Morgunblaðið - 06.12.1953, Blaðsíða 11
Sunnudagur 6. des. 1953
MORGUNBLAÐIÐ
11
Lelztu Lér páanlecj
óayrtLuömr:
IÍELENA IIUBINSTEIN
YARDLEY
GALA OF LONDON
MOUSON
REVLON
BREINING
FEMINA
SHULTON (OLD SPICE)
Ponds, Morny og Max Factor, væntanlegt | næstu viku
• Snyrtivöru-séríræðingur daglega í verzlununni •
Öll íáanleg ilmvötm Skrautvörus
Keykjavíkur Apóteki — Sími 82866
0<$x$x$x$x$><$x$x$x$x$x$x$x$x^$x$x$x$x$x$x$x3X$x$x$x$x$x$x$x$x$x$x$x$x$x$x$x$x$k$x$x$x$x$x$x$x$x$x$x$x$x$x$x$x$x$x$x$>$x$x$x$x$x$x$x$x$x$x$x$x$>
3x$x$x$x$x$x$x$x$^k$x$x$x^$x^<$x$x$x$x$x$><$x$x$x$x$x$x$x$x$x$x$x$k$<$^<^<$x$>^$x^$k$x$k$k$>4><$x$<$x$x$x$k$x$x$x$x$>$x$x$x$x$x$x$k$x^$x^<$>0
BRJÓSTAHALDARAR
MAGABELTI
KORSELETT
PE YSUF AT ALÍFSTYKKI
I
<$X$X$X^$X$X$X$X$><$X^$X$X$X$<$>3x$X$>3x$X$X$X$X$X$X$X$X$X$x$X$X$X$X$«$X$>$x$X$>^$X$X$X$X$X$X$X$X$><$X$X$X$X$X$X$X$X$$X$X$X$X$x$x$X$X$3x$X$«$
Drekkingarhylur og Brimarhólmur
Tíu dómsmálaþættir írá seytjándu, átjándu og nítjándu öld
Eftir Gils Guðmundsson
Fátt endurspeglar betur hugsunarhátt og menningu
liðinna tíma en mál þau, sem dómstólar hafa fengið til
meðferðar. Þar hirtast oft í glöggum svipmyndum eins
konar þverskurður aldarfarsins. Á það ekki aðeins við
um hin meiri háttar sakamál, heldur speglast tíðar-
andinn oft engu síður í málum, sem risin eru af litlu
tilefni.
Frásöguþættirnir í þcssari bók eiga allir sammerkt um
það, að þeir fjalla um mál, sem komið hafa til kasta
dómstólanna. Frásagnarefnin eru valin með tilliti til þess,
að þar gæti sem mestrar fjölbreytni. Sum málin voru
ekki stórvægileg í sjálfu sér, en við öðrum voru þau
viðurlög, sem nafn bókarinnar bendir til. Öll veita þessi
mál verulega innsýn í tíðaranda og hugsunarhátt lið-
inna alda. Og ýmsir þáttanna segja frá örlögum, sem
verða munu lesandanum lengi minnisstæð.
Drekkingarhylur og Brimarhólmur
er bók, sem fræðir og skemmtir í senn.
Jóuanará tcjáj^an
Skólavörðustíg 19 — Sími 2923
Iðö ára minning
sr« Einars á Hofi
á morgun
SR. EINAR var fæddur að
Stóra-Steinsvaði í Norðurmúla-
sýslu 7. des. 1853. Voru foreldrar
hans Jón b. Þorsteinsson og kona
hans Járngerður Eiríksdóttir. —
Skal ég ekki rekja ætt hans hér,
því að þess verður ærinn kostur
í hinu mikla riti hans sjálfs „Ætt-
um Austfirðinga“. En af því
kemur út fyrsta bindið á morgun
á 100. afmælisdegi höfundarins.
Sr. Einar útskrifaðist af Presta-
skólanum árið 1879 og vígðist þá
hið sama ár að Felli í Sléttuhlíð.
Árið 1885 var honum veittur
Miklibær í Blönduhiíð, en þar
var hann prestur til ársins 1889,
er hann fiuttist austur í átthaga
sína og gerðist prestur á Kirkju-
bæ í Hróarstungu. Var þar í 20
ár en tók þá við Desjarmýri í
Borgarfirði eystra og var þar til
ársins 1912, er hann varð prestur
á Hofi í Vopnafirði. Lausn frá
embætti fékk hann árið 1929 og
fiuttiðt þá til Reykjavíkur til
sonar síns Vigfúsar skrifstofu-
stjóra í stjórnarráðinu og lézt
tveim árum síðar. — Séra Einar
var prófastur í Norðurmúla pró-
fastsdæmi frá 1896. — Alþingis-
maður Norðmýlinga var hann
1893—1902 og árin 1911—14. Var
lengi formaður Pöntunarfélags
Fijótsdalshéraðs og í stjórnar-
nefnd Eiðaskóla. Á Búnaðarþing
var hann einnig kosinn.
Séra Einari var margt til lista
lagt. Lærdómsmaður var hann
mikill og eftirsóttur til að kenna
piltum latínu o. fl. undir skóla.
Meðal þeirra var Guðmundur
Finnbogason, sem mjög hefur
rómað kennslu hans og hæfi-
leika. Vigfúsi syni sínum kenndi
hann skólalærdóminn nær allan.
Vigfús sat aðeins í 6. bekk Lærða
skólans án þess þó að þurfa þess.
