Morgunblaðið - 17.06.1953, Síða 5

Morgunblaðið - 17.06.1953, Síða 5
Miiðvikudagur 17. júní 1953 MORGUNBLAÐIÐ 9 Stúdentarnir, sem brautskráðir voru frá Menntask ólanum í Reykjavík í gær. — Ljósm. Mbl. Ól. K. M. Fleiri stúdentar brautskráðir en nokkru sinni fyrr Frá slilum Mennfaskólans í Rvík í g$olag SKÓLASLIT fóru fram í gær- dag í Menntaskólanum hér í Reykjavík, en á þessu skóla- ári voru 518 nemendur við Skólann, þar af 352 piltar. — Lndir stúdentspróf gengu 132 nemendur og luku því 130, og að þessu sinni eru utanskóla- stúdentar 11. — Við skólaslit- in, sem fram fóru í hátíðasal skólans, voru mættir fulltrú- ar 25 ára, 50 og 60 ára stúd- enta. Menntaskólinn hefur, ekki fyrr brautskráð jafn marga stúdenta í einu og nú. í hátíðasal skólans gátu ekki nærri allir rúmast, sem viðstadd ir voru þessa athöfn og varð því að koma hátölurum fyrir frammi á gangi. SKÓLAÁRIR OG PRÓFIN Rektor skólans, Pálmi Hannes- son, ,gerði í ræðu sinni grein fyr- ir störfum skólans í vetur og úr- slitum prófa. Sem fyrr getur voru í upphafi skólaárs 518 nem- endur í skólanum. Voru þeir í 22 bekkjardeildum og voru Reyk- víkingar í miklum meirihluta meðal nemendanna eða 394, hitt voru utanbæjarmenn. — Undir árspróf í skólanum gengu 404, þar af 33 utanskóla. Af þeim luku prófi 375, 314 stóðust það, en 61 féll og voru það mestmegn is 3. bekkingar. FJÓRIR HLUTU ÁGÆTIS EINKUNN Rektor skýrði frá því að fjórir nemendur skólans hefðu á prófi hlotið ágætis einkunn. Þá hlutu 97 1. einkunn, 149 2. einkunn og 64 3. einkunn. Þessir urðu efstir á ársprófi: Þorsteinn Sæmundsson 5. X, Ág., 9.29. Ketiil Ingólfsson 3. B, Ág., 9.14. Pálmi Lárusson 3. B, Ág., 9.01. Erlendur Lárusson 5. X, Ág., 9.00. Af 130 stúdentum, sem Mennta skólinn nú brautskráði, voru 81 ár máladeild og 49 úr stærðfræði deildinni. Fimm utanskólanem- endur voru í stærðfræðideild en sex máladeildarstúdentar. Einn þeirra, hlaut ágætiseinkunn, var það ungfrú Gústa I. Sigurðar- dóttir. Þá hlutu 68 1. einkunn, 59 2. einkunn og tveir þriðju. HLUTSKÖRPUSTU STÚDENTARNIR Þessir stúdentar voru hlut- skarpastir: Máladeild: Gústa I. Sigurðar- dóttir, 6. A, Ág., 9.18. Gauti Arn- þórsson, 6. B, I., 8.84. Margrét Sigvaldadóttir, 6. A, I., 8.79. Ingvi M. Árnason, 6. B, I., 8.63. Stærðfræðideild: Sigurbjörn Guðmundsson, 6. Y, I., 8.71. Hörð ur Halldórsson, 6. X, I., 8.65. Björn Höskuldsson, 6. Y, I., 8.61. Örn Garðarsson, 6. Y, I., 8.57. Rektor gat þess m.a. í ræðu sinni, að meðal hinna nýju stúdenta væru þrjú systkini, Sól- veig, Oddur og Skúli Thoraren- sen, börn Óskars, forstjóra og konu hans, frú Ingunnar Eggerts dóttur frá Breiðabólsstað. Sex börn þeirra hjóna hafa þá lokið stúdentsprófi frá Menntaskólan- um, en hin eru Eggert, sem starf- ar hjá tollstjóraembættinu, Guð- rún, sem starfar hjá borgardóm- ara og Þorsteinn, sem er blaða- maður við Morgunblaðið. VERÐLAUNAAFHENDING Síðan afhenti rektor verðlaun þau, er veitt eru. Ungfrú Gústa I. Sigurðardóttir hlaut verðlaun úr sjóði dr. Jóns Þorkelssonar. Gauti Árnþórsson úr verðlauna- sjóði P.