Morgunblaðið - 03.10.1953, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 03.10.1953, Qupperneq 8
MORGZJISBLAÐ10 Laugardagur 3. okt. 1953 Útg.: H.f. Arvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Stjórnmálaritstjéri: Sigurður Bjarnason fré Vigur. Lesbók: Árni Óla, sími 3045. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiSsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriítargjald kr. 20.00 á mánuði innanlands. í lausasölu 1 krónu eintaklð. í Heimskan á hástigi SENNILEGA hefur heimska kommúnista náð hástigi í þeirri fullyrðingu þeirra á síðasta bæj- 1 arstjórnarfundi að þátttaka ís-j lands í efnahagssamvinnu hinna vestrænu lýðræð’sþjóða hefði; torveldar byggingarframkvæmd- ( ir í landinu á undanförnum ár- um. í þessu sambandi er ástæða til þess að varpa fram þeirri spurn- ingu, hvað þátttaka íslands í efnahags samvinnu lýðræðisþjóð- anna hafi raunverulega þýtt fyr- ir þjóðina? Hún hefur í fyrsta lagi þýtt það, að íslendingar hafa fengið 630 millj. kr. í erlendum gjald- eyri, að langsamlega mestu leyti sem óafturkræft framlag eða beina gjöf. Hún hefur í öðru lagi þýtt það, að íslendingár hafa getað varið þessu fé til bygginga glæsi- legra mannvirkja i landi sínu og til kaupa á margvíslegum nauð- synjum. Hún þýðir, í þriðja lagi það, að þessi mannyirki munu bæta aðstöðu þjóðarinnar stórléga í starfi hennar og haráttu á kom- andi árum, skapa henni aukin lífsþægindi og vaxandi atvinnu- öryggi með fjölbreyttari fram- leiðsluháttum. Að sjálfsögðu leiðir það svo af hinum miklu framlögum í erlendum gjaldeyri, sem þjóð- in hefir fengið á vegum efna- hagssamvinnu hinna vestrænu þjóða, að hún hefur getað var- ið meira af eigin aflafé til al- mennra framkvæmda í landi sínu, svo sem til byggingar íbúðarhúsnæðis. Þetta þýðir þá, þátttaka ís- lands í efnahagssamvinnu lýð- ræðisþjóðanna. Allir heilvita menn sjá þess vegna, hversu óraf jarri sú staðbæfing komm- únista, sem getið var hér í upp hafi, er heilbrigðri skynsemi og sjálfum sannleikanum. Ol- afur Björnsson próf. rak líka þennan þvætting kommúnista rækilega ofan í bá á bæjarstj.- fundinum og sýndi fram á það með glöggum dæmum, hvílík forherðing heimskunnar og ofstækisins lægi til grundvall- ar henni. Um framkvæmdir okkar í hús- næðismálum undanfarin ár, er annars það að segja, að þjóðin hefur því miður ekki haft yfir nægilegu fjármagni að ráða, til þess að unnt væri að byggja nægilega mikið af nýjum íbúð- : ÚR DAGLEGA LÍFINU leg húsakynni í staðinn fyrir .hin gömlu og lélegu. Ungt fólk, sem 1 stofnar heimili, þarf einnig að geta fengið lán til byggingafram- kvæmda, án þess að binda sér þungan skuldabagga. sem sligar fjárhag þess um langan aldur. Að þessu umbctastarfi verða allir góðviljaðir menn, sem raun- verulega vilja framkvæmdir í húsnæðismálunum, að snúa sér með einbeittni og festu. í>að er ekki nóg að útmála vandræði fólksins, sem er húnæðislaust, eða býr í lélegu húsnæði. Það er ekki nóg að birta myndir af skúrum, herskálum og kumböldum og nota það til árása á þann stjórn- málaflokk, sem á raunhæfastan hátt hefur barizt fyrir umbót- um í húnæðismálunum. Slíkar baráttuaðferðir verða ekki því fólki að neinu liði, sem á við erfiðleikana að etja. Kjarni málsins er