Morgunblaðið - 20.06.1953, Síða 15

Morgunblaðið - 20.06.1953, Síða 15
Laugardagur 20. júní 1953 MORGVH BLÁÐIÐ 15 Vinna Hreingerningar Vanir menn. — Fljót afgreiðsla Símar 80372 og 80286. HólmbrteSur. BH FELPG H3 HREiNGERNiNGflMfiNNft Hreingerningar. Pantið í tíma. Guðmundur Hólm. Sími 5133. Kaup-Saia TIL SÖLU ný rafknúin. Húsqvarnasauma- vél í póleruðum hnottrésskáp. — Sími 3613. — Félagslíf Ferðir frá Ferðaskrifstofu ríkisins um helgina: — 1. Farið verður upp í Hvalfjörð eftir hádegi á sunnudag, ef hval- ur er inni. — Á leiðinni verður komið við í nýju áburðarverksmiðj unni. — 2. Farið verður á sunnu dag eftir hádegið, hringurinn: Krísuvík, Hveragerði, Sogsfoss, Þingvellir. — 3. Farið verður til Gullfoss og Geysis klukkan 9 f'yr- ir hádegi á sunnudag. — 4. Mið- nælursólarflug. — Flogið verður á sunnudagskvöldið, ef veður leyf- ir, norður yfir Heimskautshaug. — 4. Handfæraveiðar. 1 ráði er að efna til handfæraveiða á laugar- dag. — Ferðaskrifstofa ríkisins Torgsalan á Vitatorgi byrjar í dag að selja alls konar blóm og grænmeti. Athugið! Aðeins selt þrisvar í viku, á þriðju dögum, fimmtudögum og laugardögum. Vandaður BARIMAVAGN til sölu. Upplýsingar eftir kl. 1 á Seljaveg 3, sími . 82361. — Dragt til sölu Nýleg grá ullargaberdine- dragt til sölu og sýnis í Efstasund 68. Verð krón- ur 700,00. — Sumarbústaður til solu Sumarbústaður í strætis- vagnaleið. Svefnherbergi, stór stofa, gangur, eldhús, geymslur og W.C., ásamt girtri lóð. Sólskýli og veiði- réttindum. Uppl. í síma — 7246. — Vil kaupa gott. Mótorhjél Hariey Davison mótorhjól, til söiu. Uppl. í síma 9347 milli kl. 12—1 í dag. Sendiferilahill til sölu stór Renault sendi- ferðabíll í góðu standi, ný vél. — Rafvélar, Hverfisgötu 50. Sími 4781. 1 -U—..Iil.. . I ' I t ' I I II ■ . I &U., , ■ •*.■ nif ' ' \ ty'- ’ ■■•r ••-.■ — Æskan og framtíðin Framhald af bls. 8 og hófu baráttu með lýðræðis- öflunum, og þeirri baráttu lauk með glæsilegum sigri andstæð- inga kommúnista í fulltrúakosn- ingunum til Alþýðusambands- þings 1948. VIÐSKILNAÐURINN í A. S. í. Viðskilnaður kommúnista í A. S. í. var með þeim endemum, að seint mun líða úr minni laun- þega, því að kommúnistar tóku svo að segja alla sjóði sambands- | ins og létu greipar sópa um spjaldskrár og annað, sem var í vörzlu sambandsstjórnar en eign verkalýðsfélagánna. Síðan kommúnistar töpuðu stjórn Alþýðusambandsins hefur fylgi þeirra stöðugt farið minnk- | andi meðal launþega og eru þeir nú að einangrast í nokkrum fé- I lögum, þar sem þeir hafa komið | | ár sinni þannig fyrir borð, að réttindi félaganna er stórum skert. ÞAR SEM KOMMÚNISTAR STJÓRNA Þessi framkoma þeirra hér á landi er í nánu samræmi við verk kommúnista í öðrum lönd- um og þá einkum þeim löndum, sfem þeir stjórna. Þar eru verka- lýðssamtökin beinlínis notuð sem áróðúrstæki í þágu valdhafanna og fulltrúar verkalýðsfélaganna sem böðlar á meðlimi samtak- anna. Þar hafa því samtökin ver- ið leyst upp í þeirri mynd, sem þeim ber að vera enda býr al- menningur í hinum svo nefndu alþýðulýðveldum við meiri neyð og hörmungar heldur en þekkst hefur í heiminum um aldaraðir. Kommúnistar tala hér mikið um misrétti og auðvald, sem lifi á því að féfletta fátæka alþýðu. Allir vita þó, að hvergi í heim- inum