Morgunblaðið - 19.12.1953, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.12.1953, Blaðsíða 2
2 MORGVNBLAÐIÐ Laugardagur 19. dés. 1953 AfgrciðsSa fjárhðgsMlunariimar er nú eins og fyrir tvennar undan- farnar hæjarstfórnarkosningar Sjálfslæðismenn hafa engu að leyna og ekkerf að óftasl „TIMINN“ hefur það sem aðal- j íyrirsögn á fremstu síðu blaðsins í gær, að „íhaldið þori ekki að afgreiða fjárhagsáætiun Reykja- víkur fyrir kosningar". Hið sanna er að nú er höfð að öllu hin sama aðíerð við af- greiðslu fjárhagsáætlunar eins og verið hefur við tvennar undan- farnar bæjarstjórnarkosningar, 1946 og 1950. Þá var frumvarp tíl fjáihagsáætlunar fyrir næsta ár lögð fram fyrir kosriingarnar en endanleg afgreiðsla látin bíða nýrrar bæjarstjórnar. Ef Sjálfstæðismenn óttuðust að missa meiri hlutann í bæjar- stjórn í hendur bæjarfulltrúa Tímans og annara rauðliða þá mundu þeir væntanlega hraða af- greiðslu fjárhagsáætlunarinnar meðan þeir hafa meirihluta vald- ið. En Sjálfstæðismenn óttast Jjetta ekki cg þora fullvel að halda þeirri venju, sem skapast liefur um að láta hina nýju bæj- arstjórn ganga endanlega frá „fjárlögum“ bæjarins, Það er í fyllsta máta lýðræðis- legt að geyma afgreiðslu fjármál- anna þar til ný bæjarstjórn kem- ur til skjalanna og hafa Sjálf- stæðismenn engan ótta af því að standa við það fyrirkomulag nú eitis og að undanförnu. og entist minnihlutafulltrúunum tími til málþófs út af henni allt fram til miðnættis og var ekki að sjá að þeir þættust vanbúnir. Afgreiðsla fjárhagsáætlunar- innar fer að öllu eins fram nú og verið hefur fyrir tvennar undan- farnar kosningar, eins og áður er sagt og hafa fulltrúar minni- hlutans þar yfir engu að kvarta. SJÁLFSTÆÐISMENN KOMA HREINT FBAM OG TREYSTA DÓMGREIND BÆJARBÚA Ef minnihlutaflokkarnir hafa eitthvað til málanna að leggja hafa þeir nú allan tímann, fram til janúar-loka, til að gera það heyrum kunnugt. Allan þann tíma hafa þeir fjár- hagsáætlunina fyrir 1954 í hönd- um cg hafa nægan tíma til að at- huga hana og gera tillögur til breytinga. Sjálfstæðismenn hafa hér, eins og endranær, gengið hreint tii verks og lagt sín skjöl á borðið. Þeir óttast ekki dóm bæjarbúa fyrir það en treysta nú sem fyrr á dómgreind Reykvíkinga sjálfra hvað sem líður kommúnistum í bæjarstjórn og fylgiliði þeirra úr Framsókn og Alþýðuflokknum. - Freslun þingsinx Framh. af bls. 1. OG SVAR Ólafur Thors svaraði þessari fyrirspurn þeirra. Sagði for- sætisráðherrann að ríkisstjórnin hefði í septembermánuði falið nokkrum trúnaðarmönnum sín- um að kynna sér hag útgerðar- ,nnar og' rannsaka hvort unnt myndi að koma á sanngjarnri hækkun á verði fisks til sjó- manna. Menn þeir er ríkisstjórnin valdi til þessara starfa hafa lagt mikla vinnu í rannsókn þessa máls, sagði ráðherrann. Og af þeim niðurstöðum, sem þeir hafa komizt að, leyfi ég mér að ætla á þessu stigi málsins, að ekki j muni koma til vandræða af þess- ( um sökum. Hins vegar tel ég, hélt forsætisráðherra áfram, að ríkis- ' stjórninni sé fullkomlega heimilt að gefa út bráðabirgðalög ef því j er að skipta, en ég vona að til slíks muni ekki koma, sagði for- sætisráðherra. ÞINGFUNDUM FRESTAÐ Tillagan um frestun þingstarfa var síðan samþykkt, en stjórnar- andst.