Morgunblaðið - 30.06.1953, Side 14
14
MORGVNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 30. júní 1953
rJLLIA GREER
SKÁLDSAGA EFTIR DOROTHEU CORNWELL
Framhaldssagan 43
kom konan aftur og í fylgd með
henni kona Mike. Kona Mike
sýndist allt öðruvísi innan dyra
en hún hafði sýnzt úti. Kannske
var það þessi síði, víði kjóll, sem
hún var í. Andlitið virtist breið-
ara og hún var syfjuleg í kring
um augun. Hún gekk á undan
inn í htla dagstofu hinum megin
við anddyrið. Enda þótt þar inni
væri hálfdimmt, sá frú Wester-
lund þó að húsgögnin þar inni
voru ný og veggirnir nýlega
klæddir veggfóðri. Þar voru
þægilegir stólar úr ljósum við
og græn gluggatjöld úr þunnu
silkiefni. Unga konan gaf henni
bendingu um að setjast og frú
Westerlund lét fallast niður á
djúpan legubekk með fatið í
keltunni.
„Mike hefur alltaf fallið vel
við grænt og brúnt“, sagði hún.
Unga konan svaraði kulda-
lega: „Við völdum þessa liti
saman“.
Frú Westerlund kom á óvart
þessi tónn og hún vissi varla
hvaðan á sig stóð veðrið. — Hún
vissi ekki einu sinni hvort hún
ætti að láta sér gremjast. Það
var eitthvað fráhrindandi og
kuldalegt í fasi stúlkunnar. —
Þetta stafaði ekki eingöngu af
mótþróa hinnar ungu brúðar yfir
hví að þurfa að taka á móti u.an-
aðkomandi persónu. Það var
ekki bara hinn algengi siður
amerískra stúlkna að líta tor-
tryggnisaugum á útlendan mann.
Það var eins og kona Mikes væri
hrædd við eitthvað og það var
eitthvað athugavert við þessa
hræðslu hennar.
Frú Westerlund sagði: „Og
þarna hafið þið svefnherbergið
á bak við þessar dyr. Það er á-
gætt. Ungt fólk á að fá að vera
út af fyrir sig“. Hún sá skyndi-
lega að eldri konan var horfin.
Kannske hafði hún bara verið
andi. Kannske hafði hún aðeins
ímyndað sér að hún sæi hana.
Frú Westerlund létti, þegar kona
Mikes kveikti ljós yfir legu-
bekknum. Hún rétti fram fatið
áður en unga konan var sezt.
„Ég tók með mér svolitla
köku. Hún er með rúsínum og
möndlum. Mike þykir hún svo
góð“.
Stúlkan tók fatið og setti það
til hliðar á lítið borð. Hún muldr-
aði eitthvað fyrir munni sér sem
átti víst að vera í þakkarskyni,
en andlit hennar varð ekki vit-
und blíðara. Það lá við að frú
Westerlund reiddist. Hver held-
ur hún eiginlega að ég sé? Ég er
ekki að biðja hana um neitt. —
Hún stóð á fætur, en þó hikaði
hún áður en hún kvaddi. Því
skyldi ég ekki spyrja hana bein-
línis, hvers vegna hún er andvíg
»nér?
En í stað þess heyrði hún sína
eigin rödd segja: „Jæja, ég verð
að fara. Viljið þér skila til Mikes,
að ég hafi komið og....“
Dyrnar opnuðust og Mike kom
inn. Frú Westerlund sneri sér
strax að honum og brosti, þegar
hann bauð hana velkomna með
mörgum fögrum orðum. Axlirn-
ar á honum eru alveg eins breið-
ar og sterkar og venjulega. En
augun hans eru þreytuleg. Það
er vegna þess að hann þarf að
< vinna í þessu húsi og þessu and-
> rúmslofti. Og vera samvistum
við þessa fölu og kuldalegu
stúlku. En hún er víst ekki sann-
gjörn, hugsaði hún með sjálfri
sér, þegar hún sá, hvernig þau
kysstust. Henni varð heldur
hlýrra í huga til þeirra beggja.
