Morgunblaðið - 09.04.1953, Side 16
Veðurúflif í dag:
Allhvass A og NA. Sums staðar
dáiítil snjókoma.
79. tbl. — Fimmtudagur 9. apríl 1953
„Vesaítngamir
Sjá leikdóm á blaðsíðu 9.
Maður drukknar við Sauðanes
er báf hans fyllfi
Félaga hans tókst að ná iil lands
■SIGLUFIRÐI, 8. apríl. — Það sviplega slys vildi til í gærkvöidi út
við Sauðanesvita, að ungur maður drukknaði. Var hann við annan
r,iann á litlum báti er fyllti skyndilega. — Hinn maðurinn bjargaðist
á sundi til lands. Maðurinn sem drukknaði var héðan úr bænum,
Pétur Þorláksson.
VORU AÐ FARA Í'T I
VITANN'
í gærdag voru staddir hér í
bænum vitaverðirnir í Sauðanes-
vita. Er þeir fóru út i vitann
aftur fengu þeir hér lánaðan
trillubát. Meðferðis höfðu þeir
lítinn léttabát. Ferðin út að vit-
anum gekk vel, þó nokkur væri
norðaustan brælan.
KRÖPP BÁRA
Lent var í Breiðuvík. Kröpp
báran stóð beint upp á vúkina.
Þegar barið vgr á léttabátnum í
land, voru fjórir menn á bátnum
og meðal þeirra Pétur Þorláks-
Þeir Pétur og Ólafur reru frá
landi og í áttina að trillubátn-
un). Höfðu þeir skammt farið frá
lendingunni, er léttabátinn fvlHi
skyndilega og fóru mennirnir
báðir í sjóinn. Gat Ólafur synt í
land, en Pétur drukknaði. Var
hann örendur er hann náðist
skömmu síðar.
Pétur heitinn var sonur Þor-
láks Guðmundssonar og konu
hans Guðrúnar Jóhannsdóttur,
Hávegi J 0 hér í bænum. Pétur
var tvítugur að aldri einhleypur.
í dag var sendur bátur út að
Sauðanesvita, til að sækja lík
Péturs. — guðjón.
11 rélfirgáfu
1107 kr.
Á NORÐURLÖNDUM hafa yfir-
leitt ekki verið gefnir út get-
raunaseðlar fyrir laugardag fyrir
páska, en síðustu árin hefur það
verið reynt með góðum árangri
í Svíþjóð og Finnlandi. Það hef-
ur þótt kostur að tímabilið, sem
getið er, geti haldið sér sem mest
án hvúlda. Þetta var nú reynt
hér með góðum árangri, þrátt
fyrir erfiðar aðstæður vegna
slæms veðurs.
Þrátt fyrir mjög óvænt úrslit
tókst þátttakanda í Reykjavík að
gizka rétt á 11 leiki á einföldum
4ra raða seðii og fá 1107 krónur
fyrir hann. Næst bezti árangur-
inn var 10 réttir á kerfi og varð
vinningur 536 kr. fyrir þann
seðil.
Vinningar skiptust annars
þannig:
1. vinningur kr. 1107 fyrir 11
rétta (1), 2. vinningur kr. 158 fyr-
ir 10 rétta (76, 3. vinningur kr.
22 fyrir 9 rétta (49).
logarlnn Pércif'jr sckkinn
•>"'v * ,***
Togarinn Þórólfur frá Reykjavík. einn ,.inna gömlu togara flotans,
sökk í fyrradag á ir-r.anverðri Kleppsvík, skammt frá landi. Þar
á víkinni hefur togarinn legið i vetur. Tal.ð er sennilegt, að á
fjöru í fyrradag hafi togarinu staðið og Jiafi þá grjót gengið upp
í gegnum botninn. Þessi mynd er tekin f gærdag er sjór var um
það bil Jiálffallinn. — Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.
HaiÉttr Clausen ráí-
Islendin?ar 0»' Eandaríkia-
U kj
menn íræíast í sundkenpni
mn
við háskóla í Banda-
ríkjtsm
HAUKUR öaitsen, hinn kunni
íþróttamaður. hefur frá því í júnt
mánuði s.3. dvalizt við framhalds-
r.ám í tansaJaekningum við Uni-
versity of Minnesota í Banda-
ríkjunum. Hefur Haukur getið
sér mjög gott orð við skólann og
nú fyrir jtáskana réði einn af
prófessorumjm við skólann Hauk
sem aðstoðarkennara sinn i þeirri
grein tannlækninganna er fjallar
! um sjúkdóma í munni.
' Haukur hugðist í upphafi
| dveljast árJangt í Bandarikjun-
’ um. Sú áætlvm hans breytist ekki,
| þó hann til þess tíma starfi sem
aðstoðarmaður prófessorsins. —•
Hann kemUr heim i júlímánuði
og hefur j»á í hyggju að setja
hér upp tannlækningastofu.
