Morgunblaðið - 24.08.1952, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 24.08.1952, Blaðsíða 8
 1 I 8 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 24. ágúst 1952 Opið bréf fi! Frjáls- íþróliasambands íslands VEGNA leiðinlegra dylgna og slúðursagna, sem ganga hér xneðal manna í bænum, vill stjórn Frjálsíþróttadeildar KR óska þess eindregið, að FRÍ birti á opinber- um vettvangi, dómsíorsendur í máli hinna tveggja KR-inga. Inga Þorsteinssonar og Þorsteins Löve, sem dæmdir voru af FRI og áminntir fyrir framkomu sina í Helsingfors. Reykjavík, 23. 8 1952. F.h. Frjálsíþróttadeildar KR Gunnar SigurSsson, forxn. — Reykjavíkurbréf Frh. af bls. 7. við Hitler í ágútsmánuði 1939, vissu margir kommúnistaforingj- ar í Vestur-Evrópu ekki sitt rjúk andi ráð, hvernig þeir ættu að snúast við sliku framferði hjá foringja sínum og húsbónda Var það almennt umræðuefni hér í Reykjavík og getgátur manna á milli ó báða bóga, hvernig leið- I —Laugarés Framh. af bls. 3 fótaþvottur, sem hlýtur misjafn- ar undirtektir. Kl. 8 erú allir til- búnir í háttinn. Fram til 10 sit- ur forstöðukonan Ingibjörn eða Þórður kennari hjá börnunum og segja þeim sögu eða aðrar frá- sagnir. Syfjaður kollur dettur út af annað slagið og um kl. 10 sofna stærstu börnin. Dagurinn er að kvöldi kominn að Laugar- ási. Börnin svífa inn í drauma- lönd sín ánægð og þreytt eftir dagsins erfiði. Ef til vill dreymir sum þeirra um kálfinn. Sæng- in fær óþægilega meðferð hjá sumum, en umhyggjusöm vöku- kongu hlúir að þeim jafnóðum. Það er auðskilið hvers vegna börnin vilja vera lengur í sveit- inni en dvalartíminn er. HÁRBÖNDIN OG FORINGJARNIR Það er ótrúlega margt sem þarf til að reka eitt barnaheim- ili. Það þarf meira að gera en að hugsa um að hafa gott starfs- lið og nóg að borða. Enginn telpnanna má hafa hárband sem er svo fínt að það vekji öfund annara. Þess vegna lætur Bauði krossinn hárbönd í té. — Enginn fær til eigin neyzlu sæl- gætispakka frá foreldrum sínum. Öllum slíkum pökkum er safn- að saman hjá forstöðukonunni og skipt milli barnanna, sinni ögninni í hvert sinn. Eins og gefur að skilja má tala um misjafna „sauði“ í 112 barna hjörð. Sumir strákanna voru í byrjun all róstusamir, en á því var ráðin bót með því að gera þá að foringjum og vekja hjá þeim ábyrgðartilfinningu. Nú keppast þeir um að stjórna sínum flokki sem bezt. INNIVERA Öðruvísi er viðhorfs þegar verri veður eru. Þá eru borð og gólf vinnupláss barnanna. Leir- inn er hnoðaður, teiknað og klippt. En aðaldagur vikunnar er föstudagur. Það er baðdagur- inn. 112 litlir barnskroppar í baði. Ánægja 'barnanna nær há- marki á þessum degi. Enginn þrjóskast við baðinu — allir bíða með eftirvæntingu. Eftirvænt- íngin er líka mikil eftir berja- ferðinni, sem fyrir dyrum stend- ur, svo og kvikmyndirnar, sem í ráði er að sýna. — Þegar þetta er gengið um garð verður það greypt í barnshugann engu síð- ur en barnaguðsþjónustan í Skálholti s. 1. sunnudag, þar sem um 140 manns sungu ,,Ó, Jesú bróðir bezti“ og „Ástafaðir him- in hæða“. Við urðum að kveðja barna-. heimili Reykjavíkurdeildar Rauða krossins að þessu sinni. Hversdagslegt og