Morgunblaðið - 17.06.1953, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 17.06.1953, Qupperneq 12
12 MORGU /V HLAÐIÐ Miiðvikudagur I7.'júní 1953 — FJárenál iðniaðarins Framhald af bls. 7 vinnulífi íslands en raun hefir á orðið um hinn danska iðnað. ENDURKAUP „IÐNAÐARVÍXLA" Ef að því ráði yrði horfið, sem hér að framan var á drepið, að Seðlabankinn endurkeypti af öðrum bankastofnunum skuld- bindingar iðnaðarfyrirtækjanna í sambandi við öflun efnivöru, þyrfti að sjálfsögðu að setja slíkri starfsemi sérstakar reglur. Virð- ist einsætt að kjarni þeirra yrði á þá leið, að upphæð þeirfi, er Seðlabankinn ráðstafaði í þess- um tilgangi yrði skipt á milli Búnaðarbanka Islands, Utvegs- banka íslands h.f., Iðnaðar banka íslands h.f. og Sparisjóðsdeildar Landsbanka Islands í réttu hlut- falli við lán þessarra aðila til iðn- aðarins á hverjum tíma. IÐNAÐARBANKINN Af hálfu iðnaðarins er stofnun Iðnaðarbanka íslands h.f. að sjálf sögðu fagnað og við hann eru efalaust bundnar margar vonir í framtíðinni. Vonandi nær bank- inn á nálægum tíma þeim þroska og styrkleika er geri honum mögulegt að verða iðnaðinum til trausts og. halds svo að um muni. En jafnhliða því sem Iðnaðar- bankinn verður efldur, er brýn þörf þess að öðrum bankastofn- unum verði auðið að halda áfram stuðningi sínum við iðnaðinn og það í verulega auknum mæli. Að þessu marki beinist einmitt til- laga Landsfundar Sjálfstæðis- manna um fyrirgreiðslu Seðla- bankans við slíka lánastarfsemi. IIEILDARÚTLÁN BANKANNA Láta mun nærri að heildarút- lán bankanna nemi nú um 1500 milljónum króna. Nokkrum erf- iðleikum er bundið af afla ná- kvæmra upplýsinga um skipt- ingu lánsfjárins milli hinna ýmsu atvinnuvega. — Nærri mun þó láta, að af heildarupphæð útlána hafi iðnaðurinn ráð yfir um 115 milljónum króna, eða tæpum 8%. Hin beinu lán til landbúnaðar- ins munu hinsvegar, eftir því sem næst verður komist, nema um 150 milljónum króna, eða 10% af heildarupphæð útlánanna. Virð- ist því svo, sem sjávarútvegur, verzlun og aðrir einstakir aðilar hafi ráð yfir 1235 milljónum kr. eða um 82% lánsfjárins. IÐNAÐURINN ER AFSKIPTUR MEÐ LÁNSFÉ Það fer ekki milli mála, að iðnaðurinn hefir orðið mjög af- skiptur um hlutdeiid sína í heild- arupphæð lánsfjárins. Til stuðn- ings þessarri staðhæfingu má geta þess, að árið 1951 juku bank- arnir Ián sín til verzlunar um 58% en til iðnaðarins nam aukn- ingin aðeins 25%. LANDBÚNAÐURINN Tæplega er heldur hægt að láta sér vaxa í augum þá upphæð, sem bundin er í föstum lánum til landbúnaðarins. Hlýtur þar sú spurning að vakna, hvort ekki sé eitthvað öðruvísi en vera ætti þegar flytja þarf inn fóðurbæti og jafnvel kartöflur fyrir marg- ar milljónir króna, en bændur skortir fé og aðstöðu til að ann- ást þessa framleiðslu. Væri ekki fjarri lagi að láta sér detta í hug, áð heppilegra væri að verja liokkru meira fé til áburðarkaupa og koma þannig í veg fyrir hinn mikla innflutnings fóðurbætis frá útlöndum, sem greiddur er í dýr mætum gjaldeyri, heldur en leggja svo mikla áherzlu sem raun sannar á framleiðslu fisk- afurða sem seljast fyrir dýrar Vörur og óþarfar. Gildir hér hið sama og annarsstaðar, að ekki er síður mikilvægt að