Morgunblaðið - 22.05.1953, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 22.05.1953, Blaðsíða 8
8 M o kgXj n b lav i tt Föstudagur 22. maí 1953. ot'gtroHafóft Útg.: H.f. Arvakur, Reykjavfk. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgOarm.) Stjórnmálaritstjóri: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Lesbók: Árni Óla, sími 3045. Auglýsingar: Árni GarðcU- Kristinsson. Ritstjóm, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 20.00 á mánuði innanlands. I lausasölu 1 krónu eintaklð. n Úft DAGLEGA LIFINU ? Er það árás á samvinnustefnuna að afhjúpa svindl og brask ? FRÁSÖGN sú, sem Mbl. hefur birt undanfarna daga um olíu- kaup SÍS og erindisrekstur þess fyrir Olíufélagið hefur óvéfengj- anlega leitt í ljós að með þessum viðskiptum hefur verið gerð stór- felld tilraun til þess að hafa fé af ísL sjómönnum og útgerðar- mönnum. Það er því furðuleg ó- skammfeilni þegar það fyrirtæki, sem gerzt hefur sekt um þetta, kemur fram fyrir þjóðina og þykist hafa unnið eitthvert sér- stakt afrek. Kjarni þessa máls er sá, að þeir, sem búa við fasta leigu á olíuskipum tryggja sig fyrir verð- sveiflum og búa því við jafna leigu. Hneykslið, sem gerzt hefur í þessu máli er það, að samkvæmt skýrslu SÍS felur Olíufélagið því að leigja fyrir sig tvö olíuskip. Ástæða þessarar beiðni er vafa- laust sú, að Oiíufélagið hefur ekki talið sig hafa enn nægilega þekk- ingu á skipaleigu. Það felur þess vegna SÍS að annast leiguna. — Traust Olíufélagsins á SÍS er svo mikið að raunverulega gefur það fyrirtækinu frjálsar hendur um þennan erindisrekstur. En hvernig notar SÍS svo þetta traust? Það áttar sig fljótt á því að það getur leigt skip til olíu- flutninganna fyrir hálfvirði, ekki til þess að græða fyrir Olíufélagið og viðskiptamenn þess, ísl. sjómenn og útvegs- menn, eins og því hafði verið falið, heldur fyrir sig sjálft. En það vill koma þessum við- skiptum svo fyrir, að sín sé ekki viðgetið og fær þess vegna bandaríska félagið Cosmotrade, sem það leigði skipið af til þess að látast vera leigjandi þess til Olíufélagsins. Þar með heldur SÍS að 700 þús. kr. hagnaðurinn sé runn- inn í vasa þess. En þá kemst upp um strákinn Tuma. í ríkisstjórninni og í fjár- hagsráði heima á íslandi vaknar grunur um að hér sé ekki allt með felldu. Fuiltrúar Sjálfstæðis- manna í ríkisstjórninni krefjast rannsóknar á hinum grunsamlggu athöfnum. Þá byrjar yfirklór SÍS. Það hraðar sér fyrst og skilar gjald- eyrinum til Landsbankans. — Nokkru síðar skilar það Olíufé- laginu 700 þús. kr., hagnaðinum af leigu hins ameríska olíuskips. Ef nokkur er í vafa um vinnu- brögð SÍS í þessu máli þá þarf hann aðeins að spyrja, hvernig standi á því að Olíufélagið sækir am yfirfærslur til Landsbankans hinn 16. febr. fyrir upphæð, sem miðast við 8 dollara flutnings- gjald á tonn, ef farmgjaldið var ekki nema 3,93 dollarar. Hvernig stendur ennfremur á því að forstjóri Olíufélagsins seg- ir verðgæzlustjóra og fulltrúa fjárhagsráðs hinn 27. apríl, að raunverulegt flutningsgjald sé 8 dollarar fyrir tonnið, með e.s. „Sabrina", þegar verið var að verðleggja olíuna, ef hún var 3.93 dollarar? ' Hvernig stendur enn á því, að Ijegar frekari gagna er krafizt, j)á leggur Oliufélagíð aðeins fram leigusamning við Cösmotráde Inc. úm 8 dollara flutningsgjald, en veit alls ekkert um að SÍS hefui' léígt skipið fýrir 3.93 döllafa á tonnið? Eina skýringin á þessu er sú, að SÍS hélt því leyndu fyrir Olíufélaginu að það væri að okra á því. Ef þarna hefur ekki verið um slíka leynd að ræða hefur Olíufélagið hins