Morgunblaðið - 20.06.1953, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 20.06.1953, Qupperneq 12
12 MORGVNBLAÐIÐ Laugardagur 20. júní 1953 Iðnaðurinn Framhald af bLs. I náið samráð við hann, hvernig frá álitsgerðinni yrði gengið. Samkvæmt ósk hans var kafli úr álitsgerð minni fjölritaður og út- býtt meðal þingmanna, en í þeim kafla voru einkum dregin fram rök fríverzlunarmana gegn óhóf- legri tollvernd til handa inn- lendri framleiðslu. Taldi Jón það einkar nauðsynlegt, að þessi sjónarmið yrðu kunngerð þeim, er um tillögur nefndarinnar fjölluðu, þar sem mest af þeim gögnum, sem fyrir lægju um tollamálið, túlkuðu einhliða sjónarmið eigenda iðnfyrirtækj- anna, án nokkurs tillits til hags- muna þeirra, er neytendur og þjóðarheildin hafa að gæta í sambandi við mál þessi. Fórum við sameiginlega yfir kafla þennan, áður en hann var fjölritaður, og man ég ekki ann- að, en við værum sammála um allt, sem þar stóð. Þegar þannig er gætt aðdrag- anda þess, að álitsgerð þessi birt- ist, þarf engan á því að furða, þótt finna megi í henni ýmsar glefsur, sem hægt er að túlka þannig, að þær sýni andúð gegn auknum iðnaði í landinu. Ég tel mig til þess neyddan að upplýsa þetta, þótt mér sé mjög óljúft, að blanda þannig nöfnum látinna heiðursmanna inn í hið pólitíska dægurþras. En buslugangur skriffinnanna í dálkum Alþýðublaðsins og vaðall um efni, sem þeir hafa ekkert kynnt sér, hvernig vaxin eru, knýr mig að þessu sinni til þess. BREYTT VIÐHORF SÍÐAN 1938 Þessi ritgerð er þannig nær 15 ára gömul, og auðvitað mið- uðust þau sjónarmið, er þar koma fram, við þáverandi á- stand í efnahagsmálum þjóðar- innar. Þegar um það er talað í glefsum þeim, er Alþýðublaðið hefir .birt úr álitsgerðinni, að ekki sé hagkvæmt frá þjóðhags- legu sjónarmiði, að efla „nýjan iðnað“, þá er það aðeins ein grein iðnaðarins, sem höfð er í huga, en það er neyzluvöruiðn- aður úr erlendum hráefnum fyr- ir innlendan markað. Þetta er mjög skýrt tekið fram í álits- gerðinni. Ég færði þau rök fyrir þessu að þessi tegund iðnaðar hafði þá undanfarin ár blómgast mjög í skjóli innflutningshaftanna, og mun þgð vera eina atvinnugrein landsmanna, sem hægt var að segja slíkt um. Hinsvegar hafði fiskiflotinn og önnur framleiðslutæki í þágu útflutningsins gengið mjög sam- an og fiskiðnaður átti erfitt upp- dráttar. Niðurstaða mín í um- ræddri álitsgerð var því sú, að með tilliti til þess takmarkaða fjármagns, sem þjóðin hefði yfir að ráða, væri skynsamlegast, að leggja megin áherzlu á það á næstu árum að auka útflutnings- framleiðsluna, og bæri því að Mjúk og falleg húð er eftirsótt. — Rósól-ívlycerin hefur þann eiginleika, að gera húðina silkimjúka, hvíta og fallega. Fæst í flestum verzlunum < g kost- ar kr. 7.85, túban. efla fiskveiðar og iðnað úr inn- lendum hráefnum, en leggja ekki um sinn frekari áherzlu á eflingu neyzluvöruiðnaðar úr erlendum hráefnum. Hinsvegar tók ég það fram, að ég teldi einnig þann iðnað eiga að njóta áfram þeirrar toll- verndar er hann þá hafði. Þetta sama sjónarmið lá til grundvallar tillögum nefndar- innar um ný tollalög, svo