Morgunblaðið - 17.06.1953, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 17.06.1953, Qupperneq 16
Veðurúfii! í dag: Sunnan gola, síðan kaldi. Dálitil ngning, 133. tbl. — Miðvikudagur 17. júní 1953. Kafíar úr raeðu •Jnns Aðífs 15, júní ISil, bíaðcíðu 9 — Sjá í dag klæðist Reykjavik hátíðarskrúða Ólafur Thors falar í Kópavogi ^INS OG xindanfarin ár efnir Reykjavíkurbær til fjölbreyttra hátíðarhalda á þjóðhátíðardegi íslendinga, 17. júní. Þjóðhátíðar- r\efnd, sem skipuð er 8 mönnum, þar af 4 frá íþróttabandalagi R'eykjavíkur og 4 frá bæjarráði, ræddi við blaðamenn í gær og skýrði þeim frá tilhögun hátíðar- haldanna. — í ár verður sú ný- breytni að þjóðdansar verða dansaðir á Lækjartorgi og hafa æfingar staðið yfir síðustu daga. í gær var byrjað á því að skreyta bæinn. — Þjóðhátíðarnefnd mun að þessu sinni gefa út sérprent- aða sálma þá og sönglög, sem ætlazt er til að almenningur syngi á útiskemmtununum. Eru það vinsamleg tilmæli til allra að gæta þess vel að fleygja ekki ■þessum sérprentuðu blöðum á götuna og gæta þrifnaðar í hví- vetna. Fjölbreylt hátíðaböld á csimæli lýðveldisins IVÆR SKRÚÐGÖNGUR — A AUSTURVELLI Kl. 1.15 hefjast skrúðgöngur, önnur við Melaskólann og hin við Skólavörðuholt. — í fararbroddi verða lúðrasveitir og fánaberar, og mætast göngurnar á Austur- velli. Guðsþjónusta hefst kl. 2 í Dóm kirkjunni, þar sem Ásmundur Guðmundsson prófessor prédik- ar, og Einar Kristjánsson óperu- söngvari syngur einsöng. Að guðsþjónustunni lokinni leggur forseti íslands, herra Ás- geir Ásgeirsson, blómsveig frá íslenzku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurðssonar. Lúðrasveit- irnar leika þjóðsönginn, en fána- berar, fulltrúar fjarstaddra ís- lendinga við athöfn þessa, votta virðingu sína með fánakveðju. Þá verður ávarp Fjallkonunn- ar flutt af svölum Alþingishúss- ins. Ávarpið er samið af Jakobi Thorarensen, en Herdís Þorvalds- tjóttir leikkona er Fjallkonan að þessu sinni. Að því loknu flytur forsætisráðherrann Steingrímur Steinþórsson ræðu. KI. 3 verður lagt af stað suður á íþróttavöll, en á leiðinni þang- að verður staðnæmzt við leiði Jóns Sigurðssonar og þar lagður hlómsveigur frá bæjarstjórn Reykjavíkur. — Á íþróttavellin- urn fer fram margvísleg íþrótta- koppni. B ARN AÚTISKEMMTUN Á ARNARHÓLI Kl. 4 e. h. hefst útiskemmtun barna á Arnarhóli. Séra Friðrik Friðriksson ávarpar börnin, en Sigfús Halldórsson verður kynn- ir og stjórnar hann einnig al- jpennum jsöng. Fara þar fram ipargvísleg skemmtiatriði. — Þá verður skemmtigarðurinn Tívólí ppinn og aðgangur ókeypis’ frá kl. 4—7.30, en kl. 5.30 fara þar fram nokkur af skemmtiatriðun- yin frá Arnarhóli — barna- skemmtuninni. KVOLDVAKAN Á ARNARHÓLI Um kvöldið verður kvöldvaka á Arnarhólstúni, þar sem Lúðra- sveit Reykjavíkur leikur. Kvöld- vakan verður sett af formanni þjóðhátíðarnefndar, Þór Sand- holt, Karlakór Reykjavíkur og Karlakórnum Fóstbræður syngja, borgarstjórinn Gunnar Thorodd- sen flytur ræðu, söngvararnir úr óperunni La Traviata, þau Hjör- dís Schymberg, Einar Kristjáns- son og Guðmundur Jónsson syngja. Lýkur kvöldvökunni með söng Þjóðkórsins. DANSAÐ ÁÞREM STÖÐUM Þá verður dansað á þrem stöð- um, á Lækjartorgi, á Lækjargötu og á Hótel íslands lóðinni. — A Lækjartorgi verða dansaðir þjóð- dansar, sem almenningur tekur þátt í, og verður dansfólki leið- beint. Hátíðarhöldunum verður slitið kl. 2 eftir miðnætti. ALLIR í ÞJÓÐBÚNINGUM Það eru sérstök tilmæli til þeirra, sem