fara sparlega með gjaldeyri en hitt, að afla hans. SKJÓTRA ÚRRÆÐA ÞÖRF Vegna efnahagslífs íslenzku þjóðarinnar og atvinnuöryggis er framar öllu nauðsynlegt að gera bankastofnunum landsins kleift að ráða fram úr alvarlegustu fjár hagsvandamálum iðnaðarins, og fylgja þar fordæmi annarra þjóða. Það fé, sem iðnaðinum kann að verða trúað fyrir að láni til starf semi sinnar, er tvímælalaust xel varið, og ekki mun áhætta í sam- bandi við slíkar lánveitingar reynast eins mikil og oft er raun á um lán til annarra atvinnuvega. Veldur þar mestu um rökstudd bjartsýni um framtíð iðnaðarins og atorka iðnaðarmanna og iðn- rekenda yfirleitt. Hitt skiptir einnig meginmáli, að margar ís- lenzkar verksmiðjur eru búnar ágætum vélum, og standa að þessu leyti fyllilega á sporði sam- bærilegum verksmiðjum í ná- grannalöndum okkar. Hefir þessi staðreynd verið viðurkennd af þrautreyndum erlendum iðnaðar sérfræðingi er hingað var kvadd- ur fyrir skömmu síðan til þess að kynna sér þessi efni. LÁNTÖKUR TIL NYTSAM- LEGRA FRAMKVÆMDA ERU HÆTTULAUSAR Út af fyrir sig þarf engan veg- inn að vera áhyggjuefni þótt um stund sé stofnað til nokkurra 1 skulda í sambandi við eflingu ! iðnaðarins. Þannig hafa aðrir far- 1 ið að á undan okkur. Nýlega var þess getið af öruggum heimild- armanni að eitt sinn muni Banda- ríki N.-Ameríku líklega hafa ver ið meðal skuldugustu þjóða heims erlendis. Lánsfé þetta notuðu Bandaríkjamenn til þess að koma fótum undir atvinnu- vegi sína og þá fyrst og fremst iðnaðinn, þann atvinnuveginn er síðan hefir einmitt orðið til þess að gera Bandaríkin að þeirri for- ystuþjóð á sviði efnahagsmála sem þau eru í dag. Mætti þessi reynsla Banda- ríkjamanna og fjölmargra ann- arra þjóða, svo sem Dana, er fyrr var getið, verða okkur ærin hvatning til skjótrar úrlausnar á fjárhagsvandamálum íslenzks iðnaðar. Hygg ég að neikvæð af- staða til þessarra mála verði tor- veldlega studd fullgildum rök- um, þegar gætt er þýðingar þessa þriðja stærsta atvinnuvegar okk- ar fyrir þjóðarheildina á kom- andi tímum. * Reykjavík, 12. júní 1953. Magnús Víglundsson. Húsfyllir á annarri Carlsen heiðraður. NEW YORK — Carlsen, sem á s.l. ári varð frægur fyrir að dvelja í 13 sólarhringa í sökkvandi skipi sínu The Flying Enterprise, hef- ur verið heiðraður á margan hátt. í næstu viku verður hann við- staddur vígslu björgunarstöðvar í Hollandi, sem skýrð er eftir honum. Nýlega hefur hann verið sæmdur æðsta heiðursmerki Bandaríkjanna, sem veitt er far- mönnum. já steiaganna SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN í Reykjavík héldu aðra kvöldvöku sína í gærkvöldi, þar sem fjöldi manna varð frá að hverfa s.I. föstudag, þegar félögín efndu til kvöldvöku. í gærkvöldi var einnig húsfyll- ir og mikil ánægja meðal sam- komugesta. Ræður fluttu þau Björn Ólafs- son, ráðherra, frú Kristín L. Sig- urðardóttir, alþingismaður, og Friðleifur Friðriksson, formaður Vörubílstjórafélagsins Þróttar. — Var hinn bezti rómur gerður að máli ræðumanna. Hinir vinsælu gamanleikarar Alfreð Andrésson og Haraldur Á. Sigurðsson skemmtu með leik- þætti og gamanvísum. Norska söngkonan Jeanita Melin söng með undirleik C. Billich, og að lokum söng Einar