Morgunblaðið - 14.10.1952, Blaðsíða 16
Veðurúliif í dag:
Sunnan og: SA kaldi. Skúrir
en bjart á milli.
234. tbl. — Þriðjudagur 14. október 1952
YÁmMi
Siá blaðsíSu 9.
f-'rá Alþin'gi:
Málverk ellir Kjarva!
Ræft um æftieiSingn, Ferla-
skrifsloíueia og mannfalið
FYRSTA MÁL á dagskrá neðri
deildar í gær, var frumvarp til
laga um ættleiðingu og var það
til 1. umr.
NAUUÐSYN Á HEILDAR-
LÖGUM
Dómsmálaráðherra, Bjarni
Benediktsson, fylgdi frumvarp-
inu úr hlaði með nokkrum orð-
um. Gat hann þess, að skort hefði
hingað til heillega iöggjöf um
ættleiðingu. Að visu hefðu hin
nýju erfðalög bætt þar nokkuð
um réttarstöðu ættleiddra frá
þvi, sem áður hefði verið: Engu
að síður hefði mjög bagalegt
verið að búa við málin eins og
þeim hefði verið háttað. Ef ætt-
leiðingin ætti að vera til góðs
fyrir barnið, sem ættleitt vær'
yrði að búa hér sem bezt ur
hnútana. Hefði því frumvarp a
hinum nýju lögum verið sami
í dómsmálaráðuneytinu til þess
að bæta úr brýnni þörf og setj
hei'.darlög um málið. Væri þa
í mörgu fylgt hliðstæðri nor
rænni löggjöf.
Var frumvarpinu síðan vísai
til annarrar umræðu og allsherj
arnefndar.
FERD ASKRIFSTOF A
RÍKISINS SVIPT
EINKALEYFI
Tíunda mál á dagskrá neðr
deildar var frumvarp til laga urr
breytingu á lögum fra 1936, um
Ferðaskrifstofu ríkisins. Fyrsta
umræða. Tók Skúli Guðmunds-
son, flutningsmaðurinn, til máls
og taldi það alls endis óviðun-
andi, að ríkið hefði eitt rétt til
þess að annast fyrirgreiðslu er-
lendra ferðamanna hér á landi,
þar sem einkaskrifstofur væru
þeim vanda jafn vel vaxnar. —
Frumv. miðar að því, að veita
þeim slikt leyfi. til jafns við
Ferðaskrifstofu ríkisins.
Málinu var vísað til 2. umr.
H5Ð NÝJA MANNTAL
ELLEFU mál voru á dagskrá
neðri deildar Alþingis i gær, en
aðeíns eitt mál á dagskrá efri
deildar. Var það hið nyja frumv.
til laga um manntal, er fram skal
fara hinn 16. okt. n. k. og fór
fyrsta umræða fram um málið.
Bráðabirgðalög voru sett um
þetta mál hinn 10. sept. s.l. að
tilhlutan félagsmálaráðuneytisins
1 og er frumvarpið samhljóða
1 þeim. Fylgdi félagsmalaráðherra,
Steingr. Steinþórsson, frumvarp-
inu úr hlaði með framsöguræðu
á fundi deildarinnar í gær.
j FULLKOMNAR VÉLAR
Gat hann þess, að nú væri
að koma til landsins miklar vél-
ar ætlaðar til þess að vinna úr
manntalsskýrslunum og til
gjörðar spjaldskrár þeirrar, er
_ æra skal að aukamanntali
essu loknu fyrir alla íslendinga.
í5 vélakaupum þessum standa
" msar stofnanir auk Reykjavík-
jrbæjar. Manntal þetta væri al-
. jört auka manntal, sagði ráð-
ærrann, og færi aðeins fram í
jetta eina sinn til þess að tryggja
>að svo sem unnt væri að
jlöggar upplýsingar og nákvæm
■ ala fengist yfir landsfólkið.
Málið var síðan afgreitt til
. mnarrar umræðu og allsherjar-
irnefndar.
Gullfaxi i Græn-
£ GÆRKVOLDI um kl. 6 kom
Gullfaxi úr Grænlandsflugi.
Hann flutti um 50 verka- og iðn-
aðarmenn til Narsasúakflugvall-
arins snemma í gærmorgun.
Höfðu menn þessir biðið flug-
veðurs hér í 10 daga.
Gullfaxi kom með rúmlega 20
menn þaðan, allt Dani, sem hann
átti að fljúga með til Hafnar í
nótt, en ráðgert var að Gullfaxi
færi um miðnætti í nótt er leið.
Auk hinna dönsku Grænlandsfara
voru um 20 farþegar héðan írá
Reykjavík. — Gullfaxi er vænt-
anlegur aftur í kvöld.
iir ars-
ms ©nagsi. um Zó2 millj.
Hsgslæcyr í scpfeinbarmámiði m fæpnr 20 miiij.