eiga þjóðbúninga eða skautbúninga að klæðast þeim, ef veður leyfir. Eins og undanfarið verður barnagæzla seinni hluta dagsins á Lækjartorgi, þar sem foreldrar geta 'væntanlega gengið að þeim börnum vísum, er „týnast“. VÍNLAUS ÞJÓÐHÁTÍÐ Skorað er á alla þá, sem taka þátt í hátíðahöldunum að sýna sóma sinn í því að hafa ekki vín um hönd á þjóðhátíðardegi sín- um. — Drykkjulæti eiga ekki að eiga sér stað á afmælisdegi hins unga lýðveldis okkar. D-LISTINN er listi Sjáifstæðisfiokksins Læknaþing hcfst hér á morgun ÞING íslenzkra lækna verður haldið hér í bænum dagana 18.— 20. júní. — Auk venjulegra þing- starfa, skýrsluflutníngs formanns og umræðna um félagsmál, verða erindi um læknisfræðileg efni flutt. Norski próf. dr. P. A. Owen frá Osló, mun flytja eitt erindi og dr. med. Torben Geill yfir- læknir frá Kaupmannahöfn ann- að. — Eins mun próf. Snorri Hallgrimsson yfirlæknir, flytja erindi og Björn Sigurðsson læknir. Þingið verður háð í I. kennslu- stofu Háskólans. Bílsamgðngur við Siglufjörð á ný SIGLUFIRÐI, 15. júní: í gær- morgun var lokið við að moka Siglufjarðarskarð og fórú fyrstu bílarnir þar um í gær. Skaflar þeir, sem snjóýturnar ruddust í gegn um eru víða mjög djúpir og þeir dýpstu allt að 11 metrar. Var mjög erfitt að koma ' snjónum frá, því blautur var j hann og sat þar fastur, sem ýtan sleppti af honum. En nú er greið- fært orðið yfir skarðið. Einmuna tíð hefur verið hér J undanfarið og hefur gróðri farið ; mikið fram. Er farið að slá bletti við hús hér í bænum. — Guðjón. í fyrrakvöld var haklin kvöldvaka Sjálfstæðismanna úr fjórum hreppum Kjósarsýslu. Fór hún fram í barnaskólanum í Kópavogi. Fór það sem áður á fundum Ólafs Thors að salarkynnin nægðu varla svo sem sést hér á myndinni. — Á kvöldvöku þessari kom það greinilega í Ijós hversu miklum vinsældum Sjálfstæðisflokk- urinn á að fagna og Ólafur Thors persónulega og var ræðu hans tekið með miklum fögnuði. Þar á eftir mælti Steingrimur Árnason, frystihúseigandi, nokkur snjöll hvatningarorð, og tóku fundar- menn óspart undir þau. — Formaður Sjálfstæðisfélags Kópavogs, Jón Sumarliðason, setti samkomuna og stjórnaði henni. — Var kvöldvakan öll hin ánægjulegasta og þeim til sóma, er að henni stóðu. Prýðilegf héraðsmóf Sfáff- sfæismaiina á Þin§@p Ijarns lenedikfiscn rsddi sSjérnmálaviðhorfið HÉRAÐSMÓT Sjálfstæðismanna í Vestur-fsafjarðarsýslu var haldið á Þingeyri 14. þ. m. og sóttu það milli 3—400 manns víðs vegar að úr héraðinu. Var þetta hin f jölmennasta samkoma, og muna menn vart eftir jafn margmennri samkomu. Þótti mönnum sérstaklega mikið koma til hinnar prýðilegu ræðu Bjarna Benediktssonar, enda er hann sjaidséður 'gestur hér fyrir vestan. Kennarar róku Gunn- nr M. nf höndum sér UPPELDISMÁLAÞINGINU lauk nú um helgina, en áður hefur verið skýrt hér í blaðinu frá setningu þess og störfum. Þau tíðindi gerðust undir lok þing- starfa, að einn af þægustu vika- piltum kommúnistaflokksins, Gunnar M. Magnúss, að nafni, sem undanfarið hefur haft uppi áróður fyrir varnarlausu landi, Héraðsmót Sjálfstæðisfl. í Gulibringusýslu 10. þ.m. HGRAÐSMÓT Sjálfstæðisflokksins í Gullbringusýslu verður haldið í Ungmennafélagshúsinu í Keflavík 19. þ. m. kl. 8,30 síðd. Stuttar ræður flytja: Ólafur Thors, form. Sjálfstæðisflokksins og Jóhann Hafstein alþm., en skemmtikraftar verða leikararnir Alfreð Andrésson og Haraldur Á. Sigurðsson ,er flytja leikþátt og syngja gamanvísur, og norska söngkonan Jeanita Melín