Morgunblaðið - 12.11.1952, Page 16
Yeðurúflií í dag:
Siinningskaldi sunnan og SV,
— Skúrir.
259. tbl. — Miðvikudagur 12. nóvember 1952.
Tryggvi Lie
og störf ijans í þágu S.Þ. Sjá.
grein á bís. 8.
Áreksturinn við Pósthúshornið.
rr
Mauðsplegl að verzlunaríólk fjölfnenni á Sundinn
/iÐAL,FLrNDUR Verzlunarmannafélags Reykjavíkur verður hald-
inn í Sjálfstæðishúsinu í kvöld og hefst fundurinn kl. 8,30. Á
fundinum fara fram venjuleg aðalfundarstörf, en auk þess liggja
fyrir lagabreytingar, sem miða að því, að félagið leyti að upptöku
í Alþýðusamband íslands. í þessum iagabreytingum er gert ráð
fyrir, að málefni, sem varða verzlunarstéttina sem heild, svo sem
tnénningarmál, verzlunarmál almennt, sameiginleg meðferð og
V'arzla eigna félagsins, skuli raeða og afgreiða á sameiginlegum
fundi, sem allir félagsmenn eigi jafnan rétt á. Aftur á móti skuli
611 mál, er varði launþega eina afgreiða á sérstökum launþega-
fundum.
rih 8TYRKTAR í
Í&JARAMÁLCM
Það má segja, að þessar til
lögur séu aðeins framhald af
■þeirri þróun, sem átt hefur sér
«tað innan VR undanfarin ár í
sambahdi við launamálin, og eru
líkur til þess, að allir þeir fé-
lagar VR, sém vilja efla samtök-
in og vinna einlæglega að hags-
Vnunum stéttarinnar, séu sam-
tnála um þessa skipulagsbreyt-
ingu. sem mótast fyrst og fremst
of þeirri nauðsyn, að gera fé-
lagið sem öflugast í kjaramálun-
um, án þess að traðkað sé á rétti
nokkurs.
rjOLMENMö A FUNDINN
Ástæða er tii að ætla, að ann-
arleg öfl innan félagsins, sem
stjórnað er af pólitískum æfin-
týramönnum, muni reyna að tor-
velda einingu félagsins í sam-
har.di við þetta mál í ákveðnum
pólitískum tilgangi. Verzlunar-
fólk þekkir þessa sendimenn,
sem látasf viija félaginu vel á op
inberum mannfundum og reyna
að fá fólk til að trúa því, að þeir
séu að vinna að hagsmunamálum
félaganna, ; en í framkvæmd
reyna þeir á al!a lund að tefja
og torvelda allt það, sem til hags
bóta stefnir hjá íélaginu.
Þess vegna er nauðsynlegt, að
sem flestir unnendur verzlunar-
samtakárina mæti á fundirium í
kvöld og standi saman sem ó-
rjúfandi heild og hindri það, að
sundrungaröflin nái yfirtökum.
SÍF-fundur ræðir
fiskyerkun og
vöruvöndun •
AÐALFUNDUR Sölusambands
ísl. fiskframleiðenda hélt áfram í
gærdag. Umi-æður snérust þá aðal
lega um fiskmat, verkun og hvers
konar vöruvöndun við saltfisk-
framleiðsluna. Auk þess var rætt
ítarlega um framkomna tillögu
um kaup á hentugu farmskipi
fyrir SIF. I gærkvöldi var boðað-
ur kvöldfundur og átti þá að
halda áfram umræðum um ýms-
ar þær tillögur, er komið hafa
fram, m. a. um breytingu á lögum
íélagsir.s.
Aðalfur.dinum mun væntanlega
verða lokið í dag.
Ffjúpndi diskur
yfir Reykjavík >1
EINN af liðsmönnum götulög-
reglunnar hér í Reykjavík, Valdi
mar Guðmundsson, telur sig hafa
séð einn þessara sporöskjulöguðu
„fljúgandi diska“, hér yfir bæn-
um á sunnudagskvöld.
Var Valdimar á göngu upp
Hverfisgötubrekkuna, er hann sá
þennan fljúgandi disk með skæra
Ijósrák aftur úr. Valdimar sá
þessa sýn í nokkrar sekúndur, en
svo hvarf hún honum sjónum á
bak við húsin og virtist honum
hæðin ekki mikil. Valdimar leit
á klukkuna og var hún þá fimm
mín. gengin í sex.
Minnismerki um konung
LUNDÚNUM: — Stöðugt berast
stórar og smáar gjafir til sjóðs
þess er stofnaður var til þess að
reisa Georg VI. Bretakonungi
minnisvarða. Eru nú í sjóðnum
10 þús. sterlingspund.
i mú
FfrsSi démur þess efnh í vsrðlagsdémi
VERÐLAGSDÓMUR Reykjavíkur heíur fyrir nokkru svipt verzl-
unareiganda leyfi til að reka verzlun um nokkra ára skeið, vegna
vecðiagsbrots er hann framdi. Eir.s var maður þessi dæmdur í há-
ar fjársektir og ólöglegur hagnaður hans allur gerður upptækur
til ríkissjóðs.
