Morgunblaðið - 09.12.1953, Page 16

Morgunblaðið - 09.12.1953, Page 16
VeðurútSif í dag: SA-stormur. — Rigning. 282. tbl. — Miðvikudagur 9. desember 1953 Benzínleiðsla í Öskjuhlíð rifnar, Tjónið nær 200 þús Stór steinn féll á leiðsluna. 1 GÆRMORGUN sprakk benzínleiðslá suður í Öskjuhlíð. Munu milli 70 og 80 tonn af benzíni hafa farið forgörðum. Af ótta við eldhættu var flugvallasvæðið næst Öskjuhlíð lýst bannsvæði og öll umferð um það bönnuð og öflugur lögregluvörður settur í gærdag. Allt rafmagn var tekið af hættusvæðinu og menn látnir hætta vinnu. í Öskjuhlíðinni eru nokkrir^ geymar, sem Flugvöllurinn á. iosnaði er talin vera hin gífur- Var sprengt fyrir þeim inn í hlíð- iega rigning, sem var í fyrrinótt ina á styrjaldarárunum. Benzín h£r ^ bænurru þetta var sameign Shell og Esso. | Tjón þetta er metið a um 173. Var verið að dæla benzíni frá 000 grónur, miðað við útsölu- einum geymanna um 8 tommu verð á benzíni. víða leiðslu, suður í Shellstöðina' við Skerjafjörð. DEYR AF AF LEID!!\!€UM BÍLSLYSS Sviplegt slys suður í Njarðvík. KEFLAVÍK, 8. des. — Á sunnudagsmorguninn lézt í sjúkrahúsinu á Keflavíkurflugvelli, af afleiðingum slyss, átta ára drengur, Birgir Guðmundsson, til heimilis í Njarðvík. STEINN FELL A LEIÐSLUNA Þar sem leiðslan kemur fram úr klettaskorningunum, sem geymarnir eru í, rifnaði leiðslan er stór steinn féll ofan á hana. Mun steinn þessi vera allt að 1000 pund. Þetta mun hafa gerzt milli kl. 8.20 og 9. Þá komu þangað tveir starfsmenn Shell, sem skjótt j urðu þess varir hvað gerzt hafði, enda lagði mjög sterka Iykt frá henzíninu, sem fossaði niður hlíðina. Áður en öðrum mannanna hafði tekizt að loka fyrir benzín- rennslið, hafði benzinið flætt yfir vegskurð. Víða mynduðust benzínpollar. Ástæðan til þess að steinninn Venlanir hljóta vi8- urkenningu lyrir verðmerkingar NEYTENDASAMTÖK Reykja- víkur hafa ákveðið að veita þeim verzlunum viðurkenningu, sem sérstaklega skara fram úr um verðmerkingar og annað, sem verða má til að flýta fyrir og auðvelda bæði afgreiðslu og vöruval. Er mikil nauðsyn á úrbótum í þessum efnum hér í bæ, ekki sízt fyrir jólaösina. T. d. myndu afgreiðslunúmer, sem fólk tæki, um leið og það kæmi inn í búð- ina, draga úr troðningi og tryggja réttláta afgreiðsluröð. Fólk er beðið að hafa samband við skrifstofu Neytendasamtak- attna, sími 82722, og gefa henni upplýsingar um verzlanir, sem gætu átt viðurkenningu skilið. Sendisveinn slasast a reiðhjois \ arekslri SLYS var árdegis í gær, suður á Þvervegi í Skerjafirði, er ung- lingspiltur á sendiferðahjóli varð fyrir bíl og slasaðist hann svo, að flytja varð hann í sjúkrahús. Pilturinn, sem heitir Páll Vil- hjálmsson, Kaplaskjólsvegi 50, var með 50 mjólkurflöskur í vörukassa reiðhjólsins. Bíllinn kom aftan á reiðhjóiið. Við það lyftist pilturinn upp á aurbretti bílsins, sem rann áfram nokkurn spöl. Ein mjólkurflaska hentist upp á vélarhúsið og fór gegnum framrúðu bílsins. Er bílstjórinn hemlaði, féll pilturinn af aur- brettinu niður á götuna. Piltur- inn handleggsbrotnaði illa og skrámaðist. Hver einasta mjólk- urflaska fór í mola. Kristrrlánn Guðmundsson ,Arfur kynslóðanna' eiiir Krisfmann Kona fann tösku með búsundum “®VIÐ SAMKOMUHÚSIÐ Slysið varð um klukkan 5 á laugardaginn. — Jeppabíllinn R 4015 var .