Morgunblaðið - 17.06.1953, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 17.06.1953, Qupperneq 9
MiiðvikUdagur 17. júní 1953 MORGVNBLAÐIÐ 9 Kaflar úr ræðu Jóns Aðils sagnfræðiugs á hundrað ára afmæli Jóns Sigurðssonav FULLTRÚI ! LJÓSS OG SANNLEIKA JÓN SIGURÐSSON er sann- nefndur ljóssins fulltrúi með þjóð vorri, ljóssins og sannleikans, enda var bjart yfir honum, yfir svip hans og sálu, að sögn þeirra manna, er áttu því iáni að fagna 1 að kynnast honum. Ásjónan var hrein og björt, tíguleg og göfug- j mannleg, ennið hátt og hvelft og gáfulegt, augun skær og tindrandi, | og þótti öllum sem eldur brynni úr þeim, er hann komst i geðs- hræringu, munnurinn fastur og einbeittur. Það var eins og stæði ljómi og birta af öllum svip hans. Merki þessara einkenna má að nokkru sjá af myndum þeim, sem til eru af honum, þótt eigi gefi þær að líkindum nema ófull- komna hugmynd um hann. Inn- sigli ljóssins er auðþekkt á and- litinu. Um sál hans má segja með ofur lítilli orðabreytingu það, sem skáldið kvað, að í honum bjó: Fögur sál og aetíð ung undir silfurhærum. En þegar ég kemst svo að orði,. að það sé bjart yfir minningu | dagsins, þá á ég einkum og sér í lagi við minningu þess, hvað Jón Sigurðsson hefur verið fyrir þjóð sína, hvað hann hefur afrekað fyrir land og lýð._ Hann hefur mótað og skapað hið unga ísland, endurleyst þjóð- ina í einu og öllu, að svo miklu leyti sem hægt er að viðhafa slíkt orð um menmskan mann. i Hann er sannkallað mikil- menni í orðsins fyllsta skilningi, mikilmennið, sem allir líta upp til, ein hin dýrlegasta guðsgjöf, sem þessari þjóð hefur í skaut fallið, — lifandi uppspretta ljóss og yls, sem hefur lýst tveim kyn- slóðum og tendrað eld i þúsund- um hjartna um land allt. Hann var og er enn Ieiðtogi lýðsins í öllum greinum. Flestar fram- kvæmdir í þessu landi, flest og mest, sem áunnizt hefur í striti og stríði tveggja kynslóða, er ekki annað en holdgan og ímynd hugsjóna hans, uppskera og á- vextir baráttu hans. IIANN VAKTI ÞJÓDINA En að baki þessu öllu liggur hið lang þýðingarmesta starf hans, grundvallarstarfið, þjóðar- afrekið: Hann vekur þjóðina til lífsins, kennir henni aí^ þekkja sjálía sig, þjóðréttindi sín, kröfur sínar, krafta sína og köllun sína, eins og skáldið heíur svo heppi- lega að orði komizt í þessum er- indum: En fyrst er hann sveif yfir svip- legan mar rann sólin af móðurlandstiittíum, og næturþoka vors þjóðernis var að þynnast af árdegisvindum. Því oftar til Fróns sem hið skraut búna skip með skörunginn hugprúðarenndi, því betur það þekkti sig sjálft í hans svip og sæmdir og tign sína kenndi. Þér, ísland, var sendur sá flug- andinn frjáls, með fornaldar atgjörvi sína, að kynna þér verðleik og kosti þín sjálfs, og kenna þér ákvörðun þína. AÐ VERA SANNUR ÍSLENDINGUR Það er þetta: að þekkja sjálfan sig og trúa á sjálfan sig, krafta sína og köllun, sem er fyrsta og sjálfsagðasta skilyrði alls þrifn- aðar hjá þjóð og hjá einstaklingi. í Jóni Sigurðssyni Iærir íslenzka þjóðin að þekkja sjálfa sig og skilja sjálfa