Morgunblaðið - 15.09.1953, Síða 1
16 síður
Verður frú Pandit næsti
forseti A99sherjarþingsins
Taka Tyrkland, Nýja Sjáland og
Brasilía sæti í Oryggisráðinu ?
Daily IViétil segir:
Brezkir togaramenn heija stríðið
við Dawson með lækkuðu fiskverði
Einkaskeyti til Mbl. frá NTB-Renter.
NEW YORK, 14. sept. — Sennilegt þykir, að frú Pandit, systir
Pandits Nehrus og fulltrúi Indverja á þingi S. 1»., verði kjörin
forseti Allsherjarþingsins, þegar þingið kemur saman í þessari
viku. Aðalkeppinautur hennar verður Wan Waithayakon, fursti
frá Síam.
---------------------------------
En Dawson sagði aðeins: rrÞað gteður migr að
brezkar húsmæður geti fengið ódýrari fisk"
I»ARF 31 ATKVÆÐI
Líkur benda til, að öll brezku
samveldin (að Suður-Afríku
kannski undanskildu) styðji frú
Pandit. Þykir og sennilegt, að
Bandaríkin styðji frúna, þótt áð-
ur hafi heyrzt, að þau hygðust
styðja furstann. Sex Arabariki
styðja einnig frúna, Norðurlönd
og kommúnistaríkin. — Hins veg-
ar er óvíst um afstöðu Suður-
Ameríkuríkjanna • og ef þau
styðja furstann, getur baráttan
orðið allhörð, því að væntanleg-
ur forseti þarf að fá 31 atkvæði
minnst.
ÞRJÚ NÝ RÍKI í ÖRYGGISRÁÐ
Grikkland, Pakistan og Chile
hvérfa nú úr Öryggisráðinu. Eru
menn almennt þeirrar skoðunar,
að í stað Grikklands verði Tyrk-
land kosið í Öryggisráðið, Brasi- j
lía í stað Chile og Nýja-Sjáland
í stað Pakistans. Hins vegar þyk- I
ir víst, að Rússar vilji fá Tékkó-
slóvakiu eða Úkraníu í stað
Grikklands.
Malenkov
vaknar við
vondan draum
MOSKVU, 14. sept. — Nú hefur
verið hafin barátta um allt Rúss-
land, sem miðar að því, að auka
landbúnaðarframleiðsluna þar til
muna. Samkvæmt yfirlýsingum
Moskvaútvarpsins verða haldnir
fjöldafundir um allt ríkið til að
ræða hina nýju landbúnaðaráætl-
un stjórnarinnar og hafa bændur
almennt lofað stuðningi sínum
við hana.
•Á Gauragangur þessi stafar
af því, að Sovétstjórnin hefur
skyndilega vaknað við þann
vonda draum, að landbúnaðurinn
i Sovétríkjunum er hinn frum-
staeðasti, samyrkjubúskapurinn
hefur brugðizt, svo að framleiðsl-
an er einungis brot af því, sem
hinar fögru áætlanir gerðu ráð
fyrir. . NTB-Reuter
Allsherjarþingið
hefst í dag
NEW YORK, 14. sept.: — Á morg
un hefst 8. Allsherjarþing S. Þ.
hér í borg og er sennilegt að
geysilegur fjöldi deilumála verði
ræddur á þessu þingi; er áætlað
að nú liggi fyrir því um 70 mál.
Meðal þeirra mála, sem væntan-
lega verða rædd á þinginu, eru
Túnis- og Marokkodeilan, end-
urskoðun sáttmála S. Þ., svo að
nokkuð sé nefnt.
— NTB-Reuter.
Zhiíkov
meðal veizlugesta
MOSKVU, 14. sept.: — í dag hélt
Molotov utanríkisráðherra Sovét
j ríkjanna veizlu fyrir norður-
' kóresku sendinefndina, sem
stödd er í Moskvu til viðræðna
við ráðstjórnina.
Fjöldi gesta var þar saman
kominn, þ. á m. kínverski sendi- I
herrann í Moskvu og aðrir full-
trúar leppríkjanna.
• Meðal rússneskra ráðherra,
sem viðstaddir voru, var Bulgan-
in landvarnaráðherra og Zhukov,
! varalandvarnaráðherra. — Hefur
hans að engu verið getið í marga I
mánuði og vissi enginn utan Rúss 1
lands, hvar hann var niður kom-
inn. Voru menn farnir að hneigj-
ast að því, að hann hefði verið
hreinsaður, — en nú hefur kom-
ið í ljós, að svo er ekki.
