Morgunblaðið - 28.04.1953, Page 9

Morgunblaðið - 28.04.1953, Page 9
Þriðjudagur 23. aprxl 1953 MORGVISBLAÐIÐ 9 Fjárlapfrumvarp Mr. Butlers á al sannprófa nýjar leiðir í efnahayslífi Breta Londont í apríl. FJÁRLAGAFRUMVARP R. A. Butlers, fjármálaráðherra, hefur nú verið tekið til meðferðar í þinginu og stjómarandstaðan ekki getað raskað vinsæidum al- mennings gagnvaxt frumvarpi þessu. Með öðrum orðum, almenn ánægja ríkir um frumvarpið, ekki aðeins vegna þess, að í því er nokkur linun á skattþunganum, heldur vegna þess, að fjármála- ráðherrann hefur haft þor og nægileg áhrif til þess að gera frumvarpið þannig úr garði, að það örfi framleiffsln og framtak þjóðarinnar. kenningar kjevnes; Þó ekki sé litið lengra til baka en t'il áranna fyrir styrjöldina, var það talinn æðsta skylda ríkis- stjórna, að gera ríkisreksturinn hallalausan. Þ. e. a. s. halda út- gjöldimum innan þeirra tak- marka, sem væntanlegar tekjur hrökkva til að greiða. Með öðr- um orðum að auka eða minnka skattana eftir fjárþörf ríki sjóðs. Seinna hafa kenningar fjár- málasérfræðingsins Keynes lá- varðar rutt sér meira til rúms að nota skuli fjárlagafrumvarpið til að samhæfa framleiðslu og verð- 3ag. Hefur mr. Butler sýnt sig að vera meðal tryggustu læri- sveina Keynes lávarðar, og hætta á það að láta kenningar hans koma til framkværoda. BÆTIR FJÁRHAGINN MEÐ SKATTALÆKKUN Margir fjármálaráðberrar hafa á undanförnum árum viðurkennt að hægt sé að draga úr óheppi- iegum fjárráðum almennings með því að hækka skattana og koma á sky]dusparnaði, til þess að forðast gengislækkum. En alltaf er hætt við henni, þegar peningaveltan verður of mikil samanborið við vörumagnið. Ekki þarf mikla dirfsku til að íara þá leið. Hið nýja fjárlagafrumvarp Breta stefnir í öfuga átt. Með jþví að létta á sköttunum, hefur ráðherrann viljað auka kaup- getu almennings og með því móti skapað mönnum möguleika fil meiri framleiðslu. Með þessu imóti tekur fjármálaráðherrann á sig mikla ábyrgð. Fiumvarpið er sahaið með það fyrir augum að núverandi hag- stæður verzlunarjöfnuður geti haldizt að minnsta kosti næsta ár, svo Bretar hafi efni £ að flytja inn nægilegar efnivörur og 2ióg verði atvinna í landinu. En fari þetta á annan veg, getur verið að stjórnin verði neydd ril að beita innflutningshömlum og með því hindrað aukna fram- leiðslu, en gegn þessu ætlar Butler með frumvarpi sínu að vinna. Mistakist það, þá verður frum- varpið óheillavænlegt víxlspor er getur haft víðtækar afleiðingar fyrir efnahagslíf Breta. FER EFTIR HYERNING ALMENNINGUR TEKIIR TILRALNINNl Áhyggjuefni hans verður fyrst og fremst það, hvort almenning- «r tekur fegins hendi þeim boð- skap eða þeirri stefnu, sem frum- varpið flytur, að menn leggi meira að sér í vinnu, verði spar- samari en þó að vissu leyti, að menn noti meira fé en áður. Greinilegt er, að frumvarp hans miðar að þessu. ívilnanir, sem almenningur fær, eru aðallega tvennskonar, tekjuskatturinn er lækkaður og veltuskatturinn sömuleiðis. Með tekjuskattslækk uninni ætti almenningwr að leggja rheira að sér í vihnu, af því að menn geta