og trúa á sjálfa sig. Hann er hvorttveggja í senn ímynd þjóðarinnar og fyrirmynd SAMElNING og samlvndi SÉ ÞAÐ eitt öðru framar, sem vér vildum kjósa þessari fá- mennu, fátæku þjóð til handa, þá er það sameining, samlyndi. Við erum svo kraftalitlir, að við meg- um ekki til lengdar við þessarí stöðugu sundrung, innbyrðis hatri og óeirðum. Við verðv.m að geta tekið höndum saman, ef á liggur. skeið á Slgiufirði ilmenna, styrkur þeirra og leynd- ardómur. Með falsi og fláttskap hefur aldrei nokkur maður undir sólinni unnið nokkurt þarft verk, því síður nokkurt stórvirki. Allt gott, allt göfugt, háleitt og mikil- fenglegt á rót sína að rekja til hreinskilninnar og sannleikans. FYRIRMVND AÐ DRENGLYNDI Jón Sigurðsson er fyrirmynd þjóðarinnar í drenglyndi. Hann situr ekki á svikráðum við mót- stöðumenn sína, því síður við fylgismenn sína. Hann fer enga krókavegi, engar myrkragötur, læðist ekki aftan að mönnum með grímu fyrir andliti og eitur- vopn í höndum. Hann gengur beint framan að mótstöðumönn- um sínum með opinn hjálm og skyggðan skjóma. Hann fer ekki með neinar ósæmilegar dylgjur undir hjákátlegum dularnefnum, sem enginn kann deili á, ekki með neinar nafnlausar árásir haturs og ályga. Hann segir skoðun sína skýrt og afdráttar- laust, hallar aldrei víssvitandi réttu máli, hver sem í hlut á, fer aldrei í felur með neitt, enda þarf hann engu að leyna, því í hans hjarta eru engin svik fundin. Jón Sigurðsson er fyrirmynd þjóðarinnar í kjarki og þreki. Hann veit að lífið er látlaust stríð og barátta fyrir einn og alla, sem þjóna vilja undir sann- leikans merki. Hann er jafnan reiðubúinn að ganga á hólm fyrir sannfæringu sína, þótt sýnilegt ofurefli sé annars vegar. Hann vill heldur svelta en hopa á sann- leikans vígvelli um eitt skref. Hann skilur það og veit, að það er engin minnkun að fátæktinni, en hitt er óafmáanleg smán, að kaupa auð og tign og alls nægtir með því að selja sjálfan sig og sannfæringu sína. Hann skilur það og veit, að það er ekki ein- hlítt, að lifa, heldur ber að lifa þannig, að menn þori að bera höfuðið hátt og horfast í augu við sjálfan sig og samvizku sína. Hann er fyrirmynd þjóðarinn- ar í staðfestu og þolgæði. Hann rís æðrulaust undir hita og þunga baráttunnar í fuhan mannsald- ur og lætur aldrei hugfallast, hversu óvænlega sem á horfizt, lætur aldrei undan síga, hvikar aldrei frá réttu máli, sættir sig aldrei við hálfan rétt eða hálfan sannleika. Svo kveður eitt af þjóðskáldum vorum: Þá sór hann að hræðast ei hatur og völd né heilaga köllun að svíkja, og ritaði djúpt á sinn riddara- skjöid sitt rausnarorð: „aldrei að víkja!“ ÓSÉRPLÆGNIN — ÆTTJARÐARÁSTIN En um frarn allt er hann dýr- leg fyrirmynd í ósérplægrd og ættjarðarást. Hann hefur aldrci augastað á sjálfum sér eða sín-- um eigin hagsmunum í baráti- unni. Hann neitir ekki hinhá miklu áhrifa sinna hj.