eru kjör manna eins jöfn og hér á landi og er það vel. En í dýrðarríkjum kommúnista þar sem vinir alþýðunnar ráða, hefur myndast forréttindastért, sem situr yfir hlut almennings og er vernduð af löggjafanum og launamismunurinn svo mikill að ýmsir embættismenh ríkisins hafa 27föld laun miðað við verka menn og þar að auki nýtur for- réttindastéttin sérstakra hlunn- inda varðandi kaup á ýmsum vörum, enda sagði hinn nýlátni Stalín, átrúnaðargoð allra komrn- únista, árið 1934: „Það verður í eitt skipti fyrir öll að yfirvinna vöntunina á per- sónulegri ábyrgð Við vinnuna og útrýma jafnaðarfarganinu úr launakerfinu". AUKNAR FRAMFARIR Samkvæmt fyrirskipunum er- lendis frá, hafa kommúnistar lagt á það mikla áherzlu, að gera efnahagssamvinnu hinna frjálsu þjóða tortryggilega og sagt að Marshallhjálpin svonefnda, stefni að því að gera ísland að hjálendu Bandaríkjanna. Allir vita að efna hagsaðstoð sú, sem íslendingar háfa fengið er að mestu leyti ó- afturkræft framlag, sem beinlínis er lagt til uppbyggingar atvinnu- vegartna og sem hefur gert það kleift að ráðast í virkjanir Sogs og Laxár og byggingu Áburðar- og Sementsverksmiðjunnar. En með þessum framkvæmdum er lagður grUndvöllurinn undir stór- iðju í landinu, sem mun spára þjóðinni tugi milljóna í gjald- eyri árlega. Kommúnistar viðurkenna að vísu nauðsyn þessara fram- kvæmda, en segja að taka hefði átt fé að láni án þess að skýra það frekar hvar hefði átt að fá það lán. þeirri mynd er það var í tíð fýrr- verandi ríkisstjórnar, hefur verð- lag á mörgum vörum lækkað að miklum-mun, sem stafar af auk- inni samkeppni um innkaup og meira vöruval. Kommúnistar stjórna hér í bæ eins og kunnugt er, einu stóru | verzlunarfyrirtæki, það er að segja KRON og auglýsa með miklu yfirlæti „að KRON tryggi rétt verð og vörugæði". Það hef- ur þó komið í ljós, samkvæmt opinberum skýrslum, að verðlag er síst lægra á vörum í KRON heldur en í kaupmannaverzlun- ’ unum og samt berst þetta félag í bökkum þrátt fyrir mikla um- setningu og þau sérréttindi, sem því eru sköpuð með skattfríðind- um samvinnufélaganna. FRAMLAG SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Á þessu kjörtímabili, sem nú er að líða hefur Sjálfstæðismönn- j um tekiat að koma ýmsum þýð- , ingarmiklum málum í fram-! kvæmd. Tekizt hefur að koma á auknu jafnvægi á þjóðarbúskapinn og skapa aðstöðu til þess að reka j aðal atvinnuvegi þjóðarinnar j styrkja og hallalaust í meðal ár- ferði og með því hafða verið j sköpuð skilyrði fyrir því að forða ríkissjóði frá greiðsluhalla og af- létta höftum og gera verzlunina frjálsari, sem hefur leitt af sér lækkandi verð á ýmsum vöru- tegundum og aukið vöruval. Einnig hefur tekizt að útrýma atvinnuleysinu að mestu og kaup- geta almennings hefur aukizt nokkuð. Skilyrði til aukinnar útgerðar hafa verið bætt til mikilla muna með hinni nýju landhelgislínu, og hinar stórkostlegu fram- kvæmdir á sviði iðnaðar, sem nú eru í uppbyggingu, munu skapa meira öryggi fyrir varanlega at- vinnu og spara þjóðinni stórfé í erlendum gjaldeyri er stundir líða. • t En þó að margt hafi á unnizt eru þó verkefnin sem bíða hinn- ar dugmiklu íslenzku þjóðar ó- tæmandi. Landið er á margan hátt ríkt af náttúruauðæfum ef þau eru nýtt á réttan hátt til hagsbóta fyrir landslýðinn. 