á leið til Keflavíkur. Við götu þá, sem liggur heim að samkomuhúsinu í Njarðvík, mætti jeppinn bíl, sem var að koma frá Keflavík. kominn út króna ANNAÐ bindið í ritsafni Krist- manns Guðmundssonar kom út í fyrradag. Er það Arfur kyn- slóðanna, sem flytur sagnabálk- inn „Morgunn lífsins" og „Sig- mar“, en þær sögur skipuðu Krist manni í fremstu röð norrænna i rithöfunda, þegar þær komu úti í Noregi. I „Morgunn lífsins", hefur áður komið út í íslenzkri þýðingu og flutti höfundur hana sem út- varpssögu fyrir nokkru við al- menna aðdáun. „Sigmar“ hefir ekki áður komið út á íslenzku, en þar segir frá niðjum Halldórs Bessasonar, söguhetjunnar í j „Morgunn lífsins“. i Bækur þessar hafa verið þýdd- ar á fjölda tungumála og hlotið prýðisgóða dóma að verðleikum. Fyrsta bindið í ritsafni Krist- manns kom út í fyrra. Var það „Höll Þyrnirósu“, sem er smá- sagnasafn. hússkjallaranum NORRÆNA félagið heldur Luciu hátíð í Leikhúskjallaranum á Luciudaginn 13. des. n. k. og hefst hún kl. 20.30. Félagið hef- ur undanfarið ár gengist fyrir Lucíuhátíðum, er orðið hafa mjög vinsælar og fjölsóttar. Síðastl. ár féll hún þó niður sökum alls- herjarverkfalls er þá var. Á Lúcíuhátíðinni á sunnudag- inn kemur talar lektor Anna Larson um jól í Svíþjóð, lektor Ivar Orgland syngur, með undir- leik dr. Páls ísólfssonar, Simon Edwardsen óperusöngvari rabb- ar um Luciur, ungt danspar sýna listdans og ung dansmær dansar sóló. Loks kemur Lucía ásamt þernum, prýddar ljóskró'nsum og syngja Lucíusönginn. Meistaramót Ryíkur i Fiskiþingið mælir með byggingu fullkomins fiskiðjuvers á ísafirði Á FUNDI fiskiþings 7. þ. m. var gerð svolátandi sam- þykkt: „Fiskiþingið skorar á ríkis- stjórn og Alþingi að styðja öfluglega byggingu fullkom- inna fiskiðjuvera, þar sem góð skilyrði til fiskiðnaðar eru fyrir hendi og góðar hafnir. Fiskiþingið leggur áherzlu á, að á nokkrum stöðum, t. d. á ísafirði, sé um aðkallandi nauðsynjamál að ræða og væntir að Alþingi og ríkis- stjórn veiti málinu fyllsta brautargengi." Það mun samhljóða álit kunnugustu manna, að fsa- fjörður hafi þýðingarmikla sérstöðu til þess, að þar verði hið fyrsta byggt fullkomið fiskiðjuver. Má í þessu sam- bandi benda á þessar stað- reyndir: Nálægð við auðug fiskimið. Fjölbreyttar fiskitegundir. Sjósókn óslitið nær allt árið. Ágæt höfn og hafnarað- staða. ísfirðingxun er það mesta áhugamál, að bygging fisk- iðjuvers verði hafin sem fyrst. helst í kvöld MEISTARAMÓT Reykjavíkur í handknattleik (síðari helmingur) hefst miðvikudaginn 9. des. með þátttöku eftirtaldra félaga: Ár- manns, Fram, ÍR, KR, Vals, Vík- ings og Þróttar. Sem gestir í mótinu taka þátt íþróttabanda- lag Hafnarfjarðar. | Leikir í mótinu verða alls 60. — I dag verða háðir eftirtaldir leikir. — Konur: 2. fl. Fram— Ármann og meistarafl. KR og ÍBH. — Karlar: 3. fl. B-sveit ÍR og Víkingur og A-sveit KR og Víkingur. 2. fl. Fram og Ár- manns, Vals og ÍR, Þróttar og KR. — Á fimmtudag verða þessir leik- ir. Konur: 2. fl. Valur og Þrótt- ur, 3. fl. B-sveit Fram og Valur KR og Víkingur. A. og B-sveit Þróttur og Ármann, A-sveit Val- ur og Fram. 1. fl. Ármann og Fram, Valur og KR. Mótið hefst kl. 20,00 hvert kvöld og lýkur 18. þ. m. í GÆRKVÖLDI um kl. 6,30 kom bílstjóri utan af landi í skrif stofu rannsóknarlögreglunnar og tilkynnti að hann hefði tapað tösku með 6000 kr. í. Bílstjór- inn gerði nákvæma grein fyrir því hvar hann