Morgunblaðið - 10.03.1953, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 10.03.1953, Blaðsíða 8
MOKGVNBLAÐIfí Þriðjudagur 10. marz 1953 ~ ~ ----------- ~ y Ctg.: H.f. Arvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.)’ Lesbók: Árni Óla, sími 3045. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 20.00 á mánuði, innanland*. í lausasölu 1 krónu eintakið. í TILKYNNINGU miðstjórnar kommúriistaflokksins rússneska um dauða Stalíns rriarskálks ér stefnu og starfsaðferðum hirína nýju valdhafa þegar lýst. f>ar er megirr áherzla lögð á f orustu- hlutverk kommúriistaflokksins o'g agavald hans yfir rússnesku þjóðinni. Það 'er þannig fyrst og fremst kommúnistaflokkurinri og aftUr kommúnistaflokkurínn, sem rúss riesku þjóðinni er skiþáð að fylkja sér um. Af því leiðir svo aftur það, að hetjudýrkun kömm únista á Stalín á nú að færast ýfir á Malenkcv, eftirmann hans. Eins og kunnugt er, hefur rúss- rieski kommúnistaflokkurinn allt af verið mjög fániennur,' þegar tillit er tekið til fjölmennis Sovét þjpðanna. í honum hafa aldrei vlérið yfir 10 milljónir manna, en lengstum, miklu færri. En þessi tiltölulega fámenna klíka meðal 200 millj. þjóðar hefur ráð ið öllu. Hún hefur myndað hina riýju yfirráðá- og forréttinda- stétt Rússlands. f stað aðals Zar- tímabilsins, hefur komið komrrí- únisk sérréttindaklíka, sem lifað hefur í vellystingum og ráðið örlögum og lífi samborgara sinna. Innan þessa fámenna hóps hefur svo baráttan um völdin staðið. Þar hcfur hver stór- hreingerningin rekið aðra. — Til þess að treysta aðstöðu síria og halda járngreipum sínum um stjórnvölinn lét Stalín marskálkur drepa flesta af frumkvöðlum bylt- ingarinnar. Þannig át bylting- in sín eigin börn. Öll gagn- rýni og andstaða gegn hinni alsjáandi forsjón Stalíns var kæfð niður, ekki aðeins utan flokksmúranna, heldur og meðal hins mikla meirihluta rússnesku þjóðarinnar, sem ekki var í kommúnistaflokkn- - Þessari stefnu hins látna mar- skálks á nú að halda áfram. Al- ræði sérréttindaklikunnar má ekkj, skerða. Þess vegna er ■ skor- að á ailan almenning að standa nú fast saman um hana. Engum blöðum er um það að fletta, að miðstjórn kommúnistaflókksins rússneska elur nú ugg í brjósti um það, að missa tökin á fólkinu. Hún óttast • að rússneska þjóðin muni ekki sætta sig í einu vet- fangi við nýjan einræðisherra. Áratuga skefjalaus áróður hafði skapað dýrðarljóma umhverfis nafn Jósefs Stalíns í hugum mik- ils hluta rússnesku þjóðarinnar. En miklum meirihluta henn- ar 'hefur þó áreiðanlega verið Ijóst að hún hafði afsalað sér frelsi sínu og í landi hennar ríkti' algert einræði. Mjög miklar líkur benda til að nú, þegar skurðgoðið er fallið af stalli sínum gæti vaxandi þrár meðal Rússa eftir raun- verulegu frelsi. Það er þetta, sem miðstjórn kommúnistaflokksins óttast og vill koma í veg fyrir. Vél má ver* að henni takist það með að- stoð leynilögreglu sinnar, her- valdi og þeim járnaga, sem hún hefur yfir rússnesku þjóðinni. En einhverntíma munu þeir tím- ar koma, að svipa harðstjóranna megnar ekki lengur að halda 200 milljóna þjóð í fjötrum kúgunar og ofbeldis. er enn á lofti Hér hefur aðeins verið rædd sú hlið fyrrgreindrar tilkynn- ingar miðstjómar kommúnista- flokksins rússneska, sem inn á við snýr. að hennar eigin þjóð. En að