Morgunblaðið - 29.12.1953, Side 7

Morgunblaðið - 29.12.1953, Side 7
Þriðjudagur 29. des. 1953 MORGUNB LAÐIÐ 1 ÖR VAIV1ÆLIR ® ® 6^^J> ® Alþýðublaðið á gæsalöppum I Tímans. I : Ekki er nú hugarflug Alþýðu- blaðsins mikið! Forystugrein þess 23. des. er ýmist bein upp- prentun eða gæsalappalaus upp- tugga cftir ,,Tírnanum“ daginn áð ur, um að það muni vera skv. „dæmi Breta“ að svifta einn flokk meirihluta í bæjarstjórn Beykjavíkur en kjósa þess í stað eina fjóra eða fimm smáflokka, sem aldrei geta komið sér saman um neitt. Hér í blaðinu var nýlega vikið að þessari nýstárlegu kenningu um pólitískan þroska Breta, en hann er þá minni en látið hefur verið af, ef marka má Tímann ©g Alþýðublaðið. Bretar mundu hinsvegar alveg vafalaust vera mjög ósammála þessum blöðum. Pólitískt hugsandi Breta mundi aldrei detta í hug að kjósa stjórn- leysi í stað stjórnar eða öng- þveiti í stað reglu, hvorki ef um er að ræða yfirstjórn ríkis eða einhvers bæjarfélags. LOKUÐ AUGU OG OPIN Kommúnistar eru allra manna snjallastir í fölsunum og má þá einu gilda hverrar tegundar fals- ið er. í>eir eru t. d. mjög leiknir í myndafölsunum. Eitt sinn bar það við, að Stalín sálugi lét mynda sig ásamt nokkrum hátt- settum kommúnistabroddum og var Malenkoff einn af þeim, en stóð langt til hliðar á myndinni. En eftir dauða Stalín var mynd- inni breytt á þann veg að Malen- koff var færður við hliðina á Stalín, en aðrir látnir hverfa og svo var myndin gefin út til vitnis um elsku Stalíns á hinum ístru- sæla Malenkoff. Annað' Öæmi er um höfuð Stalíns. Þegar karlinn gamlaðist, tók hann að ófríkka og verða ellidapur á svip, en slíkt þénar ekki einræðisherranum. Kommúnistar fundu þá upp á því, að hafa einn gamlan haus af Stalín alltaf til taks og var honum skellt ofan á búkinn á myndunum. Svo gar gumað af því, hve Stalín væri alltaf hressi legur, enda þótt vitað væri að hausinn á honum væri þarna 10 árum yngri en neðri hlutinn! Kommúnistar hér hafa auðvit- að lært aðferðirnar við mynda- fölsun, eins og annað þvílíkt og kom eitt dæmi um það fyrir um daginn, þegar kommúnistar föls- uðu í blaði sínu mynd af borgar- stjóranum í skrifstofu sinni, en hún var þá nýbirt hér í blað- inu. Þetta er alveg ágætt hjá kom- múnistum! Geri þeir bara sem mest af þessu eða þvíliku! Ekk- ert sýnir nefnilega eins áberandi fátækt og lítilmennsku þessa safn aðar en slíkar sjónhverfingar. — Jafnaframt þvi að kommúnistar birta falsaða mynd af manni með lokuð augu opna þeir, um leið augu margra fyrir því, hve þeir eru í alla staði óvandaðir að með ölum og hve langt er frá því að slíkum mönnum sé felandi odda- aðstaðan í stjórn höfuðborgar- innar. TÍMINN ÆTTI AÐ ÞAKKA Tíminn segir nýlega, að „bæ j arst j órnarmeirihlutinn haf i gefist upp við þá skyldu sína“ að afgreiða fjárhagsáætlun bæj- árins fyrir næsta ár, fyrir kosn- ingarnar. Eins og margsinnis hefur ver- ið bent á, hefur fjárhagsáætlun- in 1954 verið lögð fram og rædd við 1. umræðu, en afgreiðslu frestað svo ný bæjarstjórn, sem við tekur, geti ráðið þessu máli, sem er undirstaðan að stjórn bæj arins næsta ár. Þetta er sama að- ferðin og höfð hefur verið að undanförnu og sýnist alveg sjálf sögð. Hvað hefði Tíminn sagt, ef núv. meirihluti bæjarstjórnar hefði rokið til, brotið undan- í BLAÐINU birtist 23. des. yfir- lýsing frá framfærslufulltrúum útaf ýkjusögum Tímans í sam- bandi við Jóhann nokkurn Bene- diktsson styrkþega Húsavíkur- hrepps í Suður-Þingeyjarsýslu. Tíminn birti yfirlýsinguna en sleppti neðan af henni til þess að geta komið að nýjum blekking- um í sambandi við málið ÞaS sem Tíminn sleppti var þetta: „Eins og sjá má af þessu yfir- liti, hafa í'ramfærslufulitrúarnir tvisvar útvegað fjölskyldunni húsnæði, en hún flutt í bæði skiptin vegna ósamkomulags við nágrannana.“ Sést Ijóslega hvernig málstað- ur Tímans er á þvi, að hann sting ur undir stól hluta af yfirlýsingu framfærslufulltrúans en setur ó- sannindi frá eigin brjósti í stað- inn. Mbl. heíur leitað sér upplýs- inga.hjá framfærslufulltrúanum og eru eftirfarandi atriði frá hon- um fengin. 