Morgunblaðið - 18.11.1952, Page 1

Morgunblaðið - 18.11.1952, Page 1
39. árgangur 164. tbl. — Þriðjudagur 18. nkvembcr 1952 Prentsmiðja Morgunblaðsins. SafnaSl rúmi. 30 þús. kr. til Hringsins írezkir tognmeigendur neitu oð ufléttn löndunnrbanninu Sem kunnugt er átíi kona sænska sendifulltrúans hér, frú Öhrvall, frumkvæðið að því að efnt var til skyndihappdrættis, til ágóða fyrir Barnaspítalasjóð Hringsins, á söngskemmtun þeirri er Jussi Björling hélt í Þjóðleikhúsinu. — Sendifulltrúinn hefur nú afhent ágóðann, er nam kr. 31.400,00. — Boðaði hún stjórn Ilringsins á sinn fund að hcimili sínu við Fjólugötu í gærdag. Frú Ingibjörg Cl. Þorláksson veitti þessum gilda sjóði móttöku fyrir hönd stjórn- arinnar. Tók Ijósmyndari Mbl. mvnd þessa við það tækifæri. Enmfylking Papugos vann mikinn sigur Hetur öruggan meirihluta í gríska þinginu AÞENA 17. nóv. — Samfylkingarflokkur gríska hershöfðingjans Papagos vann stórsigur í þingkosningunum, sem fram fóru í Grikk- landi um helgina. Hefur hann mikinn meirihluta í þinginu. Kon- ungur hefur farið þess á leit við Papagos að hann myndi stjórn. ÖRUGGUR MEIRI IILUTI «-------------------- Það er nú Ijóst, að samfylk- Mótmæla flugi yfir Iandamæri ingarflokkur Papagos hershöfð- BELGRAD — Búlgarska stjórnin ingja muni fá 241 þingsæti af 300.' sendi Júgóslövum nýlega mót- Af töldum atkvæðum hefur hann^mæli vegna þess að júgóslavnesk- 55%. Lýðræðissambandið, sem ar flugvélar hefðu flogið yfir talið er hliðhollt kommúnistum,* búlgarskt landsvæði. fékk ekki einn einasta þingmannjj kjörinn. 2 Nýjar iiliegur um isngaskipti NEW YORK, 17. nóv. — Sendi- nefnd Indlands á þingi S.Þ. lagði í dag fram nýja tillögu til sátta í fangaskiptamálinu í Kóreu. Er tillagan í 17 atriðum. Er lagt til að mynduð verði nefnd með full- trúum fjögurra þjcða og stinga Indverjar upp á fulltrúum frá Svíþjóð, Tékkóslóvakíu, Póllandi og Sviss. Er lagt til að fangarnir verði fluttir á hlutlaus svæði og fái þar tækifæri til að ákveða I hvort þeir vilja snúa heim eða ekki. — NTB. 'ViSJa ekki fallast á skoð- anir islenzkra sérfræðinga Jafniðst verður staðið á rétti j íslendinga og fyrr ' Svohljóðandi fréttatilkynning barst Morgunblaðinu skömmn fyrir miðnætti í nótt frá utanríkisráðuneytinu: SVO sem áður hefur verið skýrt frá í fréttatilkynningu utanrikis- ráðuneytisins frá 13. nóvember s.l., lýsti íslenzka ríkisstjórnin sig fúsa til þess að senda sérfræðinga til London til að skýra nauð- synina á friðun íslenzkra fiskimiða fyrir brezkum togaraeigend- um, samkvæmd ósk brezku ríkisstjórnarinnar, enda yrði að vona, að slíkar skýringar myndu eyða margs konar misskilningi. Parísanbúar vilja elcldj nýiízkœbygfiirfa Byggingarnefnd borgarinnar neifar að samþykkja í UNDIRBÚNINGI er að hefja J París byggingu á bækistöðvum menningar- og fræðslustofnunar S. Þ. (UNESCO). En teikning sú, sem samþykkt hefur verið mætir sterkri mótspyrnu Parísarbúa. Þykir hún of nýtízkuleg. 