— NTB-Reuter.
TRÍEST, 14. sept.: — Júgóslav-
neska fréttastofan Júgópress seg
ir í dag, að júgóslavneska stjórn-
in athugi nú tillögu ítala um
fimmvelda fund vegna Tríest-
deilunnar. — Er þar gert ráð
fyrir, að auk Itala og Júgóslava
taki Bretar, Frakkar og Banda-
ríkjamenn þátt í ráðstefnunni.
UNG OG FÖGUR
Ýmislegar sögur ganga um
orsök skilnaðarins og er ein sú,
að ungfrú nokkur, Vivian
Útlagakonungur og kona hans
Fatheini kominn
til Kairó
KAIRÓ, 14. sept: — Fyrrum ut-
anríkisráðherra Persa, Hussein
Fathemi, sem slapp undan keis-
arasinnum, þegar gagnbyltingin
var gerð, kom til Kairó í kvöld.
Fréttir þessa efnis eru þó ekki
staðfestar, en þær eru komnar
frá árciðanlegum heimildum.
— NTB-Reuter.
T LUNDÚNUM, 14. sept. —
Biskupinn af Kielce, Czes-
law Kaczmarek lýsti því yfir í
dag, að hann væri sekur um allt,
sem pólski kommúnistadómstóll-
inn í Varsjá hefur ákært hann
fyrir; hefur pólska fréttastofan
PAP sent tilkyriningu um „játn-
ingu“ þessa; biskupinn er ekki
sá eini, sem dreginn hefur verið
fyrir dómstólana í Varsjá, því að
þrír prestar og ein nunna, hafa
verið ákærð með honum.
^ Sakborningarnir hafa verið
ákærðir fyrir njósnir, áróður
og skemmdarstarfsemi. Segir og
í ákærunum, að þeir hafi falið
vopn í íbúðum sínum og smyglað
Pólverjum úr landi.
NTB-Reuter.
Constantinovitch, hafi komizt
upp á milli þeirra hjóna, hitti
útlagakonungurinn hana fyrir
skömmu í Biarritz, þar sem hann
hefur dvalizt um hríð.
9 ÁRA HJÓNABAND
Pétur útlagakonungur og
Alexandra Grikklandsprinsessa,
, hafa verið gift í 9 ár. — Eiga
þau 8 ára gamlan son, Alexander
að nafni, og verður hann send-
ur í skóla í Sviss, þangað til
skilnaðarmálið hefur verið út-
rætt.
SETTUR FRÁ AF TÍTÓ
Pétur, fyrrum konungur, er
þrítugur að aldri .hlaut mennt-
un sína í Cambridge-háskóla og
var í brezka flughernum í stríð-
inu. — Hann tók við konung-
dómi af föður sínum 1934, én
var settur frá völdum af Tító
1945.
í AÐALFORSÍÐUFRÉTT brezka
stórblaðsins Daily Mail er frá því
skýrt á laugardag, að Jack Vin-
cent formaður eins stærsta tog-
araeigendafélags Bretlands, Ross
Group of Grimsby, hafi lýst yfir
| allsherjar stríði við Dawson og
I tilkynnt, að félag hans muni selja
i þorskflök á 15 shillinga stónið
(1 stón er 6,35 kg) eða 150 shill-
inga kíttið (10 stón); er þetta
allmikil varðlækkun, því að und-
anfarið hefur stónið kostað 19
shillinga og 21 pence.
„LÆGRI EN DAWSON“
Þorskurinn verður því 4 pence
ódýrari lb. en verið hefur. —
Jack Vincent sagði þessu viðvíkj-
andi í viötali við Daily Mail:
„Það er trúa mín, að þetta nýja
verð okkar valdi þvi, að hvert
stón af fiski frá okkur verði 6
pence ódýrara en Dawson getur
boðið“.
EINN UM LÆKKUNINA
Ekki segir blaðið, að vitað sé
um aðra aðilja, sem lækkað hafa
verðið. — Ronald Turner, for-
maður Grimsby Fish Marchants
Association, sagði í viðtali við
blaðamann Daily Mail: „Ross
hefur mikið magn af fiski. Ég
veit ekki til, að neinn fiskkaup-
maður ætli að lækka fiskverðið
hjá sér. — Mitt eigið félag hyggst
selja áfram eins góðan fisk og
það getur á eins lágu verði og
unnt er“.
f SAMKEPPNI HVER VIÐ
ANNAN
Blaðið segir, að fiskkaupmenn
hafi sagt: „Hið nýja verð Ross-
félagsins er benlínis hlægilegt.