SÍÐASTA sundmót þessa vetrar fyrir Meistararr.ótið í sundi fer
íram i Sundhöllinni í kvöld. Það er sundmót í. R. Keppendur eru
öb talsins frá Reykjavík, Keflavík og Akranesi, auk 4 Bandarikja-
manna, sem keppa sem gestir á mótinu. Hafa sumir þeirra getið sér
f^ægðar á sundmótum milli háskóla í Bandaríkjunum, en háskólar
‘þar hafa í sundi sem öðrum íþróttagreinum beztu afreksmönnum
landsins á að skipa.
KEPPNISGREINAR
BANDARÍKJAMANNA
Alls verður keppt í 10 grein-
um. Bandaríkjamennirnir mæta
Pétri Kristjánssyni i 100 m skrið-
sundi, Þorsteini Löwe í 200 m
bringusundi karla, Jóni Helga-
Þrjár Dakolailugur í
natkun með sumrinu
En lyær peirra eru nú í lamasessi
DAKOTA-FLUGVÉL Flugfélagsins, sem laskaðist við lend-
íngu á flugvellinum í Vestmannaeyjum var flogið í gærdag til
Eeykjavíkur. Flugvélin er það mikið löskuð, að svo búin er hún
ekki hæf til farþegaflutninga og mun verða gert við- hana hér í
fieykjavík.
Askur að búast
a veiðar
NÚ er verið að búa togarann Ask
út á veiðar, en hann hefur legið
hér í Reykjavíkurhöfn í naer því
eitt ár. Mun togarinn fara út á
fimmtudaginn og veiða i ís. —
Skipstjórinn verðen- Helgi Ársæls
son, sem verið hefur stýrimaður
á Fylki.
VIÐGERÐ TEKUR 1
NOKKRAR VIKÚR
Líklegt er að viðgerð taki aðj
minnsta kosti nokkrar vikur,
enda eru viðgerðir á flugvélum
jaínan umsvifamiklar, þannig að
ef hlutur laskast eða skekkist
verður að komast alveg inn fyrir
skemmdina. Vonir standa þó til
að viðgerð ljúki fyrir aðaiílugtím
ann með vorinu.
ONNUR DAKOTAVEL
I VIÐGERÐ
Önnur Dakota-flugvél Flug-
félagsins er einnig.i lamasessi og
er búin að vera lengi. Fyrir rúm-
lega tveimur árum laskaðist hún
illa á Keflavíkurflugvelli. Hefur
viðgerð dregizt m. a. vegna þess
að skort hefur varahluti. En nú
eru horfur á að hægt verði að
Ijúka'viðgerðinni með vorinu og
ikemur þessi flugvél þá einnig til
notkunar í sumarferðunum.
ERFIÐLEIKAR SEM B.ETT
VERÐUR ÚR
Flugfélagið hefur þá aðeins
eina Dakóta-flugvél í flugfæru
ástandi, en þar við bætast þó
tveir Katalína-flugbátar. Mun
þetta valda nokkrum erfiðleik-
um við flugferðir á næstunni. En
viðgerð Dakóta-flugvélanna, sem
nú eru bilaðar verður hraðað eins
og hægt er.
Mikil inflúenza
herjar á Sandi
VEGNA inflúenzufaraldurs, sem
geisað hefur á Sandi á Snæfells-
nesi hefur allt daglegt líf í kaup-
túnir.u, sem telur 400 íbúa, gjör-
samlega færzt úr skorðum.
Að því er Morgunblaðinu hefur
verið tjáð munu vera liðnir átta
dagar frá því að veikin barst
þangað með manni, sem verið
hafði hér í Reykjavík.
Um bænatlagana var ástandið
einna alvarlegast þar vestra. Þá
mun rúmur helmingur alira íbú-
anna á Sandi hafa verið rúm-
liggjandi.
Þeir sem standa uppi, en víða
er allt heimilisfólkið rúmliggj-
andi, hafa gengið á milli, hjálpað
og hjúkrað. Sumir, sem veikin
tók ekki heiftarlega, hafa farið á
fætur og til starfa of snemma og
því slegið niður. Eru þess dæmi
að inflúenzusjúklingar þessir
hafi fengið lungnabólgu.
Sjálfboðaliðarnir hafa og ann-
azt gegningar á mörgum heim-
ilum, mjaltir og skepnuhirð-
ingu. Meðal sjómanna á vélbát-
unum er og mikil inflúenza og
hafa bátar ekki nægan fjökla
skipverja til að fara í róður.
Lokið viðgerð á
Lagarfossi
YFIR bænadagana var unnið lát-
laust að því að gera við olíu-
lekann sem kom að Lagarfossi, er
hann var á leið vestur til Banda-
ríkjanna. Varð Lagarfoss að leita
hafnar í Halifax.