vegar gerzt sekt um sviksam- í legt athæfi. j Framhald þessarar Ijótu sögu er svo það, að það er SÍS sem hinn 13. maí, segist í skýrslu til fjárhagsráðs hafa yfirfært hagn- að sinn af flutningsgjöldunum með e.s. ,,Sabrina“ á „venjulegan hátt“. Hið sanna í málinu er þess vegna það, að SÍS ætlaði sér að hremma stórkostlegan gróða af sjómönnum og út- vegsmönnum með þessum olíu flutningum. — En ráðabrugg þess kemst upp og fyrirtækið sér sitt óvænna, skilar gróð- anum, en hikar ekki við það í leiðinni að reyna að koma ósómanum af braski sínu yfir á Olíufélagið, með því að gefa í skyn að það liafi verið OJíu- félagið en ekki SÍS, sem hafi sagt ósatt og gerzt bert að því atferli að sækja um yfirfærslu gjaldeyris fyrir 8 dollara flutn ingsgjaldi á tonn, þegar raun- verulegt flutningsgjald var i 3.93 dollarar, og segja auk þess I f járhagsráði ósatt til um hæð flutningsgjaldanna. Afhjúpun þessa fjármála- hneykslis kallar Tíminn enn einu sinni „árás á samvinnustefnuna". Hvað segir nú allur almenn- j ingur. þegar brask og svindl er varið með slíkum hætti. Er það árás á samvinnustefnuna að fletta ofan af öðrum eins við- skiptaháttum. Það getur áreið- anlega enginn heiðarlegur íslend- ingur álitið. Kjarni málsins er sá, að SÍS hefur með þessu braski og viðleitni til þess að hafa fé af íslenzkum sjómönnum og út- gerðarmönnum, sett blett á heið- ur samvinnuverzlunarinnar. En það fólk, sem fyllir sam- vinnufélögin og aðhvllist sam- vinnustefnuna ber að sjálf- sögðu ekki ábyrgð á því. Það gera örfáir fégírugir braskar- ar, sem forustu hafa haft um þessa viðskiptahætti. Glundroði smáflokkanna ENN einu sinni hefur frönsk stjórn fallið. Að þessu sinni var það stjórn Rener Mayers, sem beið ósigur við atkvæðagreiðslu um fjárlög. Þessi stjórn sat aðeins tæpa 5 mánuði að völdum, og hún er sú 18. í röðinni, sem Frakkar hafa haft frá síðustu heimsstyrjöld. Þannig hafa smáflokkarnir og glundroðinn, sem fylgir í kjölfar þeirra leikið frönsk stjórnmál. — Þar er ekkert öryggi, engin kjöl- festa til. Lífdagar ríkisstjórna eru ráðnir af duttlungum smá- flokka. Hver höndin er uppi á móti annarri. Engá heilsteypta stjórnarstefnu er hægt að móta. AlgjÖr óviSsá blaslr við í frönsk- um stjórnmálum. Um hvað ofan á verður um stjórnarmyndun verður engii spáð á þessu Stigi' málsins. Rabb um pappír IUNGDÆMI rnínu heyrði ég um það talað í Eyjafirði að hið ást- sæla þjóðskáld, Jón Þorláksson, prestur á Bægisá, hafi löngum verið í svo mkilu pappírshraki, að hann hafði ekki annað til að skrifa á, en sérstakan umbúða- pappír, sem hann fékk í verzlun á Akureyri. Pappírstegund þessa kallaði hann í daglegu tali ,,grána“ og ber nafnið vott um, að pappirinn hafi ekki verið glæsilegur, enda ódýr. En stundum voru kjör skáldsins svo kröpp, að hann gat ekki einu sinni séð af skildingun- um fyrir þetta eftirlæti sitt, og varð að kúra pappírslaus á Bægisá. Hver veit nema eitthvað af kvæðúm þeim, er kviknað hafa í hugá skáldsins, hafi farið forgörðum vegna pappírsléysis hans. Þó kann að vera, að ekki hafi verið mikil brögð að slíku tjóni, vegna þess, hve bæði skáld og annað fólk var minnugt í þá daga á bundið mál. EN pappírseklan hélzt lengi eft- ir daga Jóns Bægisárskálds í sveitum landsins. Man ég eftir því að Sigurður Hjörleifsson Kvaran, læknir á Akureyri, sagði mér frá að í ungdæmi hans hafi hann ásamt jafnöldum sínum stofnað félag til að safna pappír. Skiptu þeir drengirnir jafnt á milli sin þeim pappírsfeng er þeim áskotnaðist. Er þetta gerðist var Sigurður í foreldrahúsum hjá sr. Hjörleifi