og af- greiðslu þeirra á Alþingi, og er mér ekki um það kunnugt, að Alþýðuflokksmenn hafi þar haft neina sérstöðu. HAFTASTEFNAN ER IÐNAÐINUM EKKI í HAG Því skal engan veginn borið á móti, að innflutningshöft geta leyst það vandamál framleið- enda fyrir innlendan markað, sem samkeppni erlendis frá hefir í för með sér. En gjaldeyrisskorturinn, sem hefir verið öruggur fylgifiskur haftastefnu þeirrar, sem jafnan hefir verið rekin, þegar Alþýðu- flokkurinn hefir haft áhrif á landsmál hefir valdið iðnaðinum örðugleikum á öðrum sviðum, sem sízt hafa verið auðveldari viðfangs en erlenda samkeppnin. Þeir örðugleikar eru skortur hráefna og tækja til framleiðsl- unnar. Og þau vandamál, sem þannig eru afleiðing gjaldeyris- skorts, eru jafnan sýnu verri við- fangs, en sá vandi sem agnúar á tollalöggjöfinni valda. Það tekur venjulega langan tíma og verður ekki gert án rót- tækra aðgerða, að koma atvinnu- lífinu á kjöl eftir langverandi haftaöngþveiti, en úr ágöllum sem vera kunna á tollalöggjöf- inni er hægt að bæta með ein- faldri lagasetningu. Það vill svo til, að ég hefi f jall- að um skýrslur, sem safnað hefir verið meðal iðnaðarmana tvisvar sinnum í lok stjórnartímabils, er haftastefna Alþýðuflokksins réði. Það var þegar ég vann í þágu fyrmefndrar milliþinga- nefndar í tollamálum 1928 og aftur sumarið 1950. Víst er um það, að þótt við ýmiss vandamál sé að etja í iðn- aði landsmanna nú, sem úrlausn- ar krefjast, þá voru þeir ekki ánægðir með hag sinn þegar þeir gáfu skýrslur sínar tvö fyrr- nefndu árin, þó vandamálin væru þá annars eðlis en nú. Skal ég fúslega tína fram hitt og annað því til sönnunar úr gögn- um þeim, er ég hefi átt kost á að kynna mér, ef Alþýðublað- ið óskar eftir frekari umræðum um þessi mál á þessum vett- vangi. — Lögfræðinemar Framhald af bls 11 ar. — Hefðu Svíþjóð og Finn- land nokkra sérstöðu meðal Norðurlandanna og hefði þar verið gengið lengst á þeirri braut að fela þetta eftirlit sérstökum dómstólum. Ræddi hann að lok- um ýmsa galla, sem á þessu væri og leiðir til úrbóta. Aldrað fólk gestir F.Í.B. UM kl. 1 í dag verður farið í hina árlegu ferð með aldrað fólk. Félag ísl. bifreiðaeigenda stend- ur fyrir þessari ferð að venju. Meðlimir félagsins, fyrirtæki og ýmsir einstaklingar lána bifreið- ar til fararinnar. f gær höfðu ekki nægilegar margir bílar feng- izt og er þess vænzt, að bifreiða- eigendur bregði fljótt við og láni farartæki sín. Geta þeir gefið sig fram við hr. Axel L. Sveinsson verzlunarstjóra hjá Ræsi. Farið verður til Hveragerðis og tekið gamalt fólk. Síðan verð- ur haldið til Þingvalla og býður F.Í.B. gamla fólkinu veitingar í Valhöll. Ýmsar sælgætisverk- smiðjur hafa gefið af framleiðslu sinni til þátttakenda fararinnar. Skemmtileg vOrsýmng í Listamannaskálamim Fimm íslenzkir máiarar og tveir myndhöggvarar HINN 16. þ. m. opnuðu 7 íslenzkir listamenn vorsýningu í Lista- mannaskálanum, þau Ásmundur Sveinsson, Benedikt Gunnarsson, Gerður Helgadóttir, Guðmunda Andrésdóttir, Hjörleifur Sigurðs- son, Þorvaldur Skúlason og Valtýr Pétursson. Sýningin verður opin fram undir