1 SEPTEMBERMÁNUÐI varð vöruskiptajöfnuðurinn hagstæður
um 19.706 þús. krónur. Nam útflutningurinn í þessum mánuði
75817 þúsundum króna en verðmæti innfluttra vara var 56111
þús. krónur. -— í septembermánuði í fyrra var vördskiptajöfnuð-
urinn hagstæður um 13149 þúsund krór.ur.
232 MILLJONIR KRONA
Fyrstu 9 mánuði þessa árs er(
vöruskiptajöfnuðurinn liins
vegar óhagstæður um rúmar
232 milljónir króna. í þeirri
upphæð er talin með innflutn- j
ingur skipa fyrir rúmar 20
milljónir. Fyrstu 9 mánuði s.l. j
árs var verzlunarjöfnuðurinn
óhagstæður um 165 milljór.ir
króna.
MINNI INNFLUTNING
Á árabilinu jan.—sept. þessa
árs hafa verið fluttar út vörur
fyrir tæplega 425 miiljónir (463
millj. á sama tíma í fyrra). Inn-
flutningur nam á sama tíma 657
milljór.htn króna (628,5 milljón-
um á sdmá'tlma’í fyrra).'
Kosningtim íil
Mi-þinp lauk
í gærkvðldi
KOSNINGUM íil Alþýðusam-
handsþings, sem staðið hafa
yfir að undanförnu, lauk í gær
kveldi, að öðru leyti en því að
fáein félög hafa fengið frest til
fulltrúakjörsí nokkra daga.
Til A. S. í.-þings, sem mun
hef jast eftir um það bil mánuð
verða alls kjörnir um 300 full-
trúar, frá 159 félögum á öllu
landihu.
í DAG Etl síðasti dagur Iðn-
sýningarinnar. Nú eru þvi
síðustu forvöð fyrir þá, sem
ekki hafa séð Iðnsýninguna
að fara og fcynna sér þennan
eftirmÍK: Uega viðburð ársins
1952. t gærkvöldi höfðu um
59 þús. manns séð Iðnsýning-
una.
Skipfn iiíSu aS bíða
I Listvinasalnum við Frevlu«rfttu htiur verið opnuð má'verkasýn-
ing, sem hlotlð hefur nafnið Úr naustum. Eins og nafnið bendir til,
eru verk þau, sem sýnd eru á sýningunni, myndir frá sjávarsíð-
unni, lífinu þar os: starfi. — Þetta málverk, sem er eftir Kiorval o’
sýnt er þar, heitir Ævintýrabátur. — Aðsókn var sæmileg að
sýningunni um helgina og fimm myndir seldust.
(Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.)
Dregið í gær ú
Getraun Morgunblaðsins
689 svör bárust
SEINT í gærkvöldi var dregið
um verðlaun í Getraun Morg-
unblaðsins. 689 svör höfðu bor
izt, þegar hætt var að taka á
móti svörum klukkan 6 í gær-
dag. Af þeim voru 633 rétt en
56 röng. |
Réttu svörin voru látin í
kassa og Bergþóra Benedikts-
dóttir, starfsmaður iðnsýning-
arinnar dró um verðlaunin.
Verðlaun hljóta í Getraun
Mors:unblaðsins að þessu
sinni:
I. VERÐLAUN — 500 KR.
Kristín Þorláksdóttir, Freyju
götu 42, Rvík.
II. VERÐLAUN — 250 KR.
Guðný Eiríksdóttir, Melhaga
5, Rvík.
III. VERDLAUN — 250 KR.
Jóna Jónsdóttir, Njálsgötu
79, Rvík.
Verðlaunanna má vitja í
skrifstofu Mbl. eftir hádegi í
dag.
RÉTT SVÖR ERU SEM
HÉR SEGIR
1) H.f. Elgur
2) Nýja blikksm!ðjan
3) Ullarverksmiðjan Fram-
tiðin
4) Sporthúfugerðin Varmi,
Skagafirði
5) Teiknistofa Sveins Kjarv-
als
6) Gefjun
7) Blikksmiðja J. B. Péturs-
sonar
8) Egill Vilhjálmsson
9) fslenzkur heimilisiðnaður
(Guðbr. Þork.)
10) Saumastoían Gullfoss.
IIVAÐ VAR ERFIDAST?
Eríiðasta myndin í getraun-
inni virðist hafa verið nr. 8.
1 röngu svörunrm var þaf
helzt hún, sem varð mönnuir
að fótakefli. Sumir sögðu aS
það væri frá Landssmiðjunni
aðrir frá Keili, eða Bátasmíða-
stöð Breiðfirðinga o. s. frv.
Næst erfiöust var þótt undar-
legt megi teljast nr. 10 og því
r.'sest v ”• 5. Nokkrir svöruðu að
nr. 1 væri frá Regnhlífabúð-
inni og að nr. 8 væri frá Bila-
ímiðjunni.
Það voru eliki nema þrír af
þessum mikla fjölda sem gátu
fengið verðlaun. En hinir sem
engin verðlaun hlutu hafa von
andi Iíka haft skemmtun af að
æfa athyglisgáfuna og leita
uppi viðfangsefnin á Iðnsýn-
ingunni.
