Morgunblaðið - 09.12.1953, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 09.12.1953, Qupperneq 11
Miðvikudagur 9. des. 1953 MORGVNB LAÐIÐ 11 Athugasemd við blaða- grein um silungsrækt Hr. ritstjóri! HINN 4. þ. m. birtist grein í Al- þýðublaðinu um það að undir- búningur væri hafin að ræktun ísl. silungstegunda við hverahita á Suðvesturlandi. í»ar sem upp- lýsingar í nefndri grein eru ekki stílaðar af þekkingu, eða nægi- lega rannsökuðu máli, tel ég mér ekki óviðkomandi þó ég geri at- hugasemd þessu viðkomandi. Það er mörgum kunnugt að ég hef undanfarin ár rekið fiski- ræktunarstöð með lax og silung og hef því fengið nokkra reynslu þessu viðkomandi. Þótt hér sé kominn upp vísir að nýrri atvinnugrein, sem gefur góðar vonir um framtíðarmögu- leika, verður ekki gengið fram hjá þeirri staðreynd að við verð- um að styðjast við reynslu ann- arra þjóða, sem eru langt á veg komnar í þessum atvinnurekstri, og læra af þeim, bæði af því sem miður hefur farið og einnig það sem vel hefur reynzt. Það munu vera 70—80 ár síð- an byrjað var að rækta lax ætt- aðar fisktegundir í tjörnum, t.d. silung þ.e.a.s. fiskinum ekki sleppt úr tjörnunum, heldur fiskinum slátrað til matar þegar ákveðinni stærð var náð. Vatna- karpi hefur verið ræktaður um alda raðir til heimilisnotkunar, einkum þar sem klaustur hafa verið og þá sérstaklega í Kína. Af nágrannaþjóðum vorum eru Danir og Þjóðverjar lengst á veg komnir í ræktun silungs í tjörn- um (dammræktun). Útflutningur Dana nemur nú rúmum 30 millj. ísl. króna á ári. Það er alkunnugt að þróunar- tímabil atvinnugreina gefa mönn um aukna reynsiu hvað bezt hentar til arðvænlegrar afkomu -og öryggis. Þetta á ekki síður við um þessa starfsemi. Mér er ó- hætt að fullyrða að eftir reynslu tuga ára með mismunandi teg- undir silunga hefur svo nefndur regnbogasilungur verið valin öðr um tegundum fremur til rækt- unar í tjörnum, sérstaklega vegna greinilegra eiginleika, sem eru fyrst og fremst miklu meiri vaxt- arhraði en annarra silunga. Regnbogasilungur er ekki eins næmur fyrir sjúkdómum, en fisk urinn þarf að vera á takmörkuðu, litlu svæði í tjörnunum, auk þess sem mjög auðvelt er að fóðra fiskinn. Ræktunartímabil Dana með silung er nú orðið 70 ár, og er nú svo komið að útflutningur þeirra er nær eingöngu regn- bogasilungur, þrátt fyrir það að völ hefur verið á að rækta aðrar | tegundir. Að fenginni reynslu Dana, álít ég að við getum haft mikið gagn, og notfært okkur þeirra margra ára reynslu. í nefndri grein í Alþýðublað- inu er skýrt frá því að hafin sé undirbúningur við ræktun bleikju úr Mývatni til útflutn- ings. Það er mjög virðingarvert þegar menn hafa framtakssemi og áræði til þess að ryðja nýjar brautir í atvinnuháttum. En þess verða menn að gæta vel, að fara varlega þegar um nýungar er að ræða og engin reynsla fyrir hendi, auk þess sem slíkt kostar mikið fé. Það er vægast sagt mjög varhugavert þegar menn eru hvattir til slíkra fram- kvæmda, án nokkurrar reynslu um ræktun til útflutnings á ís- lenzkum silungstegundum. í tilefni nefndrar greinar vil ég leyfa mér að gefa upplýsingar um þá reynslu, sem fengizt hef- m* í lax- og