á þingi og þjóð til að skara eldi að sinhi eigin köku, til að auka tekjúr sínar eða krækja sér í störf og hlunnindi, þótt ærin freistihg hefði verið fyrir hvern marin annan í hans sporum og í hans peningaþröng. Hann gleymir sjálfum sér og lítur eingöngu á heill og hag ættjarðarinnar. Cg fyrir það hefur hann hlotið trúrra þjóna verðlaun. Á engurh manni hefur það betur sannazí, að „hver sem týnir lífi sínu, miin finna það“. Hann áfneitaði sjálf um sér og lífi sínu í þjónustu ætt jarðarinnar. Hann fann það aftur í blessunarríkum ávöxtum, í þeirri einlægu og fölskvalausu ást og virðingu, sem hann naut hjá þjóðinni í lifanda lífi, þeifrí helgu lotningu, sem minningú hans er sýnd, þeirri geisladýfð, sem stafar af nafni hans enn í dag og mun jafnan stafa um ó komnar aldir meðan íslenzkt þjóðerni lifir. Og þá ættjarðarástin hans. Hún var ekki nein tilgerð, fleip- ur, mont eða sjónhverfing, eins og því miður á sér stað oft og einatt. Hún var ekki neitt skrum og orðagjálfur um kosti og ágæti þjóðarinnar, samfara lítilsvirð- ingu og niðrun í garð annarra þjóða. Nei, hún brann sem helg- ur fórnareldur í hjarta hans, ]iún var heit og viðkvæm tilfinning, sem knúði hann til sívakandi skyldurækni í stóru og smáu, til sífelldrar umhugsunar, sifelldfa starfa, sífelldrar baráttu og framkvæmda í þarfir lands og þjóðar. Hann var enginn málrófs maður eða lýðskrumari; hann var stillingarmaður og fram- kvæmdamaður. „Að vera og ekki virðast“, það var einkenni hans. Svona var hann í öllum grein - um, á öllum sviðum, sönn fyrir- mynd þjóðarinnar, sönn þjóðar- prýði, sönn þjóðhetja, djarfur til vígs, öruggur til sóknar og varn- ar, sannur maður í orðsins fyllstú merkingu, maður sem hataði og fyrirleit af hjartans innsta grunní alla lygi, fals og vesalmennskú, hugprúður riddari sannleikans og réttlætisins, borinn leiðtogi lýðsins, „höfði hærri en allt fólkið“. —★ — Þessi mynd er af nokkrum hluta þeirra þúsunda, sem voru viðstaddir á Lögbergi 17. júní 1944. — Myndin er tekin í brekkunni fyrir neðan Lögberg. SIGLUFIRÐI, 15. júní. — Hér stendur yfir námskeið í síldar- verkun og sækja það um 20 manns víðsvegar af landinu. — Leó Jónsson, síldarmatsmaður, stjórnar námsskeiðinu. Hér er nú réitingsafli hjá trillubátum og aflinn veiddur á handfæri. — Guðjón. Á 100 ÁRA afmælisdegi Jóns Sigurðssonar 1911, þegar fyrsta sinni var efnt til þjóðhátíðar á þessum degi, fékk forstöðunefnd hátíðahaldanna hinn afburða mælskumann, Jón Aðils, sagnfræðing, til þess að halda ræðuna um þessa ástkæru þjóðhetju af svölum Alþingishússins. En þó margir mælskumenn og snillingar hafi keppzt um að flytja minni Jóns Sigurðssonar bæði meðan hann var á lífi og að honum látnum, mun vandfundinn sú ræða um hann, sem skilmerkilegar og í jafn stuttu máli gerir grein fyrir mann- inum, hvernig hann vann og hvernig hann gerðist hinn óviðjafnanlegi foringi íslendinga. — Hér birtast meginkafl- arnir úr ræðunni, er flutt var á þessum degi fyrir 42 árum. Vissulega er ástæða til þess nú eins og þá, að almenningur staldri við og leggi sér á hjarta einkenni þessa manns, er fæddur vas- fyrir 142 árum. þjóðarinnar. Ég fæ eigi betur ein- kennt hann í stuttu máli. Hann er sjálfur holgdan og ímynd