Morgunblaðið - 23.12.1953, Side 7

Morgunblaðið - 23.12.1953, Side 7
Miðvikudagur 23. des. 1953 MORGUNBLAÐ1Ð 7 HelandermáEinu er að Ijúka Það hefir vakið mikla athygli HELANDERMÁLINU er að ljúka. — Mesta hneykslis-' mál sænsku kirkjunnar, kalla sumir það. — Svo mikið er víst að aldrei hefur saensk- ur biskup legið undir sakamála- kæru fyrr en Diek Helander, foiskup í Strángnas-stifti. Fyrir rúmu ári fór fram bisk- upskosning í Strángnas. Prestar stiftsins tilnefna biskupinn og að jafnaði skipar stjórnin þann, sem flest fær atkvæðin. Meðal um- sækjenda var Diek Helander, prófessor í guðfræði við Uppsala- háskóla. Hann hefur hvað eftir annað sótt um biskupsembætíi á undanförnum árum, þar á meðal foiskupsembættið í Skarastifti 3951, en aldrei fengið meirihluta fyrr en í fyrra. Annar umsækj- andi var Hjalmar Líndroth, for- stöðumaður guðfræðideildarinn- ar í Uppsölum. Það hefur lengi verið kalt milli hans og Heland- ers. Helander fór til Strangnás og var settur inn í embættið með mikilli viðhöfn, en þess varð skammt að bíða að ýmsar ljótar sögur færi að berast úr stiftinu. Það kom á daginn að kringum 90 prestar þar höfðu íengið nafn- laus bréf áður en kosningin fór fram, og efni þeirra flestra var að ærumeiða Lindrath, prófessor og prestinn Eric Segelberg þó sér staklega. En Helander var hælt á hvert reipi og hann tvímæla- laust talinn eini umsækjandinn, sem verður væri ^bískupstignar. Að meðaltali hafðí hver prest- anna fengið fimm bréf, en alls voru útgáfurnar af bréfunum 36. Hver hafði skrifað þessi níð- bréf? Einhver óhlutvandur fylg- ismaður Helanders — eða var það gert að hans undirlagi? Eða hafði hann gert það sjálfur? — Fyrir biskupskosningarnar í Skara, ár- ið áður, höfðu prestarnir líka fengið nafnlaus bréf. Og þar var Helander líka í kjöri. Síra Eric Segelberg, sem mest hafði verið níddur, fór til lög- reglunnar 6. des. í fyrra og kærði. Og lögreglan hóf þegar rannsókn í málinu. Skýrsla hennar varð 600 vélritaðar blaðsíður, auk 100 blaðsíða með fylgiskjöltun. Og efni hennar var þess eðlis, að híð opinbera höfðaði mál gegn He- lander, biskupi, fyrir að hafa samið og sent frá sér rógskrifin. Sækjandi í málinu gerði þá kröfu að biskupinum verði vikið frá embætti, jafnvel þó að hann yrði sýknaður af níðritaákærunni með því að framkoma hans hafi verið svo skrítin, að hann sé ekki hæf- ur til að vera biskup. SÖNNUNARGÖGNIN? Eitt hið fyrsta í lögreglurann- sókninni var að hafa uppi á rit- vélunum, sem níðbréfin höfðu verið skrifuð með. Þau voru skrifuð með þrennskonar vélum •— og sömu vélum höfðu nafn- lausu bréfin í sambandi við Skara-kosningarnar verið skrifuð með. Og það þykir sannað aff He- lander hafi haft affgang að öllum þessum vélum, því að þær voru notaðar á skrifstofum háskólans" í Uppsölum. Ein vélín var Halda, önnur Royal, en sú þriðja Rem- ington ferðaritvél. Hana átti Helander sjálfur, en hún er nú horfin. Haldavélin var eign guðfræði- deildarinnar í Uppsölum, eft Hel- ander tók hana með sér þegar hann fór til Strángnas. Letrið á þessari vél hafði verið eyðílagt eftir að bréfin voru skrifuð, og það er sannað að Helander hefur gert tilraun til að fá nýja stafi í véiina. Hann gat ekkí fengið þá, en reyndi nú að fá keypta aðra Haldavél, sem værí með sem líkustu ver ksraí 5 junúm er i og skemmda vélin. — Hann var spurður til nafns í ritvélaverzlun inni og kvaðst þá heita Georg Arvidsson og eiga heima í Söder- tálje. Þegar Helander var yfirheyrð- Helander ur og spurður um þessa grun- samlegu ritvélasögu sagðist hann ekkert vita um hvernig letrið á Haldavélinni hefði skemmzt (það hafði verið lagt á hverfistein). — Guðfræðideildin hefði