haldið meiru af tekjum sínum. Þegar einstakl- ingarnir geta lagt, meira til hlið- ar fyrir sjálfa sig, örfar það sparnaðarviðleitni þeirra. En auk þess rýmkast hagur þeirra til þess að kaupa hluti, sem þeir fyrr höfðu ekki efni á að kaupa. Reynslan sýnir að hærri laun verða ekki alltaf til þess að menn leggja meira að sér, hvort heldur til meiri fjáreyðslu eða sparnað ar. Margir eru ánægðir með nú- verandi kjör sín og óska heldur að vinna minna en þeir áður hafa neyðst til að gera. En lækk- un á veltuskattinum er einmitt gerð fyrir þetta fólk og má vera að þar komi meira til greina sál- fræðileg áhrif en beint fjárhags- leg. Nú er almennt viðurkennt, að með vissum ráðum er hægt að örfa framleiðsluna, einkum meff því að gera óþarfann ódýrari en nauffsynjamar dýrari. LÆRDÓMSRÍKUR - SAMANBURÐUR Hafa dæmi þessa margsinnis komið í ljós á síðustu árum, þeg- ar gerður er samanburður á fjár- hagslífi Bandaríkjanna og Bret- j lands. , í Bandaríkjunum hafa matvæli | verið gerð dýrari með því að i veita tryggingu fyrir háu lág- marksverði til bændanna og i lægri sköttum á óþarfa en í öðr- ; ™ löndum. Og er þá til „óþarfa“ I talið sitthvað, allt frá vasaklút- , ™ og vindlingum í bíla, kven- skart og loðkápur. Hugmyndin er að almenningur leggi að sér við vinnu, til þess að geta fengið sitt daglega brauð, en fólk yrði fúst á að auka sína fyrirhöfn til þess að kaupa sér óþarfann, ef hann er tiltölulega ódýr og komið hefur í ]jós að ! þessi aðferð kemur að tilætluð- i um notum, því hvergi í nokkru I landi hefur framleiðslan örfast eins og í Bandaríkjunum. Bretar fóru öðru vísi að ráði sínu. síriu. í Bretlandi voru mat- væli gerð ódýrari með miklum 1 niðurgreiðsluni frá ríkinu og rík- ið útvegaði sér fé til þess með miskunnarlausum skattaálögum á allar aðrar vörur, allt frá hrein- lætispappír til hvers kyns varn- ings, er gerir líf manna þægilegra og auðveldara. Útkoman varð, að brezki verkalýðurinn taldi sér ekki eftirsóknarvert að auka erf- iði sitt og leggja meira á sig, til þess að fá meiri tekjur. Því hann gat unnið fyrir mat sínum á tiltölulega auðveldan hátt. En óþarfinn var svo dýr, að hann þurfti svo miklar tekjur og mikla áreynslu til þess að geta veitt sér hann, að hann lagði ekki á sig þá áreynslu. Fyrir vinnu sína keypti hann sér aukiff frí og iffjuleysi, ellegar meff því aff leggja minna á sig á vinnustöðvunum, meff þeim af- leiffingum, aff framleiðsla Breta hefur orffiff minni en í nokkru öffru iðnaðarlandi og nánast stað- iff í stað á árunum sem liffin eru eftir styrjöldina. BUTLER BREYTIR TIL Butler hefur einsett sér að binda enda á þetta ástand með því að taka upp amerísku aðferð- ina með dýrari matvöru og ódýr- ari óþarfa. Strax í fyrra hætti hann við niðurgreiðslurnar á mat vörunni og nú sparar ha'nn við það 8 þúsund milljóna króna rík- isútgjöld. Eftir eru svo hér um bil 10 þús. millj. kr., en það er spá manna, að mikið af þeim styrkjum er innifelast í þessari upphæð muni verða skornir nið- ur á næsta fjárhagstímabili með tilsvaranid hækkun á verði til neytenda ef ekki kemur almenn