Með söngfróðustu mönnum lands
ins var sr. Einar talinn. Átti
píanó og lék á það. En slíkt þótti
merkileg nýlunda uppi í sveit á
Austurlandi í þá daga, sem geta
má nærri. — Læknisfróður var
hann, átti lyfjasafn og var mikið
sóttur til sjúklinga, og eigi að-
eins það, heldur mátti segja að
hann væri eins konar allsherjar
ráðunautur fólksins hvaða vanda
sem að höndum bar og hvar sem
til hans náðist. Og vel skildist
mönnum það, að honum héldist
lítt á fjármunum, því að þar var
hjálpsemin að verki. — Segja
mátti að likamlegt atgervi séra
Einars væri hinu andlega sam-
svarandi. Hann var hraustmenni
hið mesta, kraftajötunn og þó
liðugur — og lagtækur var hann
á allt er hann rétti hendi til. —
Þegar sr. Einar sat á þingi, var
honum það helzt til foráttu fund-
ið, að hann væri „of samvizku-
samur“. Gefur þetta öllum hlut-
aðeigendum sinn vitnisburð.
Það sem lengst mun halda uppi
nafni sr. Einars, verður þó fræði-
mannsstarf hans. Auk þess sem
hann ritaði nokkrar æviminn-
ingar merkra manna í tímarit,
samdi hann hið mikla rit, Ættir
Austfirðinga, sem áður er nefnt
Poul Salomonsen j
55 ára í dag
POUL SALOMONSEN, sem cr
mörgum íslendingum að góðu
kunnur, á 55 ára afmæli á morg-
un, 7. des.
Salomonsen kom oft hingað til
landsins i verzlunarerindum fyr-
ir stríð og eignaðist hér marga
vini.
Fyrir nær 30 árum varð ha.nn
hér víðfrægur fyrir frækniiegt
afrek, er hann sctti iíf sitt í hættu
og bjargaði sjómanni, Birni Ól-
afssyni, frá drukknun.
Vélskipið Poul, sem bar nafn
afmæiisbarnsins var á ferð til
Akureyrar og var sjór mjög úf*
inn út af Hellunni. Salomor.sen
stóð í náttmyrkrinu á þiifari
skipsins, er hásetinn datt fyrir
borð og hinn lágvaxni og hneilni
farþegi hikaði ekki andartak, en
kastaði sér fyrir borð og bjarg-
aði lífi Björns.
Árin liðu og heimsstyrjöldin
skall á. Múgsefjun, m.anngrimmd
og mannvonska náði hámarki
sinu og Salomonsen varð að fiýja
ættland sitt yfir til Svíþjóðar. —
Konan hans fór huldu höfði með
tvö mannvænieg börn þeirra’
hjóna, líkt og Helga Harðar Grím
kelssonar forðum. Loks tókst
henni að koma börnunum heilum.
á húfi yfir sundið til föður
þeirra. Þegar heimsstyrjöldinni
lauk sneru þau öll aftur.
Nýlega varð Salomonsen fyrir
þeirri miklu sorg að missa hina
ágætu konu sína frá tveimur upp
komnum og mannvænlegum
börnum og hefur sá sorgarat-
burður tekið mjög á hann. Lítið
hefur þó Salomonsen breytzt
síðan hann kastaði sér í sjóinn.
og bjargaði sjómanninum, samur
er svipurinn, hreinn og göfug-
mannlegur.
Margir munu verða til þcss að
senda Salomonsen kveðju sína á
þessum hátiðisdegi.
A. S.
Fyrirlesfur um fegr-
un og snyrflngu
ÞESSA dagana er stödd hér á
landi frú Gladys Griver, sem er
kvensnyrtifræðingur og persónu-
legur erindreki Helena Rubin-
stein. — Er það Ragnar Þórðar-
son h.f., sem hefur einkaumbcð
á silkisnyrtivörum Helena Rub-
enstein, er boðið hefur frú Grivcs
hingað til lands.
í gærdág hélt frúin fyrirlest-
ur um fegurð og snyrtingu á
Hótel Borg og var Gyllti salur-
inn fullskipaður námfúsum ís-
lenzkum konum, sem vildu fræð
ast um snyrtingu og allt sem að
henni lýíur.
★ Harðari herlög
Stokkhólmur. — Fregnir frá
Póliandi herma að refsingar á
herlögum hafi verið hækkaðar.
T. d. kostar það hermann 3 mán-
aða fangelsi komi hann 2 klst. of
seint úr fríi.
og nú er að byrja að koma út á
vegum Austfirðingafélagsins. Um
þessa útgáfu sjá þeir Benedikt
frá Hofteigi og Einar Bjarnason
endurskoðunarstjóri og ættfræð-
ingur. Er svo til ætlazt að ritið
komi út í 4 bindum af líkri stærð
og hið fyrsta.
Að lokum skal svo minnast
fjölskyldu séra Einars. — Kona
hans var Kristín dóttir sr. Jak-
obs Benediktssonar 'og systir
Jóns *Jakobssonar landsbókavarð-
ar, gáfuð kona og söngelsk. Börn.
þeirra voru, auk Vigfúsar, frú
Sigríður — þau eru bæði íátin.
Á lífi eru sr. Jakob prófastur á
Hofi og frú Ingigerður kona
Helga Tryggvasonar bóksala á
Langholtsveg 206 (s. 80.981). —•
Mun hún segja þá velkomna or
minnast vilja föður hennar á
morgun.
H. J.