Morgunblaðið - 17.06.1953, Síða 7

Morgunblaðið - 17.06.1953, Síða 7
Miiðvikudagur 17. júní 1953 7 MORGUNBLAÐIÐ Nepús Víikiiidsson, ræðismaSur: naðarins og SeðSabankinn UNDANFARNA tíma hefir fjár- skortur staðið eðlilegri þróun iðnaðarins mjög í vegi, og þótt lagfæringar þær, er nýlega voru gerðar fyrir milligöngu iðnaðar- xnálaráðherra Björns Ólafssonar, og höfðu í för með sér lækkaðar tryggingargreiðslur vegna hrá- efnakaupa, hafi verið stórt spor í rétta átt, er þó ástandið í þess- um efnum í heild fjarri því að yera viðunandi. Um hráefni til iðnaðar gilda önnur grundvallarsjónarmið en um innfluttar verzlunarvörur al- mennt, vegna hins langa tíma sem þarf til þess að breyta hrá- efnunum í söluhæfan varning; Þurfa framleiðendur þannig að binda mikið fé um langan tíma eftir að hráefnin koma til lands- ins og hafa verið að fullu greidd: Er iðnaðinum því nauðsynlegt að lánastofnanir geti tekið tillit til þessarar sérstöku og óhægu að- stöðu hans. í ■- LÁNASTARFSEMI SEÐLABANKAN S Um nokkuð langt árabil hefir verið sú venja ríkjandi, að út- flutningsframleiðslunni væri séð fyrir nauðsynlegu starfsfé á þann hátt, að Seðlabankinn hefir keypt af öðrum bankastofnunum skuld bindingar þær, sem til hafa örð- ið vegna útlána þeirra til útvegs- fyrirtækja, og munu gilda um þessa starfsemi sérstakar reglur. Eru þessi lán í daglegu tali oftast nefnd ,,útgerðarlán“, „fiskvíxl- ar“, eða eitthvað þess háttar. Hinn 31. marz s.l. námu þessi endurkaup Seðlabankans fullum 275 milljónum króna. Munu þó í þessari upphæð vera falin ein- hver lán út á útflutningsvörur landbúnaðarins, svo sem ull og gærur. AFSTAÐA SJÁLFSTÆÐIS- FLOKKSINS Síðasti Landsfundur Sjálfstæð- isflokksins, er haldinn var í Reykjavík nú í vor ,tók til ræki- legrar yfirvegunar vandamál iðn aðarins, einnig þau er ættir rekja til skorts á nauðsynlegu starfsfé. Benti Landsfundurinn sérstak- Jeka á þá leið til lagfæringar í þessum efnum að Seðlabankinn endurkeypti af öðrum banka- stofnunum skuldbindingar iðn- fyrirtækjanna í sambandi við hráefnakaup þeirra. Til grundvallar þessari álykt- un Landsfundarins var sú skoð- un, að heppilegt væri og fyllilega sanngjarnt að ráða fram úr fjár- hagsvandamálum iðnaðarins með þessum hætti, þannig að um þennan atvinnuveg giltu að ein- hverju leyti hliðstæðar reglur og um sjávarútveginn, enda þótt ef til vill yrði ekki eins langt geng- ið um endurlán Seðlabankans út á skuldbindingar iðnaðarins eins og raun hefir á orðið um þessa lánastarfsemi í sambandi við út- flutningsframleiðsluna. ROKSTUÐNINGUR IÐNAÐARINS Það er að vísu rétt, að sala sjávarafurða á erlendum mark- aði liggur að verulegu leyti til grundvallar gjaldeyrisöflun til þjóðarbúsins, eins og nú standa sakir. Hinsvegar skiptir og miklu máli að sþarlega sé haldið á þeim gjaldeyri, sem í bú er dreginn, hvort sem hann fæst fyrir út- flutningsafurðir, er fenginn fyrir tilstuðlan samhjálpar þjóða, er tekinn að láni eða til fallinn með öðrum hætti. Og þessu hlutverki hins hag- sýna búmanns gegnir einmitt iðn- aðurinn jafnframt því sem hann, öðrum atvinnuvegum fremur, skapar jafnvægi og öryggi í at- vinnulífi þjóðarinnar á öllum tímum árs. Hefir þjóðin að und- anförnu átt þess nokkurn kost að