öðumenn sátu hjá. L&s for- sætisráðherra síðan forsetabréf, með hverju forsetinn frestar störfum Alþingis, en mælir svo fyrir um að það komi saman aftur til funda eigi síðar en 5. febrúar. Þingforseti, .Jörundur Brynjólfs son, óskaði þingmönnum gleði- legra jóla og nýjárs og góðrar heimkomu. Einar Olgeirsson þakkaði honum óskirnar og færði honum þakkir fyrir góða fund- arstjórn og árnaði honum gleði- legra jóla og nýjárs. Undir ósk- ir tóku þingmenn með því að rísa úr sætum. Var þingfundi síðan slitið. Skrípaleikur kommúnisla út af virkjun Efra fallsins Undirbúningnr virkjunarinnar í öruggum höndum MIN.MHI 1 TAII.OKKARMR HAFA NÓGAN TÍMA „Tíminn" apar eftir kommún- istum einhverskonar „mótmæJi“ gegn því, að bæjarfulltrúar hafi fengið frumvarpið að fjárhags- áætluninni seint í hendur. Hér er aðeins um að ræða vandræðalega tilraun í þá átt að skapa tortryggni í garð Sjálf- stæðismanna. Fjárhagsáætlunin var tekin fyrir í bæjarráði mánu- daginn 14. þ. m. og rædd á tveim fundum þann dag þar sem full- trúar minnihlutaflokkanna, nema Framsóknar, voru mættir og fengu minnihlutafulltrúarnir á- ætlunina í hendur jafnsemma og aðrir bæjarfulltrúar. Síðan kom áætlunin til fyrstu umræðu á Jundi bæjarstjórnar í fyrradag Lamaðyr drengur slasast KLUKKAN um 5,15 í gærdag var alys á Eiríksgötunni. — Níu ára drengur, sem lamaður er, v9rð fyrir bil og mun hafa tví eða þrí handleggsbrotnað. . Þetta gerðist á móts við húsið Eiríksgata 2. —• Stúlka var drengnum til hjálpar á þríhjóli. Ætlaði hún að kippa hjólinu upp á gangstéttina er hún sá bíl koma á móti þeim. En þá tókst svo slysalega til að litli drengurinn, sem er lamaður öðru rnegin, féll aftur yfir sig af hjólinu. — Bíl- stjórinn, sem telur sig 'nafa hægt ferðina, hemlaði, en vegna lítils- háttar ísingar, rann bíllinn á hálk unni og kom á drenginn þar sem liann lá í götunni. Bílstjórinn flutti d.renginn þegar í sjúkra- hús. — Drengurinn heitir Lárus Ingi Guðmundsson, Baldurs- götu 21. Þar eð lögreglan var ekki kvödd til er slys þetta varð, eru iþað tilmæli rannsóknarlögregl- unnar að þeir sem sjónarvottar urðu að því eða geta gefið upp- lýsingar slysinu varðandi, gefi sig fram þegar í stað. LÖNGU áður en írafossvirkjun- inni var lokið hófu Sjálfstæðis- menn undirbúning að síðasta á- fanganum í virkjun Sogsins en það er virkjun Efra-fallsins, svo nefnda. Nú er tæknilegum undirbún- ingi það langt komið að ráðunaut ur Sogsvirkjunarinnar, sem er norski verkfræðingurinn Berdal, hefur lagt fram áætlanir um hina nýju virkjun og hefur stjórn Sogsvirkjunarinnar þær til meðferðar, eins og skýrt var frá í blaðinu í gær. Jafnframt hinni tæknilegu hlið er unnið að fjárhagslegum undirbúningi er- lendis í samráði við ríkisstjórn- ina. Bæði hin tæknilega og fjár- hagslega hlið er og hefur verið til meðferðar hjá réttum aðilum