Morgunblaðið - 27.09.1953, Side 9
Sunnudagur 27. sept. 1953
MORGUNBLAÐIÐ
9
Reykjavíkurbréf:
Laugarcfagiir 26. september
Haustannir — Utanríkisverzlun — Alþýðuflokksformaður í liðs-
bón hjá kommúnistum — Fjöllin, fólkið og varnir landsins —
Fyrirspurn til Brynjólfs og Einars — Gagnleg reynsla
Haustar að
EITT hið sólbjartasta og hagstæð
asta sumar síðari ára hér á landi
er nú senn á þrotum. Haustsvip-
urinn er tekinn að færast yfir
landið. Ennþá hefur þó aðeins
slegið snjóföli á hæstu fjallatinda
og öræfi. En sjó er tekið að ó-
kyrra og brátt er allra veðra von.
Réttir og sláturtíð stendur nú
sem hæðst. í ýmsum héruðum
landsins er sauðfénaður á ný rek
inn til réttar eftir að fjárskipti
hafa farið fram, nýr og hraustur
fjárstofn fenginn í stað hins
mæðiveika sem skorinn var nið-
ur. Fjárskiptin hafa kostað mik-
ið fé. En vonir standa til þess að
jmeð þeim hafi verið sigrast á
skæðasta búfjársjúkdómi, sem
herjað hefur íslenzkan landbún-
að. Karakúlpestirnar hafa vald-
ið íslenzkri bændastétt og þjóð-
ínni í heild gífurlegu tjóni. En
Jþær hafa hvatt til aukinnar var-
færni í sóttvörnum. Það gáleysi,
sem réði innflutningi karakúl-
hrútanna á sínum tíma, mun
ekki endurtaka sig.
Útflutningur
til 30 landa
í NÝÚTKOMNUM hagtíðindum
er frá því skýrt að við íslending-
ar höfum á fyrstu 8 mánuðum
|>essa árs flutt út vörur til um
það bil 30 landa, fyrir rúmlega
385 millj. kr. Það iand, sem mest
hefur keypt af okkur á þessu
tímabili eru Bandaríkin. Þangað
hafa verið fluttar íslenzkar af-
Urðir fyrir 73,4 millj. kr. Næst
kemur Bretland, sem keypt hef-
ur vörur fyrir 52,8 millj. kr. og
þriðja í röðinni er Portugal sem
keypt hefur fyrir tæplega 35
jnillj. kr.
Þau 10 lönd önnur, sem mest
hafa keypt af okkur á umræddu
tímabili eru þessi:
Vestur-Þýzkaland, 28,2 millj.
kr., Austur-Þýzkaland, 25.3 millj.
kr., Spánn 22,2 millj. kr., Sviþjóð
17,6 millj. kr., Rússland 12,05
millj. kr., ísrael 11,2 millj. kr.,
Finnland 10,7 millj. kr., Ítalía
10,3 millj. kr., Brezkar nýlendur
I Afríku 10,3 millj. kr., og
J3razilía 9,8 millj. kr.
Stefna okkar fslendínga í
afurðasölumálum okkar er og
hefur jafnan verið sú, að
verzla við alla, sem við okkur
vilja kaupa. Og það hlýtur að
•verða takmark okkar fram-
vegis sem hingað til að afla
afurðum okkar markaða sem
víðast. Með þeim hætti sköp-
um við atvinnuvegu mokkar
«g þjóðinni í heild mest ör-
yggi um afkomu sína.
i
Báðu kommúnista
um vernd
í HINNI dæmalausu ræðu for-
manns Alþýðuflokksins, sem Al-
þýðublaðið skýrði frá s.l. fimmtu
dag greindi hann frá því, að Al-
þýðuflokkurinn hefði lýst sig
xeiðubúinn til þess að mynda
minnihlutastjórn með Framsókn-
arflokknum. En hann hafði einn-
ig gert meira. Hann „athugaði
möguleika á því að tryggja það,
að minnihlutastjórn Alþýðu-
flokksins og Framsóknarflokks-
ins fengi varizt vantrausti þeirra
flokka, sem hefðu viljað knýja
fram haustkosningar, ef hún yrði
mynduð. Gekk Alþýðuflokkur-
inn úr skugga um að þetta væri
unnt“.
Þessi ummæli hafði Alþýðu-
hlaðið eftir formanni flokksins.
Alþýðublaðið 24. sept. s.l.: „Næst athugaði Alþýðuflokkurinn möguleika á að tryggja það að minni-
hlutastjórn Alþýðuflokksins og Framsóknarflokk s:ns fengi varizt vantrausti þeirra flokka sem
hefðu viljað knýja fram haustkosningar, ef hún yrði mynduð. Gekk Alþýðuflokkurinn úr skugga
um, að þetta væri unnt.“ !!!
sem nú stendur yfir í heiminum.
Það eru þeir, sem bera ábyrgðina
á því að um þessar mundir
þruma fallbyssur á Atlantshaíi
og jafnvel inn til fjalla og dala x
nyrztu byggðum Vestfjarða.