RÁÐA ÞARF FRAM ÚR ÞESSUM MALUM Magnús Víglundsson sannprófa og meta til sannvirðis gildi þessa öryggis. Þau sannindi verða nú lands- mönnum æ ljósari, að ekki er einhlýtt til gróðrar afkomu að framleiða mikið magn af sjávar- afurðum, ef ekki er hægt að af- setja verulegan hluta slíkrar framleiðslu nema í skiptum fyrir aðrar vörur. Of oftast eru þetta iðnaðarvörur, sumar með öllu óþarfar okkur, en aðrar, sem hægt er að íramleiða hér innan- lands, og það oft ódýrarí og betri hinum innfluttu iðnaðarvörum. Auk þess þarf að greiða marg- ar nauðsynjar til þessarrar fram- leiðslu, svo sem kol, olíu, veiðar- færi og varahiuti í dýrmætum gjaldeyri, en hann er sjaldnast fáanlegur nema fyrir auðseljan- legustu afurðirnar. Gjaldeyris- lega séð er þessi starfsemi einatt óhagstæð, og þegar svo þar við bætist, að útkoman af rekstrin- um hér innanlands er oft harla bágborin, sem svo leiðir gjarnan til skuldaskila og annars ófarn- aðar, hlýtur sú spurning að leita svars hvort heppilegt sé að binda svo mikinn hluta af hinu tak- markaða rekstursfé bankanna í þessum framkvæmdum sem raun sannar, að nú er gert. ÞAÐ IIÆFASTA IIELDUR VELLI Af þessum ummælum mínum má þó ekki draga þá ályktun að mér sé ekki fullvel ljós sú höfuð- nauðsyn, að útflutningsfram- leiðslan sé starfrækt á öruggum grundvelli. Fyrir þörf þessa synj- ar auðvitað enginn. Hitt er svo annað mál, að engan veginn gegn ir sama máli um allar greinir út- flutningsframleiðslunnar. Um verulegan hluta þeirra aðila er framleiða sjávarafurðir má vafa- iaust segja, að þeir reki starfsemi sína af kappi og fullri forsjá og að framleiðslan beri þá glögg rnerki þessarra góðu eiginleika, enda þá jafnaðarlega seljanleg á eftirsóttum markaðssvæðum. En það er óhjákvæmilegt, að þau fyrirtæki sem bezt eru rekin og af mestri atorku séu einmitt tekin til fyrirmyndar almennt og afkoma þeirra lögð til grund- vallar þegar aðstaða sjávarút- vegsins í efnahagskerfi þjóðar- innar er ráðin hverju sinni. Lög- málið um tilverurétt þess hæf- asta verður aldrei sniðgengið til langframa. Þau sannindi eiga jafnt við um sjávarútveg sem aðra atvinnuvegi landsmanna. ÚTFLUTNINGUR IÐNAÐARVARA Ýmsar greinar íslenzks verk- smiðjuiðnaðar binda nú veruleg- ar vonir við sölu framleiðslu sinnar á erlendum markaði. Hafa og af hálfu hlutaðeigandi stjórn- arvalda verið gefin fyrirheit um fullan stuðning við slíka starf- semi. Af hálfu iðnrekenda er starf- andi nefnd þriggja manna, skip- uð þeim Sveini B. Valfells, Gunn- ari Friðrikssyni og Axel Kristj- ánssyni að því að undirbúa þátt- töku ísl. iðnfyrirtækja í vöru- sýningum erlendis. Hafa þeir unnið að þessum málum af dugn- aði og áhuga, og eru allir sam- mála um að þátttaka í vörusýn- ingum erlendis kynni að hafa mikla þýðingu og skapa mögu- leika til sölu íslenzkra iðnaðar- vara erlendis. Er hér um mjög þýðingarmikið mál að ræða, því ef auðið reynist að renna stoðum undir þessa starfsemi, myndi þar af leiða aukið öryggi um afkomu iðnaðarins. Ekki væri með öllu fjarri lagi að hugsa sér að stuðningur stjórn arvaldanna í þessum efnum kæmi meðal annars fram í því, að gjaldeyrir sá, er fengist fyrir út- flúttar iðnaðarvörur yrði greidd- ur liærra verði en hin venjulega gengisskráning