silungsræktunarstöð minni síðastliðin þrjú ár. Vorið 1951 voru sett í fiskrækt unarstöðina regnbogasilungs- seyði (pokaseyði). Þegar fiskur- inn hafði verið fóðraður 16—18 mán. hafði mestur hluti hans náð þeirri stærð að vera útflutn- ingshæfur, ea 200 gr. að þyngd. Hitastig vatnsins var að jafnaði 10—13 stig cel. að sumrinu, en að vetrinum 5—7 hitastig. Heitu vatni heíur ekki verið blandað saman við vatnið, sem rennur í tjarnirnar, en eingöngu verið notað gott lækjarvatn. Síðastliðið sumar var gerð til- raun með uppeldi í kössum á góðum bleikjuseyðum (poka- seyði) úr Þingvallavatni. Árang- ur þessarar tilraunar varð sá, að bleikjuseyðin ísl. stækkuðu mjög lítið þegar gerður var saman- burður á þeim og regnbogasil- ungnum. Þó vil ég geta þess, að vöxtur ísl. bleikjunnar var mjög líkur því sem almennt gerist á Norður- löndum þegar alin eru upp seyði úr villtum fiskstofni, til þess að sleppa í vötnin aftur. Ennfremur vil ég geta þess að ísl. bleikja hefur verið höfð í til- raunaskyni í tjörnum eitt ár, og gerð tilraun með fóðrun. Árang- ur varð mjög slæmur og drápust 95% af fiskinum á þessu eina ári. Sjúkdómseinkenni sáust engin á fiskinum, en dauðaorsökin mun hafa verið sú, að fiskurinn vildi ekki taka fóður. Sú reynsla, sem fengin er bæði hér og erlendis bendir ótvírætt til þess, að mjög varhugavert er að byrja á sil- ungsræktun í tjörnum með fisk- tegundir,sem ekki hafa áður ver- ið reyndar. Vegna þeirrar staðhæfingar í Alþýðublaðsgreininni, að ekki sé annar ísl. silungur kominn í tjarnir en Þingvallasilungur, skal það tekið fram að ég hef engan ísl. silung í tjörnum, og mun ekki eyða tíma né heldur fé í slíkar tilraunir, enda ekki þörf á því þar sem örugg reynsla er fengin fyrir því að ræktun regnbogasilungs er að öllu leýti heppilegust. Greinarhöfundur gefur einnig upplýsingar um hvaða stærðir á fisktjörnum séu beztar, og telur hann algengt að hafa þær 20 m langar og 3—5 m breiðar. Algeng ast mun nú vera að fiskitjarnir séu 40 m langar og 7—8 m breið- ar, og hefur margra ára reynsla sýnt að sú stærð er að öllu leyti heppilegust. Greinarhöfundur telur Mý- vatnsbleikjuna hafa þann stóra kost, hversu ljúffeng hún sé, og mun það rétt vera. Það er al- kunnugt að bragðgæði fisks til matar er háð æti sem fiskurinn nærist af. Það er mjög sennilegt, að bleikja, sem kynni að vera tekin úr Mývatni, og alin upp annars staðar við allt önnur Hfs- skilyrði og aðra næringu (fóðr- un), myndi gjörsamlega missa sína upprunalegu eiginleika. Hið sama myndi verða, ef fiskur yrði tekin úr öðrum vötnum á land- inu til ræktunar af villtum fisk- stofni. Að síðustu vil ég segja þetta: Það er mjög áríðandi fyrir þá, sem hafa hugsað sér að byrja á silungsræktun að fara gætilega. Það eru mörg atriði, sem athuga þarf gaumgæfilega áður en haf- ist er handa, auk þess kostar öll byrjun mikið fé, og sérstaklega, ef ekki er rétt að farið. Það er sorgleg tilhugsun, ef mikil mistök ættu sér stað í byrj- un með nýja atvinnugrein, sem að fenginni reynslu hér bendir ótvírætt til þess að á hér fram- tíðarmögulóika, og sennilega meiri möguleika en menn gera sér almennt grein fyrir. Auk þess ^kapa óhöppin