Morgunblaðið - 30.06.1953, Qupperneq 5
Þriðjudagur 30. júní 1953
MORGUNBLAÐIÐ
5
700 ára afmæli Stokkhólms laðar
þúsui^dir ferðamanma tíl borgarinmar
ÞAÐ má með sanni segja, að
óþarft sé að laða ferðamenn til
Stokkhólms með skrumauglýs-
ingum, — þessarar gömlu og
fögru borgar með skógivöxnum
árbökkum, gömlum veitingahús-
um og nýjum hótelum. — í sum-
ar er haldið hátíðlegt 700 ára
afmæli hennar, og verður hún
því í sínu fegursta skarti.
Allir, sem hafa gaman að happ-
drætti og veðmálum, ættu að
halda til Stokkhólms í sumar.
Ókeypis er hægt að horfa á ýmiss
konar skemmtiatriði, allt frá
íþróttasýningum niður í dans-
leiki og söngskemmtanir Franks
Sinatra. Auk þess eru ýmiss kon
ar happdrætti og veðmál í sam-
bandi við þessi skemmtiatriði, og
geta þeir, sem heppnir eru, unn-
ið sænska Volvó-bifreið eða
ávísun á verzlanir í borginni, svo
að eitthvað sé nefnt. Þeir, sem
vilja, geta fengið lánaða báta til
að sigla um „þúsund eyja hafið“
við borgina, aðrir geta látið sýna
sér hana sér að kostnaðarlausu
o. s. frv.
STEINTORG —
BLÓMAVELLIR
Venjulegum steingráum torg-
um hefur verið breytt í angandi
blómavelli, verzlanirnar hafa ver
ið blómum skreyttar, fánar eru
á hverju strái og á hótelunum
eru sænskar fjölskyldur til þess,
að sem flestir útlendingarnir geti
séð, hvernig hinn feimni Stokk-
hólmsbúi skemmtir sér og nýtur
lífsins. Svo virðist einnig sem
óvenjumargt fallegra stúlkna sé
í Stokkhólmi um þessar mundir,
er vakið hafa eftirtekt ekki
óþekktari manna en Maurice
Chevaliers og Gregorys Pecks.
•—★—
HINS VEGAR benda sagnfræð-
íngar á, að fegurðin og fjörið í
Stokkhólmsborg sé alls ekki arf-
ur frá liðinni tíð. Stokkhólmur
var tiltölulega lítil og óþekkt
borg fyrir um 100 árum. Síðan
hefur íbúatala hennar sjöfaldast.
Var hún um 100 þúsund manna
borg árið 1856, en er nú komin
upp í 700 þús. Er borgin byggð
á ótal eyjum, sem tengdar eru
saman með stórum og smáum
brúm, og eru úthverfi borgarinn-
ar orðin hin fegurstu, ekki síður
en aðalborgin sjálf. Fyrr á tímum
var Stokkhólmur fræg fyrir það,
hversu skítug hún þótti. Voru
þá öll hreinlætistæki í megnasta
ólagi, hvert hverfið var öðru ljót-
ara o. s. frv. Nú er borgin hins
vegar álitin ein fegursta og hrein- (
asta höfuðborg heims, þótt sum
hverfin séu e. t. v. gamaldags og,
skorti ýmis nauðsynlegustu þæg-
indi. í Stokkhólmi eru engir betl-
arar né götusalar. Þar er almenn-
ingur vel klæddur og virðist hafa
nóg að bíta og brenna. Margir
eiga lítil einbýlishús í úthverf-
unum, þar sem þeir hafa ræktað
fallegan blómagarð og annast
hann af mikilli natni og um-
hyggju.
NYTIZKU BORG
Engar styrjaldir náðu til Stokk
ÖS kneifað í aldagemlum bjórkjöllurum
Ráðhús Stokkhólmsborgar
hólms fyrr á tímum, og rithöfund
ar og ferðamenn lögðu ekki held-
ur leið sína þangað, því að þeir
bjuggust svo sannarlega ekki við
neinum ævintýrum á‘ svo norð-
lægum slóðum. Og það var ekki
fyrr en með hinni miklu iðn-
byltingu, sem borgin tók að vaxa
að nokkru ráði.
Að tiltölu við íbúatölu eru
fleiri útvarpstæki í Stokkhólmi
en nolckurri annarri borg í
Evrópu, þar eru og fleiri símar
og bifreiðar en annars staðar. Þar
eru einnig nýjustu og fullkomn-
ustu neðanjarðarbrautirnar í
Evrópu, sem lokið var við að
smíða á síðasta ári, og má einnig
geta þess, að þar eru fullkomn-
ustu kjarnasprengjuskýlin, sem
til eru í heiminum. í sérhverju
hótelherbergi er sími, og biblíur
eru á hverju borði (þótt Stokk-
hólmsprestarnir kvarti oft og tíð-
um yfir léttúð fólksins og af-
skiptaleysi þess af trúmálum).