kveður á um. — Væri þessa þörf vegna þess að kaupgjald og annar tilkostnaður við framleiðsluna er, sem al- .kunna er, miklu hærri hér en í þeim löndum, sem yrðu keppi- nautar okkar um sölu iðnaðar- varanna. Þessi aðferð hefir nokkuð ver- ið tíðkuð annarsstaðar til örfun- ar útflutningsviðskiptum. Þann- ig hefir þetta verið á Spáni um nokkurt árabil og haft, að því er telja verður, áhrif til eflingar og stuðnings útflutningsverzlun Spánverja. íslendingar hafa á margan hátt góða aðstöðu til að standa að iðnaðarframleiðslu með fram- bærilegum árangri. Valda því meðal annars góð skilyrði til framleiðslu ódýrrar raforku. Ef iðnaðurinn nú fengi úrlausn fjár- hagsvandamála sinna og annan sanngjarnan stuðning, benda lík- ur til að hann myndi innan tíðar verða þess bær að gegna veru- legu hlutverki í útflutningsverzl- un landsins. REYNSLA ANNARRA ÞJOÐA Margar þjóðir, smáar sem stórar, byggja afkomu sína og at- vinnulíf mjög á útflutningi iðn- aðarvara á erlendan markað. Þannig er þessu til dæmis varið með Dani, sem selja iðnaðarvarn ing sinn til margra landa víðs- vegar um heim, og það eins þótt þeir verði í flestum tilfellum að flytja hráefnin inn og nota dýra orku til framleiðslunnar, því ekki hafa Danir ráð yfir „hvítu kol- unum“, afli fossanna. — Danir hafa sífellt verið að auka út- flutning sinn á iðnaðarvörum nú að undanförnu. Árið 1945 nam útflutningur iðnaðarvara 20% af heildarútflutningi Danmerkur, en árið 1951 nam þessi útflutn- ingur hvorki meira né minna en 39% af heildarútflutningi lands- manna, svo auðsætt er hvert þró- unin stefnir, enda er nú svo mál- um komið að Danir telja iðnað sinn einn sterkasta þáttinn í at- vinnulífi sínu, þann er hvað sízt megi í sundur slíta. Ég trúi því staðfastlega að framtíðin ætli íslenzkum iðnaði ekki óveglegra hlutverk í at- Framh. á bls. 12 Nýbökiiðu stúdcnfarnir HÉR fara á eftir nöfn þeirra 130 stúdenta frá Menntaskólanum, sem brautskráðir voru í gær: MÁLADEILD Ása H. Þórðardóttir Elsa G. Vilmundsdóttir Erla Ólafsson Guðrún Freysteinsdóttir Guðrún S. Jónsdóttir Gústa I. Sigurðardóttir Helga Þ. Jónsdóttir Helga Sveinbjarnardóttir Herborg Halldórsdóttir Ingibjörg Jónsdóttir Kolbrún Þ. Lárusdóttir Kristbjörg Halldórsdóttir Kristín S. Jónsdóttir Kristín E. Kornerup-Hansen Kristín Ólafsdóttir Kristín R. Thorlacíus Kristjana Pálsdóttir Margrét Sigvaldadóttir Margrét A. Þórðardóttir Sigríður Pétursdóttir Soffía Þorgrímsdóttir Solveig Thorarensen Svandís Jónsdóttir Unnur Óskarsdóttir Örbrún Halldórsdóttir Arnór Hannibalsson Árni Björnsson Bragi Hannesson Einar Þorláksson Elís Jónsson Gauti Arnþórsson Helgi Guðmundsson Ingólfur Örnólfsson Ingvi M. Árnason Jóhann Guðmundsson Jón Ólafsson Jón M. Samsonarson Jökull Jakobsson Konráð Adolphsson Magnús O. Magnússon Oddur Thorarensen Ólafur Guðmundsson Sigurður Steindórsson Skúli Thorarensen Sveinbjörn Blöndal Valdimar Örnólfsson Vilhjálmur Ólafsson Volter Antonsson Þorgeir Þorgeirsson Þórir Einarsson Auður Þorbergsdóttir Álfheiður Líndal Árni Stefánsson Ásgeir Ellertsson Bjarni Grímsson Björgvin Guðmundsson Borghildur Thors Geir Magnússon Haukur Steinsson Hörður Vilhjálmsson Ingveldur Dagbjartsdóttir Jón Ólafsson Karl Sveinsson Magnús Guðjónsson