sjálfsögðu ætlast hún til þess, að deildir kommúnista- flokksins í hinum ýmsu löndum sýni henni sömu hollustu og hún krefst af Rússum. Kommúnista- flokkarnir úm viða veröld eiga áfram að lúta alræði miðstjórri- arinnar í Móskvu. Hún hefur að- éins skipt um oddvitá. í stað hins „mikla“ Stalíns er komin hægri hönd hans, hinn „mikli“ Malen- kov. Nú ber mönnum, eins og Brynjólfi Bjarnasyni og Ein- ari Olgeirssyni að falla fram og tilbiðja hann. — Og hver dregur í efa, að þeir geri það? Eriginn, sem kynnzt hefur hinum takmarkalausa skrið- dýrshætti þessara rnanna á liðnum árum fyrir Moskva- valdinu. Rinn fjarstýrði ís- Ienzki kommúnistaflokkur mun hefja upp dýrðaróð um „félaga“ Malenkov. Nú er það hann, sem er „vemdari smá- þjóðanna" og „iífsvon heims- friðarins!*!! Að þessu leyti hefur ekki mik- il breyting gerzt. Vinduririn blæs áfram að austan, svipa harðstjór- ans er ennþá á lofti. I Hversvegna flýr fólk- i ið sljórn þeirra* FÓLKSFLUTNINGARNIR, sem riú fara fram milli Austur- og Vestur-Þýzkalands eru sennilega einhverjir mestu þjóðflutningar, sem sögur fara af á siðári öld- um. Þúsundir manna flýja dag- lega að austan. Fólk úr öllum stéttum, verkamenn og bændur, iðnaðarmenn, verzlunarmenn og menntamenn yfirgefa héimili sín og flýja örsnauðir vestur fyrir járntjaldið. Hvers vegna er þetta fólk að flýja heimili sín og 'eignir? Það er á flótta undan því þjóð- skipulagi, sem því hefur verið skapað. Það er á flótta undan rússnesku leynilögreglunni og þýjum hennar. Þetta fólk hefur misst trúna á lífið undir ógnarstjóm kommún- ista. Það yfirgefur heimili sín til þess að öðlást frelsið. Það er því dýrmætara en allt annað. Um það ber öllum fregnúm frá Austur-Þýzkalandi einnig saman, að atvinnuástandið þar sé gjör- samlega vonlaust. Á sama tíma sem stórfelld uppbygging hefur farið fram í Vestur-Þýzjkalandi hefur alger kyrrstaða ríkt fyrir austan járntjaldið. Leppstjórn Rússa hefur allt kapp lagt á að treysta völd sín i skjóli Rússa. Hún hefur engi áherzlu lagt á að bæta úr vandræðum fóiksins. — Jafnvel matvælaástandið er bág- ) bornara en í flestum öðrumj leppríkjum Rússa. Það væri góð lexía fyrir of-! stækisfyllstu Moskvudýrkend- umar hér á landi, að hitta þó ekki væri nema. örfáa flótta- menn frá Austur-Þýzkalandi að máli. Þeir gætu áreiðan- legg sagt þeim sannleikann umbúðalaust um ástandið urídir stjórn „félaganna" þar eystra. Lítilmötlegt að róðast ú garð- inn þar sem honn @r lægstur N. BALSLEV JORGENSEN ritstjóri,,hefur í mörg ár ver- ið fréttaritstjóri nokkurra öflugustu blaða í Danniörku utan Kaupmannahafnar. Ilef- ur hann upp á síðkastið gefið íslenzkum málum nokkum gaum og ritað um þau fyrir, blöð sín. Fyrir nokkru birtist eftirfarandi grein í biöðum hans. íslenzkur fiskur hefur verið útilokaður frá brezka fisk- markaðnum í marga mánuði. — Ástæðan sem Bretar gefa fyrir þessu er að íslendingar víkkuðu landhelgi sína í fyrra eftir for- dæmi Norðmanna. Víkkun landhelginnar og bann við togaraveiðum innan hinnar nýju landhelgislíríu var gerð til þess að vernda hrygnirigarstöðv- arnar og forðast þar með eyð- ingu fískimiðanna. Reglur þess- ar um víkkun landhelginnar eru jafn strangar fyrir íslenzka tog- ara, sem fiskiskip annarra þjóða, en hafa vakið mikla móíspyrnu brezkra togaraeigenda, sem misstu góð