þeirra eiginlegleika, sem beztir hafa með þjóðinni búið frá alda öðli. Hann er í sannleika hold af hennar holdi og blóð af hennar blóði. Þjóðin „þekkir sig sjálf í hans svip“., eins og skáld- ið kemst að orði. Það er þetta, sem er undirrót- in að hinum djúpu og sterku á- hrifum hans á þjóðina, — sem tvöfaldar þau, þrefaldar þau, margfaldar þau, — að hann er fyrst og fremst sannur íslending- ur, að hjá honum koma þjóðar- einkennin, íslendingseinkennin, skýrar fram í heild sinni en hjá nokkrum öðrum einstökum manni, og í svo fagurri mynd, að allir stara undrandi og sjá það og skilja, að það er ekki minnkun og vansi, heldur sæmd og tign, að vera íslendingur, sannur íslend- ingur. í'yrir sakir þessara kosta og þessara eiginlegleika er það, að hann gerist leiðtogi þjóðarinnar, verður eldstólpinn, sem lýsir henni á framsóknargöngunni til fyrirheitna landsins. FYRIRMYND ÞJÓÐARINNAR Fyrir sakir þessara kosta er það, að hann gerist fyrirmynd þjóðarinnar, sem allir vildu helzt kjósa sér að líkjast, sem allir vitandi eða óvitandi stæla og vitna til í stóru og smáu. Og þótt engum hafi enn tekizt að ná hon- um, þá hefur hann samt örvað menn til atorku, starfa og dugn- aðar í þarfir þjóðarinnar. Hann er orðinn nokkurs konar hug- sjónamynd, sem allir hafa augun á. Eg veit að vísu þá tilhneigingu margra manna, að gera lítið úr hugsjónum og kenna þær við skýjareið og draumóra. En var- lega skulu menn gera það. Það er svipað um hugsjónir og stjörn- urnar. Það gerir sér enginn von um að ná í þær eða festa hendur á þeim. En því aðeins halda menn í horfinu og ná heilu í höfn, að þeir hafi þær til hliðsjónar og leið- beiningar í ferðavolki lífsins. Það er þetta, sem ég á við er ég segi, að Jón Sigurðsson hefði verið fyrirmynd þjóðarinnar, fýrir- mynd hennar í öllum þeim kost- um, er góðan íslending og góðan mann mega prýða, eigi sízt í opin beru lífi. Hann hefur örvað hana og hvatt í ræðu og riti hverjum manni betur, en líf hans og eftir- dæmi er þó margfalt áhrifameira. Það er þúsund sinnum áhrifa- meira en hin ágætasta stólræða. Jón Sigurðsson er fyrirmynd þjóðarinnar í einurð og hrein- skilni. Hann fer ekki í felur með skoðanir sínar eða heldur því einu fram, sem mestan byr hefur í svipinn. Hann beygir ekki kné fyrir tízkunni og tíðarandanum, auðnum og völdunum. Hann segir það svart, sem hann álítur svart, þótt allir aðrir segi það hvítt. Hann rís upp á móti því, sem honum finnst rangt og skaðlegt, þótt allur þorri föanna sé á ann- arri skoðun, þótt lýðhylli hans sé í veði. Það er ekki hundrað í hættunni þótt lýðhyllinnar missi við, en hitt er honum óbærileg tilhugsun, að glata virðingunni fyrir sjálfum sér. Þess vegna er hann jafnan sjálfum sér og sann- færingu sinni trúr og tryggur í öllum greinum. Hann stendur fastur fyrir og gengur rakleiðis sannfæringarbrautina hvert sem hún liggur og hverjar sem afleið- ingarnar verða fyrir sjálfan hann. Einurð og hreinskilni eru grund- vallareinkenni allra sannra mik-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.