Morgunblaðið - 30.06.1953, Side 6

Morgunblaðið - 30.06.1953, Side 6
MORGVNBLAÐÍÐ Þriðjudagur 30. júní 1953 6 Smásaga dagsins: Fimm krónur eftir Albert Lebrun. „ÞÚ bjargaðir mér frá drukkn- un, Colette. Ef þú hefðir ekki ver- ið nálæg og dregið mig upp úr, þegar ég missti fótanna á brúnni, þá . ii . ég mun aldrei gleyma því, hvað þú gerðir fyrir mig, og og þú skalt fá þín laun“. Colette gaut augunum feimnis- lega á Reynau gamla. Hún hafði verið þjónustustúlka hans i mörg ár og átti ekki gjöfum að venj- ast frá honum, því það var satt, sem sagt var um Reynau gamla. Hann var mesti nirfill. „Það er nú alveg óþarfi . . .“. En Reynau greip fram í fyrir henni: „Ég ætla að gefa þér eitt- hvað“. Um kvöldið kallaði hann hana inn í stofuna og brosti íbygginn. Svo tók hann upp veskið sitt og dró upp úr því fimmkrónu-seðil. „Hérna er gjöfin, sem ég lofaði þér. Þú getur keypt happdrætt- ismiða fyrir fimm krónur. — Farðu og kauptu þér hann á morgun, þá færðu kannske stóra vinninginn, 100.000 krónur, þeg- ar dregið verður næst“. Það var í fyrsta skipti í mörg ár, sém Reynau hafði auðsýnt slíkt örlæti. Þess vegna var hann mjög áhugasamur um, hvað yrði af þessum peningum. Á hverjum degi spurði hann Colette, hvort hún gætti þess ekki vel, að týna ekki miðanum. Hann spurði líka hvaða númer væri á honum. Colette sagði alltaf að miðinn væri vel geymdur í kistunni hennar og á honum væri talan 57575, og svo bætti hún við, að hún ynni áreiðanlega ekkert á hann. Lífið gekk sinn vana gang. — Colette sá um húsverkin og Reyn- au fór á hverjum degi til rak- arans. Ekki til að láta raka sig, heldur til að lesa dagblöðin . . . þá þurfti hann ekki að kaupa þau. Alltaf aðgætti hann nákvæm- lega númerin á vinningunum fyrst. Fyrstu dagana var enginn vinningur á númer 57575, en síð- asta daginn rak hann augun í stóra fyrirsögn: Stóri vinningur- inn, 100,000 krónur, kom á númer 57575. Reynau þaut upp af stólnum, rak upp óp og hentist út á göt- una. Þegar hann var nærri búinn að fella um köll fleiri manns, átt- aði hann sig og gekk hægt inn í skemmtigarðinn til að huga sig um. Var það viturlegt að segja Col- ette frá því, hvað hún hafði verið heppin? Hafði hún séð það sjálf í blaðinu? Hvað tók þá við? — Mundi hún fara frá honum? — Hverri hugsuninni af annarri skaut upp í huga hans. Að hugsa sér, að hún hafði unnið 100.000 krónur . . . cg það fyrir hans peningá. Öfundin ætlaði að gera út af við hann. Hann nefndi ekkert við Colette um heppni hennar. Heil vika leið. Hann hafði nánar gætur á henni, til að vita hvort nokkrar breyt- ingar hefðu orðið í fasi hennar, en varð einskis var. Hann fór að fá samvizkubit og honum datt aftur í hug að segja henni frá vinningnum, en svo kom hann sér ekki til þess, enda þótt yrði að sækja upphæðina innan þriggja mánaða. Reynau var orðinn sjúkur mað- ur. Hann hafði misst alla matar- lyst, og hann var alltaf eins og utan við sig. En morgun nokkurn, eftir nýja, svðfnlausa nótt, vissi hann hvað hann átti að gera. Hann bað Col- ette, að slátra feitustu hænunni, leggja nýreykt flesk á pönnuna og sjálfur fór hann niður í kjall- ara og sótti vínflösku, þá elztu og beztu, sem hann átti. Hann lét hana fá peninga til að kaupa kaffi og sykur og rjóma. Colette skildi hvorki upp né niður. Hún var ekki vön slíkri eyðslusemi frá hans hendi. Hann hlaut að vera genginn af göflunum, hugsaði hún. En hún átti eftir að verða enn meira undrandi. Henni var sagt að leggja á borð fyrir tvo og hún átti sjálf að sitja á stólnum á móti Renau. Hún leit skelkuð á hann, en hann