Morgunblaðið - 09.04.1953, Side 11

Morgunblaðið - 09.04.1953, Side 11
Fimmtudaginn 9. apríl 1053 MO RGUNBLABIÐ 11 Ævintýrnbrúðkaup í Luxemburg i dug í DAG verður brúðkaup í smá- ríkinu Luxemburg, sem verður haldið með slíkum glæsibrag, að J>að minnir einna helzt á veizl- urnar, sem sagt er frá í aevin- týrum. Litla Luxemburg hefur síðustu vikur verið aílt á öðrum endanum við undirbúnxng brúð- kaupsins. ÆSKX'VINÁTTA OG ÁST Þau sem gefin verða saman eru Jean elzti sonur stórhertoga- ynjunnar af Luxemburg, sem er væntanlegur þjóðhöfðingí Lux- emburg og Jósefína Karlotta prinsessa dóttir Leopolds Belgíu- konungs. Jean er 32 ára og Jóse- fina 25 ára. Þau hafa þekkzt og verið vinir frá því þau voru foörn. Jean fór á stríðsárunum land- flótta ásamt móður sinni og syst- kinum til Kanada. Þar stundaði hann háskólanám um sínn, en gerðist síðan sjálfboðaliði í brezka hernum. Á meðan dvald- ist Jósefína í Belgiu hjá föður sínum sem fangi Þjóðverja. Æskuvinirnir hittust aftur 1948 í sumarbústað belgísku konungs- fjölskyldunnar í Svisslandi og foreyttist þá barnavináttan í ást. GIFTUSAMLEGUR HJÚSKAPUR Eins og mönnum er kunnugt, er belgíska konungsfjölskyldan Síður en svo vinsæl meðal þjóð- ar sinnar. Jósefína er þó undan- tekning frá því. Hún hefur allt- af komið fram af hinni mestu háttvísi og þjóðin heldur upp á hana. Stjórnmálalega séð er þessi hjúskapur og talinn giftusamleg- ur. Belgíumenn kveðja kóngs- dótturina með söknuði, en segja að eina bótin sé að hún hefur ekki farið langt frá þeim. 'm BORGIN YFIRFUI.U AF FERÐAFÓLKI íbúatala höfuðborgarinnar Luxemburg er venjulega um 50 þúsund. En undanfarna daga hef- ur flykkzt til borgarinnar því- líkur fjöldi erlendra gesta, að þár niunu nú vera staddir meir en 100 þúsund manns. Einkum munu það vera Belgíumenn, sem gert hafa þessa innrás í landið. — Gistihús og heimavistir eru upp- pöntuð fyrir löngu, en ferðamála- félög borgarinnar hafa reynt að bæta úr húsnæðisskortinum með því að setja á fót samtök borgar- búa um vistun gestanna. Vs ÆTLUÐU AÐ BANNA ALLA BIFREIDAUMFERB Þetta er mikið og óvenjulegt vandamál fyrir smáríkið. Milli 20 og 30 þúsund aðkomubilar eru í borginni. Fyrst í stað hafðí lög- reglan í hyggju að banna allan bifreiðaakstur á brúðkaupsdag- ínn, en hefur nú látíð af þeirri fyrirætlan og komið þess í stað upp 5 stórkostlegum bifreiða- stæðum. m 150 ÞÚSUND HORFA Á SKRÚÐGÖNGU Annað vandamál var hvernig ætti að uppfylla óskir 150 þús- und manna um að sjá brúðkaups- skrúðgönguna frá kirkjunni til hallarinnar. Sú leið er aðeins um 500 metrar og óhugsandi að meir en 70 þúsund manns komist, að við hana. Nú hefur verið ákveðið að skrúðgangan fari eftir lengri og krókóttri leið, svo- að öllum gefist kostur á að sjá hin kon- unglegu brúðhjón. í öllu Luxemburg ríkí eru að- eins 2000 lögreglumenn. Sá fjöldi er algerlega ófullnægjandi til þess að