sá, að þeir sem vilja umbætur og fram- kvæmdir hljóta að vinna að þeim á raunhæfan hátt. Það hafa Sjálfstæðismenn, bæði á Alþingi og í bæjar- og sveitar- stjórnum, gert undanfarin ár. Og það munu þeir halda áfram að gera. Verða ný áfengislög samfiykkf H c— -A- Á ÖLLUM tímum hafa verið uppi ýmiss konar tízkufyrir- brigði. í Rómaborg hinni fornu dáðist almenningur t. d. svo mjög að gladíatorunum, að nálgaðist dýrkun, en þeir störfuðu að því mestan hluta ævinnar (sem venjulega hefur vafalaust verið stutt!) að drepa hvern annan með öllum þeim brögðum, sem þeir gátu upp á fundið. — Sem vera ber voru það vitanlega kon- urnar sem mest hrifust af þess- um fullhugum heimsveldisins, ( eins og sjá má á áletrunum, sem fundizt hafa í Pompeij; ein' þeirra hljóðar eitthvað á þessaj Oi --- OCý c^uíí leið: Stúlkurnar þrá Celadus gladíator. Ja-á, það hefði sann- arlega verið gaman að vera í hans sporum! ★ ★ ★ GLADÍATORARNIR voru af ýmsum stéttum hins forna rómverska þjóðfélags. Margir þeirra voru dæmdir afbrotamenn aðrir voru þrælar, sem höfðu verið látnir læra skylmingar. En VJU andi álripar: um yfir hin vaxandi fólksfjölda og til útrýmingar lélegu og heilsu spillandi húnæði. Þess vegna er margt fólk í dag húsnæðislaust eða býr í ófullkcmnum húsa- kynnum. Þetta á ekki aðeins við , hér í Reykjavík heldur og um allt J land, til sjávar og sveita. En undir forustu Sjálfstæðis- manna hefir verið unnið að því síðustu árin að veita auknu fjár- magni til umbóta í húnæðismál- um. Er óþarfi að rekja þær ráð- átafanir, sem gerðar hafa verið í þessu skyni. Það hefur oft verið gert áður. Mestu máli skipt- ir að haldið verði áfram að út- vega einstaklingum og félagasam tökum þeirra lánsfjármagn til þess að byggja ný, björt og vist- RÍKISSTJÓRNIN hefur nú á ný lagt fram á Alþingi frumvarp til nýrra ^fengislaga. Er það nær samhljóða frumvarpi því, sem lá fyrir síðasta þingi en var vísað frá með rökstuddri dagskrá í Efri deild með eins atkvæðis mun. Sú breyting ein hefur verið gerð á frumvarpinu, að niður er felld heimild sú, sem í því var til þess að leyfa bruggun öls, sem flestar menningarþjóðir telja sjálfsagt og stórum óskað- legra en sterkir drykkir. Var þó gert ráð fyrir að þjóðarat- kvæðagreiðsla skyldi fram fara um það, hvort það skyldi leyft. En dómsmálaráðherra, sem haft hefur mikilsverða forgöngu um endurskoðun þess óskapnað- ar, sem núgildandi áfengislög- gjöf vissulega er, virðist ekki vera trúaður á möguleika Al- þingis til þess að taka á þessum málum af viti og raunsæi. Þess vegna hefur hann nú fellt þetta ákvæði um ölið niður. ★ Trúlega hefur ráðherrann rétt fyrir sér í þessari van- trú. Alþingi hefur oft sýnt það undanfarin ár, að mann- dómur þess er takmarkaður þegar um er að ræða umbæt- ur á því ófremdarástandi, sem hér ríkir í áfengismálum. Það hefur látið sér nægja að fjasa um það, að „ástandið“ væri „alvarlegt“. Vonandi hafa -þingmenn kjark til þess að afgreiða þetta frumvarp með skapleg- um hætti svona „rétt eftír kosningar“. Um það skal þó ekkert fullyrt, hvort það tekst. Hitt er fullt eins líklegt, að enn verði látið nægja að; fjölyrða um hið „alvarlega ástand“ í áfengismálunum!! 