'I Þjóðin verður að halda áfram ótrauð á sinni framfarabraut og gæta þess að láta ekki ábyrgðar- lausa lýðskrumara er sagt hafa lýðræði og frelsi strið á hendur, glepja sig í baráttunni fyrir betri lífskjörum og glæsilegri framtíð. Á undanförnum árum hefur æska landsins í æ ríkari mæli skipað sér undir merki Sjálf- stæðisflokksins og berst nú ótrauðari en nokkru sinni fyrr fyrir framgangi Sjálfstæðis- stefnunnar, þeirrar stefnu, sem að allt líf íslenzku þjóð- arinnar hefur sannað, að er í mestu samræmi við eðli henn- ar og lífsbaráttu. KOMMUNISTAR OG VERÐLAGSEFTIRLITIÐ Kommúnistar hafa ráðist á ríkisstjórnina fyrir að leyfa of háa álagningu á ýmsar vörur hér- lendis. Sannara er þó, að síðan verðlagseftiriitið var afnUmið í Eiga kjarnorku- tilraunir sök á mannskæðum hvirf ilbyl jum ? NEW YORK, 18. júní: — Sterling Cole heitir formaður kjarnorku- málanefndar bandaríska þingsins. Hann hefir lýst yfir, að kjarn- orkutilraunum í Nevada verði hætt, ef á daginn komi, að sam- band sé milli þeirra og hinna skæðu hvirfilvinda, sem geisað hafa um mörg héruð landsins og valdið miklu tjóni á lífi og eign- um manna. Hafa hvirfilbyljir þessir þótt ískyggilega tíðir und- anfarið. ! Ef nokkurt samband reynist hér milli yrði tilraunavettvangur inn fluttur aftur til Eniwetok frá Nevada. Hjartanlega þakka ég öllum þeim mörgu, skyldum og vandalausum, sem á ýmsan hátt glöddu mig á 80 ára afmæli mínu 17. júní. Ásmundur Gestsson. Ég þakka innilega öllum þeim, sem auðsýndu mér vináttu og hlýhug á 70 ára afmæli mínu, og óska þeim alls hins bezta í framtíðinni. Marsibil Teitsdóttir, Mellandi, Hvammstanga. Ég flyt hér með öllum þeim, er heiðruðu mig 'með návist sinni á áttræðisafmæli, færðu mér gjafir og sýndu mér vináttu, innilegt þakklæti. Sérstaklega þakka ég ættingjum mínum, börnum og barnabörnum ættrækni þeirra og vináttu. Einnig þakka ég herra Högna Gunn- arssyni alla vináttu hans fyrr og síðar. Pétur Fr. Jónsson. Bifreið til sölu Éord Station vagn í topp Standi. — Verður til sýnis og sölu í dag við Leifsstyttuna kl. 2—6. Tilboð óskast á staðnum. Maðurinn minn ÞÓRÐUR MARKÚSSON lézt í sjúkrahúsi Hvítabandsins 17. þ. m. Fyrir hönd aðstandenda Guðríður Ágústa Jóhannsdóttir, Framnesveg 57. Hjartans þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við fráfall og jarðarför GUÐMUNDAR S. JÓNSSONAR Sveinseyri. Guðríður Guðmundsdóttir, börn og tengdabörn. Hjartanlega þökkum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför ÞURÍÐAR JÓNASDÓTTUR Reynimel 36. Aðstandendur. Innilegar þakkir til allra er sýndu okkur samúð og vinarhug við fráfall og jarðarför mannsins míns JÓNS EIRÍKSSONAR frá Krossi. Fyrir hönd vandamanna Guðbjörg Elíasdóttir. ^^^^^^g^^^^mm^mmmmammmmm^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm ■ Innilega þökkum við öllum, er sýndu okkur samúð og vinarhug vð andlát og útför mannsins míns og föður okkar, ÓLAFS SÆMUNDSSONAR sjómanns. Sérstaklega þökkum við Skipaútgerð Ríkisins og skip- verjum á Ms. Skjaldbreið. — Guð blessi ykkur öll. Jónína Hansdóttir og börn. Þökkum hjartanlega auðsýnda vináttu og samúð í veikindum og við útför STEINUNNAR ÞORLEIFSDÓTTUR frá Ásbúð. Vandamenn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.