mánaðamótin, frá kl. 2—10 daglega. Margir gest- ir hafa þegar skoðað sýninguna, er yfir henni hreinn og skemmti- legur blær. FLEST NÝLEGAR MYNDIR Flestar myndirnar á sýning- unni eru nýlegar og sumar alveg nýjar af nálinni, t.d. ein mynd — Þjóðbankafundur Framhald af bls. 9. Þessir menn sátu fundinn: Frá Danmarks Nationalbank: Þjóðbankastjórarnir Svend Nielsen og Haugen-Johansen, S. Hartogsohn varabankastjóri og Svend Andersen skrifstofustjóri. Frá Finnlands Bank: S. Tuomioja aðalbankastjóri, U. Varjonen bankastjóri og A. E. Tudeer prófessor. Frá Noregs Bank: Gunnar Jahn aðalbankastjóri, Gunnar Hvattum útgerðarstjóri og skrifstofustjórarnir Jan Knap og Gabriel Kielland. Frá Sveriges Riksbank: Vararíkisbankastjóri Lennart Hammarskjöld, bankagjaldkerar Hammarskjöld, bankagjaldker- arnir David Hall, Sven Joge og Hjalmar Ekengren og Ölsson skrifstofustjóri. Frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í Washington: Alf Eriksen forstjóri. Frá Landsbanka íslands: Bankastjórarnir Jón Árnason, Jón G. Maríasson og Gunnar Viðar og Svanbjörn Frímanns- son aðalbókari. íþróffir Framhald af bls. 10 nú gerð á liðinu, Sveinn Helga- son skipti um stöðu við Einar Halldórsson. Er það vel að þær voru ekki fleiri, því þessar sí- felldu stöðuskiptingar, sem tíðkast hjá Reykjavíkurfélögun- um, eru sízt til þess að gera liðin samstillt og samæfð. Þróttarliðið er skipað jöfnum leikmönnum. Enginn ber þar af og sennilega mundi enginn þeirra komast í meistaraflokkslið hinna félaganna nema markvörðurinn Kristján Þórisson. Og þó með réttu megi nú deila um þátttöku liðsins í meistaraflokki, kann vel svo að fara að þetta lið eigi eftir að ná þeim tökum á knattspyrnu sem þarf til þátttöku í meistara- flokki svo sómi sé að. Þátttaka liðsins í íslandsmótinu hefur orðið til þess að farið er inn á ranga braut með mótið — þ. e. riðlaskiptingu. Nær hefði verið að vinna að því að mótið yrði tvær umferðir, og tryggt þannig að sterkasta liðið ynni, en ekki eins og nú er að heppni geti ráð- ið úrslitum mótsins. — A. St. 17. júní hátíðahöM- in í Keflavík KEFLAVÍK, 18. júní: — Hátíða- höldin 17. júní hófust með því að fólk safnaðist saman í skrúðgarði bæjarins laust eftir hádegi. Kl. 2,55 setti Helgi S. Jónsson skemmtunina. Þvínæst hófst há- tíðlegasta stund ársins, er skátar gengu inn í skrúðgarðinn og héldu á íslenzka fánanum út- breiddum á milli sín. Gengu þeir að 17. júní-stönginni, en þar var fyrir hin kunna sunddrottning Inga Eygló Árnadóttir. Að þessu sinni skyldi hún verða heiðruð fyrir öll sín persónulegu afrek og íþróttahreyfingarninnar í heild með því að draga hinn mikla og fallega fána að hún. Eftir þessa hátíðlegu stund flutti Ólafur Skúlason, cand. theol., minni dagsins. Því næst var guðs þjónusta og flutti sóknarprestur- inn, sr. Bjöfn Jónsson, prédikun. Eftir guðsþjónustuna hófst keppni í nokkrum íþróttagrein- um. Sem gestur keppti hér Þórð- ur B. Sigurðsson, KR. Keppnin hófst með kringlukasti, en þar voru keppendur tveir, Þorsteinn Löve og Kristján Pétursson. Kast aði Þorsteinn 47,50 m., og er það bezti árangurinn, sem