brosti, setti stór- an kjötbita á diskinn hjá henni og hellti í glasið hennar. Colette var komin til ára sinna, bústin, einföld og allt annað en falleg. Hún átti eftir að undrast enn meira athæfi húsbónda síns. Reynau bauð upp á líkjör með kaffinu, enda þótt hann tæki það sárt, og svo sagði hann upp úr þurru: „Þannig er mál með vexti, að ég ætla að kvænast“. „Jæja, . . . húsbóndinn er líka fjörlegur og hress ennþá“. „Gott að heyra það Colette. Þá getum við gifzt . . við . . . tvö“. Þá var henni allri lokið. Hún varð svo hissa, að hún mátti varla mæla, en þó sagði hún já. Fyrst þurfti að ganga frá alls konar vottorðum og það þurfti að lýsa með þeim, en þrem vik- um síðar voru þau gift. Reynau var mjöð óþolinmóður, þegar þau sátu við kaffiborðið eftir vígsluna með hinum fáu kunningjum. Um leið og þeir voru komnir út úr dyrunum, spurði hann: „Colette, hvar geymir þú happdrættismiðann?" „Hvaða happdrættismiða?" „Happdrættismiðann, sem þú keyptir fyrir fimm krónurnar". Colette svaraði ekki, en hló vandræðalega. „Nú fimm krónurnar“, sagði hún. „Jú . . . já, menn vinna aldrei neitt í þessum happdrætt- um . . . og það er svo kalt á vet- urna . . . og spörum alltaf eldi- viðinn . . . “. „Nú . . . og hvað . . .?'* „Jú, ég keypti mér þess vegna hlýja ullarsokka fyrir fimm krón- urnar . . .“. Haraldur ÖSafxson, skipsfjóri, Lagarfossi: Nokkror hugleiðing- ur um ísufjöri Sóknarlýsing Vestfjarða Útgáfa, sem þarf að halda áfram. SUMARIÐ 1838 var það fyrir for- göngu Jónasar Hallgrímssonar að Kaupmannahafnardeild Bók- mentafélagsins kaus nefnd til þess að safna öllum fáanlegum skýrslum, fornum og nýum, er lýsi íslandi eða einstökum héruð- um þess, og undirbúa svo til prentunar nýa og nákvæma lýs- ingu á íslandi, er síðar yrði gef- in út á kostnað félagsins. Nefnd sú, er kosin var, sendi öllum sóknarprestum landsins bréf og fór þess á leit, að þeir sendu félaginu lýsingar á sókn- um sínum. En til þess að sam- ræmi yrði í þessum sóknarlýs- ingum um land allt, lét nefndin J bréfinu fylgja 70 spurningar, er prestar áttu að svara. Prestar brugðust svo vel við þessari málaleitan, að áður en tvö ár væriliðin höfðu félaginu bor- izt 116 sóknarlýsingar, og síðar bættust nokkrar við. Er það ís- lenzku prestastéttinni til sóma J hve vel hún brást við þessari i málaleitan. En Bókmentafélagið gaf aldrei út hina fyrirhuguðu íslandslýsingu og hafa handrit prestanna legið í skjalasafni þess fram að þessu. Að vísu hafa þau verið mikið notuð af ýmsum fræðimönnum, en fátt eitt hefir verið prentað af þeim. Nú hefir Samband vestfirzkra átthagafélaga ráðist í að gefa út sóknalýsíngarnar á Vestfjörðum og eru það tvær bækur, 18 og 20 arkir. Er í annarri sóknarlýsingar Barðastrandarsýslu, en í hinni sóknarlýsingar Isafjarðarsýslu og Strandasýslu. Ólafur prófessor Lárusson ritar formála og segir þar m. a.: „Félagið fékk lýsingar á öllum sóknum í Vestfjörðum nema tveimur, Kirkjubólssókn í Langadal og Staðarsókn í Stein- grímsfirði. ... Séra Þorsteinn Þórðarson i Gufudal sendi lýs- ingu á aðeins nokkrum hluta sóknar sirmar .. og er lýsing Gufudalssóknar .