Ó. Christensens lyfsala og konu hans. Úr Minningarsjóði Jó hannesar Sigfússonar, yfirkenn- ara: Borghildur Thors og Gústa I. Sigurðardóttir, en hún hlaut einnig viðurkenningu úr Minn- ingar- og verðlaunasjóði dr. phil. Jóns Ófeigssonar, yfirkennara, ásamt Þorsteini Sæmundssyni úr 5. bekk X. Úr Verðlaunasjóði 40 ára stúdenta frá Latínuskólan um í Reykjavík, eins og sjóður- inn heitir, hlaut Ingvi M:**Árna- son, og úr Minningarsjóði Páls Sveinssonar, yfirkennara, þau Sigríður Jónsdóttir og Valdi- mar Örnólfsson. Þá hlaut Svein- björn Björnsson, 3. B. viðurkenn ingu úr Islenzkusjóði. GAMLIR STÚDENTAR FLYTJA KVEÐJUR Nú kvaddi sér hljóðs séra Friðrik Friðriksson, sem á sextíu ára stúdentsafmæli. Þótti nær- stöddum hinum aldna kenni- manni vel mælast og höfðu á- nægju af, þá ekki sízt í lok ræð- unnar. Síðari hluta hennar mælti hann á latínu. Gísli Sveinsson, fyrrum sendi- herra, hafði orð fyrir 50 ára stúdentum. Afhenti Gísli, Ingva Matthíasi Árnasyni, skjal fyrir mjög góða frammistöðu í latínu. Ingvi svaraði með nokkrum orð- um og mælti á latínu, er hann þakkaði heiðurinn. Síðastur talaði Óskar Þ. Þórð- arson, læknir, fyrir hönd 25 ára stúdenta. Hélt hann skemmtilega ræðu og gat starfs Jóhannesar Sigfússonar, yfirkennara Mennta skólans og gaf skólanum mynd af þessum ágæta kennara skól- ans, sem starfaði við Menntaskól ann frá 1904—1928. Sókn í Kóreu SEOUL, 16. júní — Ekkert lát er á árásum kommúnista á víg- völlum Kóreu. Kunnugir telja, að þeir tefli nú fram til orrustu a. m. k. 20 þús. manna liði. —Reuter-NTB. *................................................................•••■•■•• N N iN m i Intcmationai Harvester kæliskápar ‘N ■ ; fást nú einnig á afborgunarskilmálunt. Við höfum nú fyrirliggjandi þessa góðkunnu og glæsilegu I. H. kæliskápa í tveim stærðum: 8,2 og 10,3 kúb.fet. — Þeir kosta kr. 7184.00 og 8134.00. Fimm ára ábyrgð er á frystikerfinu. Komið, skoðið og kynnið yður grciðsluskilmála. j VÉLA- og RAFTÆKJAVERZLUNIN, Bankastræti - Sími 2852 Sexfugur á morguu: Guðjóa Jóasson verk- stjóri á Siglufirði Á MORGUN verður Guðjón Jónsson, verkstjóri hjá Síldar- verksmiðjunum á Siglufirði sex- tugur. Hann er fæddur á Eyrar- bakka 18. júní 1893. Þar ólst hann upp og er hann komst til þroska, stundaði hann sjósókn heiman frá Eyrarbakka og á skútum. Þegar farið var að knúa fiskibátana áfram með vélarafli, varð hann fyrstur manna þar eystra, sem sýndi bæði áræði og lægni til að fara með vélar, enda upp frá því vélstjóri í mörg ár. Vélgæzlu- maður var hann um skeið í landi á Eyrarbakka og einnig við raf- stöðina í Hafnarfirði. Sumarið 1927 kom Guðjón fyrst til Siglufjarðar, og vann þá í verksmiðju sem Dr. Paul átti þá, én seldi síðan Síldarverk- sm'iðjúiff Ríkisins. Þeim' hætti ; hélt hann í nokkur ár, að vinna hér nyrðra á sumrin en sunnan lands á veturna, þar til árið 1938, að hann fluttist búferlum hingað og hefur dvalið hér æ síðan. Þá ~reðS't*Hánn til Sí 1 darverksmiðja"- ríkisins sem verkstjóri í „Dr. Paul“, sem svo er alltaf nefnd. Því st'arfi gegndi hann fram til ársins 1951, en þá var hann sett- ur aðalverkstjóri yfir allar verk- smiðjurnar og er það enn. Guðjón er óvenju traustur maður og ábyggilegur, ög hefur rækt verkstjórastarfið með ágæt- Péfur Hannenon sexfugur PÉTUR HANNESSON, spari- sjóðsstjóri á Sauðárkróki, á sex- .tugsafmæli í dag. Borinn og barnfæddur Skagfirðingur. Hef- ur hann lengst af