BLÚNDL'R OG
GLUGGATJ ÖLD
Fyrirtæki Eiríks, Fransk-ís-
lenzka verzlunarfélagið flutti á
árinu 1950 til landsins frá Frakk-
landi blúnduefni og gluggatjalda-
efni. Hann fékk verðlagseftirlitið
til að staðfesta hærra verð á þess-
um vörum en það var í rauninni.
KLIPPTI GLUGGATJALDA-
EFNIB í TVENNT
Gluggatjaldaefnið var tví-
Ibreytt og gerði forstjórinn sér þá
lítið fyrir og klippti það í tvennt
eftir endilöngu. Verðgæzlan tók
mál þetta til athugunar og var
Eiríkur Sigurbergsson kærður.
t
ÁGÓÐINN 53.090 —
SEKTIN 75.000 kr.
Við rar.nsókn málsins í verð-
lagsdómi kom í ijós, að hinn ólög
leg t hagnaður Fransk-ísl. verzl-
unarfélagsins á þessum verzlun-
armáta nam 53.000 kr. Með dómi
verðlagsdóms vár þessi ágóði
gerður upþtækur til ríkissjóðs.|
Þá var forstjórinn dæmdur til
að greiða 75.000 kr. sekt til ríkis-
sjóðs. '
SVIPTUP,
VERZLUNARLEYFI
\ érðlagsdómur dæmdi for-
stjórann til missis verzlunarleyf-
is um fimm ára skeið. Er hér
um að ræða fyrsta dóm verð-
lagsdóms, sem kveðið er á um
sviptingu verzlunarleyfis.
Fobstjórinn hefur tilkynnt, að
hann ætli sér ekki að áfrýja
dómir.um, en ákæruvaldið, sem
höfðaði mál þetta gegn honum,
mun ekki hafa tekið ákvörðun
um hvort skjóta skuli dómi þess-
um til Hæstaréttar eða ekki.
Forstjórinn var og ákærður
fyrir að hafa falsað innkauppa-
reikning, skjalafais, frá franska
fyrirtækinu sem hann skipti vi$.
Var hann sýknaður af þessu, þ^r
eð fullyrðing hans um að hanji
hefði haft heimild til þess fr,á
fyrirtækinu til að útgefa reikn-
inga, Varð ekki véféngd.
Mynd þessi sýnir skemmdirnar er urðu við það að áffetlunar-
bifreið, sem kom eftir Austurstrætinu á sunnudagsmorgun ók á
fólksbifreið er kom í veg fyrir hana eftir Pósthússtrætinu. Fólks-
bifreiðin skekktist svo Við áreksturinn, að hún er talin ónýt að
mestu. Rétt þykir að leiðrétta það í frásögn biaðsins í gær af
árekstrinum að áætlunarbifreiðinni hafi verið ekið hratt, því að
liún mun ekki hafa verið með mikilli ferð.
(Ljósm. rannsóknarlögreglunnar Ragnar Vignir).
Söluvika íslenzkra iðnað-
arvara frá 17.-22. nóv.
Smásöluverzlanir haia séniakar
gluggasýningar verðlaunaðar.
jiökfcviiiðið fcallað
úl þrísvar sinnum
SLÖKKVILIÐIÐ var í gærkvöldi
kallað út þrisvar sinnum, en
hvergi var um meiriháttar elds-
' voða að ræða.
I Fyrst var liðið kallað inn í
Langholt, þar sem börn höfðu
kveikt í rusli. Klukkan rúmlega
9 í gærkvöldi kviknaði í bílskúr
inn við Laugarlæk við Klepps-
I veg. — Bíll var í skúrnum, en
hann skemmdist ekki, enda var
* eldurinn ekki magnaður. Meðan
slökkviliðið var þar innfrá var
hringt frá Skothúsvegi 15, en þar
brann og skemmdist rafmótor í
ísskáp.
VIKUNA 17.—22. nóvember n. k.
skipa öndvegi í sýningargluggum
Reykjavík og Hafnarfirði. Vikunr.i
sýning íslenzkra iðnaðarvara. Hún
sýningunni og verður ekkert það til
ekki er til sölu, en hlutverk Iðnsý
sýna hvað íslenzkur iðnaður gæti
munu íslenzkar iðnaðarvörur
og hillum smásöluverzlana í
hefur verið gefið nafnið: Sölu-
er í beinu framhaldi af Iðn-
sýnis í smásöluverzlunum, sem
nirgarinnar var hins vegar að
bezt gert í dag.