„Hvers vegna sagðir þú mér
ekki að hún væri hér, Júlía?“
Ílf tHi fflrtlíÍWMflitfHi}
stól aftur þrátt fyrir mótmæli
hennar. Hann settist á stólbrík-
ina og brosti til hennar. Frú
Westerlund brosti á móti, þegar
hann fór að tala við hana um
hitt og þetta, hvernig unnið
væri í verksmiðjunni og um
vandræði þau sem hefðu orðið
þar fyrir nokkrum dögum og
hvernig Nils væri orðinn þekkt-
ur meðal verkamannanna. Hún
svaraði spurningum hans skyldu
ræknislega og skeytti því ekki
að unga stúlkan tók ekki þátt í
' samræðunum nema með einsat-
| kvæðisorðum. Hún hafði aðeins
áhyggjur af Mike, sem gerði sér (
| allt far um að sýna henni hina
; fyllstu kurteisi.
I Hann lyfti horni af dúknum,
sem lá yfir kökunni og andaði að
sér ilminum af henni.
„Jæja, svo þú ætlar að reyna
að vinna mig frá Júlíu með kök-
unum þínum?“
Hann settist við hliðina á konu
sinni á legubekkinn og tók um
hönd hennar. Frú Westerlund
brosti til þeirra beggja. Hann er
ágætur, þó hann eigi þessa konu,
1 sem gerir sér allt of háar hug-
I myndir um sjálfa sig. Hún gaut
augunum til hennar og undraðist
það sem hún sá. Júlía horfði á
Mike eins og frá sér numin. Hún
hallaði sér upp að honum og úr
augum hennar skein hungur,
þrá, sem var miklu sterkari en
hún næði aðeins til holdsins.
Ég hef áður sér nýgiftar, ung-
ar konur með mönnum sínum,
hugsaði frú Westerlhnd, en þetta
er öðruvísi. Þetta er óeðlilegt. —
Næstum ógeðslegt. Hún snertir
á öxl hans eins og hún vilji festa
sig við hann. Ekki til að gefa
honum neitt, heldur til að þiggja.
Og að sjá augun í henni. Þau eru
falleg, já, eins og bláar marmara-
kúlur. Eins og augun í brúðu. —
Hörð og glerkennd. Þau endur-
spegla ljósi utan frá. Það kemur
ekkert skin að innan.
Loks stóð hún upp til að fara.
Mike gekk fram í anddyrið með
henni. Konan hans brosti kurteis
lega og rétti fram hendina, en
hún hreyfði sig ekki úr sporun-
um. Mike fylgdi henni alla leið
út að bílnum og spjallaði við
hana í glensi á meðan hún kom
bílnum af stað. En þegar hann
lyfti hendinni í kveðjuskyni,
fannst henni hann næstum vera
að kveðja sig fyrir fullt og allt.
Hún leit til baka inn í garðinn
um leið og hún ók fram hjá. Hún
sá a ðdyrnar lokuðust hægt á
eftir Mike þegar hann flýtti sér
inn aftur til konu sinnar.
Júlía sat á legubekknum þeg-
ar hann kom aftur inn í stofu
þeirra. Hún sagði ekkert þegar
hann tók fatið með sér að stóra
hægindastólnum og braut sér
bita af kökunni með mikilli vel-
lystingu.
„Þú verður að setjast á hnén
á mér, ef þig langar til að fá
bita“, sagði hann. Hún þagði, svo
hann bætti við: „Þér er óhætt að
treysta því að hún er góð“.
„Þú missir matarlystina fyrir
miðdegisverðinn“, sagði hún.
„Nei. Það geri ég ekki. Þú
veizt ekki hvað dagurinn hefur
verið erfiður hjá mér“.
„Var ég ókurteis?“ spurði hún
skyndilega. „Ég reyndi að vera
það ekki“.
„Ég veit það“, sagði hann.
„Ég hefði hvort eð er ekki ávítað
þig, þótt þú hefðir reynt að vera
ókurteis. Það er næstum óger-
andi að særa Hedvig“.
„Heldurðu það?“ sagði hún.
„Ég þarf ekki að útskýra það
aftur, að hún veit um afstöðu
okkar beggja til hjónabandsins.
Hún bíður eftir því að við kom-
um til hennar. Það er hin mikla
fegurð móður náttúrunnar — ó-
þrjótandi þolinmæðin".
