eldsumbrot hefur þessi kvikuhleifur staðnæmzt undir yfirborði, og samkvæmt útreikn- ingum okkar virðist rúmmál' hans varla vera minni en 10—15 tenings-kílómetrar. Á leið sinni tekur hringrásar- vatnið í sig ýmsar lofttegundir frá kvikunni eða næsta nágrenni hennar, þar á meðal brenni- steinsvetni og er magn þess i gufunni um 2—3 af þúsundi. 1 KG ÚR SMÁLEST AF GUFU Við ætlum okkur, að skilja brennisteinsvetnið úr gufunni með því að þétta hana og vinna brennisteininn síðan úr þessari lofttegund. Við erum þeirrar skoðunar, að hægt sé að gera ráð fyrir því, að brennisteinsmagnið í gufunni muni haldast það mikið að hægt verði að vinna 1 kg af brenni- steini úr hverri smálest. stein I segir Gunnar Böðvarsson, verfcfræSEngur FRAMLEIÐSLAN 2—3 ÞUS. TONN Á ÁRl Nú er unnið að tveimur bor- holum í viðbót til þess að ná í meira gufumagn. Vonumst við eftir að geta gert 3—4 öorholur í sumar. Enginn vafi er á að þarna er hægt að vinna brennistein, en vinnslan þarf vitanlega að vera byggð á fjárhagslega öruggum grundvelli til þess að hún komi til mála. Að óbreyttum aðstæðum um verðlag á brennisteini ætti að vera hægt að framleiða þarna 2—3 þús. tonn á ári. VON UM BRENNISTEIN FYRIR 3—5 MILLJ. KR. Brennisteinninn er ein af þeim nauðsynlegu efnivörum í heim- inum er mjög gengur nú til þurrðar. Verðlag á brennisteini í Evrópu er nú 1500—2500 kr. tonnið, en á amerískum brenni- Steini er hámarksverð svo verð- laginu hefur verið haldið þar niðri. Gerum við okkur því von- ir um að fyrir ársframleiðsluna í Námaskarði yrði hægt að fá um 3—5 milljónir króna. ! Ráð er fyrir gert að vinnslu- stöð verði reist þar á staðnum. Má gera ráð fyrir að vinnslu- stöðin sjálf og nauðsynlegar bor- holur kosti 8—10 milljónir kr. að langmestu leýti innlendur kostnaður. V. St. Velvakandi skriíar: ÚEK DAGLEGA LÍFIAIU — Guðbrandsdeild Fraxnh. ai bls. 2 son alþingismaður á Reynistað, en síðan urðu umræður, sem bæði prestar og sóknarmenn tóku þátt í. Milli ræðanna var almennur söngur undir stjórn Jóns Björns- sonar bónda og söngstjóra á Haf- steinsstöðum. Fundinum lauk með því að sf. Friðrik Friðriks- son flutti bæn og drottinlega blessun og fundarmenn sungu. Að loknum þessum almenna fundi héldu prestarnir félagsfund sinn. Formaður minntist ?r. Guð- brands Björnssonar prófasts í Hofsós, sem flutt hefur af félags- svæðinu, og vottaði honum þakk- ir. Þá bauð form. velkominn nýj- an félaga, sr. Ragnar Fjalar I.árus son í Hofsós. Samþykkt var að halda í framtíðinni þeim hætti, sem nú er tekinn upp, að messa fundardaginn á eins mörgum kirkjum og unnt er. í nánd við fundarstað. Síðan var rætt frek- ar um framtíðarstarf deildarinnar og kosin stjórn hennar. Skipa hana þeir‘sr. Gunnar Árnason, ÍQrmaður, sr. Helgi Konráðsson og sr, Þorsteinn B. Gíslason. — jón. Annars staðar. GOSBRUNNURINN, sem Philips ætlar að skrautlýsa í Tjörninni er enn eitt aðalum- ræðuefnið í bær.um. Eru-úfar all- miklir með mönnum og flokka- drættir, enda þótt gosbrunnur á þessum stað eigi sér harðla fáa formælendur. Hitt er mesti misskilningur, sem hlaupið hefir í suma, að feðr- um gosbrunnsins séu allar bjarg- ir bannaðar, þó að þeir láti af Tjarnarhugmyndinni. Má ekki