Kristjánsson nokkur lög með aðstoð Fritz Weishappels. Var listamönnun- um öllum ákaflega vel tekið. ” Sigurjón Jónsson, form. Járn- smíðafélagsins stjórnaði samkom unni, er fór í alla staði hið bezta fram, Sjálfstæðisfélögunum til sóma. 5M Fiskaflinn 144,4 þús. smál. 4 fyrstu mán. ársins FISKAFLINN frá 1. janúar til 30. apríl 1953 varð alls 144.388 smál. en á sama tíma 1952 var fiskaflinn 141.269 smál. og 1951 108.458 smál. Hagnýting þessa afla var sem hér segir: (til samanburðar eru settar í sviga tölur frá sama tíma 1952). Smál. Smál. ísaður fiskur (20.536) Til frystingar 48.245 (62.084) Til herzlu 46.811 (10.721) Til söltunar 47.794 (46.365) í fiskimjölsvinnslu 161 ( 482) Annað 1.377 ( 1.081) Þungi fisksins er miðaður við slægðan fisk með haus að und- anskildum þeim fiski, sem fór til fiskimjölsvinnslu, en hann er óslægður. Fiskaflinn í apríl 1953 varð alls 64.162 smál. Ti! samanburð- ar má geta þess að í apríl 1952 varð fiskaflinn 60.067 smál. Skifting aflans milli veiðiskipa til apríl loka varð: Bátafiskur 89.368 smál. Togarafiskur 55.020 smál. Sinfóníuhljóm- MOSKVU, 16. júní — Moskvu útvarpið skýrði svo frá í dag, að | um þessar mundir séu góðar horf. ur á, að Þýzkalandsmálin leysist j með viðræðum milli hlutaðeig- andi ríkja. Þjóðirnar óska frið- samlegrar lausnar Þýzkalands- málsins og sú ósk þsirra hefir aldrei verið heitari en nú sein- ustu mánuði“, sagði útvarpið. sveitin — Sparlíé Frambald af bls. 7 voru yngri en 16 ára í lok júní- mánaðar 1946. 5) Bótarétt hefur aðeins spari- fjáreigandi sjálfur á hinu um- rædda tímabili eða, ef hann er látinn, lögerfingi hans. 6) Bótakröfu skal lýst fyrir 25. október 1953, að viðlögðum kröfu missi, til þeirrar innlánsstofnun- ar (verzlunarfyrirtækis), þar sem innstæða var á tímamörkunum 31. d?sember 1941 og (eða) 30. júní 1946. Umsóknareyðublöð fást í öll- um sparisjóðsdeildum bankanna, sparisjóðum og innlánsdeildum samvinnufélaga eftir 25. júní n.k. Sérstök athygli skal vakin á því, að hver umsækjandi skal útfylla eitt umsóknareyðublað fyrir hverja innlánsstofnun (verzlun- arfyrirtæki), þar sem hann átti innstæðu eða innstæður, sem hann óskar eftir að komi til greina við úthlutun bóta. Að öðru leyti vísast til leiðbeininganna á umsóknareyðublaðinu. Heimilt er að greiða bætur þessar í ríkisskuJdabréfum. Eftir lok kröfulýsingarfrestsins verður tilkynnt hvenær bóta- greiðslur hefjast og hvar þær verða inntar af hendi. SINFÓNÍUHLJÓMSVEITIN hélt tónleika í Þjóðleikhúsinu mið- vikudaginn 10. júní. Diana Austr- ati aðstoðaði með söng, en Herm. Hildebrandt frá Berlín stjórnaði. Verkefnin voru eftir de Falla (þættir úr ballettinum „Ástar- töfrar“), Bizet (söngvar úr óper- unni ,,Carmen“) og að lokum 5. sinfónía Tschaikovskis í e-moll. Ballett de Falla er heillandi verk og byggt af mikilli hug- kvæmni, Naut verkið sín vel í höndum hins unga og fjörmikla stjórnanda, en frúin söng nokkra kafla með míklum ágætum, og sama má segja um söng hennat í Carmen-lögunum, en hún er, eins og margir vita, ein mesta Carmen-söngkona í Þýzkalandi. Ætlaði fagnaðarlátunum aldrei að linna eftir Carmen-lögin. Að lokum lélt hljómsveitin 5. sinfóníu Tschaikowskis. — Þetta