Matthías Frímannsson Ólafur Örn Arnarson Sigríður Jónsdóttir Sigríður St. Lúðvígsdóttir Sigrún Helgadóttir Sigurður Jónsson Sigurður Pétursson Sigurður Sigurðsson Unnur Fenger Vigfús Magnússon Vilborg Bremnes Þórarinn Árnason Þórunn Þórðardóttir Utanskóla Halldóra Sigurðardóttir Hans Chr. Herrmann Hauður Haraldsdóttir Kristján Árnason STÆRÐFRÆÐIDEILD: Ágúst Valfells Egill Jacobsen Eiríkur Sigurðsson Gunnar Jónsson Gústaf Jóhannesson Gústav Arnar Halldór Jóhannsson Haukur Tómasson Hákon Torfason Hörður Halldórsson Ingvar Ásmundsson Jóhann G. Þorbergsson Leifur Jónsson Leifur Magnússon Pétur J. Pálmason Rúnar Hjartarson Sigurður Þorkelsson Þorgeir Þorgeirsson Þór Halldórss’on Þórður Sturlaugsson Alexía Gísladóttir Benedikt Bogason Bjarni Einarsson Bjarni Helgason Björn Hcskuldsson Erlingur Gíslason Garðar Sigurðsson Haraldur Sigurðsson Hþlga Sæmundsdóttir Ingvar Kjartansson Jóhannes Bergsveinsson Jón B. Flafsteinsson Karl Guðbrandsson Óli J. Hjálmarsson Ólöf Sigurðardóttir Ragnar S. Jónsson Sigurbjörn Guðmundsson Sonja Haakansson Svavar Jónatansson Theodór Diðriksson Þorsteinn Pétursson Þórður Stefánsson Þórunn Haxaldsdóttir Örn Garðarsson Utanskóla Elín Árnadóttir Hjörtur Gunnarsson Leó G. Ingólfsson Magnús Aspelund Þórir Hilmarsson áftræSur í dag: i • I; A.lí ne' ora nr nc 9Í, ffli Í3Í9 /I * mt 1 i^d 95ie 'iVrL O 1 Asmundur Gestsson h VINUR minn og samstarfsmaður,' Ásmundur Gestsson, er áttræður j í dag. Hönd mína get ég ekki rétt honum heim um höfin, en hug- i ann bindur hvorki rúm né tími. Og nú hugsa ég til hans, árna hon um allra heilla og flyt honum kærar þakkir fyrir öll kynni ; okkar. Ásmundur Gestsson er Borg- firðingur að ætt og ólst upp á Ferstiklu á Hvalfjarðarströnd. ■ Hann hlaut kennaramenntun, var ( að framhaldsnámi erlendis og I gerði kennslu síðan að ævistarfi; sínu í Reykjavík. Ég hefi heyrt að hann hafi verið fyrirmyndar ! kennari, enda hefir hann til þess alla greind, staka prúðmennsku | og lægni. Að öðrum þræði hefir Ásmund ur Gestsson helgað kirkjunni! starfskrafta sína. Hann var fyrst' meðhjálpari hjá séra Ólafi Ólafs- syni fríkirkjupresti, síðan alla prestskapartíð séra Árna Sig- urðssonar og hefir verið með- hjálpari í Óháða fríkirkjusöfnuð- inum frá stofnun hans. Hefir hann þannig gegnt því starfi sam fleytt í hálfa öld og munu fáir meðnjálparar eiga jafn langan starfsferil að baki. Ásmundur Gestsson er prúð- mehni svo af ber. Hann er per- sónugervingur prúðmennskunn- ar. Málfar hans, limaburður og fas, allt er jafn prúðmannlegt, virðulegt og látlaust, því að prúð mennskan er honum í blóð borin og ber því aldrei hinn minnsta keim af sýndarmennsku. Öll um- gengni hans mótast af virðingu fyrir lífinu og höfundi þess, og’ gefur auga leíð, að maður, sem heíir mótaða framkomu af slíku hugarfari, er kjörinn til þess að vera íulltrúi kristins safnaðar við guðsþjónustugjörð. Öll hans. framkoma hver hreyfing, hvert orð, túlkar þá virðingu og til- beiðslu sem guðsþjnóustugjörðin stefnir að, og hlýtur því ósjálf- rátt að leiða huga kirkjugestanna til jafnvægis og andlegs friðar. í huga mér geymi ég margar minningar um Ásmund Gestsson. Framh. á bls. 12

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.