standa vörð fram með mannfjöldanum, sem safnast með fram leiðinni. — Það hefur því orðið að kallá alla brunaverði landsins og skáta út til varðstöðu. w FÍN NÖFN Óvenju mikill fjöldi konunga- fólks og aðalsmanna frá mörgum löndum Evrópu eru komín. til að, vera viðstaddir brúðkaupið. — Þeirra á meðal má nefna: Leo- pold fyrrverandi Belgíukonung, Baudouin núverandi Belgíukon- ung„ Pál Grikklandskonung, Um- berto fyrrum Ítalíukonung, Júlí- önu Hollandsdrottningu og Bern- harð eiginmann hennar, Ólaf krónprins frá Noregi, Zuu fyrr- Brúðhjónin verandi keisaradrottningu Aust- urrikis. Ætlunin var að Margrét Rósa systir Elísabetar Englands- drottningar yrði fulltrúi brezku konungsfjölskyldunnar, en ekki gat af því orðið, því að hirðsorg er nú í Bretlandi eftir andlát Maríu ekkjudiottningar. Gulifoss á fefð iil NÚ er Gullfoss á leið frá Sikiley til Genova, með skemmtiferða- fólkið og Karlakórinn, en til Genova er skipið væntaplegt á miðnætti í kvöld. — Næsti áfangi er hin fræga Blástrandar- borg skemmtiferðafólks í Frakk- landi, Nizza, en þangað er Gull- foss væntanlegur á sunnudags- morgun kl. 7 og verður þar höfð eins dags viðdvöl. í Genová losar Gullfoss salt- fiskinn, sem hér var lestaður og þar mun skipið taka vöiur hingað heim. MÁLFLUTNINGS- SKRIFSTOFA Einar B .GnSmandason Guðlaugur Þorlákgson Guðmundur Pélursaon Austurstræti 7. Sfmar 3202, 2002. Skrifstofutími: kl. 10—12 og 1—5. SKIPAUTGCRÐ RIKISINS M.s. „Vilborg* fer til Vestmannaeyja á morgnn. Vörumóttaka daglega. Bátur fer til Snæfeilsnesshafna og Flat- eyjar fyrir helgina. Vörumóttaka í dag. — Guðrón Viofúsdéttir Ninningarorð í DAG er til moldar borin há- öldruð kona, Guðrún Vigfúsdótt- ir. Hún fæddist 15. okt. 1861 á Syðra-Langholti, en andaðist 27. marz s.l. á heimili sínu, Lauga- teigi 28, hér í bænum. Foreldrar Guðrúnar voru Auð- björg Þorsteinsdóttir, frá Úthiíð og Vigfús Guðmundsson trésmið- ur. Faðir Vigfúsar Guðmundur hreppstjóri í Úthlið, var Þor- steinsson, hreppstjóra og fræði- manns á ökai-ianesi, Halldórsson- ar, Bjarnasonar á Víkingslæk. Aona Bjarna hrepþstjóra á Vík- .ngslæk var Guðríður Eyjólfs- dóttir, Björnssonar prests á Keld- um, Hösxuldssonar prests að Ey- uölum, Einarssonar prófasts þar, d. 16z7. Kona Guðmundar í Hlið var Guðlaug Gunnarsdóttir hrepp stjóra í Hvammi í Landssveit. Kona Þorsteins í SkarfaneSi var Valgerður Þorsteinsdóttir. Móð- uraíi Guðrúnar Vigfúsdóttur var porsteinn í Uthlíð, Þorsteinsson- rr á Hvoíi Þorsteinssonar Stein- grímssonar í Kerlingardal, en nann var bróðir séra Jóns Stein- grímssonar prófasts í Kirkjubæj- arklaustri og Helgu móður Stein- gríms biskups Jónssonar. Móðir Porsteins í Úthlíð var Þórunn Þorsteinsdóítir eldri frá Vatns- skarðshólum og Karitasar Jóns- Jóttur, Vigfússonar á Hofi á Höfðaströxid Gíslasonar magisters á Hólum Vigfússonar sýslumanns Gíslasonar íögmanns í Bræðra- tungu, d. 