skrifað sér og heimtað ritvélina aftur. En þegar hann fór að athuga hana sá hann að letrið var skadd- að. Þess /egna hefði hann keypt aðra vél. Og eð hann laug til nafns síns kvað hann stafa af því, að fólk hagi sér stundum „irra- tionelt“. Fjölritafann, sem níðbréfin eru „prenluð“ með, leigði Helander af verzlun i Uppsölum 6. okt. í fyrra — hálfum mánuði áður en biskupskjörið fór fram í Strángn ás. Um leið keypti hann 400 ark- ir af pappír. Helander segist hafa leigt vélina og keypt papp- írinn til þess að fjölrita tillögur að helgisiðabók, sem hann átti að semja fyrir tilmæli biskups eins í Suður-Afríku. Hann ætl- aði að senda ýmsum guðfræðing- um tillögurnar til álita. Níðbréfin voru sett í póst 10.— 12. okt. í fyrra, flest í Stokkhólmi. Málfræðingar hafa verið fengn ir til að skera úr hvort orðalagið á bréfunum bendi til að Heland- er hafi skrifað þau. Þeir lína ýmislegt til, sem geti bent á þetta, en ekki getur það þó talizt veigamikið sönnunargagn. Hitt er mikilsverðara að fingraför Helanders hafa fundizt á þremur bréfunnm. Fyrsta fingrafarabréf- ið hafði að vísu verið sýnt hon- um af lögreglunni og hann snert á því, og segir að farið hafi kom- ið þá. Hin tvo eru eftir vinstri bumalfingur og á öðru þeirra er sami litur og á blekinu í fjölritar- anum. RÉTTARHÖLDIN Hinn 4. nóvember kom málið íiyrri ráðhúsréttinn í Uppsölum og síðan hefur ekki verið meira um neitt mál talað á Norðurlönd- um en Helandersmálið. Og sama "ólkið hefur setið dag eftir dag í >'imm vikur til að hlusta á réttar- höldin og hvert sæti verið skip- að. Börje Holmgren heitir sækj- andinn. Fyrstu dagana las hann upp skýrsluna — 700 blaðsíður — sem Folke Ohlsson, lögreglufull- trúi, hafði samið, og það var hann sem annaðist eftirgrennsl- anirnar, með aðstoð beztu sér- fræðinga, sem völ var á í Sví- þjóð, Holmgren hefur verið hvass í sókninni, en hann átti skæðum manni að mæta þar sem var Hugo Lindberg, verjandi Helanders. Því að Lindberg er talinn snjall- asti og vígfimasti málaflutnings- maður Svía nú á dögum. Sjálfur mætti Helander jafnan í réttin- um þangað til viku af desember, að það spurðist að hann væri horfinn. En hvarfið var ekki alvarlegt — hann hafði látið verjanda sinn vita að hann væri farinn til Gautaborgar til að hvíla sig. Síðan hefur hann þó verið yfirheyrður þar. Lindberg hefur varist eins og hetja og stundum getað hrósað sigri, t.d. er hann gat látið síra Eric Segelberg játa fyrir réttin- um að hann hefði skrifað mjög ópfestlegar og strákslegar grein- ar um kirkjumál. Ennfremur vakti það athygli er Lindberg sýndi fram á að Folke Ohlsson hefði hlaupið á sig við rannsókn málsins, m.a. með því að saka Svior ætla að ainemo vínskömmtun og hefja baráttu gegn áfenginn STOKKHÓLMUR. — Eins og kunnugt er, þá hefur verið gildandi í Svíþjóð áfengisskömmtun. Þrátt fyrir það er Svíþjóð það land álfunnar, þar sem áfengisneyzla er einna mest. Eru flestir þeirrar skoðunar að skömmtunarfyrirkomulagið hafi ekki verið affara- sælt. T. d. benti hin svonefnda Danielssonska bindindisnefnd á það, að verið gæti að tilfinning manna um höft og takmarkanir í áfengis- málum valdi lausung í áfengisdrykkju. Það má og minna á það, að- vegna áfengisskömintunarinnar hafa sænskir ferðamenn valdið- hneykslunum, þegar þeir hafa heimsótt lönd, þar sem frjálsræði er í áfengismálum, svo sem Danmörku. NEFNDARÁLIT BIRTAST < V.irðast rnenn nú almennt'vera komnir á þá skoðun að rétt sé að afnema skömmtunarkerfið og taka upp frjálsræði í áfengis- málum. Hafa nefndir rannsakað þetta í óða önn og virðist sem flestir aðhyllist það að afnema Skömmtun í ársbyrjun 1956. BARÁTTA GEGN ÁFENGINU Sérstök nefnd hefur