verðlækkun á heimsmarkaðin- um. Næsta skref hans er svo að lækka veltuskattinn um 25%. Víst er um það að hann mun Framh. á bls. 12. Þröngsýni Dnnn x handrifaxnálini JENS' MÁ-RINUS JÉNS5EN hefur stutt málstað fslendinga dyggi- lega. Nýlega birtist hér í blaðinu útdráttur úr grein hans gegn Hjelmslev, prófessor. — Hér and- mælir hann fleiri prófessorum, löndum sinum. (H0iskolebladet, 6. febr.). Víkur hann fyrst að orðrómn- um um væntanlegt stjórnarfrum- varp til laga um afhendingu ís- lenzku handritanna í Konungs- bókhlöðu og Háskólabókasafninu í Khöfn, ssíðan að nefnd þeirri, er skipuð var i málið árið 1947 og skilaði áliti 1951, um íslenzk handrit og safnmuni í Danmörku. Sé það tilraun til að komast að niðurstöðu, er bæði íslendingum og Dönum komi að gagni. SAMSÆRI? Vegna hinna væntanlegu úr- slita berjast prófessorar og skjala verðir nú íyrir varðveizlu ís- lenzku handritanna hér á landi. Nokkur hinna verðmætu handrita hafa verið til sýnis í Þjóðminja- safinu. Þá hafa bæði prófessdrar og aðrir skrifað urmul af greinum í blöðin, mánuðum saman. Þetta virðist vera samsæri um að blekkja stjórnmálamennina og blaðalesendur, og koma þannig í veg fyrir afhendinguna. Ég veit. að það er alvarleg ákæra, að vísindamenn muni gera sig seka um samsæri og blekkingar. En merkin eru svo greinileg, að þau er eigi unnt að misskilja. Aðgerðir prófessoranna minna á stofnun, er kölluð var Svarti skóti. Rök þeirra eru svo hvöss og einhliða, að leikmaður neyðist til að vekja athygli á nokkru af því, er prófessorarnir gleyma. — Greinar þeirra mega ekki vera hið eina, er. um málið birtist núna. Norrænni samvinnu er heldur enginn greiði gerður með því, að áróðri þeirra sé látið ó- mótmælt frá danskri hlið. CARSTEN HOEG — EDDA FYRIR STERLINGSPUND? Carsten H0eg, prófessor, reið á vaðið með grein í „Berlíngske Aftenavis h. 26. nóv. 1952: „Um íslenzku handritin". Er þar gerð grein fyrir nefndarstörfunum og skilningi höfundar, sem er and- vígur afhendingu handrítanna. Greininni spillir e. k. hugrenn- ingasamanburður: Rússar hafi ár- ið 1933 selt British Museum frægt handrit fyrir 100 þús. sterlings- pund. „Ef menn, í vissum atvik- um, — sem vel eru hugsanleg, — gripi löngun til að selja, segjum Konungsbók Eddukvæða (sem líta má á sem vitlausa, gamla herra-goðafræði), væri unnt að fá heilmikinn, erlendan gjald- eyri fyrir þau, þorra landsmanna að áhyggjulausu". Þetta tilfærir C. H0eg, próf., að lokum, „rétt til gamans". ' Hverjum þá? E. t .v. aðeins til ánægju fyrir prófessorinn sjálf- an. A. m. k. getur það ekki skemmt íslendingum, að danskur I prófessor, í hándritanefnd utan- ríkisráðuneytisins, gefur í skyn, að Danir geti fengið mikið fé fyrir að afhenda British Museum handritin. Það hljóta því að vera Danir,. sem prófessorinn verður helzt | hugsað til. FR. ORLUF | Orluf, lektor, sem reit grein í Jyll P. h. 10. des. s.l., um „Hand- ritaránið“, lítur þó á lokaorð H0- egs frá öðru sjónarmiði: „Ef safnið væri varðveitt á fjarlægri Atlantshafseyju, þar sem eigi er einn hermaður til varnar, mundi tilveru þess ógnað af