Einarssyni að Undirfelli í Vatns- dal, en maður sá var hinn mesti lærdóms- og fræðimaður, sem kunnugt er og heimilið vel efnum búið. En það var fastur siður í þá daga að sóa engu að óþörfu, hvorki pappír né öðru. IUNGDÆMI mínu kynntist ég mikilsvirkum fræðimanni, sem hafði verið í miklu pappírs- hraki. Er hann eitt sinn sat við fræðastörf og tók saman harm- söguna um Reynistaðabræður er úti urðu á Kili, var hann svo illa staddur með skrifpappír, að heil- legasti miðinn, sem hann hafði þá undir höndum, var miði af „Gamla“ Carlsbergsölflösku. — Sennilegt er, að hinn mikli papp- írssparnaður er var talinn sjálf- sagður á uppvaxtarárum Þór- halls Bjarnasonar, biskups, hafi ve.rið honum í huga er hann eitt sinn skrifaði í kirkjublað sitt hina alkunnu umsögn sína um nýút- komna bók: „Ég sé eftir papp- írnum“. VISSULEGA getur mönnum oft dottið i hug þessi umsögn biskupsins, í því bókaflóði, er hef ur verið dembt yfir þjóðina á síð- asta áratug. Enda hefur pappírs- eyðslan orðið önnur nú en hún var fyrir 80—100 árum. SEM betur fer er pappírinn orð- inn ódýrari og auðfengari en hann áður- var, síðan hin nýja tækni fannst er gerir mönnum mögulegt að gera pappír úr timbri og viðarkvoðu. Það var Reaumur, sá hinn sami sem fann upp hitamælirinn er fyrstur benti mönnum á, að hægt væri að læra pappírsgerð hjá hvepsunum. Þær gera milli- veggi í bú sín úr efni, sem líktist pappír, með því að tyggja viðinn. SAXNESKUR vefari að nafni Fredrick Gottlob Keller fann upp aðferð fyrir rúmum 100 ár- um, til að búa til viðarkvoðu. — Þessi aðferð hans varð til þess að menn lærðu að gera pappír í stór- um stíl úr viði. Síðan hefur papp- írsnotkunin aukizt gífurlega og mikill hluti alls pappirs í heim- inum er nú gerður úr barrviði. Á nota ösp, birki og nokkrar aðrar lauftrjáategundir í pappírsgerð samhliða barrviðnum. Á síðustu árum hefur pappírs- innflutningur til landsins numið að verðmæti 12—15 milijónum á ' síðari árum er einnig farið að ári. En hvernig þessi pappir er notaður eða hvað af honum verð- ur er önnur saga. Ljótt orð í krossgátu Kommúnistar gefa út aðeins eitt dagblað í Neðra-Saxlandi og heitir það „Sannleikur“. Nýlega birtist þar löng grein þar sem ritstjórinn kvartar yfir því að honum hafi láðst að sleppa ljótu orði úr krossgátu er birtist í blað- inu. Það er nafn Títós marskálks. í Þjóðviljanum í Beinfeld hafði verið kvartað undan þessum mistökum blaðsins, þar sem höf- undur furðar sig á að friðarvinir skuli geta fengið af sér að gera slíkt axarskaft. ★ Blaðið segir: Að sjálfsögðu mætti það ékki koma fjrrir að jafnvel í krossgátu mætti sjást nokkurt orð er benti til þess að menn vildu bregða fæti fyrir friðarsóknina. En mistökin voru afsökuð með því að krossgátan hefði komið frá borgaralega sinn- aðri fréttastofu. Sannaðist hér, segir blaðið, að „imperíalistarn- ir“ létu einskis ófreistað, til þess að afvegaleiða þjóðirnar. — Hann fór til Rússlands og ætlaði að skrifa kuningja sínum um það sem hann varð áskynja. En skrifaði hann með rauðu bleki skyldi kunninginn trúa því, að allt sem hann segði væru öfug- mæli. En skrifaði hann með bláu bleki átti kunhinginn að trúa því, sem hann sagði. Svo kom fyrsta bréfið. Allt er í bezta lagi í Rússlandi, stóð þar. Nema það að rautt blek er þar ófáanlegt. Brezkur vísindamaður Arthur Clark skrifar í tímarit Unesco, að fyrsta flugferðin til tunglsins muni verða farin fyrir 1970. En fyrir næstu aldamót muni menn geta komið föstum férðum rnilli jarðarinnar og þeirra staða í tunglinu, sem þá eru kunnugir orðnir. \Jeluahancli