Sjúkrahúsin í borginni eru einnig
víðkunn og ekki má gleyma
barnaleikvöngunum, sem eru hin-
ir glæsilegustu og smekklegustu,
enda njóta þeir mikilla vinsælda
yngstu borgaranna. Eru þar alls
konar leikföng, bílar, flugvélar
og hvað það nú heitir allt saman;
fullkomnustu barnaleikvellir í
Evrópu eru í Stokkhólmi.
—★—
STOKKHÓLMUR er borg mikilla
andstæðna, og þurfum við ekki
annað en fara úr einhverju hinna
nýju hverfa í gamalt hverfi til
þess að komast að raun um það.
Getum við t. d. farið úr nýtízku-
legu 20. aldar hverfi í 16. aldar
hverfi, þar sem göturnar eru
þröngar, húsin gamaldags og
hrörleg og verzlanirnar ófull-
komnar. Og ef við viljum kom-
ast í snertingu við fortíðma,
finna ilminn frá þeim tíma, þeg-
ar borgin var á bernskuskeiði
sínu, skulum við fara niður í
einhvern ævaforna bjórkjallar-
ann og sitja þar um stund yfir
ölkrús.
DRAUMURINN SÁ SAMI
Stokkhólmur er hafnarborg og
ýmiss konar stríðsskip úr hinum
konunglega sænska flota sigla
fram hjá, þegar við sitjum í hótel
herbergjuhum okkar og hlust-
um á borgarysinn. — Sigla
þau þá fram hjá hinum æva-
fornu virkisveggjum hjá Skans-
ens, þar sem er eitt undarlegasta
safn- og sýnisgarðsvæði í öllum
heimi. Þar hafa sænskir sveita-
bæir verið reistir í fornum stíl,
kirkjur o. s. frv., og á hverju
kvöldi koma þangað ungir sem
gamlir til að dansa í þjóðbún-
ingum sínum eftir hljómfalli fiðl-
arans og nikkarans. Minnir þetta
mjög á forna tíð, ekki sízt gömlu
sveitalögin og þjóðbúningarnir,
— og enn er draumurinn um ást
og ævintýri hinn sami og áður.
Þannig er Stokkhólmsborg í
dag; full af glöðum og gáskafull-
um íbúum, sem taka á móti ferða
manninum opnum örmum og
bjóða hann velkominn af mikilli
og óvenjulegri gestrisni. — Þetta
er borg fortíðar og framtíðar, —
borg lífsgleði og mikilla mögu-
leika. Um það geta menn bezt
sannfærzt með því að heimsækja
hana á þessu 700 ára afmæli
hennar.
Frá Bæjarúigerð
Sænska óperan í Stokkhólmi
B.V. Ingólfur Arnarson landaði
18. þ.m. saltfiski, sem hér segir:
þorskur 113 tonn, ufsi 60 tonn
og 4 tonn af ísuðum fiski. Enn-
fremnr hafði skipið 15 tonn af
lýsi og 5,3 tonn af grút. Skipið
fór aftur á veiðar til Grænlands
21. þ.m.
Skúli Magnússon er í klössun
í Reykjavík.
Hallveig Fróðadóttir landaði
22. þ.m. 152 tonnum af ísuðum
karfa og 8 tonn af öðrum ísfiski.
Skipið fór á veiðar 26. þ.m.
Jón Þorláksson landaði salt-
fiski 15. og 16. þ.m., sem hér
segir: Þorskur 89 tonn, ufsi 10
tonn og 8 tonnum af ísuðum fiski.
Skipið hafði 7 tonn af lýsi og 7
tonn af grút. Það fór aftur á
veiðar 18. þ.m.
Þorsteinn Ingólfsson er í
Reykjavík.
Pétur Halldórsson landaði 15.
þ.m. saltfiski, sem hér segir:
Þorskur 124 tonn, ufsi 12 tonn og
ennfremur 4 tonnum af ísuðum
fiski. Þá hafði skipið 9 tonn af
lýsi. Skipið er nú í Reykjavik.
Jón Baldvinsson landaði 23.
þ.m. 138 tonnum af saltfiski og 3
tonnum af öðrum fiski. Þá hafði
skipið 8% tonn af lýsi, 6,6 tonn
af grút og 2514 tonn af mjöli.
í veiðiförinni hafði skipið land-
að 1300 kg. af ýsu á Þingeyri.
Skipið er í slipp í Reykjavík.
Þorkell máhi fór til Grænlands
miða 21. maL
S.L viku unnu 220 manns í fisk
verkunarstöðinni.
Góður
BARIMAVAGN
Silver Cross, til sölu. Upp-
lýsingar í síma 82117.
ftflótorhjoi
B.S.A., 3% ha., í mjög góðu
lagi til sölu. Uppl. í síma
81450 kl. 6—7 næstu tvo
daga. —
Vil kaupa lítinn
sumarbústað
eða skúr, byggðan úr timbri
belzt innréttaðann, sem gott
væri að flytja. Verð heima
ki. 8—9 e.h. næstu kvöld. •—
Jón Magnússon, stýrim.st. 9.