Júlía sat hreyfingarlaus. „Eg
skil ekki, hvers vegna þú ert að
gera þér áhyggjur af....“
„Það er erfitt verk að hafa þig
í skóla“.
„Hvernig getur svona mann-
tegund nokkurn tímann orðið
þér einhvers virði?“ spurði hún.
BARfiMSSBdlf
^ STÚLKAN í TJÖRNINNI
Þýzkt ævintýri.
5.
Því næst lagði unga konan kambinn frá sér á tjarnar-
bakkinn. En þá heyrði hún mikinn nið niður í vatninu. Vatns
flöturinn ókyrrðist og öldu skolaði upp á bakkann, og hún
sogaði gullkambinn með sér niður í vatnið.
Að andartaki liðinu kom maður konunnar í ljós upp úr
vatninu. Hann sagði ekki eitt einasta orð, en horfði með
miklum harmi á konu sína. Allt í einu kom önnur alda, og
þá hvarf maðurinn. Vatnsflöturinn varð aftur spegilsléttur.
Konan fór þá heim til sín og var mjög harmþrungin. En þá
dreymdi hana aftur sömu konuna. Og morguninn eftir lagði
hún af stað til hennar og sagði henni hvernig farið hefði
fyrir sér.
Þá tók gamla konan upp hljóðpíu úr gulli og sagði henni
að bíða aftur þar til fullt tungl yrði. En þá skyldi hún leggja
leið sína aftur til tjarnarinnar. Hún ætti að setjast á tjarn-
arbakkann og leika fallegt lag á hljóðpípuna.
Konan gerði eins og gamla konan hafði fyrir mælt. Og þá
tók vatnið að ólga og í sömu andrá skaut manninum hennar
upp úr vatninu. í þetta skipti sást hann upp að mitti. Þegar
hann ætlaði að fara að breiða út faðminn móti konu sinni,
reið önnur alda yfir og hann hvarf í djúpið.
„Mér er lítil huggun í því að fá að sjá manninn minn“,
sagði konan og var mjög hrygg. „Hann hverfur alltaf aftur
í djúpið.“
Gamla konan fékk henni þá gullrokk, og sagði að hún
skyldi spinna fulla snældu á rokkinn á tjarnarbakkanum.
Hún gerði eins og gamla konan hafði sagt. Og innan lítillar
stundar skaut manninum hennar upp á bakkann. Hann greip
í hönd konu sinnar, en þau flýðu sem fætur toguðu frá tjörn
ínni. En þegar þau litu um öxl, og sáu að vatnið flæddi upp
á tjarnarbakkann, kallaði konan á gömlu konuna sér til
hjálpar. — Hún varð þá að froskamóður en maðurinn henn-
WttHHÍHtllHMttH ...................................
HÚSMÆÐUR!
Reynið KLINGRY
sjálfvirka þvottaduftið
Heildsölubirgðir:
)) MhMHNI i ÖLSEINI % öM
10 Blá Gillette blöð í
handhægum
GILLETTE
hylkjtim
\
Fljótari rakstur
fyrir sama verð!
Enn einu sinni býður Gillette
yður nýjung við raksturinn.
Nú eru það málmhylki með
10 óinnpökkuðum Bláum
Gillette blöðum, sem ávallt
eru tilbúin til notkunar. —
Hvert blað er olíuvarið með
nýrri Gillette aðferð. —
Gömlu blöðin verða
ekki lengur til óþæg-
inda. Notið bakhólfið
fyrxr þau. Þessi nýj-
ung kostar yður ekki eyri
meira en blöðin í gömlu um-
búðunum. j
Verð kr. 13.25.
Bláa Gillette blöðin
Höfum kaupanda |
■
að veitingastofu eða samkomuhúsi á góðum stað í bæn- :
um. — Sérverzlun kemur einnig til greina.
■
■
Nýja fasteignasalan j
Bankastræti 7, sími 1518 og kl. 7,30—8,30 e. h. 81540 :
KÚRENUR
í lausu, 28 lbs. í kassa, nýkomnar
Verðið mjög hagslælt
<L*(£<£ert ^JCriótjámson CJo. L.f.
Bezt að auglýsa í Morgunblaðinu
«1 (•« • • 1 1«! II ( ■ | * • > • • | )