Þyi ekki ,íuU Að þessum eyðum fráteknum ná sóknalýsingarnar yfir Vestfirði alla. ... Þýí miður varð ekliert úr því að Jónas Haiigríiiissón ritaði hina 'fyrirhuguða íslands- lýsingu sína. ... En sá varð þó árangurinn af tillögum hans um landslýsingöna að vér eigum þetta merkiilega safn .soki alýs- inga, sem ella mundi aldrei hafa verið skráð(ar. í rauninn hefði átt að vera|búið að gefu þær út í heiíd siniý fýrir löngu“. Þetta er íiverju orði sánnára, og þess vegaa eiga vestfirzkir átt- hagafélögin, miklar þakkir skilið fjiir framták sitt. Er þetta for- dæmi, semi önnur átthagafélög æth að fylgja, og telja sér eflaust skyit að fylgja. En þá ber að gæta þtas, er márgir verða úígeíend- ur, að hafa allar bækurnar í sanjó broti og með svipuðu sniði, fvo að þær. myndi eina heildar- útgáfu af þessu merkilega rit- sbtni. Þessi útgáfa er og þannig, að vel getur hún verið til fyr- irmjndar, blátt áfram og iatlaús. Stefán Jónsson hefir teiknað táknræna mynd fyrir hverja sókn, en að öðru leyti eru ekki myndir í bókinni, enda erfitt að afla samtíðarmynda. Aftan við hvort hefti er ýtarleg nafnaskrá og eykur gildi útgáfunnar að mikl um mun. Það eru nú um 100 ár síðan sóknalýsingar þessar voru ritað- ar. Þær eru mjög mismunandi, eins og skiljanlegt er, þar sem um svo margra manna verk er að ræða, því ekki er sama hv.er á pennanum heldur. En allar eiga þær sammerkt í því, að þangað er að sækja ýmiskonar fróðleik, sem nú mundi að nokkru leyti gleymdur. Á það einkum við um þjóðlífslýsingar, en þó er og hitt Framh. á bls. 12 ÍSAFJÖRÐUR er höfuðborg Vestfjarða og stendur við Skutuls fjörð. Þar er bezta höfn á land- inu og þótt víðar væri leitað. Þessa ágætu höfn hefir náttúran sjálf skapað og mannshöndin ekki komið nærri. Þarna getur mikill fjöldi skipa legið í lífhöfn í hvaða vindátt sem er. Að vísu hafa verið byggðar bryggjur en þó af skornum skammti og er það allt og sumt sem gert hefir verið fyrir þessa góðu höfn. Ég man eftir fyrir rúmum 30 árum, eftir að mótor- bátar fóru að stækka í verstöðv- unum Hnífsdal og Bolungarvík og sjósókn var mikil, að oft heyrðist sagt að hleypt hefði verið á ísafjörð er veður var vont, þar var lífhöfn ef ekki var hægt að athafna sig á hinum höfnunum og svo er enn. DÝPKA ÞARF SUNDIN Nú erum við byrjaðir á seinni hluta aldar okkar og allt hefir farið hröðum skrefum stækkandi, ekki sízt skipin. ísafjarðarpollur- inn, eins og hann er kallaður, bíður óhaggaður eftir að veita skipunum örugga höfn, en það þýðir ekki að eiga góða höfn ef ekki er hægt að komast inn í hana. Á síðari árum hefir smátt og smátt grynnkað í sundunum i sem er innsiglingin á ísafjarðár- J höfn, að sama skapi hafa skipin stækkað, það gefur því auga leið j að við svo búið má ekki standa.! Það þarf að dýpka sundin j og breikka innsilginguna svo skip geíi farið þar inn án hafnsögumanns, ef veður haml- ar að hann komist út. Má í þessu sambandi minnast enska togar- ans er strandaði fyrir tveimur árum á norðurtanganum og nærri ‘ orðið 20 mönnum að bana, j nokkra faðma frá bæjardyrum hlýfra húsa sem standa við hina góðu lífhöfn. En þótt við nú sléþpúm þessu atviki sem mun J léttvægt fundið og fyrnist fljótt yfir, þá er velferð ísafjarðar- j kaupstáðar í veði ef ekki verður ráðið á þessu bót og það sem fyrst. Strandferðaskip t ríkisihs og þá ekki sízt skip Eimskipafélags ís- I lands sem hafa á seinni árum1 verið endurnýjuð og stækkuð og þar af leiðandi með meiri djúp- nstu én áður höfðu, verða að sæta sjávarföllum eins og í lok-1 uðum „Dokkum“ erlendis, þar sem hafnirnar eru byggðar inni í landi við fljót og ár, fylltarj uni flóð og opnar til innsiglinga en lokað um fjöru. Þessi líf- hofn stendur alltaf opín öllum skipum, ef aðeins væri gerður framangreindar bætur til þess að geta notað hana. DÝR BI® Mér hefir verið sagt að Eim- skipafélag íslands hafi lánað 300 þúsund krónur til hafnarmann- virkja á ísafirði, og hefði verið æskilegt að eitthvað af þeim pen- ingum hefði verið notað til dýpk- unar í sundunum, svo að