16 HÆÐA HÚS Samkvæmt teikningunni, er ætlazt til að byggingin verði 16 hæðir og rúmlega 50 metra á hæð. Er hún í líkum stíl og bygging S. Þ. í New York, t. d. með breiðri forhlið, sem er þakin gleri. f ÓSAMRÆMI VIÖ UMHVERFIÐ Franska ríkið gaf byggingarlóð á mjög góðum stað í París, þ. e. STYRK STJÓRN Er þessi úrslit voru kunn, kall-- aði Páll Grikkjakonungur Papa gos þegar á sinn fund og fól hon- um að mynda nýja stjórn. Mun hún taka við völdum á miðviku- dag. Flokkur Papagos hafði fyrst og fremst á stefnuskrá sinni að mynda þyrfti trausta ríkisstjórn og að efla þyrfti landvarnirnar. Uppskeran gengur illa 'Lh9&' 1230 þúsund ný íbúðarhús í Bretlandi á þessu ári Prófsteinn á hæfni sijórnarinnar LONDON. — Allar líkur benda nú til að á fyrrsta ári hinnar nýju brezku íhaldsstjórnar muni byggingaframkvæmdir í landinu verða meiri en nökkru sinni áður. Þykir byggingaáætlun stjórnarinnar hafa tekizt með afbrigðum vel og þó lofar stjórnin að gera enn betur á næsta ári. BERLÍN, 17. nóv. — Austur- þýzka stjórnin hefur gefið út yfirlýsingu um að haustuppsker- an sé í mikilli hættu og skorað á allan almenning að hjálpa til við uppskeruna. Segir í tilkynn- ingunni að nú sé komið í hús, aðeins um 60% af sykurrófna- uppskerunni og aðeins 52% af vetrarhveitinu hefur verið sáð. Pram til þessa hefur austur- þýzka stjórnin kastað skuldinni á óstjórn í landbúnaðarmálum yfir i vestræna flugumenn. Frakkar eiga hraðfleyga flugu PARÍS. — Franska þrýstilofts- orustuflugan Mystere flaug ný- lega með 688 mílna hraða á klukkustund. Er það meiri hraði en núverandi viðurkennt heims-1 met. PRÓFSTEINN Byggingaframkvæmdir hafa eftir stríðslokin þótt mikilsverð- ur prófsteinn á hæfni þeirra rík- isstjórna, sem setið hafa við völd í Bretlandi. Þótti mörgum að verkamannaflokksstjórnin gengi slælega fram í þeim málum á valdatímum hennar og voru þeg- ar mest var, byggð 200 þúsund hús og stundum minna en það. HELDUR KOSNINGALOFORÐ íhaldsflokkurinn hét því fyrir siðustu kosningar, að ef hann kæmist til valda skyldi hann gera gangskör að því að berjast gegn húsnæðisleysinu. Og nú þegar þykja allar líkur benda til að atjórn íhaldsílokksins setli að standa við loforð sín, því að á i fyrsta valdaári hennar nú, er fyrirsjáanlegt, að 230 þúsund hús verði byggð. Mau-mau menn NÆROBl, 17. nóv. — Stjórnin í Keniu hefur haldið áfram að- gerðum sinum gegn leynifélags- skapnum Mau-mau. Voru 35 menn handteknir í dag, grunaðir um þátttöku í félagsskapnum. Ekkert lát verður þó á starfsemi Mau-mau. Fara stöðugt fram eið- vinningar og galdrasamkomur og auk þess eru morð á meðlimum félagsins, sem rjúfa eiðinp dag- Jegir viðburðir. í útjaðri Boulogne-skógar. En nýlega ræddi skipulagsnefnd Parísarborgar málið. Hún neitaði algerlega að slík nýtízku bygging yrði reist á staðnum. Gerði nefnd in það fyllilega ljóst, að