HERBERGR
Herbergi með innbyggðum
skápum og afnoti af baði, í
nýju húsi í Vesturbænum,
er til leigu nú þegar. Uppl.
í síma 5090 milli 2—4 í dag.
Vil kaupa 2—3 herbergja
óinnréttaða
ÍBÚD
í kjallara eða risi. Útborg-
un 25—30 þús. Tilboð merkt
„Húsnæði — 835“, ieggist
inn til Mbl. fyrir 5. -júlí.
TIL SÖLIJ
Austin vörubíi], model 1946
með nýuppgerðri vél, bíll-
inn i góðu standi. Uppl. í
Hraðfrystistöð Reykjavíkur
hjá verkstjóranum.
TIL SÖLIJ
notað baðker, ásamt blönd-
unartækjum. Einnig notað
timbur. Upplýsingar í sima
7133. —
LítiS EINBÝLISHÚS
eða 3ja herbergja íbúS, ósk
ast til kaups. Þarf ekki að
vera í góðu standi. Útborg-
un 40 þús. Tiiboð sendist
á afgr. Mbl., fyrir fimmtu-
dagskvöld, merkt: „Lítil í-
búð — 834“.
Barnarúm
Og
dýna
til sölu. Tækifærisverð. —
Hverfisgötu 63.
Tveir menn, vanir ails-kon-
ar bergborun og sprenging-
um, óska eftir VINNU
Meðmæii frá sænskri námu
fyrir hendi. Tiiboð ieggist
inn á afgr. blaðsins fyrir
næstkomandi föstudagskvöld
merkt: „Sprenging ■— 835“.
NECCI
saumavél
með zig-zag, til sölu. Uppl.
í síma 6659.
Sumar-
hústaðiijr
í Strætisvagnaleið óskast
til leigu í 1 til 2 mánuði. —
Uppl. í síúla 6230 eða 82Ó82
HERBERGI j
með sérinngangi og baði, eðat
lítil íbúð óskast til leigu. — |
Tilboð sendist afgr. Mbl., t
merkt: „840“. ^
Notaður
gélfdúkuur
til sölu ódýrt.
Vörubílastöðin ÞRÓTTUR
Se\ manna
bifreið
Dodge 1940 í mjög góðu á-
sigkomulagi, til söiu við
Nýlendugötu 21, sími 39Í7,
milli kl. 1—3 og 5—9.
TIL LEIGU
óskast 2—3 herbergi og eld-
hús. Húshjálp kæmi til
greina. Fyrirframgreiðsla.
Tilboð sendist Mbi. fyrir
miðvikudagskvöld, merkt:
„Reglusemi — 823“ eða
hringja í síma 81401.
2ja til 3ja herbergja
í B (JÐ
óskast til kaups eða leigu,
miiliiiðalaust. Tilb. sendist
afgr. Mbl. fyrir föstudag,
merkt: „Nú, eða í haust —
837“. —
Óska eftir
sendiferMiíl
miililiðalaust. Útborgun kr.
10 þús. Tilb. er greini teg-
und og aldur, sendist afgr.
Mbl., fyrir kl. 5 á fimmtu-
dag, merkt: „Bíll — 839“.
Haður éskasf
til eftirlitsstarfa við veiði-
ár í Árnessýslu um 4 mán-
aða tíma. Uppl. varðandi
starfið verða gefnar á Veiði
málaskrifstofunni, Tjarnar-
götu 10, Reykjavík.
STIiLKA
óskar eftir atvinnu. Heíur
gagnfræðapróf og vélritun-
arkunnáttu. Tilboð sendist
Mbl., fyrir fimmtudagskv.,
merkt: „727 — 827“.
I fjarvem minni
til júlíloka, gegnir Gunnar f
J. Cortes læknisstörfum mín
um. Víðtaistími er á mánu
dögum og fimmtudögum kl.
1—-2 og á þriðjudögum, mið
vikud. og föstud., kl. 4—5' á
Sóleyjargötu 5. Simi 3693.
Kristinn Björnsson, læknir
Nýtt í dlag a
Kvennærfatnaður frá ktv
16.50 stk. -— Pappírsdúkar.
Taft í mörgum litum. -—
Sængurveradamask, .. rósóttí
Léreft, 80, 90 og 140 crrt.
breitt. —-
DÍSAFOSS
Grettisg. 44. Simi 7698.
Hrærivél
Stór C.M.C. steinsteypn-
hrærivél til sölu. 11 cúb.fet,
ásamt tunnu og gálga. Vél-
in er mjög lítið notuð og veí
með farin. Þeir, sem befðu
hug á véiinni, sendi tilboð.
til afgr. blaðsins fyrir‘ 8.*
júlí, merkt: „Góð vél —
821“.—