Morgunblaðið - 24.08.1952, Síða 12
Veðurúflif í daq:
S-gola eða kaldi. Dáiítil rign-
ing.
ReykJaYikyrbréf
er & blx. 1. i i 2íi
Koi h,i. leitar brún*
kola ú Skarðsströnd
FÉLAGIÐ KOL H.F. hefur undanfarið verið að bora í surtar-
fcrandslögin á Skarðsströnd, en þar er talið að finnist nokkuð magn
af brúnkolum. Hins vegar er nokkuð vafasamt hvort það myndi
borga sig að vinna þau úr jörðu.
BORKJARNAR TEKNIR
Framkvæmdir þessar eru aðal-
lega hjá Tindum á Skarðsströnd.
Surtarbrandslögin þarna liggja
inn á milli blágrýtislaga og sumt
af þeim mun vera undir yfir-
borði sjávar. í sumar hefur verið
unnið þarna með jarðbor og fyr-
ir nokkru munu borkjarnar hafa
verið sendir suður til Reykjavík-
ur til rannsókna. Álíta sumir
hugsanlegt, að svo mikið magn !
sé af brúnkolum á Skarðsströnd,
að það gæti borgað sig að vinna
Þ«u.
KOLAFÉLAG STOFNAÐ
Fyrir nokkru var stofnað
hlutafélag, sem kallast Kol h.f.
og hefur það á stefnuskrá sinni
að nýta surtabrandslögin á
Skarðsströnd, ef það teldist fært.
í stjórn félagsins eru: Haraldur
Guðmundsson, formaður og fram
kvæmdastjóri, Magnús Brynjólfs-
son, ritari, Friðrik Þorstéinsson
og tæknilegur raðunautur er
Helgi Sigurðsson, hitáveitustjóri.
VAFASAMT UM
FJÁRHAGSHLIÐ
Mbl. hefur aflað sér upplýs-
inga um það, að áður hafa nokkr-
ar rannsóknir farið fram á surta-
brandslögunum á Skarðsströnd
og hafa þær verið neikvæðar. M.
a. kom hingað á sínum tíma ensk
’ ur kolanámufræðingur, sem taldi
;eftir rannsókn, að kolanám þar
væri óframkvæmanlegt.
Ilmsiin ánægjn
Sjárskiptin í Dölam
Bændur hyggja á aukna sauðfjárrækt
EÆNDUR í Dalasýslu munu nú treysta meira á sauðfjárræktina en
áður, vegna þess hve fjárskiptin virðast ætla að takast vel. Hefur
hin'n nýi fjárstofn dafnað vel og mun fjöldi sauðfjár nú orðinn
álíka í sýslunni cg áður en fjárskiptin fóru fram.
SKIPTIST SUNNAN
LAXÁRDALS
Dalasýsla hefur verið á tveim-
ur fjárskiptasvæðum og skiptir
á milli þeirra varnargirðing sunn
an Laxárdals.
HEILSUFAR GOTT
í vestursýslunni fóru fjár-
skipti fram’fyrir fimm árum. Lr
fjárstofninn nú orðinn meiri þar
en var fyrir skiptin og enn munu
bændur hyggja á aukningu. —
Heilsufar hefur verið ágætt hjá
fénu, nema hvað borið hefur á
lambaláti á tveimur eða þremur
bæ j um.
NOKKUÐ FÓDURFREKT FÉ
Hinn nýi stofn hefur reynst
ágætlega og er ekki lakari að
heilsu og frágangi en stofn sá
sem áður var í sýslunni. Hann
hefur dafnað vel, en það eina
sem menn finna að honum, er að
hann virðist ef til vill nokkuð
fóðurfrekur. Annars hafa lamb-
gimbrar verið látnar fá, alin und-
an þeim lömb og þurfa þær þá
meiri umhyggju og umönnun.
ALMENN ÁNÆGJA
Aðeins tvö ár eru síðan fjár-
skiptin fóru fram í suðurhluta
sýslunnar, svo að þar er ekki
fengin eins mikil reynsla. Þó
virðist sömu sögu að segjá þaðan
og úr vestursýslunni. Hafa sauð-
fjárskiptin tekizt svo vel, að al-
menn ánægja er með þau og
hyggja bændur nú á aukna suuð-
fjárrækt.