Samkvæmt skeyti til Eim-
skipafél. í fyrradag, þá var allt
útlit fyrir að viðgerðinni yrði
lokið í gær og verður þá ferðinni
haldið áfram til New York og
væntanlega komið þangað á
föstudaginn. Þaðan verður svo
farið á þriðjudaginn kemur.
syni, Akranesi í 50 m baksundi
karla og fjórði Bandaríkjamað-
urinn keppir i 50 m flugsundi,
m. a. við Pétur Kristjánsson,
Sigurð Jónsson KR og Ara Guð-
mundsson. Er ekki að efa að þess-
ar greinar verði tvísýnar.
SETU’R INGA MET?
Þá er líklegt að kvennagrein-
arnar verði og skemmtilegar. —
Sundkonurnar 3 frá Keflavík,
Inga og Guðný Árnadætur og
Vilborg Guðleifsdóttir keppa all-
ar, auk Helgu Haraldsdóttur KR
og Báru Jóhannsdóttur, Akra-
nesi. Inga reynir m. a. við metið
í 50 m skriðsundi, en á dögunum
synti hún þá vegalengd 6/10
undir metinu í Keflavík, en laug-
in þar‘er of stutt til þess að
árangur hennar fáist staðfestur.
Aíli Eyjafeála ylir-
leilt góðtir
VESTMANNASYJUM, 7. apríl —
Eftir þriggja daga stórviðri a£
norðri komust bátarnir loks til að
vitja neta sinna á laugardaginn
fyrir páska. Var afli þann dag
yfirleitt mjög góður, en samt
misjafn. í g-ær var afli bátanna
einnig góður, en misjafn að magni
eins og áður. — Þeir bátar, sem
mestan afla höfðu, munu hafa
fengið irni 30 tonn af fiski upp
ur sjó. —Bj. Guðm.
m u
Sýningu Orlygs lokið
íEyjura i
VESTMANNAEYJUM, 7. apríl —
Örlygur Sigurðsson listmálari
hefir að undanförnu haft hér sýn-
ingu á verkum sínum. — Lauk
sýningu þessaii í gær, og hofðu
þá rúmlega 500 manns sótt sýn-
inguna og yfir 20 myndir selst,
en alls voru sýndar rúmlegi 130
myndir, bæði svartlista, vatnslita
og olíumálverk. —Bj. Guöm.
Verðlagið í upríl
HÆSTA og lægsta smásöluverð ýmissa vöj-utegunda í nokkru
smásöluverzlunum í Reykjavík reyndist vera þann 7. þ. m. se:
hér segir;
Eaegst Hæst
Vegið
meðalvei
Færeyjasíld á
Bandaríkjamarkað
í FREGNUM frá Þórshöfn í Fær-
eyjum segir, að Færeyingum hafi
tekizt að koma síld sinni inn á
Bandaríkjamarkað, en þangað
höfðu Færeyingar sent fyrstu
síld sína til reynslu á síðastl.
hausti. — Nú hafa verið seldar
þangað vestur um 500 tunnur. —
Segja Færeyingar, að Banda-
ríkjamenn vilji stóra saltsíld og
feita.
Færeyskir síldarútflytjendur
vænta mikils af þessum nýja
markaði, en þar hefst síldveiði-
vcrtíð innan skamms'. .
kr. kr. kr.
Rúgmjöl pr. kg. 2.85 3.20 3.00
Hveiti . . 2.80 3.25 3.12
Haframjöl . . 3.20 3.85 3.36
Hrísgrjón .. 4.95 7.10 6.33
Sagógrjón 600 7.45 6.29
Hrísmjöl 4.10 6.20 5.03
Kartöflumjöl 4.65 5.35 4.94
Baunir 5.00 5.95 5.76
Kaffi, óbrennt 25.85 28.15 26.61
Te pk. Ibs 3.40 4.60 3.73
Kakó Vz Ibs. dósir ... 6.85 8.70 7.87
Molasykur 4.60 4.70 4.69
Strásykur 3.35 3.70 3.43
Púðursykur 3.25 6.25 5.13
Kandís 6.00 7.20 6.48
Rúsínur 11.00 12.60 11.36
Sveskjur 70/80 15.85 17.90 16.97
Sítrónur 10.00 11.00 10.96
Þvottaefni, útlent 4.70 5.00 4.86
Þvottaefni, innlent . ... . . 3.00 3.10 3.10
töldum vörum er sama verð í öllum verzlunum.
Kaffi brennt og malað Kaffibætir .. pr. kg. 40.60 14 75
Suðusúkkulaði 53.00
Mismunur sá er fram kemur á hæsta og lægsta smásöluverði
getur m. a. skapazt yegna tegundamismunar og mismunandi inn-
kaupa. , (Frá skrifslofu verðgæzlusljóra).