syngur með aðstoð C. Billich. Að síðustu verður stiginn dans. Þátttaka tilkynnist fyrir kvöldið til eftirtalinna aðila: Skrif- stofu Sjálfstæðisflokksins í Keflavík, Björns Finnbogasonar, Gerð- um, Axels Jónssonar, Sandgerði, Jóns Jónssonar, Hvammi, Ilöfn- u>si, Jóns Benediktssonar, Vogum og Jóns Daníelssonar, Grmdavík. hugðist fá varnarleysistillögur sínar samþykktar á kennara- þinginu. Gunnar þessi er þó ekki í Sambandi isl. barnakennara, heldur var honum gefið orðið á þinginu af einskærri góðvild. Sætti hann þá lagi og reyndi að troða kommúniskum áróðurstii- lögum sínum upp á þingið. Þetta innhlaup Gunnars höfðu komm- únistar áður undirbúið og smalað sínu liði á fundinn, sem er úr kennarastétt, en hafði að öðru leyti ekki séð ástæðu til að taka þátt í störfum þingsins. Við atkvæðagreiðslu um varn- arleysistillögur Gunnars hlutu þær hina háðulegustu útreið, fengu 24 atkvæði, en alls sátu þingið um 150 manns. Lyktaði svo tilraun kommún- ista til þess að fá barnakennara til að samþykkja áróðurssam- þykktir sínar og gera samtök þeirra að pólitískri skóþurrku sinni. Hafa kennarar vaxið við þær verðugu móttökur, er þeir veittu kommúnistasendlinum, en hann sjálfur enn fengið hina mestu hneisu og farið hina mestu hrakför með „gegnherílandi“ til- lögur sínar. RÁÐKERRANN HYLLTUR Málflutningur ráðherrans var allur skýr, greinargóður og rök- fastur með afbrigðum. Þakka menn ráðherranum mjög fyrir komuna og mátti heyra það af hinu langvinna lófataki, að ræðu hans lokinni, að menn kunna hér að meta baráttu hans fyrir hugsjónum Sjálfstæðisflokksins. ÖTULL FRAMBJÓÐANDI Þá voru samkomugestir einnig mjög ánægðir yfir óvenjulegum dugnaði og prýðilegri framkomu hins unga frambjóðanda Sjálf- stæðisflokksins í sýslunni. Við vonum, að Þorvaldur Garð ar verði okkar í þetta sinn og við höfum þá trú, ekki einungis vegna glæsimennsku hans, held- ur fyrst og fremst vegna þess, að mönnum er farið að skiljast, að héraðinu er það mikið hagsmuna mál, að fá svo ötulan umboðs- mann. Allt fór héraðsmót þetta fram með hinum mesta glæsibrag, og verður lengi minnst hér í hérað- inu. Áii 15 milljé omr BELGRAD, 15. júní — Gagn- kvæma öryggisstofnunin hefur ákveðið að veita Júgóslövum nú þegar 15 milljón dollara fram- lag. Verður upphæðinni varið til þess að koma efnahagsástandi lanðsins í betra horf en nú er. —Reuter-NTB. HáfíSahöldin í HafnarfirSi í dag HAFNARFIRÐI — Hátíðahöldin hér í dag verða með líku sniði ncf ,m'ítmrm'jn f,y. ,— Klukkan 13,30 verg„r safrm«t saman fyr- ir framan Bæjarbíó, og gengið mofj Lúðrasveit Hafnar- finrflnr í hrQjifjj fvlkinsrar. upp á Hörðwellí. — Þar hefst hátíð- in með því að próf. Magnús Már Láruss. flytur ræðu, Fjallkonan, Ester Kláusdóttir. flvtur kvæði, Einar Kristjánssnn óoerusöngv- ari srneur einsör>o. Karlakórinn Þrestir syngja, flokkur kvenna svnir firnleikn undir stjórn Mínervu Jónsdóttur. Þá fer fram I handkn»ttleikur kvenna ög karla. Einnig verða þjóðdansar j og reintm?. I Um kvöldið ve’'ður dansað á Strandgötunni. — Þess er vænst, . að sem flestir hpniarbú'”' taki þátt í hátíðahöldunum. —G. Utankjörstaðakosning KOSNINGASKRIFSTOFA Sjálfstæðisflokksins í Sjálfstæðishúsinu og V. R. er opin frá kl. 10—12 í dag. Sími 7100 og 2938. Skrifstofa borgarfógeta í Arnarhvoli, þa.r sem utankjörstaða atkvæðagreiðslan fer fram er aðeins opin frá kl. 10—12 í dag. Listi Sjálfstæðisflokksins er D-LISTINN.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.