alltaf tor- tryggni í byrjun, en slíkt ber að sjálfsögðu að varast. Ef þeir, sem hafa hugsað sér að byrja á þessari atvinnugrein vildu fá upplýsingar að fenginni reynslu hjá mér, munu fúslega verða veittar þær, ef þess er ósk- að. — Laxalóni, 7. desember, 1953. Skúli Pálsson. Trípóiibíó: STÚLKURNAR FRÁ VÍN. HINN gamalkunni þýzki kvik- myndaleikari, Willi Forst, hefur samið handritið að þessari mynd og annast leikstjórnina og auk þess fer hann með aðalhlutverk- ið. — Hljómlistin i myndinni er eftir Johan Strauss, Carl Michael Ziehrer og John Philip Sousa, höfund að „Stars and Stripes“. Það er ekki rétt sem segir í efnisskránni, að myndin sé gerð um valsakonginn Johan Strauss, heldur fjallar hún aðallega um austurríska tónskáldið C. M. Ziehrer (1843—1922), er var hljómsveitarstjóri í her keisar- ans og síðar eftirmaður Johans Strauss sem hirð-hljómsveitar- stjóri í Vinarborg. Hann samdi fjölda vinsælla valsa og margar óperettur, svo sem „Die Land- streicher", „Ein tolles Mádchen“ o. fl. hefur verið kallaður síð- asta tónskáld vínarvalsanna. Myndin ber á sér augljóst hand bragð Willi Forsts. Hún er létt og glaðvær, þrungin sönggleði og óperettu stemmingu eins og margar myndir hans fyrir daga nazismans. Hún endar að vísu nokkuð kjánalega, en er að öðru leyti mjög skemmtileg. Willi Forst leikur tónskáldið C. M. Ziehrer, prýðisvel, af ör- uggri smekkvísi og mikilli tækni eins og honum er lagið. Stúlk- urnar frá Vín, — dætur Munks, hirðráðs, — leika þær Dora Kom- ar, Vera Scmid og Hilde Föde. Allar eru þær fríðar sýnum og leikUr þeirra og söngur er með ágætum. Beztur er þó leikur Dora Komar’s, í hlutverki Mitzi, er verður eiginkona tónskálds- ins. Myndin er í litum, búningarn- ir hinir glæsilegustu og tónlistin nýtur sín einkar vel. Hafnarbíó: ,HARVEY“. MYND þessi er byggð á gaman- leiknum „Harvey" eftir ameríska rithöfundinn Mary Chase, en Þjóðleikhúsið sýnir leikinn um þessar mundir sem kunnugt er. — „Harvey“ er bráðfyndin og skemmtileg mynd og snilldar- lega á svið sett af Henry Koster. Aðalhlutverkin, Elwood Dowd og systur hans, frú Simmons, leika þau James Stuart og Josep- hine Hull. James Stuart hefur lengi verið í allra fremstu röð amerískra kvikmyndaleikara, enda bregst | honum sjaldan góður leikur. I hlutverki Dowds er leikur hans frábær og gerfi hans og látbra^ð allt í fullkomnu samræmi við hið andlega ástand persónunnar. Hann er alúðlegur í framkomu, nokkuð hirðuleysilega til fara, örlítið „mjúkur“ og svipurinn ber vott um nokkurn sljóleika. Josephine Hull fer einnig ágæt lega með hlutverk sitt. Frú Sim- mons verður ekki nein hefðar- frú í höndum hennar, hvorki að útliti eða framkomu, enda hefur hún öðru að sinna, en að gæta virðuleikans eins og högum hennar er háttað í sambúðinni við Elwood og vin hans, Harvey, hina ósýnilegu kanínu. En hún er því eðlilegri og sannari í öng- um sínum og taugaóstyrk út af meðferð þeirri, er hún verður fyrir á geðveikrahælinu. Aðrir leikendur fara einnig mjög vel með hlutverk sín. Mynd þessi hefur verið sýnd hér áður, en þó efa ég ekki að hún verður mikið sótt að þessu sinni, því að hún er með betri gamanmyndum, sem hér hafa