Leitað árangurslaust að
í öldruðum Keflvíkingi
>} Hvarf að heiman s. I. þriðjudag
SÍÐLA dags síðastliðinn þriðjudag gekk Einar Gislason til heimilis
að Klapparstíg 3 í Keflavík að heiman frá sér, en síðan hefur ekki
til hans spurzt og ekkert er vitað um ferðir hans, þrátt fyrir gagn-
gera leit. — Einar er 84 ára að aldri, hrumur orðinn og seinn til
gangs og því er talið víst að fótgangandi hafi hann ekki komizt langt.
60—100 MANNS LEITA
Leit var hafín að Einari þegar
á miðvikudaginn og hafa 60—100
manns leitað daglega. Hefur ver-
ið farið um nágrenni bæjarins,
heiðarnar í kring og gengið um
f jörurnar, en þessi leit hefur eng-
an árangur borið.
SÍÐASTA LEITARTILRAUNIN
í gærdag átti blaðið tal við
bæjarfógeíann i Keflavík. Var þá
verið aÍ5 skipuleggja hvernig haga
skyldi leitinni þann daginn, en
það átti að verða úrslitatilraunin
yið leitina.
Einnig er afráðið að slæða með
fram bryggjum í Keflavík, en
það er erfitt verk vegna dýpis.
Veður hefur ekki verið nægikga
gott til þess ennþá, en jafnskjótt
og veður leyfir verður verkið
framkvæmt.
ALDRAÐUR OG HRUMUR
Eins og áður segir er Einar 34
ára að aldri. Hann bjó hjá fóstur-
syni sínum og er orðinn svo
hrumur að hann á jafnvel eriitt
með að komast 'mílli húsa. Einar
þykir stundum nokkuð undarieg-
ur í háttum.
Barnahsímiiso ai Laisgarási
Nokkur barnanna sem að Laugarási eru. í miðjum hópnum er Þor-
steinn Scheving Thorsteinsson, lyfsali, en hann ásamt ýmsum öðr-
um hefur varið ótöldum stundum til að hlua að þeim minnstu
nieðal okkar. Sjá grcin um barnaheimilið á blsá 3.
Togarasöiurnðr fi! Esb
Abending ti! Alþýðublaðsins
Engar áætlunarferðii’
Hl Þórshafitar 1
ÞÓRSHÖFN, 22. ágúst: — Það
.hefur verið til mikils baga 4
Þórshöfn, að engar fastar áætl-
unarferðir hafa verið á landi til
bæjarins í sumar. Bifreiðarstjóri
sá, sem haldiC hefir uppi ferðun-
um fram til þessa, treysti séi’
ekki til að annast þær í sumar,
þar sem tekjur hafa verið litlar
af þeirri atvinnu. Engar flug-
samgöngur eru heldur við stað-
inn og væri mikil þörf á ein-
hverjum aðgerðum til úrlausn-
ar þessu samgönguleysi. — Að
sumarlagi er opin landleið til
Þórshafnar frá Kelduhverfi og
yfir Axarfjarðarheiði.
—Fréttaritari. (
GÖRING heitinn marská’kur átti
mjög stóra átta binda biblíu, sem
hann að öllum líkindum stal í
Póllandi. — Eftir stríð fann
franskur hermaður hana í
Berchtesgaden, og nú er hún í
eigu St. Wandrilleklaustursins.
Faðir Fouquer, sem er í þessu
klaustri, segir, að biblían sé
prenttið einhvern tíma á árunum
1569—1573. Löngu seinna eignað-
ist pólskur háskóli hana, og þar
hirti Goring hana í striðsbyrjun.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ setti s.l>
sunnudag fram þá spurningu
i gleiðletraðri forsíðugrein,
hvort íslenzkt fyrirtæki keypti
saltfiskinn í Esbjerg af ís-
lenzku togurunum, og bar fyr-
ir sig togarasjómenn, sem
höfðu séð íslenzka menn við
móttöku fisksins í Esbjerg. —
Þetta átti sýnilcga_ að vera
æsifregn og var því varpað
fram af blaðinu að engar
skýringár fengjust um það
hvers vegna þörf væri á að
selja þennan fisk til Esbjerg.