UNESCO yrði annaðhvort að koma bygg- ingunni fyrir annars staðar eða fá teiknaði aðra byggingu, sem hæfði betur Boulogne-skógi. — Telur nefndin að teikning sú, sem fyrir liggur sé í megnasta ósamræmi við umhverfið. SKÝJAKLJÚFAR Mörg frönsk blöð hafa ráðizt heiftarlega á stíl hinnar fyrir- huguðu byggingar, kallað hana fyrirlitlegan skýjakljúf, vatns- kassabyggingu o. s. frv. Truman og Eisen- hower ræðast við NEW YORK, 17. nóv. — Truman, fráfarandi forseti Bandaríkjanna og Eisenhower, hinn nýkjörni forseti, munu eiga viðræðufund saman á morgun. Helztu umræðu efni þeirra verða Kóreustríðið og sambúðin við Frakkland ásamt atburðunum í Indó-Kína. — NTB. Bretar ófúsir að fakaásig skuidbindingar LUXEMBURG: 17. nóv. — Full- trúar Breta áttu í dag viðræður við fulltrúa Schuman-samsteyp- unnar. Jean Monnet formaður Schuman-samsveypunnar lét í ljósi þær skoðanir, að Bretar ættu að taka virkan þátt í sam- starfi Evrópuþjóðanna um fram- leiðslu kola og stáls. Bretar hafa j hinsvegar ekki viljað binda sig frekar en mqð viðskiptasamn- 1 ingum fyrir hyert ár. Fundur þessi var halðinn í London í dag og mættu þar af íslendinga hálfu dr. Árni Frið- riksson og Hans G. Andersen, þjóðréttarfræðingur. Fundur- inn hefir ekki borið tilætlaðan árangur, því að brezka utan- ríkisráðuneytið skýrði frá því í kvöld, að brezkir togaraeig- endur séu ekki reiðubúnir til þess að aflétta löndunarbann- inu. í kvöld var gefin út svo- hljóðandi fréttatilkynning í London: TILKYNNINGIN „Félag brezkra togaraeigenda og félag yfirmanna á brezkum togurum telja að skýringar og frambornar ástæður fulltrúa ís- lenzku ríkisstjórnarinnar séu ekki fullnægjandi, en þeir séu reiðubúnir hvenær sem er að ræða við íslenzka fulltrúa um nauðsynlegar friðunarráðstafanir til réttrar verndunar íslenzkum fiskimiðum". EKKI HNEKKT Um þessa fréttatilkynningu vísar íslenzka ríkisstjórnin til þess, sem tekið var fram í frétta- tilkynningu hennar 13. nóv. s.l., þar sem segir, að jafnframt því sem hún sé fús til að láta um- beðnar skýringar í té þá skuli tekið fram, að hún byggði allar ráðstafanir sínar varðandi fiski- veiðalandhelgina á þeirri skoðun, að þær væru innan lögsögu ís- lands samkv. alþjóðalögum, og meðan þeim væri ekki hnekkt á lögformlegan hátt, gæti hún ekki samþykkt erlendar kröfur um tilslakanir á friðunarsvæðinu. — Viðræður um slíkar tilslakanir myndu því vera gagnslausar og aðeins vera til ills, þar sem þær kynnu að vekja vonir, sem ekki gætu rætzt. Dönum slendur ógn af Rússum -NEW YORIÍ, 17. nóv. — Ole Björn Kraft, utanríkisráðherra Dana, sem nú tekur þátt í þingi S.Þ., hélt ræðu í dag á fundi bandaríska blaðamannasambands ins. Hann minntist á það með vaxandi ugg, að Rússar kæmu sér upp öflugum hernaðarbæki- stöðvum við Eystrasaltið og gerþu stórp hluta þessa innhafs að bannsvíeði. — NTB.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.