verið sýndar um langt skeið. Ego. A BEZT AÐ AUGLÝSA J. ▼ / MOBGUWiLAÐINV “ Skip, sem mætast á BÆKUR og konur er það tvennt, ‘ sem ég treysti mér einna sízt, án að vera á þessari jörðu. Og ' eitthvað er raunar svipað með þeim ef að er gáð. Báðum fer mæta vel smekklegur búningur og laglegar kápur. Báðar eiga til heillandi töfra, léttan gáska, ljúfan hlátur, en einnig djúpa alvöru og þyngstu harma. En báðum er það einnig sameigin- legt að vera ekki allar þar sem þær eru séðar, hvort heldur er í glugga eða á götu úti. Þess- vegna getur við báðar átt hið forna orð, að ..oft er flagð undir fögru skinni." Og því skyldi mað- ur hvoruga velja sér eftir álitum einum saman. Annars getum við orðið fyrir sárum vonbrigðum. j Bækur og kvenfólk hafa hvoru- . tveggja sál — nema þær, sem andvana eru fæddur — og á því, hvernig sálin er, veitur gildi beggja, þegar við tókum að kynn ast þeim nánar og lesa þær nið- ur í kjölinn. Kápan hversu skraut leg og ágæt sem hún er og raun- ar hinn sýnilega og ytri búning- ur allur, er ekki annað en um- gerð um sálina, hvort sem kon- an eða bókin á í hlut, — umgerð sem að vísu engan veginn ber að forsmá eða auðvirða, enda marg- an horskan heillað bæði fyrr og síðar en eigi að síður umgerð, sem máist og fellir fegurð sína og blóma fyrr en varir. Það er | sálin ein, sem hefir varanlegt gildi. Þessvegna er það, að and- vana fæddar bækur, sem ekki hafa sál, eru hlutir sem fólk ætti alvarlega að vara sig á. Slíkar bækur eru verri en ónýtar. Þær eru öllum til skammar, höfund- inum, þýðandanum, ef einhver er, útgefandanum og eigendun- um, sem álpast hafa til þess að kauþa þær, vegna skrumauglýs- inga eða þess. hvað þær voru í skrautlegri kápu. Ég skal svo ekki hafa þennan formála lengri, en snúa mér beint að efninu, en það er að vekja athygli á bók sem ekki lætur mikið yfir sér enda þótt hún sé í nýrri kápu. Hún er heldur eng- an veginn ný af náiinni. Þetta er gömul vinkona mín, kærasta, liggur mér við að segja. Þess- vegna þótti mér svo vænt um að sjá hana á ný eftir mörg ár. Þessi bók heitir Skip, ssm mæt- ast á nóttu, eftir ensku skáld- konuna Beatrice Harradan, en þýdd af Snæbirni Jónssyni. Hún kom fyrst út á íslenzku haustið 1932 og seldist þá svo ört, að endurprenta varð hana eftir að- eins tvo mánuði. Ófáanleg heíur hún verið um mörg ár þar til nú að hún er komin út í þriðju útgáfu. Ekki veit ég hversu stórt upplagið er að þessu sinni, en sízt skyldi mig undra þótt það reyndist enn of lítið. Þessi bók hefur vissulega sál, um það er ekki að viilast. Og sú sál er göfug og fögur, svo að hver hugsandi maður mun auðgast við það að kynnast henni. Frásagnarblærinn er Ijúf- ur og heillandi. Og það fer ekki hjá því að lesandinn fái samúð með sögupersónunum og taki innilega þátt í kjörum þeirra og örlögum, þjáningum þeirra, von- brigðum og sorgum, En eins og við sjáum í gegn um hinn kald- ranalega hjúp óviðfeldna manns- ins viðkvæma og göfuga sál, sem þroskast og vitkast við þjáning- ar og vonbrigði, þannig er og boðskapur bókarinnar fyrst og fremst trúin á gildi og sigur þesa góða í mönnunum. Þótt margt fari öðru vísi en ætlað er, þótt óskahallirnar hrynji oft skjótt og við stöndum við lokuð sund, þá á vonin og trúin að hjáipa okkur til þess að byggja nýja brú —• brú kærleikans og góðviljans ekki aðeins á milli mannanna hér á jörðinni, heldur og brú, er tengi bæði þetta líf og hið til- komanda minnug þeirra orða skáldsins, að „anda, sem unnast, fær aidregi eilífð að skiiið.