ánægjulegt líf barnanna heldur áfram. I ról- unni í fyrramálið verður ef til vill tilvonandi forsætisráðherra eða annar háttsettur embættis- roaður. Ekki vitum við nú hversu mörg af þessum börnum eiga að geta sér og landí sínu frægðar. Eitt er víst að þarna á Laugarási er einn af fjársjóðum okkar lands — börn sém eiga að erfa landið. ,____ A. St. Einar Olgeirsson (eftir Þjóðvilj- anum). togar íslenzkra kommúnista, Ein- ar Olgeirsson og félagar hans, myndu snúast við þessU nýja við- horfi í heimskommúnismanum. Einn dag er afstaða Einars Ol- geirssonar var rædd við kaffi- borð á Borginni og fylgispekt ís- lendingsins við rússneska þjóð- höfðingjann bar á góma, komst reykvískur menntamaður að orði á þessa leið: „Það kemur aldrei til mála, að Einar svíki Stalin. Hugsanlegt er, aftur á móti, að Stalin svíki Einar.“ * Atvik þetta flaug mér í hug er mér barst í hendur aukablaf Þjóðviljans frá 14. ágúst, þar sem birtir eru 40 dálkar af greinum um Einar Olgeirsson fimmtugan. I Ég kynntist Einari er hann var innan við fermingu. Hefur hann verið mér að vissu leyti geðfelld- ur vegna þess, að hann ber það með sér, að hann er einlægur í tali sínu og framferði. Meinar í alvöru það sem hann segir. 1 Enn í dag virðist hann halda, að það kæmi íslenzkri alþýðu vel ef ,,hugsjónir“ hans rættust. | Það er að sjálfsögðu sögulegt rannsóknarefni hvers konar hug- sjónir hann og jafnaldrar hans ólu í brjósti um það.leyti, sem Kommúnistaflokkur íslands var stofnaður, og hvers konar hamingju þeir álitu, að þeir færðu þjóð sinni ef ísland yrði eitt af mörgum leppríkjum Sovét stjórnarinnar. En biindir mega þeir menn vera, er nú halda því fram, að hinar þrælbnndnu og sár- þjáðu þjóðir austan Járn- tjalds hafi fengið það hlút- skipti, er íslendingar geta tal- ið æskilegt fyrir þjóð sína. Væri til of mikils mælst að þessi „þjóðhetja" íslenzkra komm únista gerði í stuttu máli upp reikningana við Stalin og skýrði frá því, hvernig hann hugsar sér að „tryggja sjálfstæði þjóðar- innar“ undir merki kommúpism- ans. Eða hvort það kann að hvarfla að E. Olg. eftir 30 ára baráttu fyrir „hugsjón" komm- únismans að þær þjóðir, sem á undanförnum árum hafa séð kommúnismann rætast í verki, heima hjá sér hafi orðið að sjá á bak því þjóðfrelsi sem þeim upprunaniega var heitið og menn á borð við Einar Olgeirsson á tímabiii treystu, að kommúnism- inn færði þeim. Kristín Ólína Systurnar frú iiristán og Ólína Pétursdóttir 65 ára Þeir, sem dauðir töidusf, voru raunar lifandi STOKKHÓLMI — Þjóðverjinn Ritter hefir verið flóttamaður í Svíþjóð síðan 1944. Óvænt gleði var honum það, er hann sótti þing flótamanna í Hamborg á dögun- um, að hitta þar dóttur sína, þrjá- bræður og eina systir, en þeirra hefir hann saknað síðan í styrj- öldinni. Honum hafði verið tilkynnt, að ættingjarnir hefðu farizt í loftárás. Mágkona hans ein varð fyrst til að koma auga á hann. féll í öngvit. Fjölskyldan hafði í stríðinu fengið fregnir af láti Ritters. — Hann er nú sænskur þegn. Uppþot í Brasilíu. Porto Alegre. — í uppþotum í Rio Grande do Sul, féllu fjórir menn. Verkamenn hafa látið ó- friðlega vegna hækkandi verð- lags í landinu. 