1631. Kona Gísla lög- manns var Margrét Jónsdóttir prests Krákssonar, hálfbróður Guðbrands biskups á Hólum. Voru þeir sammæðra. — Kona Þorsteins í Úthlíð (fyrri kona) var Steinunn Jónsdóttir frá Drangshlíð og Þuríðar Guð- mundsdóttur á Steinum, Jónsson- ar frá Selkoti, ísleifssonar. Foreldrar Guðrúnar Vigfús- dóttur bjuggu síðast í Víðinesi á Kjalarnesi, þau áttu sextán börn. Þegar Guðrún var 13 ára missti hún föður sinn, árið 1875. Varð hún þá að fara að vinna fyrir sér. Nokkru síðar fluttist hún til Austurlands. Þar giftist hún Kristjáni Guðmundssyni bónda í Hafursnesi, ágætum dugnaðar- manni, en hann andaðist eftir 8 ára farsaéllt hjónaband árið 1905. Þeim varð fjögurra barna auðið og eru þau: Sigurlaug, Vigfús trésmiður og fræðimaður, Guðmundur, bóndi, Steinn dó 1920, efnilegur piltur. Ég, sem þessar línur rita, kyntist ekki Guðrúnu fyrr en á elliárum hennaix Eins og hún átti kyn til í báðar ættir, var hún dugmikil og fróðleiksfús. Á æsku- árum hennar var lítt um það hirt að setja fátækar alþýðustúlkur til mennta. Þó fékk Guðrún sæmilega menntun og var fróð vel, enda gáfur góðar og traust- ar. Hún unni söng og mun hafa sungið vel. Trúuð var hún örugg- lega og öllum vildi hún val og þáði margur góðan beina og gest- risni hjá henni. Mun hún þó hafa verið fátæk jafnan, í veraldleg- um skilningi; þar sem hún varð að berjast áfram með börnin í ómegð. En allt komst þetta þó sómasamlega af, börnin urðu gott og dugandi fólk. Sálarþrek og andlegur áuður Guðrúnar varð henni nægilegt nesti til hárrar elli. Hún varð sú lánskona að fá að dvelja hjá börnum sínum, tveimur, Sigurlaugu og Vigfúsi, langa og góða elli. Þau báru hana á höndum sér og vildu henni allt til ánægju gera. Tel ég óvíst, að mörg gamalmenni hafi verið borin svo á höndum sér sem hún var, er það eftirbreytnisvert og fagurt eftirdæmi, sem þau góðu systkin hafa gefið öðrum. Gugrún Vigfúsdóttir lét ekki sitt eftir liggja, meðan kraftar entust og hún átti góða elli. Hún var lánskona. Hún treysti Guði og það var henni nóg til þess að lifa vel og deyja í ró. Þorsteinn Jónsson. Minningarorð um Jens Hermonnsson JENS HERMANNSSON kennari og rithöfundur andaðist 3. þ. m. í Landsspítalanum eftir langa og þunga sjúkdómslegu. Hann var fæddur í Flaíey á Breiðafirði 1. janúar 1891. Hann lauk prófi við Kennaraskóla ís- lands 1914 og starfaði eftir það við kennslu í nær fjóra tugi ara, lengst á Bíldudal, eða 26 vetur, en síðustu sjö veturna var hann kennari við Laugarnesskólann í Reykjavík. Jens Hermannsson var svo sem kunnugt er ágætlega skáldmælt- ur, og liggur margt eftir hann i þeirri grein bæði prentað og óprentað. Um hitt var þó eigi minna vert, að hann var ritfær í bezta lagi og lagði mikinn skerf og góðan til menningarsögu Breið firðinga með riti sínu um breið- firzka sjómenn. Af því riti komu út tvö bindi, og skyldi þar haldið áfram, hefði