skip félagsins gætu komist út og inn án þess að vera háð sjávarföll- um og spara með því tíma og peninga. Þetta viðrist sanngjarnt. í síðustu ferð M.s. Lagarfoss, varð skipið að bíða í 6 klukku- stundir til að geta komist inn, 6 !4 klst. fór í losun og lestun og 5V2 klst. bið til að komast út aftur. Á þessum 18 klst. fóru llVz klst. í bið. Skip félagsins kosta ca. 15—17 þúsund krónur á dag, hefir því Eimskipafélagið orðið að greiða milli 7—8 þúsund krónur fyrir að sltila 38 smálest- um af vörum og lesta 50 smálest- ir af fiskimjöli, getur svo hver sem vill reiknað út ágóða af því ferðalagi. Ég geri ekki ráð fyrir að Eimskipafélag íslands verði sérstaklega borið fyrir brjósti, en það eru fleiri skip en þau sem þuría að koma við á ísafirði. AÐRIR STAÐIR BETUR SETTIR Bolungarvík og Hnífsdalur eru verstöðvar sunnanverðu við ísa- fjarðardjúp.í þessa staði hefir ver ið fleygt milljónum króna til hafnarmannvirkja sem koma að litlum notum, að minnsta kosti til að ná í afurðir þeirra, saman- ber bryggjan á Völlum við Hnífs- dal, en á sama tíma er lífhöfn þessara staða látin gróa saman svo að innan skamms verður ekki hægt að hleypa inn á ísa- fjörð. Það er byrjað á nýrri lands- höfn, sem kallað er, á Rifi á Snæfellsnesi, þar eru tvö fiski- þorp, Ólafsvík og Sandur með samtals 700 íbúum. Ekki skal ég spyrna við fæti, að þessir stað- ir fái góða höfn og því síður að skip þau er sækja afurðir þang- að fái örugga höfn. En mikið þarf að gera, meira heldur en höfnina, til að þessir staðir geti notið hennar, en það er önnur saga. LJÚKA ÞARF FRAMKV ÆMDUM Á Patreksfirði er búið að gera höfn sem er engin höfn, að minnsta kosti ekki enn sem kom- ið er, í hana er búið að láta um 7—8 milljónir króna, geri ég ráð fyrir að meiri hluti þess fjár sé styrkur þess opinbera. Á Patreks firði eru 800 íbúar, 2 togarar og nokkrir trillubátar. Við að full- gera þessa höfn svo hún verði örugg stærri skipum geri ég ráð fyrir að þurfi annað eins fé og komið er. Inn í þessa hálfkláruðu höfn eru skipin heimtuð til af- greiðslu og gamla bryggján er látin ganga úr sér svo að hún er að verða óriothæf. í ós hafnar- innar hafa skip orðið fyrir botn- skaða og nú fyrir fáum dögum stóð annar togari Patreksfirðinga ! nærri á þurru um fjöru, við að komast inn í ósinh. Það er víða byrjað á framkvæmdum en ekk- ert klárað. ísafjörð byggja tæp 3000 manns þeir eiga tvo togara, marga stóra vélbáta og þar að auki fjöldá smábáta sem stunda fiskveiðar í Djúpinu á sumrin, einnig er þar talsverður iðnaður og er við bæt- ist útflutningur Bolungarvíkur, ■ Hnífsdals og Álftafjarðar er fer um ísafjörð þegar slæm veður- skilyrði eru á þeim stöðum. ísa- 1 fjörður var mikill athafnastaður og það er mín trú að hann eigi eftir að verða það aftur innan langs tíma ef vel er haldið á mál- unum. SANDDÆLUSKIPIÐ Mér dettúr í hug í sambandi við þessar hugleiðingar, hvort ekki væri leið að fá sanddælu- skip það er sementsverksmiðjan fyrirhugaða á Akranesi hefir fengið til landsins, fá það leigt fyrir sanngjarna leigu. Sagt er að það ætli að skila sements- verksmiðjunni skeljasandinum úr Faxaflóa á land fyrir kr. 20.00 smálestina, eða svo minnir mig að Jón Vestdal verlcfræðingur hafi sagt fyrir nokkru í blaða- grein. Skip þetta er alveg nýtt og hlýtur að hafa öll nýjustu tæki til dýpkunar, ekki síður á grunnu vatni en djúpu. Sandin- um mætti dæla upp i bugtina við sundin, því ekki veitti ísfirðing- um af að fá þar nokkurt athafna- svæði í framtíðinni. Framhald á bls. 12

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.