“ Sveinn Víkingur. Jólakort og jólablað Langholtssókn nr ÞAÐ má enginn, sem teljast vill hugsandi manneskja, láta sér á sama standa um það, sem gjört er til að efla menningu og andlegt atgjörvi þjóðar. Söfnuðir höfuð- borgarinnar vinna markvisst að því starfi. Það er kannske ekki fyrsta verkið að byggja kirkjur, heldur að vinna þannig vitund fólksins, að það vilji byggja kirkju, kunni að meta þær, ætli sér að nota þær, sér og börnum sínum til blessunar. í Langholtsbyggð er unnið eft- ir getu að mótun þeirrar sam- heldni og þess samstarfs, sem nefna mætti sanna og trausta safnaðarvitund. Slík tilfinning er aðalatriði í þeirri nýsköpun, sem þar verður að framkvæma. Nú hafa verið teiknuð og prent- uð mjög þokkaleg jólakort, sem seld verða til hagnaðar fyrir ný- sköpun safnaðarins. Kortin eru þrennskonar að gerð. Eitt með mynd af fornri torfkirkju, með krossi i stað turns og upp frá krossinum og kirkjunni streym- ir ljós, sem sameinast stjörnu- dýrð og norðurljósum himinsins. Innan í þessu korti eru jóla- óskir eftir sóknarprestinn: Og þegar Esjan faldar leifturloga, og Langholtsbyggð í jólaskart sitt klæðist. Þá bið ég allt, sem bezt er hjá þér glæðist og blessun drottins signi „Holt“ og „Voga“ og hjarta þínu hlotnist ást og friður, sem helgir englar senda til þín niður. Hinar gerðirnar eru af forn- um sveitabæ í ljósi frá vinaleg- um lýsislampa og svo kort handa börnum. Þessi kort kosta aðeins kr. 2.09 og kr. 1.50 barnakortin, og vil ég biðja sóknarbörn mín og aðra unnendur kirkju og kristnilífs í Langholtsbyggð að sýna þanh þegnskap að láta þau ganga fyr- ir í kortakaupum fyrir þessi jól, þótt önnur og útlend kort kunni að þykja fegri. Takið vel á móti börnunum, sem koma að bjóða ykkur kortin, og munið það, að vel mætti byggja fallega kirkju fyrir það fé, sem íslendingar eyða í kortakaup fyrir ein einustu jól. Og í sókninni eru 600 hús og sjálfsagt hálfu fleiri heimili, svo að mikið getur selzt, ef þið eruð öll með. Svo ætla ég líka að minna ykk- ur á jólablað Langholtssafnaðar, sem kemur út næstu daga. Slíkt blað er algjör nýjung í safnaðar- starfi hér, en allir hljóta að skilja, hve ómetanlegt það er fyrir ókomna tíma í ævi safnaðar. Blaðið á að flytja frásögn um helztu atburði í kirkjulegu starfi innan prestakallsins á árinu, nöfn brúðhjóna, fermingarbarna og látinna. Ennfremur verða myndir af þeim fermingarbörn- um, sem til náðist. Og ekki er ólíklegt, að í næsta blaði verði hægt að birta brúðhjónamyndir. Auk þessa verða í blaðinu grein- ar, sögur og ljóð, jólaóskir og frásagnir. Það mun engan iðra þess eftir 10 ár að eiga þetta blað frá byrj- un, því fremur má ætla að það verði dýrmætt þeim sem lifa á aldarafmæli safnaðarins. Þá mun þykja gaman að sjá myndir og Framh. á bls. 12

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.