ævidagurinn enzt tii. Kvæntur var Jens Hermanns- son Margrétu Guðmunösdóttur, hinni ágætustu konu. Af sjö börn- um þeirra hjóna eru fimm á lífi, sem ásamt móður sinni sakna nú ástvinarins horfna. í ritgerð, sem birtist í bókínni „Góðar stundir“, segir Jens Her- mannsson meðal annars: „Eg tel það gæfu mína, að hafa átt mörg áhugastörf". Þetta er sannmæli, og hæfir alveg í mark. Hann lagði huga og hönd að margvís- legum störfum, og ávallt heilan huga og gjörva hönd. Einn snar- asti þátturinn í hugðarmálum hans var sjómennska og sæfarir. Sá annarr var skáldhneigðin, og hinn þriðji söfnun þjóðlegra fræða. En aðalstarfið verður þó að telja kennarastörfin, sem hann vann af sömu alúð og samvizku- semi og öll önnur störf, er hann hafði á hendi. Það er hvergi ofmælt um Jens Hermannsson, að hann var prúð- astur manna i háttum og drer.gur hinn bszti. Það, sem helzt auð- kenndi hann var prúömennska, kurteisi, stilling og hlýja i við- móti. Ég held líka, að öilum hafi verið hlýtt til hans, þeim er þekktu hann nokkuð, ekki sízt börnunum, sem hann kenndi og kennurunum, sem með honum unnu. Þvi er okkur öllum ofar- iega í huga sömu orðin, sem einn Noregskonunga mælti um önd- vegismann sinn látinn: „Hér ligg- ur nú sá, sem dyggvastur var og drottinhollastur". Slíkt eftir- mæli eiga skilið aðeins öndvegis- menn. Útför Jens Hermannssonar er* gerð í dag kl. 1,30, frá Fcss- vogskirkju. II. Þ. kveðja til Jens Hermannssonar F. 1. jan. 1891. — D. 3. april 1953. Klökkur sat ég sjúkrabeð þinn við, sál mín fylltist æðri styrk og frið. Guði hafðir helgað líf og sál, — hreif mig djúpt þitt trúarvissu mál. Ó, hve sælt að éiga slíka trú! unað veitir trúarvissa sú, gegnum sorg og sjúkdóms langa þraut, — sjá í anda drottins líknar skaut. Þú gafst börnum þínum heilræði, þroskans nytu! í dyggð og siðgæði. — Vanda alla vegferð lífsins hér, — verndar drottins öllum leita ber. — Þér minning, Jesú, mjög var hjartakær, hans máltíð dregur sál manns honum nær. Hcnnar nauztu í helgri ró og frið hér um lífsins stutta dvalar bið. Kallið barst þér krossins degi á, kvala sjúkdóm varstu leystur frá. — Upprisunnar eygðir hátíð þá.— í anda trúar lifa Jesú hjá. •— Kveð þig vinur hlýtt í hinzta sinn, helga mér nú trúar styrkleík þinn, hann mig leiði um lífs mins efri svið, unz lokanóttin blasir döpur við. r— Kveðja ástvinir hvílubeðinn þinn, klökkir nú í anda hinzta sinn. — Lokið störfum — enduð samleið er, ævistarf þitt þakka vinir hér. H. Jónsson. 5-6 herbergja íbúð 6 s k a s t — Fyrirframgreiðsla, eða lán eftir samkdmu- lagi. — Þeir, sem vildu sinna þessu sendi blaðinu tilboð merkt: „íbúð 1953“ —592. Blóðappelsmur 1 sætar og safamiklar. | fyrirliggjandi. Sig. Þ. Skjaldberg h.f. ; is ■ ■ ■ ■ «~■bitb~■■■■■■■■ ■■■■ ■■■■■■■•■•■■■■■ ■ ■ ■ ■ ■ •■ ■■■■■■■■■■.«.■■ ■.■ju .■■ ■ ■ ■■-■-■-■Jim k -

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.