65 ÁRA eru í dag tvíburasysturn- j ar Ólína, Laugavegi 49 hér í bæj og Kristín frá Hrauni í Helga-j fellSsveit^Pétursdætur frá Svefn- eyjum á Breiðafirði. Þegar ég lít til baka um fimm ár og sé þær sextugar, er mér það ljóst, að síðan þá hefur tímans tönn ekkert unnið á lífsfjöri þess- ara systra. Þær standa jafnstyrk- ar í dag, hressar og léttar í lund, með æskuþrótt- í hverju spori. Af sterkum stofnum eru þær vaxnar í báðar ættir. Pétur Haf- liðason, faðir þeirra, var sonar- sonur Eyjólfs Herm. Einarssonar í Svefneyjum, en móðir þeirra, Sveinsína, var dóttir Sveins Ein- arssonar í Vesturbúðum í Flatey. Vita því þeir, sem til þekkja, að bætiefnaríkt veganesti hafa þær hlotið frá ættstofnunum, einnig það, að í merg og blóð rann þeim kjarkur og þol á unglingsárunum, en þær þreyttu fangbrögð við bárur Breiðafjarðar, jafnt körl- um, og reyndust í hvívetna jafn- okar þeirra. Jafn líkar og þær systur eru í sjón, eru þær að andlegu atgerfi. Með skörungsskap hafa þær rækt lífsstörf sín. Kristín giftist Guðmundi Sig- urðssyni, bónda að Hrauni. Hann andaðist fyrir fáum árum. Börn þeirra voru 11, flest á fót komin,' dúgmikil og efnileg, er faðirinn1 dó. Barnabörn Kristínar eru nú 30. Ólína giftist Ólafi Jónassyni, sjómanni, ættuðum af Skógar- strönd. Áður en þrettánda barn þeirra fæddist, andaðist Ólafur. Voru þá öll börnin í æsku. Barna börn Ólínar eru nú 25 að tölu. Örlögin höguðu því þannig, að þróttur og kjarkur Ólínar kom skýrar í ljós, því ein og óstudd ól hún önn fyrir þessum stóra og mannvænlega barnahópi sín- um. Harðviðri lífsins og harmsögur hafa ekki farið neðan garðs hjá þeim systrum, en ásamt sálar- þreki hafa þær fengið í vöggu- gjöf þann dásamlega eiginleika að geta ávalt slegið á strengi gleðinnar, hvernig sem viðraði í lífi þeirra. í nálægð þeirra er öllum hollt og hressandi að vera. Ég held að mér sé óhætt að fullyrða, að bakhjall þessarar lífs gleði sé trú þeirra á æðri vernd og sigur lífsins að lokum. Vinir og kunningjar senda systrunum hughlýjar afmælis- kveðjur í dag. G. Einar Asmundlsson hssstaráttarlögmaðuí Tjamargata 10. Sími 5409’, Allskonar lögfræðislörf. Sala fasteigna og skipa. Viðtalstlmi út a! fasteignaaöltf aðallega kl. 10 - 12 f.h. ÍOFTLEIÐIRJ ,HC ICCICHOIC . tllllHt*. . LOFTLEIÐIS MEO LOFTLEIÐUM Vikulegar ferðir: REYKJAVÍK—NEW YORK KAUPMANNAHÖFN STAVANGER — og áfram með sömu flugvél tU HAMBORG GENF ROM — og Austurlanda FYRIRGREIÐSLA GÖÐ — FARGJÖLD LÁG LOFTLEIÐIR H.F. LÆKJARGATA 2 SIMI 81440 Markús: Efíir Ed Dodd. M W VM SO GLAD, CHERCyl E f DARUNG, THAT WE'VE i A PATCMED UPOUÍ3 LITTLG M DIPFEl.QSNCES. NOW I HAVi? V/ONDCRPUL PLANS F CP VOD/ iijf w? 'X. 1) Sirrí fór með pabba til sér- fræðings í borginni. Og þau ætla að þúa hjá Víborgu frænku. 2) —- Það er undarlegt. Ekki hélt ég, að Vígborg hefði verið svo vingjarnleg við hana Sirrí. 3) — Sirrí vill að þú komir eins fljótt og þú getur að hitta'við höfum tekið upp aftur góða hana. 4) Á meðan. — Mér þykir það svo gott, að vináttu, elskan mín. Nú skaltu þó vissulega fá að skemmta þéc meðan þú dvelzt í borginni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.