fiskimið við íslands- strendur. HEFNDARRÁÐSTAFANIR TOGARAEIGENDA . Þegar íslenzka rikisstjórnin vildi ekki beygja sig fyrir kröf- um um að hörfa aftur að gömlu fiskveiðilandhelginni hófst lönd- unarbann á íslenzka fiskinum, en löndun íslenzks fisks hefur verið meiri þar en öll löndun á fiski annarra erlendra þjóða til sam- ans. Togaraeigendur sem fram til þessa höfðu hagnast vel á að leigja íslendingum löndunartæki neituðu nú að lána þau og þeg- ar íslenzka togarafélagið aflaði sér sjálft löndunartækja, fengu ensku togaraeigendumir fisk- kaupmenn til að neita að kaupa íslenzkan fisk. ÍSLENDINGAR HVIKA EKKI íslenzka ríkisstjórnin bar fram mótmæli yfir þessu við brezka utanríkisráðuneytið, sem lýsti því yfir að það hefði ekki vald til að aflétta löndunarbanninu. Þannig eru íslendingar nú úti- lokaðir frá brezka fiskmarkað- inum Og skapar það erfiðleika fyrir efnahagslíf Islendinga. Eins og málin standa nú er enginn vafi á því að Bretar ætla sér að þvinga íslenzku ríkisstjóm ina með viðskiptakúgun til að beygja sig fyrir kröfum Breta. En íslendingar eru ákveðnir í því að hvika ekki um eitt fótmál og reyna eftir beztu getu að finna nýja markaði. BRETAR ÓTTAST ÓSIGUR í HAAG fslenzka ríkisstjórhin hefur látið í það skína að hún vildi að málið kæmi fyrir alþjóða- dómstólinn í Haag, en svo virðist sem brezka stjórnin vilji forð- ast það, vegna þess að hún óttast að nýr ósigur fyrir alþjóðadóm- stólnum geti leitt til þess að fleiri þjóðir fylgi fordæmi Norðmanna og íslendinga. Á Íslandi grunar menn að ríkis stjórnin í London vilji draga málið á langinn í þeirri von að íslendingar meirni undir við- skiptaþvinguninni. íslendingar hafa jafnvel grun um það, að ef brezka stjórnin hefði beitt áhrif- um sínum við togaraeigendur, þá hefði hún getað komið í veg fyrir löndunarbannið og sýnt ís- lendingum þannig réttlæti. Slíkt hefði verið sanngjarnt, ekki sízt með tilliti til þess að íslendingar hirtu ekki um hættur í síðustu styrjöld en birgðu Bretland úpp af fiski. Flsklöndunarbannið talið tspphaf að skipulagðri úfilokun erlendra marfcaða. STEFNA AÐ EINOKUN Talsmenn íslands í Bretlandi álíta meginástæðuna fyrir þvi að löndunarbannsdeilan hefur harðn að, að bannið sé aðeins einn lið- ur í viðleitni brezkra togaraeig- enda til þess útiloka allan inn- flutning á erlendum fiski til Bret lands. Þannig stefni brezku tog- araeigendurnir að þvi að ná ein- okunaraðstöðu á brezka fisk- markaðnum, svo að þeir hafi neytendurna í sínum höndum. Til þess að ná þessu markmiði hafi þeir fyrst snúizt gegn veik ustu þjóðínni. Ef brezkir togara- eigendur gangi með sigur af hólmi sé ekki vafi á að sama muni yfir aðra fiskinnflytjendur ganga. í þessu sambandi er bent á ýmsar hindranir, sem settar hafa verið á innflutning fisks frá Danmörku, sem hafa það í för með sér að danski fiskurinn á eríitt með að standast samkeppni á Billingsgate fiskmarkaðnum í London. Að vísu er ekki hægt að slá því föstu, hvort þessar get- sakir íslendinga hafa við rök að styðjast. SMÁN AD RÁÐAST Á SMÆSTA RÍKIÐ Talsmenn íslands benda á, að það sé smánarlegt af Bretum að standa í slíkri viðskiptastyrjöld við smáríki, sem sízt getur boriS hönd fyrir höfuð sér. En islend- ingar eru staðráðnir í að beygja sig ekki, enda þótt þeir geti ekki búizt við stuðningi annarra