1 Merk stofnun í niðurlægingu. UNGUR heimilisfaðir, sem heimsótti Náttúrugripasafn- ið fyrir nokkrum dögum ásamt tveimur börnum sínum, hefir ó- fagra sögu að segja. — „Tvíhöfð- aði kálfurinn, — segir hann — undralambið með fæturna upp úr herðakambinum, selur, sem þarna er á safninu — yfirleitt öll hærð dýr, sem á safninu eru — já, það er ótrúlegt en samt satt — en þau eru. öll meira og minna mölétin, sum, að heita má, bóksaflega upp étin og hrann ir af dauðum mölflugum liggj- andi í kringum þau. Vafalaust verður að kasta þeim innan skamms, sem fullkomlega ónýt- um sýningarmunum og er það mikill skaði skeður. Umsjónar- stúlka í safninu sagði mér, að reynt hefði verið að ráða niður- lögu'm mölsins en ekki tekizt — já, það var deginum ljósara. Hálftóm spíritus-glös. EN ÞAÐ er ekki nóg með það, að mölurinn sé í þann veg- inn að torga öllum hærðu dýr- unum. Mér kom óþægilega á ó- vart að sjá, hve spíritusinn á geymsluglösunum er af furðu- lega skornum skammti. Mörg þeirra eru hálftóm — sum al- tóm. Ýmiskonar dýr, smærri og stærri fóstur, sem þar eiga að varðveitast, standa hálf og heil upp úr spíritusnum — maður getur nærri með hvaða afleið- ingu. Ég gat ekki betur séð en hér sé um afleita vanhirðu að ræða, sem ekki má láta afskiptalausa, eða skýtur það ekki dálítið skökku við, að á sama tíma og bollaleggingar eru uppi á ten- ingnum um að byggja stórhýsi yfir íslenzkt náttúrugripasafn, skuli gripir þeir, sem þegar eru í eigu þess, vera á hraðri leið með að grotna niður til ónýtis fyrir vanrækslu og illa hirðu?“ Lýsingin á Austurvelli. OLLUM Reykvíkingum var.þáð gleðiefni, er ljósin komu |á Austurvöll. Nú þarf fólk eklii lengur að ráfa þar um í nætur- myrkri dapurt í huga yfir þva, að blómskrúðið allt skuli hulið sjónum þeirra. Auðvitað þurfum við ekkert að ganga að því gruflandi að sól og blómayndi eru á förum frá okkur í ár, en það er engu að síður þakkarvert að reykvísk bæjaryfirvöld skyldu drífa sig í þessa fram- kvæmd og gera þar með sitt til að lengja ofurlítið sumarið á Austurvelli, því að hverjum okk ar dettur ekki í hug sól og sum- ar, þegar við lítum litfagurt blóm jafnvel þó að það sé farið að fölna? Ýmsir hafa ýmislegt út á lýs- inguna að setja. Hún sé alltof áberandi, þ.e.a.s. ljósastengurn- ar, — ljósahjálmarnir einnig, séu með öfugu lagi, leiðslurnar yfir ganstéttirnar rekist stöðugt í tær vegfarenda o. s. frv. Nokkuð er til í þessu en það er samt ó- þarfi að vera að ónotast og illsk- ast yfir því. Sporið, sem hér hef- ir verið stigið míðar í rétta átt, þó að gera megi enn betur og það verður vafalaust gert í ná- inni framtíð. Jón forseti — og Alþingishúsið. EINNIG hefir verið komið fyrir kastljósum við styttu Jóns forseta á miðjum Austurvelli og fer einkar vel á því, það væri skemmtilegt að framhlið Alþing- ishússins yrði lýst upp á sama hátt. — Aðeins ein athugasemd í þessu sambandi. Mætti ekki koma ljósunum fyrir á jörðinni frekar en á ljósastöngum, sem eru óneitanlega frekar til óprýði. Víða í erlendum borgum er mikið um þesskonar flóðlýsingar og er Ijósunum jafnan komið fyrir á jörðinni þannig að ljósið kastast upp á við, en eru annars sjálf sára lítið áberandi. Frá Iandnámi Ingólfs. INGÓLFUR fór um várit ofan um Heiði. Hann tók sér bústað, þar sem öndvegissúlur hans höfðu á land