í eyrum þessarar friðsömm
þjóðar er sá gnýr framandi. En
það er ekki hennar sök að hann
berst nú að ströndum hennar.
Engin fórn
ÞEGAIt flestar frjálsar þjóði*-
leggja fram ógrynni fjár til varma.
sinna og milljónir æskumanna
verja nokkrum árum ævi sinnar
í þágu landvarnanna, getur þaS
ekki talizt fórn af okkar hálfa
að leyfa bandalagsþjóðum okkar
þau afnot af óbyggðu svæði i
landi okkar, sem fyrr getur.
Kommúnistarnir sem halda uppi
árásum á stjórn landsins fyrir
þessa ráðstöfun gera það ekkF
vegna þess að þeir unni íslandi
meir, eða virði friðhelgi íslenzkr»
útnesja og fjalla meir en aðrir
íslendingar. Frumorsök ofsa
þeirra og ádeilna er þvert á móti
sú, að þeir hafa meiri áhuga á
því að greiða götu erlends hern-
aðarstórveldis til árása á ísland
og hinn frjálsa heim heldur e»
að treysta sjálfstæði og örygg*
íslenzks fólks. Það er þeim einsk-
is virði. Hlutverk þeirra er þaff
eitt að þjóna hagsmunum þeirra
kúgunarafla, sem steypt hafa
mannkyninu út í tryllt vígbún-
aðarkapphlaup.
Það er með þessu sannað,
að formaður Alþýðuflokksins
hefur gengið á fund leiðtoga
kommúnistaflokksins og beð-
ið þá að hjálpa fyrirhugaðri
ríkisstjórn Alþýðuflokksins
og Framsóknarflokksins til
þess að verjast vantrausti. Og
kommúnistar tóku vel í þessa
málaleitan og lofuðu því að
verða við henni.
Stendur á svari
ALÞÝÐUBLAÐIÐ hefur ekki
ennþá fengizt til að svara þeirri
fyrirspurn Morgunblaðsins,
hvort miðstjórn og þingflokkur
Alþýðuflokksins í heild, hafi
staðið að þessari liðsbón for-
mannsins til kommúnista. Allt
bendir hinsvegar til þess, að um
hana hafi aðeins hann og ónefnd-
ur prófessor, haft forystu. Er hér
um að ræða pólitízkt baktjalda-
makk við kommúnista af hálfu
Alþýðuflokksins ,sem vekja mun
hina mestu furðu meðal almenn-
ings, og þá einnig Alþýðuflokks-
manna. '
Hinn nýfallni Alþýðuflokks-
formaður tekur sig til og gengur
með samsærisfélaga sínum á
fund Brynjólfs Bjarnasonar og
Einars Olgeirssonar og biður þá
að blása lífsanda í nasir sam-
eiginlegri stjórn hans og Fram-
sóknarflokksins. Og Brynjólfur
og Einar sögðu já, að sögn Al-
þýðublaðsins og formanns Al-
þýðuflokksins!!! Allt strandaði
svo á vanþakklæti Framsóknar.
Hvað segja
Brynjólfur og Einar?
EN KOMMÚNISTAR hafa
ekki fengizt til þess að stað-
festa þessa frásögn. Er það
rétt að þeir hafi heitið ríkis-
stjórn tveggja „hernáms-
ílokka“ hlutleysi sínu? Þeirri
fyrirspurn er hér með beint
til Brynjólfs Bjarnasonar og
Einars Olgeirssonra. Og það
er nauðsynlegt að þeir gefi
sem allra fyrst skýr og ótví-
ræð svör við henni.
Fokið í skjól
fjarlægðarinnar
ÍSLENZKA þjóðin hefur lengst-
um ævi sinnar lifað einangruð
„langt frá öðrum löndum“. Fram
til síðustu tíma hefur hún þess-
vegna litið á fjarlægðirnar sem
skjól sitt og skjöld þegar óveður
styrjalda og mannvíga hafa geng-
ið yfir heiminn. Og enda þótt
aukin tækni og bættar samgöng-
ur hafi haft stórfelld lífsþægindi
í för með sér hefði hún þó gjarn-
an viljað njóta þessa skjóls
áfram. En þess hefur ekki verið
neinn kostur. Fyrir því fengu Is-
lendingar sönnun í síðustu heims
styrjöld. — Þá varð ísland einn
hernaðarlega mikilvægasti stað-
ur á norðurhveli jarðar. — Fót-
festa hér varð þá þeim þjóðúm
lífsnauðsynleg, sem börðust fyr-
ir frelsi og lýðræði gegn þeim
óheillaöflum, sem hrundu mann-
kyninu út í blóðugustu átök ver-
aldarsögunnar.