VEGNA sunnan storms á laug-
ardagskvöldið, urðu skip, sem
hér voru í Reykjavíkurhöfn, að
fresta brottför sinm þar til á
sunnudag.
Eitt þessara skipa var Detti-
foss, er fara átti til útlanda um
miðnætt. Vcgna hvassviðrisins
mun ekki hafa verið talið hættu-
laust að sigla út úr höfninni.
Stórt amerískt farmskip, sem
kom hingað á vegum varnarliðs-
ins, varð að fresta brottför sinni
og einnig tvö þýzk farmskip biðu
þess fram á sunnudag að veðrið
lægði.
Hér eru uú tvö olíuskip, annað
kom til Shell frá Nýfundnalandi,
og losar í Skerjafirði um 2000
tonn af oiíu. — Hitt skipið er
10.—1200 rúmlesta skip, sem los-
ar olíu í BP stöðina á Köllunar-
kletti.
Aðgæzhleysi
bílaárekstra
BÍLAÁREKSTRAR eru með
allra mesta móti hér í bænum
um þessar mundir. — Daglega
verður fjöldi bifreiða fyrir meiri
eða minni skemmdum af völd-
um árekstranna.
í þeirri deild rannsókr.arlög-
reglunnar sem um árekstrarmál-
in fjallar, hefur komið í Ijós, að
því r.ær allir þessir árekstrar
stafa af því að bílstjórarnir hafa
ekki sýnt næga árvekni við akst-
urinn. — Um þessa helgi urðu
skerrsmdir á hvorki færri bílum
en 24. — Slys urðu þó ekki á
mönnum.
í gærdag varð og mikill fjöldi
árekstra. Munu nær-20 bílar hafa
skemmzt.
Fékk 260 funnur sldar
SIGLUFIRÐI, 13. okt. — Þær
fréttir hafa borizt hingað, að m.s.
Ingvar Guðjónsson, sem er á síld
veiðum um 69 mílur austur af
Færeyjum, hafi fengið 260 upp-
saltaðar tunnur síldar í fyrstu
iögninni.
Hásetahlutur úr þessari fyrstu
lögn mun vera 1640 krónur.
Fyrir nokkru var getið um það
hér í blaðinu, að m.s. Sigurður
befði lagt hér á land 240 tonn af
fiskúrgangi, en á að vera 24
tonn. — Guðjón.
Kjörsóknin við i
presikosnmprnar i
varð 71 prósenl
AF 8574 mör.num, sem á kjör-
skrá voru víð prestkosningarnar,
sem fram fóru á sunnudaginn,
kusu 6128 manns og varð kjör-
sóknin því 71,472%. — Bezt var
kjörsóknin í Búsíaðasókn, en
minnst í Háteigssókn.
Kjörfundir hófust kl. 10 f. h.
— Árdegis á sunnudaginn var
vonzku veður hér í bænum, en
fór batnandi er kom fram á
daginn.
í Bústaðasókn varð kjörsókn
81%. Voru 1071 á kjörskrá og
867 kusu^ — í Kópavogssókn
voru 956 á kjörskrá, en 720 kusu
eða 75%. — í Háteigssókn voru
3897 á kjörskrá, 2637 kusu eða
68%. — í Langholtssókn voru
2650 á kjörskrá en 1904 greiddu
atkvæði eða 72%.
Talning atkvæðanna fer fram
á skrifstofu biskups á fimmtu-
daginn.
Siraajárnið
glapidisi
i rt
•i
LAUST fyrir klukkan 8 í gær-
kvöldi, var slökkviliðið kallað
vestur á Vesturgötu, að húsinu
Vestur gata 44, sem gamlir Vest-
urbæingar kalla Þorlákshús.
I rishæð hússins, en það er ein-
lyft, var allt fullt af reyk. Gólf-
fjalir í herbergi þar uppi voru
byrjaðar að loga. — Straujárn
hafði gleymzt í sambandi og var
það búið að brenna sig niður í
gegnum dregi.1 á gólfinu, gólfdúk-
inn og byrjað var að loga'í gólf-
fjölunum sem fyrr segir. Eldur-
inn var kæfður samstundis. ,
IrnajfeHið lesfar salffisk
3AUÐÁRKRÓKUR, 12. okt.: — ’
Arnarfellið er hér statt og losar
salt og tekur saltfisk til útflutn-
ings. Þetta er fyrsta millilanda-
skip, sem komið hefir upp að
hafnaróarði hér, í h. u. b. eítt ár.
1 «— Jón. i
Veita Jngcslöfum aðstoð. '
LUNDÚNUM, 13. okt. — í Bel-
grad var þvi lýst yfir í dag, að
Júgóslafar fengju um 12,5 millj.
dollara aSsloð frá Bretum, 8,5
millj. dollara frá Frökkum og
um 78 millj. dollara frá Banda-
ríkjamö'nnum.
NTB-Rcuter, ,