náðst herir hér á landi í ár. Kristján kastaði 35,32 m. Þá fór fram keppni í 1500 m. hlaupi. Sigraði þar Þórhallur Guðjónsson á 4.33,52 mín. Var hann aðeins sjónarmun á undan Herði Guðmundssyni, er hafði sama tíma. í sleggjukasti var sigurvegari Þórður B. Sigurðsson. Kastaði hann 47,69 m., en það er fjórum cm. lengra en íslenzka metið. Ekki er þó víst hvort þessi ár- angur fæst staðfestur sem met þar sem völlurinn er ekki alveg láréttur, en mjög miklar líkur eru á að hallinn sé ekki það mik- ill að þess gæti nokkuð. Annar í sleggjukasti var Þorvarður Arin- bjarnarson. Kastaði hann 41.78 m. Ekki var keppt í fleiri grein- um. Um kvöldið var stiginn dans í samkomuhúsum bæjarins. Fóru skemmtanirnar mjög vel fram, en veður var fremur kalt, stinn- ingskaldi að sunnan. — Ingvaf. höggvin í tré eftir Ásmund Sveinsson. Einnig er þar járn- mynd eftir Gerði Helgadóttur, er hún lauk við skömmu áður en hún fór utan í haust. — Gerður sýnir þarna auk þess fimm „col- lage“-myndir, þ. e. a. s. myndir, sem búnar eru til úr mislitum pappír. Þessi álímingaraðferð er vinsæl meðal listamanna um þessar mundir, og er skemmst að minnast sýningar Nínu Tryggvadóttur s. 1. haust, þar sem sýndar voru slíkar myndir eingöngu. OLÍUMÁLVERK OG VATNSLITAMYNDIR Eftir Þorvald Skúlason eru fjögur olíumálverk, sex eftir Val- tý Pétursson, fjögur eftir Guð- mundu Andrésdóttur og tvö eft ir Hjörleif Sigurðsson. Benedikt Gunnarsson, sem er bróðir Veturliða Gunnarssonar listmálara, mun vera yngstur þátttakenda. Hann sýnir fjögur olíumálverk auk margra vatns- litamynda. BERA KEIM AF KLASSISKRI LIST Vorsýningin er frábrugðin septembersýningunni, t.d. að því leyti, að rómantískra áhrifa gæt- ir þar lítið en hins vegar bera verkin keim af klassískri list. — Listamennirnir stefna fyrst og fremst að því að skapa sterka og stöðuga myndheild og björt og hrein form. íbúðarskáli úr Skólavörðnliolti til Keflavíkur VEGFARENDUR í Skólavörðu- holti munu hafa veitt því eftir- tekt, að miklar tilfæringar hafa átt sér stað við skálann, sem stendur á háholtinu, rétt norðan við Hallgrímskirkju. Þessi íbúðarskáli, sem mun vera þar sá eini í einkaeign, hefur verið seldur suður til Keflavíkur til íbúðar. Mun hann verða flutt- ur þangað einhverja nóttina. — Skálinn er í mjög góðu ásigkomu lagi. Vandað var sérlega til inn- réttingar hans og mun seljandinn hafa fengið um 30 þús. kr. fyrir hann. Það mun vera einsdæmi að slík ur íbúðarskáli sé fluttur í heilu lagi milli byggðalaga og um svo langan veg. MARKÚS VOU RErAU-V VE3, DO LOVE / WABANANe.*.' HER, DON'T Y T &UE55 I Eftir Ed Dodd DONT VTORRY.. SOAÓETiMES THESE THINÖS WOCK OUT THE RIGHT VVAY.. GOOCNIíSHT; MAPK r 6^-3 1) — Hvað heitir stúlkan, Markús? — Hún heitir Sirrí og var eink- ar elskuleg, falleg og góð og .. 2) — Ertu alveg viss um, að þú elskir hana, Markús? — Já, Valborg. Ég er smeyk- ur. Það er nefnilega oft, að svona ur um, að ég muni alltaf gera nokkuð fer vel um síðir. það. | — Nú ætla ég að bjóða þér 3) — Vertu ekki áhyggjufull-] góðrar nætur, Valborg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.