hverjum þeim, er á óróatímum kynni að leggja það undir sig og breyta í dollara. Þá má ætla, — eins og þegar hefur verið gefið í skyn, — að f jármálaöngþveiti vegna lélegrar stjórnar íslenzka skopríkisins og mikilmennsku-: æðis valdamannanna sé grund- Jens Marinus Jensen svarar löndum sínnm vöilur hinnar þrálátu kröfu þeirra um að fá ókeypis auðselj- anlega danska eign“. Sé C. Hpeg, próf., ekki fullur upp hrifningar af þessum fylgi- fiski íslandsfénda, er honum opin leið að afneita honum opinber- 'ega. KAAKE GRONBECH: HVAD NÆST? Hinn 3. des. reit K. Gr0nbech, próf., í Berl. Aftenavis: ,,í dag eru það handritin. Hvað kemur næst?“ íslendingar séu óseðjandi og á það, er hugsað sé sem veg- leg gjöf, „muni réttilega verða litið sem einfeldni, og hitt, er vér viljum vera láta alþjóðlega einlægni, sem menningarupp- gjöf“. Grpnbech, próf., spyr: „Halda menn í rauninni, að aðrar þjóðir muni fara af stað og gera slikt hið sama, örvaðar af fögru for- dæmi voru?“ Manni verður á að • spyrja Grpnbech, próf., hvort hann viti yfirleitt um nokkurt áþékkt dæmi um að þjóð, sem er fátæk að sýnilegum fortíðarminjum, eigi mesta andans arfleifð sína erlendis og þjóffin öll óski hennar heim. Hér er því um sérstakt á- stand að ræða, dæmalaust í ver- öldinni. Er þá ástæðulaust að ótt- ast afleiðingar annars staðar. Vér eigum oss sjálfir arfleifð, fjölda söguminja, og verðum ekki fátækari við að gefa íslendingum það, er hjá þeim á heima. Vér gætum einmitt með uppfyllingu óska þeirra án laga-smásmygli sannað þau orð, að „lög Dana séu réttur og sanngirni í stríði og friði“. IIJELMSLEV Hjelmslev, próf., skýrir svo frá, aff fyrst og fremst sé um Eddurn- ar og sögurnar aff ræffa varff- andi forystuhlutverk Hafnarhá- skóla. á sviði norrænnar menn- ingar: norræna goðáfræffi og elztu sögu Norffurlandabúa. — Kannast er við, að „þessar frá- sagnir fjalli um atburði, er aff miklu leyti hafi gerzt í Noregi og á íslandi“, — og síffan segir: „Khöfn má vera hreykin af að hafa orðiff heimkynni þessara norrænu fjársjóða. Hér er einangruff ættjarðarást og þjóffrembingur í staff víffsýns, norræns skiínings. KVEÐUR VINNUSKILYRÐI BEZT í KIIÖFN! í grein sinni i Politiken h. 8. des. s.l. kveður vararektor Hafn- arháskóla, að vísindaleg vinnu- skilyrði muni bezt í Khöfn, Ijós- prentanir handrita séu ekki ör- uggar. Því er til að svara, að í hinum fáu vafaatvikum getur próf. í Höfn farið til Reykjavikur alveg eins og prófessor á Islandi til Hafnar. Koma kann það líka að haldi að heyra íslenzka tungu og vera í námd atburðasviðsins. Svo ber hér að bæta einu við, því er allir prófessorarnir hafa gengið fram hjá í greinum sínum. Hvernig hafa vísindamenn í Höfn fært sér fjársjóði hinna ís- lenzku handrita í nyt? Ætla mætti eftir skrifum þeirra, að þeir væru altlaf að grúska í þeim. Hvað segja „hinir sérfróðu"? Dr. phil. N. Lukman, háskóla- kennari, reit um „íslenzku hand- ritin“ í Aarh. Stiftstid. h. 11. jan. 1947. Þar stendur m.a.: „Mundi flutningur íslenzku handritanna í Árnasafni til ís- lands verða raunverulegt áfall fyrir dönsk visindi? E. t. v. má