setja hann á Miklatorg eða Mela- torg? Um þessar mundir er hvort sem er verið að róskotast á báð- um þessum stöðum. Skyggður vatnsflötur eða .. DAGLEGA lífinu hefir borizt eftirfarandi bréf frá dr. Sig- urði Þórarinssyni: „Velvakandi góður! Mætti ég í dálki þínum ítreka þá frómu ósk, sem ég lét í ljós í útvarpserindi fyrir ári, að stjórn Reykvíkingafélagsins, helzt for- maður félagsirs, gerði í blöðum eða útvarpi grein fyrir rökum þeim, er liggja til þess, að félag- inu er svo mikið áhugamál að koma gosbrunni i Tjörnina. Má vera, að þessi rek, sögules, fag- urfræðileg eða sálræn, séu svo j veigamikil, að ég og fjölmargir | aðrir, sexn heldur kjósum néttúr- | legan, skyggðan vatnsflöt Tjarn- arinnar en einhverja vélknúna I uppíloftmigu, jafnvel þótt hún sé í regnbogans litum og með hita- ! veituhita, hljótum að beygja okk- ur fyrir þeim. Hví ekki skýra málstaðinn í stað þess að bara segja: Við ætlum að setja’ gos- brunn í Tjörnina. S. Þ.“ Spánarferð. ÞÁ nálgast hin langþráða stund, að íslenzkt farþegaskip sigli til Miðjarðarhafsins, þar sem tug- um manna gefst kostur á suð- rænni sól og ódýrum lystisemd- um. Hefur víst fáa órað fyrir því allt fram á þennan dag, að við þá væri sagt: — Gerið svo vel herr- ar mínir og frúr, við gefum ykkur kost á ódýru ferðalagi til Spánar og af pesetum ættuð þið að geta jfengið eins og ykkur þóknast. Það hefir nefnilega komið upp , úr kafinu, að varla er nokkurs staðar ódýrara að ferðast í Evrópu en suður á Spáni. | Skemmtileg tilbreyting verðuí þetta, ef vel tekst! Til Suðurlanda um vetur. ÞÓ að ekki sé ráðgerð nema ein Spánarferð sem stendur, þá er lengan veginn ólíklegt, að eitt- hvert framhald verði á suðurferð- I um á borð við þessa, ef allt geng- ur að óskum. Það virðist ekki óeðlilegt, að mönnum verði gefinn kostur á að skreppa til Suðurlanda að vetr- inum, þegar sólskinsleysi og þunglyndi hrjáir okkur mest norður hér. Að minnsta kosti er það sanngjörn krafa, að kannað verði, hvort nægileg þátttaka er ekki fyrir hendi í slíka för. Ef okkur eru utanfarir nauð- synlegar á sumrum, þaþeim mun fremur á vetrum. i 1 Rýmingarsölur. SKYNDISÖLURNAR eru allt af nokkur viðburður í bæjarlíf- inu. Fara þá margir á stúfana, einkum þeir auralitlu og barn- mörgu, og reyna að krækja sér í ódýta flík, því að það er helzt álnavara, sem skyndisölúrnar spinnast um. Þegar sumri haliar, og haust- tízkan stingur upp kollinum, er vörunum, sem þóttu góðar og gildar í vor, orðið ofaukið. Þá grípa verzlanirnar til útsölnnna’- og eins um miðjan veturinn. í lögum segir þó, að engin verzlun megi’ halda skyndisölu lengur en tvo mánuði á ári hverju. Barnafötin eftir þvngd. HÉR og þar um bæinn rekumst við nú á verzlanir, þar sem útsalan er í fullum gangi. Ösin e- mismikil eftir því, hve mikíll slægur er í útsölunni. En það er þó víst, að aldrei hefir þröngin orðið á borð við lætin kringum sumar skyndisölurnar í stærstu verzlunarhúsunum í Danmörku, þar sem legið hefir við líkams- meiðingum vegna ákafans að komast fyrstur að. Verðið þar var líka undarlega lágt á sumum varningi eins og barnafötunum, sem seld voru eftir þyngd. . .

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.