komit. Hann bjó í Reykjavík. Þar eru enn öndvegis súlur hans í eldhúsi. En Ingólfur nam land milli Ölfusár og Hval- fjarðar fyrir utan Brynjudalsá, milli Öxarár, ok öll nes út. Þá mælti Karli: „Til ills fórum vér um góð héruð, er vér skulum byggja útnes þetta“. Hann hvarf á brott og ambátt með honum. Vífli gaf Ingólfur frelsi, ok bygði hann að Vífilstóftum, Við hann er kennt Vífilsfell. Þar bjó hann lengi ok var skilríkr maðr. Ingólfur lét gera skála á'Skála- felli. Þaðan sá hann reyki við Ölfusvatn og fann þar Karla. — (Landnámabók). _____—? Þvf, sem sink- ur saman dfeg ur kemur ó- mildur og eýð- ír. — flestir munu þeir þó hafa verið herteknir menn, er fluttir höfðu verið til Ítalíu. Einnig gerðust allmargir gladiatorar af frjáls- um og fúsum vilja; voru það einkum ævintýramenn, sem hugðust hagnast á að sýna fífl- dirfsku sína almenningi og heilla fagrar (og kannski áhrifamiklar) konur. Sumir þeirra voru jafn- vel höfðingjasynir úr Italíu, og þótti oftast nær mest til þeirra koma, eins og oft vill verða. ★ ★ ★ EN EINS og fyrr er sagt, var mestur hluti gladíatoranna herteknir menn og þrælar, sem þvingað var í þessa þokkalegu „atvinnu“. Voru þetta hreysti- menni mikil og óttuðust valda- menn mjög, að þeir gerðu upp- reisnartilraunir. Voru þeir því hafðir í stórum fangabúðum, þar sem strangur hervörður gætti þeirra vandlega og til marks um það, hversu hættulegir þeir þóttu fengu þeir ekki einu sinni að æfa sig með venjulgum vopnum, fengu einungis trésverð eða þ. 1. ★ ★ ★ SIGRAÐUR gladíator gat beðið um, að lífi sínu yrði þyrmt með því að rétta upp aðra höndina; var það þá komið und- ir lýðnum hverju sinni, hvort sú bón var veitt eða hann látinn ganga fyrir ætternisstapa. Ef hann hafði barizt af djörfung og fimleika og veitt lýðnum góða stundar skemmtun, var mjög sennilegt, að honum væri leyft að halda líftórunni — en ef ekki þá .. já, sleppum því. Annars var það keisarinn, sem gaf merki um, hvort gladíatorinn skyldi lifa eða ekki og fór hann þá alltaf eftir öskri og geðshræringu á- horfenda. ★ ★ Ár ÞEGAR Colosseum var vígt árið 80 var mikið um dýrðir í Rómaborg og til að gera hátíð- ina sem ógleymanlegasta voru gladíatorarnir látnir berjast þar upp á líf og dauða hvorki meira né minna en í 100 daga samfellt. Allan þann tíma var þar múgur og margmenni, enda komust þar fyrir í einu um 50 þúsund áhorf- endur. Er álitið, að þar hafi þá áttzt við 10 þúsund gladíatorar, þótt furðulegt sé og heldur lygi- legt. ★ EN KEISARARNIR létu ekki þar við sitja; fólkið vildi einnig njóta fegurðar og lista og voru því meðal annars settir upp gosbrunnar í Colosseum; lagði hinn unaðslegasta ilm og blóma- angan af gosbrunnum þessum og veitti kannski ekki af til, þess að vega eitthvað upp á móti daunin- um af gömlu blóði, hræjum villi- dýra og dauðum gladíatorum. Einnig skreyttu þeir svæðið allt dýrindis guíli, — enda var það löngum skoðun margra hinna fornu rómversku keisara, að blóð og gull ættu vel saman. — Sá húgsunarháttur hefur alltaf fylgt mannkyninu, þyí miður. WU >'-★■★’★ > linivfic ★ NEISTAR ★ Dgnríú ★ ★ ★ -4- Heyrið þér þjónn, það er ýldúlykt af steikinni. — Nú, jæja, ég skal strax opna gluggann.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.