orða spurninguna nákvæmar: Hve margir Danir hafa t. a. m. síðastliðin 20 ár beðið um hand- ritin til notkunar á lestrarsal eöa annars staðar? Svar: íslendingar einir haía vfirleitt notað þau og varla nokk- ur Dani. Þeir textar, sem skipta mestu máli fyrir aðra fræðimenn en íslenzka, eru til í gömlum út- gáfum, þar sem nýrra handrita- rannsókna er eigi þörf. Danskir fræðimenn hefðu meira gagn af að fá fleiri tækifæri að koma til þeii’ra héraða á íslandi, er voru miðstöðvar sagnritunarinnar“. Jón Helgason, próf., skýrir svo frá í Politiken 21. okt. ’50, að á árunum 1930—50 hafi birzt 40 útgáfur á grundvelli handrita- rannsókna í Árnasafni. íslending ar önnuðust 35 þeirra, Norðmað- ur og íslendingur 1, Norðmaður 1, Englendingar 2, Hollendingur 1, — Danir enga! Þessi vitnisburður bendir eigi á, að dönsk vísindi hafi ávaxtað þá fjársjóði,^ er þeim var trúað fyrir. RUBOW í fyrrnefndu nefndaráliti er kafli um „skerf Dana til útgáfu handritanna". Til fyllingar er tek ið ýmislegt óviðkomandi efni — allt frá „Norrænni goðafræði"* Grundtvigs til þýðingar Heims- kringlu eftii' J. O. Jensen. Paul V. Rubow, prófessor, ger- ist svo djarfur, í grein í BerL Aftenavis 3. jan„ að vekja at- hygli á, að Árnasafn sé verðmæt- ara og mikilsverðara en högg- myndasafnið, listasafn ríkisins og þjóðminjasafnið samanlögð. Hvað segir þjóðminjavörður um slík gífuryrði? Robow, prófessor, segir enn fremur: „Norræn kvæffi Oehlens- chlægers og Upphaf norræns hetjulífs eftir Grundtvig hafa endurnýjað danskar bókmenntir . . . Ella væri andlegt líf vort trénað og dauft“. Það er rangt — með fullri virð- ingu fyrir blómaskeiðskveðskap Dana — að reyna að blekkja almenning með því, að hann sé almennt að þakka handritarann- sóknum skáldanna .... Þeir studdust mestmegnis við það, er prentað hafði verið (að undan- skildum Grundtvig?), sbr. fyrr- greind orð dr. Lukmans. Væntanlega hefur tilraun prófessoranna að ofmeta mikil- vægi handritanna fyrir Dani og vísindin engin áhrif á stjórn- málamennina. Þeir eru vanir að skyggnast bak við orðin, áður en þeir taka ákvörðun. Þeir ættu e. t. v. að íhuga her- ferð prófessoranna nokkru nán- ar. COUR: HANDRITAMÁLIÐ ER LEYST (?) Dr. phil. Vilh. la Cour lætur í veðri vaka, að handritamálið sé þegar til lykta leitt með sýningu þeirra í vetur (Berl. Tid. 18. janúar): „Álíta verður, að danska ríkis- stofnanir komi eigi á slíkri sýn- ingu, nema því aðeins að eigin- lega beri að skiljá hana sem opin- bert andsvar víð þeim afhending- arorðrómi, er legið hefur í loftinu að undanförnu. Dýrmætir fjár- sjóðir eru ekki lagðir fram til sýnis fyrir almenning, ef nokkr- um dögum seinna á að svipta hana dýrðinni!“ Þvilíkir refir .... Enn segir la Cour: „Menn hljóta að mega líta á sýninguna sem andúð stjórnar- innar á að ganga, yegna umdeil- anlegra stjórnmálakenja, í ber- högg við ótvírætt áUt, allra sér,- fróðra Dana, þar sem bersýnilega yrði gengið á óskoraðan rétt lög- legra eigenda handritanna, til ó- bætanlegs tjóns þeirri þjóð, er Frh. á bls. 11

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.