Síðan þetta gérðist hefur öllum
sæmilega vitibornum mönnum
orðið það ljóst að varnir íslands
voru ekki aðeins þýðingarmiklar
fyrir nágranna okkar, sem byggja
hin vestrænu lýðræðisríki, held-
ur og fyrir íslendinga sjálfa. Eft-
ir að ný einræðis- og ofbeldis-
stefna hafði hafið undirbúning
árásarstyrjaldar áttu hinar
frjáisu þjóðir ekki nema um
tvennt að velja:
Annað hvort að fljóta sofandi
að feigðarósi og bíða þess að
árásaraðiljanum þóknaðist að
gleypa þær, eða að efla með sér
samtök til varnar sjálfstæði sínu
og öryggi. Hinar vestrænu þjóð-
ir völdu síðari kostinn og íslend-
inga skorti ekki raunsæi til þess
að skilja að örlög þeirra og ná-
granna þeirra hlutu að véra sam-
eiginleg. Þessvegna samþykkti
yfirgnæfandi meirihluti þings og
þjóðar aðild Islands að varnar-
samtökum hinna vestrænu lýð-
ræðisþjóða.
Fjöllin, fólkið og
varnir landsins
Um þessar mundir hafa
þessi samtök efnt til heræf-
inga á norðanverðu Atlants-
hafi og í nágrenni við strend-
ur Islands. Hafa íslenzk stjórn
arvöld veitt leyfi til þess, að
nokkur hluti þeirra fari fram
á óbyggðu landssvæði nyrzt á
Vestfjörðum.
Kommúnistar hafa fengið
eitt af æðisköstum sínum
vegna þessara varnaræfinga
hinna vestrænu þjóða í ná-
munda við ísland og á hinu
óbyggða svæði. Hafa þeir
reynt að útmála þau „þjóð-
svik“, sem í því felizt að slík-
ur varnarviðbúnaður skuli
hafður í frammi á íslenzku
landi eða í námunda við það.
Allir Islendingar, allir frið-
samir menn í hinum vestræna
heimi hefðu áreiðanlega kosið að
hinar frjálsu þjóðir hefðu ekki
þurft að hefja vígbúnað að nýju
að lokinni síðustu styrjöld. Ef
þær hefðu ekki þurft þess hefðu
heræfingarnar sem nú standa yf-
ir á norðanverðu Atlantshafi
heldur ekki þurft að fara fram.
Þá hefði erlendur her heldur
ekki þurft að dveljazt á íslandi
í dag. En hin kommúniska of-
beldisstefna knúði lýðræðisþjóð-
ornar til varnarundirbúnings
síns. Hún knúði Islendinga til
þess að leita sér skjóls í samtök-
um þeirra þjóðá, sem þeim voru
skyldastar og standa vildu vörð
um sitt eigið frelsi og okkar
frelsi. Þáð eru þessvegna komm-
únistar, sem bera ábyrgðina á
því villta vígbúnaðarkapphlaupi,
Yfirgnæfandi meirihluti ís-
lenzku þjóðarinnar hefur nú öðl-
ast skilning á þessari staðreynd.
Þessvegna fer fylgi hins fjar-
stýrða flokks nú hrakandi með
hverjum deginum sem líður.
Gagnleg’ reynsla
REYNSLA Vestmannaeyinga af
„vinstri stjórn“ sinni, er aS
vissu leyti mjög gagnleg. Hún er
greinileg vísbending um það,
hvernig að samvinna hinna svo-
kölluðu „vinstri" flokka blessast,
þar sem þeir taka höndum sam-
an. í áratugi hafa þessir flokkar
sungið sama svanasönginn um
það, að þá fyrst væri hagsmun-
um almennings borgið er þeim
hefði verið falin völdin í landinu.
En reynsia Vestmannaeyinga, og
raunar ísfirðinga og Akurnes-
inga líka, frá þessu líðandi kjör-
tímabili sannar að „vinstri stjórn
in“, hefur ekki tryggt hagsmuni
fólksins. Hún hefur þvert á móti
haft í för með sér kyrrstöðu,
glundroða og upplausn. Nauð-
synlegar framkvæmdir hafa ver-
ið vanræktar. Og ekki nóg með
það. Það fólk, sem unnið hefur
undir stjórn „vinstri" valdhaf-
anna hefur ekki einu sinni feng-
ið laun sín hjá bæjarfélaginu
greidd. Það hefur orðið að leitá
til verkalýðssamtakanna og sam-
taka opinberra starfsmanna til
þess að knýja rétt sinn fram.
Þessa sögu þekkir alþjóð nú
frá Vestmannaeyjum, þar sem
kommúnistar, Alþýðuflokks-
menn og Framsóknarmenn hafa
farið með völdin tvö s.l. kjör-
tímabil.
Þessir flokkar koma nú til
Reykvíkinga og bjóða þeim
forystu sína. Hrindið meiri-
hlutastjórn Sjálfstæðisflokks-
ins og fáið okkur stjórn bæj-
armálanna, segja málgögn
þessara flokka. Svo blind er
oftrú þeirra á dómgreindar-
skort fólksins.