haft til at- hugunar, hvaða varúðarráðstaf- anir bsri að gera, þegar áfengið verður gefið frjálst. Hefur hún nýlega skilað áliti. Leggur hún til að hafin verði víðtæk auglýs- ingastarfsemi og barátta gegn áfengisneyzlu. Reiknar nefndin með þVí að slík útbreiðslustarf- semi komi til með að kosta 2,3 milljónir sænskra króna. Meðal kostnaðarliða eru: 580 þús. krón- ur i kvikmyndatökur, 700 þús. kr. til auglýsinga í blöðum, 275 þús. kr. til veggauglýsinga, 275 þús. kr. til annarra auglýsinga og 75 þús. kr. til að standast kostnað af ferðasýningu. VIÐTÆK AUGLÝSINGASTARFSEMI Varðandi þessa auglýsingaher- ferð gegn áfenginu er lagt til að einn Uppsalaprófessorinn, Sig- frid von Engeström um að hafa verið i ráðum með Helander. — Þetta leiddi af sér að Engeström hefur höfðað meiðyrðamál gegn Folke Ohlsson. . Nú er þessu leiðindamáli að Ijúka. — Dómur átti sð ganga í því 22. des. — Sk. Sk. ii* og glaðir auglýsingar um andúð á áfengi verði prentaðar á íþróttaget- raunaseðla, sama verði um ekl- spýtnastokkana, einnig bíó og leikhúsmiða, farseðla með stræt- isvögnum og. langferðabílum. — Einnig á að setja upp auglýsing- ar varðandi baráttu gegn áfeng- inu við alla þjóðvegi. Nefndin. hefur farið þess á leifc við ýmis stór félagasamtök að þau taki þátt í baráttunni gegn áfenginu. Hafa 40 félög þegar svarað jákvætt. Þá telur nefndin að semja þurfi danslagatexta, sem sýni andúð á áfengi, þá skuli þess farið á leit við revyu-höf- unda og aðra rithöfunda að þeir taki virkan þátt í baráttunni. HÆRRA VÍNVERÐ Önnur atriði, sem nefndin leggur sérstaka áherzlu á eru að vínverð hækki verulega um það leyti sem sprúttið verður geíicf frjálst. Einnig vill hún að allar áfengisauglýsingar verði bann- aðar. (Eftir Dagens Nyheterf. Gefraonaspá SÍÐUSTU getraunaleikirnir á þessu ári fara fram annan jóla- dag, og skal síðasta seðlinum hafa veri ðskilað fyrir Þorláks- messukvöld. Þess skal getið, að flest öll félögin eiga að leika dag- inn áður eða á jóladag, og er því viðbúið, að heimavöllur hafi meira að segja en ella. — Staðan. í deildakeppninni er nú: 1. tleild: Franski utanríkisráðhesrann George Bidault hélt nýlega veizlu til heiðurs utanríkisráðherrum þeim, er sóttu ráðherrafund Atlantshafsríkjanna í París. Myndin er tekin í veizlunni og sjást á henni frá vinstri fisí Eidault, Anthony Eden og Dulles. Glaðlegir svipir þeirra sýna að þessir æfðu stjórnmála- ' menn kunna að aðskilja stjórnmál og samkvæmis iíf. L U J T Mörk St. Wolves 23 15 5 3 58-32 35 WBA 23 15 3 5 61-32 33 Huddersfld 23 12 6 5 42-25 30 Burnley 23 15 0 8 47-39 30 Bolton 22 8 9 5 39-32 25 Cardiff 23 10 5 8 29-38 25 Manch. Utd 23 7 10 6 39-33 24 Arsenal 23 9 6 8 45-43 24 Preston 23 10 3 10 50-33 23 Charlton 23 11 1 11 46-44 23 Tottenham 23 11 1 11 39-40 23 Blackpool 22 9 4 9 39-43 22 Chelsea 23 8 5 10 42-48 21 Sheff Wedn 24 9 3 12 37-42 21 Aston Villa . . . Newcastle 23 6 8 9 36-41 20 Sheff. Utd 22 8 4 10 39-43 20 Portsmouth 23 6 6 11 47-57 18 Manch City 23 6 5 12 29-46 17 Sunderland 22 5 6 12 40-56 16 Middlesbro 23 6 4 13 33-44 16 Liverpool 23 5 5 13 43-61 15 2. deild: L U J T Mörk St. Leicester 23 12 7 4 56-31 31 Doncaster 23 14 3 6 39-24 31 Everton 23 11 8 4 46-38 30 Biimingh. 23 11 6 6 51-31 28 Luton 23 10 7 6 41-36 27 Nottingh. 23. 10 6 7 48-35 26 Rotherham 24 12 2 10 44-44 26 Blackburn 22 9 6 7 40-34 24 Leeds 23 8 8 7 49-44 24 Hull City 23 9 2 12 34-34 20 Notts Co 23 7 6 10 26-43 20 Plymouth 23 5 10 8 29-39 20 Stoke 24 6 11 7 36-37 23 Fulham 23 8 6 9 49-45 22 Bristol 23 7 8 8 45-37 22 West Ham 23 9 4 10 41-36 22 Derby Co 22 8 5 9 41-45 Frh. á bls. 21 10.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.