mikla verk naut sín víða mjög vel#og var jafnvægið rnilli blást- urs- og strokhljóðfæra ágætt og hljómur sveitarinnar hreim- mikill og fagur. Þrátt fyrir smá- mistök hjá blásurunum var verk- ið áhrifamikið í höndum hljóm- sveitar og stjórnanda. En stjórn Hildebrandts var nú sem fyrr kraftmikil og með glæsibrag. P. f. - Afmæli Sænski fulltrúinn STOKKHÓLMI, 16. júní — Svíar hafa skipað sendiherra sinn í Lissabon til að taka sæti í hlut- lausu nefndinni, sem á að sjá um fangaskipti, ef vopnahlé kemst á í Kóreu. —Reuter-NTB. i'ramhald af bts. 7 Þær eru allar sem ein, á þær ber engan skugga. En þrjár eru þó skýrastar á þessari stundu. Það var fyrst er hann færði mig í fyrsta sinn í messuskrúða. Ég átti að fara að hafa fyrstu messuna á ævinni — og það var í kvikmyndahúsi. Það hafði nætt allnapurt, en frá þessum manni andaði hlýju, sem var ómetanleg og ógleymanleg við þær aðstæð- ur. Ég leit á hann og mér varð hugsað til þess, að þessi virðu- legi maður hefði nú skrýtt merka kennimenn í hálfa öld í húsi guðs. Og nú hafði hann kosið sér það hlutskipti að skrýða óþekktan, umdeildan mann í kvikmynda- húsi. Á þeirri stundu leit ég í honum alla þá, sem treystu mér til að bregðast ekki og reynast maður. Og á þeirri stundu bað ég þess að mér auðnaðist að rísa undir því, sem Ásmundur Gests- son lagði mér beint og óbeint á herðar þann dag, það var hin önnur vígsla. í annan stað geymi ég í huga mér myndina af Ásmundi Gests- syni, er hann kom á æskustöðvar sínar í fylgd margra vina í fyrra- sumar og steig í stólinn í Saur- bæjarkirkju á Hvalfjarðarströnd. Þar rifjaði hann upp helgisagnir af Hallgrími Péturssyni, sem hann er manna fróðastur um. Og hann gerði það af slíkri ást á minningu Hallgríms og ræktar- semi við staðinn, sem við stóðum á, að það var eins og hann talaði mál allra kynslóða á íslandi frá upphafi Passíusálmanna. Skömmu síðar tefldi Ásmund- ur Gestsson um líf og dauða og mátti lengi naumast á milli sjá. Þriðja skýra minningin um hann er frá þeim dögum, og e. t. v. er hún dýrmætust. „Gull prófast í eldi en guðhræddir menn í nauð- um“. Þá varð ég vitni að því, að trú hans og von þolir hina þyngstu raun æðrulaust. Það er mikil guðs gjöf. Ég árna þessum kæra vini mínum og börnum hans allra heilla og þakka hon- um af alhug vináttuna og fagurt fordæmi. Emil Björnsson. Þú gem œtlar aS liyrja að haka Blesstið láttu fyrir þér vaka Bezt er kaka Bezt er kaka með LILLU LYFTIDUFTI NO, VOU DONT PULL TICK5 OUT FRANKIE...IF YOO DO THEV WILL LEAVE THEIR HEAD AND 'NFEOTION WILL — M A R K Ú S Eftir Ed FinrM YOU TOUCH. HIM WITH A LITTLE IODINE AND HE BACKS OUT QUICK t 1) — Þú mátt ekki taka blóð- maurinn af þér, Frank. Ef þú gerir það, er hætta á því að eitr- að höfuð hans sitji eftir, og þá gæti farið illa fyrir þér. 2) — Það á að bera lítið eitt af joði á skorkvikindið og þá fer það út af sjálfsdáðum. 3) Seinna. — Ég var svo hrædd Markús. Það gleður mig sannar- lega að Frank skyldi ekki verða fyrir neinu alvarlegra áfalli en blóðmaursbiti. 4) — Það er ekki hættulegt nema á landsvæðum, þar sem blóðmaurinn veldur útbrotaveiki. En það er líka mjög sjaldgæft.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.