Morgunblaðið - 18.09.1953, Page 1
16 sáður
40. árgangur 211. tbl. — Föstudagur 18. september 1953 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Markmið Sjdlfstæðismanna í byggingarmdlum:
Sem ílesfir bœjarbúar eignist íbúð fyrir fjölskyldu sína
Bæjarstjóra fagnar auknu
byggingarfrelsi og
afnámi fjárhagsráðs
. . J|. Ifc ■*» i'».
. 'SjfeJWí ' ’■* 5*»ví . ...J
FORSÆTISRÁÐUNEYTIÐ
tilkynnti eftirfarandi í gær-
kvöldi:
Forseti íslands hefur í dag
gefið út bréf, er kveður Al-
þingi til fundar fimmtudaginn
1. október n.k.
Fer þingsetningin fram að
lokinni guðsþjónustu í dóm-
kirkjunni, er hefst klukkan
13.30.
Nor&maður set-
ur heimsmet
1000 m hlaupi
ÓSLÓ, 17. sept.: — Audun
Boysen setti nýtt heimsmet í
1000 metra hlaupi á Bislet-
velli í kvöld. Hljóp hann
sprettinn á 2:20,4 mín. Belgíu-
maðurinn Roger Möns hljóp
á 2:20,9. |
Gamla heimsmetið átti Júgó
-Slafinn Young Wirth. Var
það 2:21,3 min. — NTB. I
BÆJARSTJÓRN Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í
gær ítarlega tillögu um húsnæðismál frá Gunnari Thor-
oddsen borgarstjóra og bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokks-
ins. Var þar lýst yfir ánægju með það fyrirheit hinnar nýju
ríkisstjórnar að stuðla að útvegun lánsf jár til umbóta í hús-
næðismálunum og auknu byggingarfrelsi. Jafnframt var
þv lýst yfir í tillögunni að bæjarstjórnin muni greiða fyrir
íbúðabyggingu einstaklinga og félaga í bænum með það
megin takmark fyrir augum að sem flestir bæjarbúar geti
búið í eigin íbúð. Vegna núverandi húsnæðisvandræða heim-
ilar bæjarstjórnin að gera nauðsynlegar ráðstafanir
til þess að greiða úr erfiðleikum þeirra, sem við
borð liggur að bornir verði út úr íbúðum sínum 1. okt. n. k.
Lækkun forvaxfa
LUNDÚNUM OG PARÍS, 17.
sept.: — Englands- og Frakk-
landsbanki hafa lækkað forvexti
úr 4% í 3,5%. Kom þessi ráðstöf-
un óvænt. Hugsa menn sér að
stuðla þannig að verðlækkun,
með því að iðnaður fái ódýrara
lánsfé. — Reuter-NTB.
Á kartöfluökrunum við Reykjavík vinna ungir sem gamlir að
færa björg í bú. Myndin er tekin í góða veðrinu á miðvikudaginn
tr mikill mannfjöldi notaði góða veðrið til að taka upp úr garði
sínum. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)
Beykvíkmgar munu taka upp
um 80 þús. poka af kartöflum
Leigugarðarnir eru nú um 140 hektarar.
UM ÞESSAR mundir stendur kartöfluuppskeran sem hæst hér í
Reykjavík. Hundruðum saman ganga bæjarbúar til uppskerustarfa
á kartöfluökrum, sem Reykjavíkurbær hefur lagt þeim til og ná
yfir rúmlega 140 hektara lands. Uppskeran verður fyrirsjáanlega
mjög mikil. — Að því er ræktunarráðunautur Reykjavíkurbæjar,
E. B. Malmquist, tjáði Mbl. í gær, þá munu Reykvíkingar fá upp
úr garðlöndum sínum í ár um 40.000 tunnur. Er það um 10.000—
15.000 tunnum meiri uppskera en búizt var við í vor, er lokið
var að setja niður í garðana.
Lögregla tveggja ríkja leitar
konu og þriggja barna
Einkaskeyti til Mbl. frá NTB-Reuter.
GENF, 17. sept. — Brezk og svissnesk lögregla leitar nú í ákafa
brezku konunnar Melindu MacLean, sem hvarf fyrir 5 dögum
ásamt þremur börnum sínum ungum. Þykir hvarf hennar ekki síð-
ur dularfullt en hvarf manns hennar, starfsmanns brezka utan-
ríkisráðuneytisins, 1951.
McCarthy
ástfanginn
NEW YORK, 17. sept. Joseph
McCarthy öldungadeildar-
maður ætlar að kvænast 43
ára gamalli stúlku frá Wis-
consin. Heitir hún Jean Kerr
og er einkaritari unnusta síns.
Stórblaðið New York Daily
Mirror segir frá þessu í dag.
Fylgir það sögu blaðsins, að
McCarthy hafi fyrir nokkrum
dögum dregið einbaug á fing-
t or unnustu sinni.
Ef miða ætti við það verð sem
framleiðendur fá nú fyrir kart-
öflupokann hjá kaupmönnum hér
í bænum, en það eru 120 krónur,
þá er kartöfluuppskera bæjarbúa
í ár um 960.000 króna virði.
Undanfarna daga hefur mikill
mannfjöldi verið við uppskeru-
störf í leigugörðunum, svo og í
görðum í erfðafestulöndum hér
við bæinn.