alið aldur sinn í því héraði, enda tekið því ást- fóstri við heimahagana, að hann hefur ekki getað slitið sig þaðan, þó hann hafi gert nokkrar til- raunir til þess. Þar fer saman hugur hans og hugur Skagfirðinga yfirleitt, er vilja ekki sjá af Pétri svo vin- sæll er hann, svo nýtur maður fyrir hérað sitt og öll framfara- mál Skagafjarðar. í stuttri afmæliskveðju er ekki hægt að rekja öll þau trúnaðar- störf, sem Pétri hefur verið falið fyrir hérað sitt. Starfsáhuginn Og skylduræknin haldast i hend- ur í huga hans. Pétur er með afbrigðum vin- sæil maður. En aldrei lætur hann á sér bera umfram brýn- ustu þörf. Að sjálfsögðu væri það honum kærast að láta sex- tugsafmælis síns að engu getið. En Skagfirðingum og öðrum vin- um hans gæti komið það vel að vita um þetta merkisafmæli hans og því er þess getið hér. Um leið flytur blaðið þessum sextuga heiðursmanni hugheilar þakkir fyrir áhuga hans á öllum góðum, þörfum málefnum er hann hefur borið fyrir brjósti og unnið að á undanförnum áratugum. um. Hefur honum betur tekjzt en mönnum almennt að rata hinn gullna veg og aflað sér vinsælda bæði hjá verkamönnum og húsbændum sínum. Guðjón er drengur góður Og lipurmenni hið mesta. Hann cír að jafnaði rólyndur og æðrulaus en ákveðinn og fastur fyrir, cf á hann er deilt. Kátur er hann og skemmtilegur í sínum hóp. Það er gaman að hitta Guðjón niðri í verksmiðjunum. Þar cr að vísu ekki mikið næði til við- tals. Menn koma og spyrja um hitt og þetta, hvernig þessu cða hinu skuli haga. En Guðjón er skjótur til ráða. Hann er fróð- astur allra um allt sem tilheyrir % *» verksmiðjurekstrinum og fljótur að átta sig á hlutunum. Guðjón hefur um mörg ár ver- ið fréttaritari Morgunblaðsins Og rækt það starf með vandvirkni. Guðjón er kvæntur Björgu Andrésdóttur, ættaðri af Suður- landi, ágætri konu og er heimili þeirra með híbýlaprúðustu heint- ilum. í dag munu fjölmargir Siglfirð- ingar flytja afmælisbarninu húg' heilar árnaðaróskir og væntá þess um leið að hann eigi enn langt líf fyrir höndum. B. E. ★ í MÖRG ár hef ég haft samskipti við Guðjón Jónsson, og 611 hafa þau verið hin ánægjulegustu. Af fúsum vilja tók hann að sér að' verða fréttaritari Morgunblaðs- ins á Siglufirði. Er það jafnan erilsamt starf og oft vandasamt, til dæmis á síldarvertíðum. Þá þarf að fylgjast með gangi þess- ara mála frá degi til dags, því þús undir manna víðsvegar um land- ið á þar mikilla hagsmuna að gæta. — Fréttir Guðjóns hafa alltaf verið hinar áreiðanlegustu og nákvæmustu. Fyrir þessá' fyrirhöfn og þjónustu við Morg- unblaðið vil ég á þessum afmæl- isdegi hans votta honum mínar alúðarfyllstu þakkir, í von um að Morgunblaðið fái að njóta hins: góða fréttastarfs hans sem lengst.r Sendi ég Guðjóni og fjö}skyldu; hans, í nafni starfsfólks Morgun-; blaðsins, beztu hamingjuóskir. ; V. St. í i __________________ l r Sðngskentmftm ; SauSáÉróki í SAUÐÁRKRÓKI, 15. júní: — Karlakórasambandið Hekla efndi; til söngmóts á Sauðárkrcki s.L sunnudagskvöld fyrir fuliu húsi' og við ágætar undirtektir. Eftir* samsönginn sungu kórarnir noklc, ur lög við sjúkrahúsið. Leiksviðið í hinu nýja íélags-; heimili rúmaði vel hina 220 söng- menn. — jón.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.