★
Framkvæmdastjórar SÍF,
sem Morgunblaðið hefur, að
gefnu tilefni, leitað upplýsinga
hiá, vilja í þessu sambandi
láta þess getið að þeim sé ekki
kunnugt um að íslenzk fyrir-
tæki stanði að þessum fisk-
kaupum. Fisknrinn er allur
seldur dönskum fyrirtækjum,
eins og samningarnir bera með
sér. Þessir sölusamningar eru
fyrir hendi á skrifstofu SÍF
hér, og er ekkert til fyrirstöðu
að þeir, sem hafa sérstakan á
huga fyrir því, hvað kaupend-
urnir heita, fái að ganga úr
skugga um það, ef þeir óska
þess.
Töðulezigias' í Dölum
er gIb í befra lagi
SÆMILEG spretta hefur verið í Dalasýslu á túnum í sumar, svo
að menn telja betri en í fyrrasumar. Tíðarfar hefur verið ágætt
allan fyrri hluta ágústmánaðar, en nú hefur brugðið til votviðra
síðustu daga.
SLÁTTUR HÓFST SEINT i orðinn allsæmilegur víðast hvar.
Sláttur hófst yfirleitt ekki í
Dölum fyrr en í síðari hluta júlí- ÚTENGI EKKI GÓÐ
mánaðar, en þar sem tún voru| Hins vegar þykir mönnum út-
látin bíða, þá var spretta vel í engi vera lélegra en venjulega.
meðallagi. Svo bætti hin góða Er það bagalegt, því að nú um
tíð í fyrri hluta ágústmánaðar þessar mundir hyggja Dalamenn
svo úr, að heyskapur er þegar mjög á aukna sauðfjárrækt.
Fmnst lisr skriðu-
orpin fonuMHUMlna?
I RÁÐI er eins fljótt og tækifæri gefst að grafa upp leifar af fornri
sundlaug við Sæiingsdalslaug í Dalasýslu. Mun Ungmennasamband
sýslunnar gangast fyrir því.
SVIPAÐ SNORRALAUG » ...........
★
Blaðið talar einnig nm, að
einhver leynd sé yfir þessum
sölum til Esbjerg eða vegna
hvers þær eiga sér stað. Þetta
er alveg út I bláinn sagt. SÍF
selur engan togarafarm,
hvorki til Esbjerg eða anrars
staða, nema eftir beiðni út-
gerðarfyrirtækja þeirra, sem
hlut eiga að máli. Af eðlileg-
um ástæðum koma fleiri slík-
ar sölur í hlut Bæjarútgerðar
Reykjavíkur en annarra
togaraútgerðarmanna, en
einmitt annar framkvæmda-
stjórinn í Bæjarútgerð Reykja
víkur, er mikilhæfur og vel
kunnur alþýðuflokksmaður.
Ætti Alþýðublaðið að geta afl-
að sér réttra upplýsinga um
þessi mál og sparað sér rangar
tilgátur um það hverjir kaupi
fisk þennan og hvað því veld-
ur, að togararnir yfirleitt
sækja svo á með það, sem
raun ber vitni um, að selja
Grænlandsfisk sinn til Dan-
merkur eða danskra fyrir-
tækja.
ÞaS er talið víst, að þarna hafi
áður verið sundlaug, en ekekrt er
vitað um stærð hennar eða fyrir-
komulag, en menn búast við, að
það hafi ekki verið mjög ólíkt
Snorralaug í Reykholti. Mestöll
verksummerki þarna eru nú kom
in undir skriðu og grafin niður.
HELLUSTOKKURINN
Þó hefur fundizt þar hellu-
stokkur, sem menn ætla að heitt
vatn frá laugum hafi verið veitt
um og vonast menn til að við
fornleifagröft mætti fikra sig á-
fram eftir hellustokknum, þar til
komið væri að lauginni.
ÁHUGI
UNGMENNAFÉLANNA
Ungmennasamband Dalasýslu
hefur áhuga á að leita fornleifa
þarna. Hefur það fengið nokkurn
styrk úr sýslusjóði til fyrirhug-
aðs uppgraftrar. Er nú aðeins
eftir því beðið að fornminjaverði
gefist tími og rúm til að stjórna
og lciðbeina með uppgröftrinn,
— Fréttaritari.