ibrifar: Drotningin og gæðingar hennar æfa sporið. NÝJUSTU fregnir af undirbún- ingi krýningarinnar í Bret- landi sem nú nálgast óðfluga — hún á að fara fram h. 2. júní n.k. — eru þær að hennar hátign Elísabet II. æfi nú af kappi ásamt hinum konunglegu slóðameyjum sínum krýningargönguna í West- minster Abbey. Æfingar þessar fara fram í danssal Buckingham hallarinnar, sem er 123 fet á lengd, hvít og gullmálaður. Drotn ingin verður að ganga hægt og tígulega í nákvæmum takti við hljóðfall hins hátíðlea undirleiks. Engu má skeika — hvert spor' mælt og yfirvegað. Mestur vand- ' inn verður að komast klakklaust,1 án þess að fara út úr taktinum, j fyrir hin ýmsu horn, sem á vegin- : um verða og smáþrep öðru hvoru — þar kemur líka til kasta slóða- meyjanna, þær verða að vera nákvæmlega „stilltar inn á“ takt drotningarinnar. Eftir trumbuslætti. OG svo eru það gæðingarnir, sem ganga fyrir drotningar- vagninum í skrúðgöngunni um London — ekki dugar að þeir fari á neinum brokkgangi með Breta- drottningu nýkrýnda og sjálfsagt dauðþreytta eftir áreynslu krýn- ingarathafnarinnar í kirkjunni. Þeir eru 8 talsins, Ijósgrsir og hvítir að lit — þeir hvítu eru þeir elztu og reyndustu — auðvitað allir hver öðrum tígulegri og þýð- ari í gangi, en samt þykir nú viss- ara að æfa þá sérstaklega undir krýningargöngúna og hafa vagn- stjórar og hestasveinar hennar hátignar tekið að sér það hlut- verk. Hestarnir hafa sínar reglu- legu gönguæfingar eftir taktföst- um bumbuslætti — þeir virðast fyllilega skilja, að nú liggur allt við að vel takist og leggja sig alla fram við að aéfa sporið! — iKóngabömin — Karl og Ánna — fylgjast með af lífi og sál í öllu tilstandinu utan um mömmu þeirra — það hefir komið til tals, að Karl fái að vera í kirkjunni við krýninguna. Vantar góða götuskó. HÉR er bréf, sem ég fékk fjrrir nokkuð löngu síðan frá konu í Sk er j af irðinum. Hún beinir máli sínu til íslenzkra skóverzl- ana og skóframleiðenda: „Kæri Velvakandi! Það hefir mikið verið af því látið hve íslenzkri skóframleiðslu hafi fleygt fram nú á síðustu ár- um. Nokkuð er víst til í því, en. samt er það nú svo, að ég hefi ekki getað fengið skó við mitt hæfi, íslenzka eða innflutta, í herrans mörg ár. Það er þó ekki vegna þess, að það sé nein sér- stök og óvenjuleg skótegund, sem ég er að leita að heldur þvert á móti ósköp venjulegir götuskór með skaplega lágum hælum. Eins og stendur eru búðirnar fullar af skóm, annað hvort með títuprjóns hælum eða þá svo að segja hæla- lausum — meðalhælarnir virðast alveg hafa gleymzt. Ég og mínir líkar, sem helzt vilja ganga á lág- um kvarthælum, hefi orðíð að braska við að fá skó erlendis frá eftir alls konar krókaleiðum. Ég tel slíkt ástand með öllu óvið- unandi og þykir tími til kominn, að íslenzkir skóframleiðendur stefni að dálítið meiri fjölbrejdni í framleiðslu sinni. — Ég þakka fyrir birtinguna. — Kona í Skerja firðinum. Stærra skýli á Torgið. ÞAÐ þyrfti að vera helmingi stærra og vel það — þetta strætisvagnaskýli hér á Lækjar- torginu" — sagði maður einn í fyrradag er hann var að biða eftir strætisvagninum á Torginu. Það var um 6 leytið og fólkið streymdi úr vinnunni á leið heim til sín. Þetta var alveg satt hjá rnann- inum — helmingi færri en vildu komust inn í skvlið. Nauðsynlegt væri áð bæta úr þessu, áður en næsti vetur gengur í garð — og stundum finnst okkur líka nógu napurt að standa úti í vornæð- ingunum eða miðsumarsrigning- unum. Bíðdu ekki e£* ir hentugu augnabliki, búðu þa® til sjálfur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.