ATTI AD VERA FYRR
Nefnd, er skipuö var af Fá-
Ökuníðingur særir
hesf fi! óiífis
SÍÐASTLIÐINN föstudag var
ekið á hest suður á Vatnsleysu-
strönd og hann særður svo að
honura var ekki hugað líf og lóg-
að. Sá sem valdur var að þessu,
skildi hestinn særða eftir án þess
að skeyta nokkuð um hann.
Atburður þessi mun hafa átt
sér stað milli kl. 7 og 8 síðdegis.
Það eru vinsamleg tilmæli ]ög-
reglunnar í Hafnarfirði, sem hefir
mál þetta til meðferðar, að menn,
sem einhverjar upplýsingar geta
gefíð í þessu sambandi, gefi sig
, | Ýmsar smásöluverzalnir utan' íram.
lagi íslenzxra iðnrekenda og Sambands smásöluvarzlana, taka
Sambandi smásöluverzlana á j Söluvikunni t. d. Kion.
s.l. vetri, hefur unnið að und-| ________________
irbúningi Söluvikunnar. — í
unphaíi var ráð fyrir því gert,'
að Söluvikan yrði á sama tíma|
og Iönsýningin, en vegna þess
hve mikið af starfsliði og sýn
ingartækjum alls konar var
upptekið við Iðnsýninguna,
varð að hverfa frá því ráði.
veltlingar úifluln-
VERÐLAUN VEITT
Verðláun verða veitt fyrir
beztu sýningargluggana og í því
sambandi tillit tekið til sölu-
gildis gluggasýningar. Verzlun-
unum hefur í þessu sambandi
verið skipt í þrjá flokka. — í
einum þeirra þær verzlanir, ssm
selja vefnaðarvörur, fatnað, skó
o. fl. f öðrum flokkum eru mat-
vöruverzlanir, hreinlætis- og
snyrtivöruverzlanir og í enn öðr-
um flokki búsáhaldavsrzlanir,
málningarvöruverzlanir o. fl.
Þrenn verðlaun verða veitt í
hverjum flokki. 1. verðlaun í öll-
um flokkum eru íarandbikarar,
en 2. og 3. verðlaun í hverjum
flokki eru viðurkenningarskjöl.
Með farandbikurunum er því
gert ráð fyrir að slíkar sölusýn-
ingar verði haldnar árlega.
ÁNÆGJULEG SAMVINNA
Hér er um mjög ánægjulega
samvinnu smásöluverzlana og
iðnrekenda að ræða og án efa
getur slík söluvika orðið til hags-
bóta fyrir báða aðilana svo og
landslýð allan.
FYRIR milligöngu ceridiráðs-
ins í Stokkhólmi hafa borizt
hingað óskir frá norsku verzl-
unarfirma um verðtilboð á 5s-
lenzkum sjóvinnuvettlingum. —
Segir hið norska firma að norskir
sjómenn láti mjög vel af hinum
íslenzku sjóvettlingum og vill
mjög gjarna gera kauptilboð, ná-
ist samkomulag um verð og ann-
að.
Þau íslenzk iðnfyrirtæki er
framleiða slíka sjóvinnuvettlinga
hafa fengið mál þetta til mcð-
ferðar.
um
NÆSTKOMANDI ]augardag
hefur Félag ísl. iðnrekenda boð-
að til almenns félagsfundar i
Þjóðleikhússkjallaranum. — Á
fundinum mætir stjórn Lands-
sambands iðnaðarmanna og iðn-
aðarnefndir beggja deila Alþing-
is. Á íundi þessum verður rætt
um þau málefni iðnaðarins, sem
liggja fyrir Alþingi þvi er nú
situr.
Einmunablíða
SEYÐISFIRÐI, 10. nóv.: — Hér
hefir verið oinmunatíð e.ð undan-
förnu. Hiti frá 5—7 stig daglega
Srijór hefir ekki sézt hér í firð-
inum og Fjarðarheiði er farin
daglega, en á þessum tima árs
er heiðin venjulegast orðin ófær
bílum.
- B.
Fyrsia sundmót vetr-
aritts annað kvöld !
FYRSTA sundmót vetrarins fer
i fram annað kvöld í Sundhöll
Reykjavíkur. Er það sundmót
Glímufélagsins Ármanns.
Á mótinu verður keppt í 9
sundgreinúm karla, kvenna og
unglinga. Meðal sundgrcinanna
er 200 m bringusund karla, en
í því sundi er keppt um fagran
silfurbikar, sem er gefinn til
minningar um Kristján Þorgríms
son forstjóra af nánustu sam-
starfsmönnum hans Og vinum. —.
Bikarinn er farandbikar, en sig-
urvegarinn hlýtur til eignar silf-
urpening með ágreiptri mynd
Kristjáns.»
Keppendur á mótinu eru 58
talsins, þar af um 20 utanbæj-
armenn. Nánar verður feetið um
mótið í blaðuiu a. morfiun.