hefði yerið. Pening- ana áttu ýmsir menn í heimahér- aði hans og átti að nota pening- ana til þess að annast ýmiss kon- ar erindarekstur fyrir þá. Hafði hann skilið töskuna eftir í bíln- um, þar sem hann kom við. Skömmu eftir að maðurinn hafði átt tal við blöðin, hringdi kona að nafni frú Steinunn Tóm- asdóttir, Hrísateigi 18, til rann- sóknarlögreglunnar og skýrði frá því, að hún hefði fundið tösk- una með peningunum í, inn hjá Vatnsstíg. SKIPTI ENGUM TOGUM Um leið og bílarnir lækkuðu ljós sín, sá bílstjórinn á jeppan- um drenginn ganga á undan bíln- um í 3—4 m. fjarlægð. — Það 1 skipti engum togum. Drengurinn ' varð fyrir jeppanum. Slasaðist ! hann mikið á höfði og vinstri lærleggur brotnaði. Drengurinn var fluttur til læknis í Keflavik, en hann fór samstundis með drenginn í sjúkrahúsið á Kefla- víkurflugvelli. Þar lézt hann kl. um 10 á sunnudagsmorguninn. VAR í SENDIFERÐ Litli drengurinn, Birgir Guð- mundsson, var einn þarna á ferð er slysið varð. Hann var að fara með skó til viðgerðar í Kefla- vík. Foreldrar hans eru nýlega flutt til Njarðvíkur utan af landi, en þau eru Guðmundur Ólafs- son og Soffía Sigurjónsdóttir. — Ingvar. Yerður Ægir úlbúinn sem fiskirannsóknaskip ? FISKIÞINGIÐ samþýkkti tillögu þar sem rík áherzla er lögð á, að varðskipið Ægir verði á þessum vetri útbúið þannig, að fiski- fræðingum verði sköpuð fullkomin starfsskilyrði til allskonar fiski- rannsókna um borð í skipinu, á líkan hátt og nú er í fiskirann- sóknarskipinu G. O. Sars. Ný lióðabók eftir Kristjáii frá Djúpalæk NÝ LJÓÐABÓK eftir Kristján frá Djúpalæk er komin út. Nefn- ist hún: Þreyja má þorrann. — Bókin er 96 blaðsíður að stærð og eru í henni 45 kvæði. Útgef- andi er Sindur h.f. á Akureyri Ennfremur var samþykkt, að á^ síldveiðitímabilinu fyrir Norður- landi verði um borð í skipinu reyndur síldveiðiskipstjóri, sem stjórni síldarleit þess í samráði við síldarleitastjóra. Einnig var því beint til stjórn- ar Fiskifélagsins að gangast fyr- ir athugunum á því, hvort ekki sé hægt að samræma stjórn hinna einstöku þátta síldar- og fiski- rannsókna meira en nú er. HÚSBYGGING FISKI- IÐNAÐARDEILDA Fiskiþingið mælir eindregið með því að framlengdur verði næstu fjögur ár núverandi tekju- stofn, V8% af útflutningsgjaldi til áframhaldandi byggingar rann- sóknarstöðvar og leyfi verði veitt, samkvæmt umsókn bygg- ingarstjórnar. Telur Fiskiþingið knýjandi nauðsyn á því, að þessi fyrirhug- aða bygging komist sem fyrst upp, svo þessari mikilvægu vís- indastofnun verði sköpuð sem bezt starfsskilyrði. Utanríkisráðherra farinn til Parísar DR. KRISTINN Guðmundsson, utanríkisráðherra, fór í morgun flugleiðis til Parísar, þar sem hann mun sitja fyrir íslands hönd ráðherrafundi Evrópuráðsins og Atlantshafsbandalagsins, er standa yfir frá 11.—17. desember. (Frá utanríkisráðuneytinu). bíl í Keflavík KEFLAVÍK, 8. des.: — Kl. 15.40 í dag varð það slys hér á hafnar- götunni, að fjögurra ára drengur, Guðmundur Helgi Elíasson, hljóp út á götuna og lenti á vinstra aft- urhjóli vörubíls, er ók þar fram- hjá. Drengurinn fékk höfuðhögg og heilahristing, en frekari meiðsli hafa ekki komið í ljós. Skákeinvigi MbL: Akranes-Keflavík KEFLAVIK 1 ......... ...m, HH éHI m&m wiiiw yíyyfy/. '///7?// '—’ ■ ■ ■ AKRANES 23. lelkur Keflavíkur: a7 — a5

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.