ALDREI MEIRI UPPSKERA
Önnur éins kartöfluuppskera
og nú er fyrirsjáanleg, hefur
ekki verið hér í Reykjavík, sagði
ræktunarráðunautur, en það eru
Framh. á bls. 12
ÞAR SÁST HÚN SEINAST <
Umsjónarmaður bifreiða-
geymslu í Lausanne ber, að hún
hafi skilið Chevrólettinn sinn
eftir fyrir 5 dögum og gengið
síðan í átt til járnbrautarstöðv-
arinnar. Fyrr um daginn tjáði
hún móður sinni, að hún mundi
skreppa í 5 daga heimsókn til
bæjar skammt frá Lausanne í
boði kunningja. Hafði hún af til-
viljun hitt hann á götu, en hann
boðið henni að heimsækja sig
og konu sína. Endilega áttu börn-
in að vera með.
ROBIN DULARFULLI
Enginn' veit, hver þessi maður
er, en Melinda kallaði hann
Robin og sagði, að hann hefði
unnið með manni sínum, þegar
hann starfaði í Kairó.
í morgun barst skeyti frá
Melindu til móður hennar,
þar sem hún segir, að heimkoma
sín geti dregizt. Lögreglan þyk-
ist hafa fært sönnur á, að skeyt-
ið hafi verið sent frá sama bæ
og konan ætlaði til, en lýsingu
á konu, sem afhenti það ber ekki
heim við útlit Melindu.
VAR HENNI RÆNT?
Lögreglumenn eru ráðþrota.
Helzt gera menn ráð fyrir, að
henni hafi verið rænt og muni
aldrei til hennar spyrjast frek-
ar en manns hennar. Séu þau
hjón bæði austan járntjalds.
Aðrir telja aftur á móti hugs-
anlegt, að Melinda dveljist enn
í Sviss og muni koma fram í dags
ins ljós innan skamms. Öllum
landamærum er gætt örugglega.
Dean var (ramseldur
fjendum sínum
SEOUL, 17. sept. — Tveir Kóreu
menn hafa viðurkennt að hafa
framselt bandaríska hershöfðingj
ann William Dean í hendur norð-
anhernum við Taejon í Suður-
Kóreu í ágúst 1950. Fengu þeir
50 dali fyrir viðvikið. — Dean
hefir verið skilað nýlega.
Reuter-NTB
Sipr fyrlr Adenauer
STRASSBORG, 17. sept. — Alls-
herjarnefnd Evrópuráðsins sam-
þykkti í dag einum rómi, að kalla
s'aman ráðstefnu níu ríkja að
ári til að fjalla um framtíð Saar-
héraðs. Telja kunnugir, að þetta
sé mikill sigur fyrir Vestur-
Þýzkaland.
TILLAGA SJALFSTÆÐIS-
MANNA
Tillaga borgarstjóra og bæjar-
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins er
svohljóðandi:
„Bæjarstjórn Reykjavíkur
lýsir ánægju sinni yfir þeirra
stefnuyfirlýsingu hinnar nýju
ríkisstjórnar að stuðla að
auknum íbúðabyggingum í
kaupstöðum og kauptúnum og
fyrirheitum hennar um áukið
lánsfé til þeirra framkvæmda.
Jafnframt heitir bæjar-
stjórn því,. að hún muni a£
sinni hálfu greiða fyrir íbúða
byggingum einstaklinga og
félaga í bænum, með það fyrir
augum, að sem flestir bæjar-
búar geti eignast íbúð fyrir
fjölskyldu sína.
AUKIÐ FRJÁLSRÆÐI
Bæjarstjórnin telur, að ekki
verði ráðin bót á húsnæðis-
vandræðunum í bænum með
öðrum betri hætti en þeim, að
gera sem flestum fært að eign-
ast íbúðir og væntir þess, að
verulega muni á vinnast í því
efni innan skamms með auknu
frjálsræði til íbúðabygginga.
Bæjarstjórnin telur nauðsyn
legt að hraðað verði sem mest
útvegun og úthlutun þeirra 16
millj. kr til smáíbúðalána, sem
síðasta Alþingi samþykkti.
Vegna núverandi húsnæðis-
vandræða heimilar bæjar-
stjórnin nauðsynlegar fjár-
greiðslur til að greiða fram
úr erfiðleikum þeirra, sem við
liggur að verði bernir út úr
íbúðum um og eftir þann 1.
okt. n. k.“.
KOMMÚNISTAR SÁTU HJÁ
Tillaga þessi var samþykkt með
samhljóða atkvæðum bæjarfull-
i trúa Sjálfstæðismanna, Alþýðu-
flokksins og Framsóknarflokks-
ins. En kommúnistar sýndu hug
sinni* til raunhæfra umbóta í
húsnæðismálum Reykvíkinga
með því, að sitja hjá, greiða ekki
atkvæði!! Flutti Guðmundur Vig-
fússon venjulega þvælu um það,
að allt of skammt væri gengið í
þessari tillögu!!
Kjarni málsins var auðvitað
sá, að kommúnistar höfðu ekkert
til málanna að leggja frekar en
fyrri da,ginn, þegar rætt er um
Framh. á bls. 2.