og miðar örugglega áfram. ÞÓF OG FLÆKJUR KOMMÚNISTA Eins og kunnugt er börðust kommúnistar gegn því, að fé sem fékkst vegna efnahagssamvinnu Vesturlanda, yrði notað til íra- fossvirkjunarinnar og gerðu allt sem þeir gátu til að þæfa og tefja málið. Þeir virðast ætla að fara eins að gagnvart Efra-fallsvírkjun- inni. Einar Olgeirsson hefur bor- ið fram á Alþingi eitt af hinum venjulegu kommúnistafrumvörp- um og fjallar það í þetta skipti um raforkumál. í fyrradag báru kommúnistar fram tillögu í bæj- arstjórn um að hún skoraði á Alþingi að samþykkja frumvarp Einars en þeirri tillögu var vísað frá með vísun til þess, að undir- búningur að nýrri Sogsvirkjun væri í fullum gangi. Út af þessu spyr svo Þjóðviljinn í morgun: „Ætíar Sjálfstæðisflokkurinn að hindra fullnaðarvirkjun Sogs- ins?“H Kommúnistar ætla að reyna að telja mönnum trú um að úr því Sjálfstæðismenn telji sig ekki þurfa á einhverju frum- varpi Einars Olgeirssonar að halda, þá sé ætlunin að stöðva Sogsvirkjunina! VENJULEGAR KOMMÚNISTABRELLUR Hér er um hinn venjulega skrípaleik kommúnista að ræða. Einn kommúnisti ber fram frum- varp á þingi og annar kommún- isti ber svo fram tillögu út af því í bæjarstjórn og þriðji kommún- istinn skrifar svo æsifréttir í Þjóðviljann daginn eftir. — Að þessu sinni eru skrif Þjóðviljans mjög einkennandi fyrir þessar starfsaðferðir kommanna! Sömu dagana og tæknilegar á- ætlanir um Efra-fallið eru lagðar fram og rætt við rikisstjórnina um fjárhagshliðina af sérstaklega tilkvöddum mönnum, þá spyr Þjóðviljinn hvort nú eigi að stöðva virkjun Sogsins! Bæjarbúar sjá áreiðanlega gegnum þennan skrípaleik og þeir vita að virkjun Efra-fallsins mun komast á fyrir forystu Sjálf- stæðismanna og þrátt fyrir þóf og flækjur kommúnista. - BERIA Framh. af bls. 1. Ein af ákærunum á hendur Bería er sú, að hann hafi reynt að eyðileggja landhúnaðaráætlun stjórnarinnar. Er augljóst, að stjórnin hyggst leggja ábyrgðina af mistökum sínum í landbún- aðarmálum á herðar Bería. —r Kannski hefur hann ekki nóg á sinni könnu, blessaður! NÝKOMIÐ: Hollenzkar Tinvörur Könnur, margar stærðir, skálar, kertastjakar, gon- gonar, sígarettukassar o. fl. Pólskur Krystall Skálar, öskubakkar, föt, vínsett, kareflur, vínglös, margar gerðir. Finnskt Postulín Skálar, öskubakkar, plattar, styttur o. fl. — Aíar hentugar jólagjafir. Listverzlun G. Laxdal Laugavegi 18A. Sími 2694. Kápur úr úrvals enskum ullarefnum, mikið úrval LOÐKRAGA KÁPUR GABARDINE KÁPUR, margir litir VATTERAÐAR GABARDINE KÁPUR PEYSUFATAFRAKKAR gráir, svartir, allar stærðir KULDAÚLPUR KVENNA gæruskinnsfóðraðar og vatteraðar KULDAÚLPUR BARNA REGNKÁPUR fyrir börn og unglinga NÆLON Sokkar Blússur Undirkjólar Millipils Franskir hanzkar, slæður, belti, pils Ilmvötn í f jölbreyttu úrvali TÍZKRN Laugaveg 17 MASTER MIXER Heimilishrærivélin Tvær stærðir - Nýkomnar Bezta jólagjöf húsmóðurinnar. LIIDVIG STORR & CO. Regnhlífar glæsilegt úrval, tekið upp í dag Eros Hafnarstræti 4 — Sími 3350

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.