Okkur er með öllu óskiljanlegt,
hvernig félagið getur lækkað fisk
inn svo mjög. Það hlýtur að vera
undir það búið að tapa stórfé. —
Hefur þetta í för með sér, að
allir fisksalarnir verða að lækka
hjá sér fiskinn til að standast
samkeppnina við Ross, og Daw-
son veit vafalaust, á hvaða verði
hann getur selt sinn fisk“.
HVERS VEGNA EKKI FYRR?
Dawson hafði lítið að segja,
þegar hann heyrði um verð-
lækkun Rossfélagsins; hann
sagði aðeins: Hvers vegna
gátu þeir ekki gert þetta fyrr?
Það gleður mig, að brezkar
húsmæður geti fengið ódýrari
fisk“.
★ ★
Að lokum má geta þess, að
meðalverð hjá íslenzkum togur-
um í fyrra fyrir 10 stón (1 kít) af
fiski mun hafa verið milli 50—60
shillingar á móti 150 shillingum,
sem er hið nýja verð Ross í Lund-
únum nú. — Sést bezt af því,
hversu dreifingarkostnaður á
fiski er gífurlegur í Bretlandi.
Landsskjálftar
AÞENU, 14. sept: — Fréttir frá
Aþenu herma, að landskjálfta-
mælar þar í borg hafi í dag sýnt
ofboðslega landskjálftakippi, sem
virtust eiga upptok sín um 220
km. fyrir vestan borgina. Óvíst
er um tjón.
★ ★
PAPHOS, 14. sept.: — Miklir
landskjálftar urðu í dag í Paphos
borg og nágrenni hennar; þar
urðu gífurlegir landskjálftar í
síðustu viku sem kunnugt er. —
Allmiklar skemmdir urðu,' en
lítið manntjón. — Landskjálftarn
ir voru svo miklir um tíma, að
fólk gat séð jarðskorpuna færast
úr stað, eins og bylgjur hafsins.
★ ★
SUVA, 14. sept.: — í dag urðu
geysimiklir landskjálftar í Fiji-
eyjum í Suður-Kyrrahafi; jafn-
framt komu flóðbylgjur miklar
á land upp. — Þegar síðast frétt-
ist, var vitað um 2 menn, sem
farizt höfðu. — NTB-Reuter.
Vinnur 14 stundir
VATIKANIÐ. — Tilkynnt hefur
verið, að páfinn vinnu 14 stundir
á dag þrátt fyrir slæmt handar-
mein.
Færeyingar vilja stofna heinta-
varnarlið má Bretrnn
DANSKA BLAÐIÐ Information skýrir frá því fyrir skömmu, a'ð
Færeyingar vilji ekki setja á stofn heimavarnalið undir stjórn
Dana og reyni ekki að hylma yfir það, að þeir vilji heldur stofna
heimavarnarlið með Englendingum, ef til þess kæmi.
ÓTTAST VALD DANA ; stofna varnarlið með Bretum og
Upp á síðkastið hefur yfir- skírskota til hinnar góðu sam-
maður í danska sjóhernum, C. búðar, sem ríkti með þeim og
H. A. M'adsen að nafni, talað við Færeyingum í síðustu styrjöld.
eyjaskeggja og reynt að fá þá !
til að stofna heimavarnalið í MIKILL ÚTBÚNAÐUR
samráði við Dani, en ekki tekizt. I Danir hafa fiutt allmikið af
Mun ástæðan sú, að Færeyingar útbúnaði fyrir væntanlegt heima
óttast, að slíkt lið styrkti ein- varnalið til eyjanna, en ekki er
ungis aðstöðu Dana á eyjunum. útlit fyrir, að þess verði nem
Hinsvegar vilja Færeyingar þörf.
Utlagakóngunnn ætlar
að skilja við konu sína
BIARRITZ — Pétur fyrrum konungur í Júgóslavíu og drottning
hans Alexandra — fædd prinsessa af Grikklandi — hafa tilkynnt,
að þau hyggðust slíta samvistum.