þjóða, sem hafa fisksöluhags- muna að gæta í Bretlandi. Þeir vita, að hver hefur nóg með sitt en örvænta ekki og telja að þeir geti öðlast nýja fiskmarkaði, entía þótt brezki fiskmarkaðurinra væri glataður fyrir fullt og allL Velvakandi skxiiar: UR DAGLEGA LÍFINU Fróðleikur urn píanóverff HLJÓÐFÆRAVERZLUN ein hér í bænum hefir skrifað mér eftirfarandi bréf. Gefur það almenningi skýringu á, hvernig hið háa verð á píanóum er til komið: „Kæri Velvakandi Vegna ítrekaðra skrifa um inn- flutning á píanóum, er ekki ófróð- legt að athuga, hvað raunveru- leikinn segir um kostnaðarhlið- ina við slíkan innflutning: 1 st. Píanó £113,7,6 kr. 5.180,32 Bankakostnaður 63,00 Tollar, samtals 5.098,97 Bátagjaldeyrir 3.160,00 Flutn.gj. uppsk. vörugj. vátr. 796.35 14.298,64 Álagning 5% 714,93 15.023,57 Söluskattur 2% 300,27 Samtals kr. 15.313,84 Píanó flutt inn tollfritt. ÞESSAR tölur eru yfir píanó innflutt í febrúar s.l. og sýna því óvéfengjanlega, hvernig pianó, sem kostar erlendis um 5 þús. kr. — fer að margfaldast í kr. 15 þús. Ennfremur varpar þetta dæmi e. t. v. birtu yfir, hver það er, sem „okrar“ á þessúm innflutn- ingi. Hinsvegar er óskráð, hve mörg píanó eru nú flutt til lands- ins, til einstaklinga — tollfrítt sem hluti af innbúi, svo og, hve mikið tapast í tolltekjum á því, að píanóinnflutningur hefir raun- verulega stöðvazt árum saman, vegna „okurs“ þess, er að fram- an greinir. Með vinsemd, H1 j óðf æraverzlun Sigríðar HelgadótturJ* Um skalla. lypR barst fyrir nokkru síðan langt og ýtarlegt bréf frá X X. um — skalla. — Ég á ekkert nægilega „hlutlaust“ lýsingarorð til í þessu sambandi. Sumum er þetta nefnilega nokkuð við- kvæmnismál! — en hér er bréfið, dálítið stytt: „Kæri Velvakandi! Fyrir alllöngu síðan voru í dálk- um þínum nokkrar umræður um skalla og óskað var sem sannastra upplýsinga um þennan almenna „kvilla“. Sá, sem þetta skrifar hefir um 40 ára skeið fylgzt með fræðilegum skrifum um þetta efni, en flest, sem um skalla hefir verið ritað er ekki annað en blekkingar einar, runnar frá skottulæknum og bruggurum fals lyfja. Hinn eiainlegi skalli er alls ekki sjúkdómur, heldur arfgengt ættareinkenni, sem fer eftir svip- uðum erfðalögum og t. d. hára- litur. Hárlos, sem stafar af sjúk- dómum (taugaveigi, flösku o. fl.) stöðvast oftast um leið og sjúk- dómurinn læknast, nema að ætt- arskallinn sé þar með í verki. Við honum er ekkert hægt að gera. Sumir halda þó, að hægt sér aff tefja hann lítilsháttar — en þaff borgar víst ekki fyrirhöfnina. Tákn lengra kominnar framþróunar? BERHÖFÐATÍZKAN, sem frarn kom snemma á þessari öld átti að vera vörn og lækning gegu skalla, en það hefir ekki reynzt svo, nema síður sé, að því er læknarit segja. Vindur er þó tal- inn hollur hárinu en mikill kuldi, væta og sólskin óhollt — þröng höfúðföt sömuleiðis. Sumir hafa óttazt, að skalli sé eitt af hinum svonefndu úrkynnj- unartáknum. Fleira mælir þó meff að hann sé þvert á móti tákn lengra kominnar framþróunar. Og svo mikið er víst, að skalK hefir löngum þótt hafa við sig eitthvað æruverðugt og traust- vekjandi. Mun það m. a. vera ástæðan fyrir því, að þýzkir lækn ar hafa talið eftii-sóknarvert aff hafa skalla. — Ætti þetta að vera skallakörlum nokkur huggun. — X.X.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.