1) Það er regla framfærslufull- trúanna að skýra aldrei frá per- sónulegum högum manna en þar sem hér er um að ræða stórfellt árásarefni á viðkomandi starfs- menn, sem reynt hafa eftir megni, að leysa vandræði mannsins, verður ekki komist hjá að skýra frá atvikum. Það er skemst að segja að styrkþeginn er haldinn miklum skapbrestum og virðist eiga mjög erfitt með að umgang- ast nágranna sína. I skálanum við Elliðaár var framkoma Jóhanns slík, að sam- býlisfólk hans krafðist að hann yrði fluttur á burt og var enginn friður á þessum umkvörtunum, sem ekki voru ástæðulausar, því svo var hann afskipíasamur og ráðríkur, að hann skipti um smekklás að útidyrum, svo fólk- ið sem úti var gat ekki komist inn eftir að hann lokaði dyrun- um. Tvær konur í sambýlinu töldu að Jóhann hefði elt þær með hnífa að vopni. Eftir nakvæma athugun upp- lýstist, að Jóhann átti hér á alla sök, svo að hið eina rétta var að útvega honum annan skála, sem hann óskaði eftir þegar honum var Ijóst, að hann gæti ekki flæmt sambýlisfólkið burt. Reynslan er sú, að síðan hafa þaðan engar kvartanir komið. 2) Jóhann flutti síðan í Múla- hverfi 1 og kom brátt að því að hann gat ekki lynt við fólk í næstu íbúð og flutti hann í Hjálp- ræðisherinn án þess að fram- íærsluftr. væri um það kunnugt. Eftir að vitneskja var fengin um dvöl hans þar var Hjálpræðis- hernum tilkynnt að greitt yrði fyrir herbergi Jóhanns þar fyrst um sinn. 3) Jóhann neitaði að £lytja aft- gengnar venjur og samþ. „fjár- lög“ bæjarins fyrir heilt ár eftir að kosningar hafa farið fram? Þá hefði Tíminn sagt, að nú væri vegna hræðslu verið að flýta sér að afgreiða fjármál bæjarins og binda þannig hina væntanlegu bæjarstjórn í heilt ár. Nú þykist Tíminn hafa góðar vonir um að geta „tekið Reykjavík“ ásamt fé- lölgum sinum, kommúnistum, Alþýðuflokknum og hverjir það nú verða fleiri. Tíminn ætti því að vera þakklátur núverandi bæjarstjórnarmeirihluta fyrir að skilja fjármálin 1954 eftir handa nýrri bæjarstjórn þeirra kump- ána. Þetta ætti að vera Tíman- um því kærkomnara, sem full- trúi hans í bæjarstjórn telur sig sýnilega í heiminn borinn til þess einmitt að „koma lagi á“ fjár- mál Reykjavíkur og má hann þá spreyta sig, ef hann fær mögu- leika til eftir kosningarnar. Girnnar Eína smiðj l iiísíi.ir ur í skálann nema maður sá sem bjó í næstu íbúð yrði fluttur j burtu eða lokaður inni, en á því hafði Reykjavíkurbær engin tök. Þessu næst var Jóhanni boðin dvöl í herbergi í Arnarholti, sem starfsmenn höfðu búið í ásamt ókeypis fæði þar til betra hús- næði fengist. Er það rúmigott herbergi og óaðíinnanlegt. Jó- hann neitaði að fara þangað. Það skal tekið fram að læknir sá sem sfundaðj barn hans, sem var lasið af kvefi, taldi þctta góðan kost. 4) Framfærslufulltrúarnir hafa ekki haft önnur afskipti af dvöl þessa styrkþega Húsavíkur-. hrepps á Hjálpræðishernum en að bjóða Hernum að borga gott heibergi fyrir hann. Styrkþeginn hefur fremur kosið að vera hjá Hernum heldur en annarsstaðar þar sem hann hefur átt kost á og er ekki við Reykjavíkurbæ að sakast um dvöl hans þar. 5) Að lokum benda fram- færslufulltrúarnir á, að styrk- þeginn er borgari Húsavíkur- hrepps í Suður-Þingeyjarsýslu og er ekki bundinn við Reykjavík- urbæ, ef honum gæti liðið betur í framfærslusveit sinni. GUNNAR EINARSSON, fram- kvæmdarstjóri Isafoldarprent- smiðju, varð sextugur annan jóladag s.l., 26. des. Hann er Reykvíkingur að ætt. Voru for- eldrar hans Katrín Gunnarsdótt- ir og Einar Ólafsson, sjómaður. Gunnar Einarsson hóf ungur prentnám og gerðist prentari. Að loknu námi hér heima stundaði hann framhaldsnám í Ðanmörku í iðnssinni. Nokkru eftir að hann. ; kom heim frá námi gerðist hann. |Verkstjóri í setjarasal ísafoldar- prentsmiðju. En við framkvæmd- arstjórn fyrirtækisins tók hann. ; snemma á árinu 1929. — Hefur hann því haft á hendi stjórn ; þessa merka útgáfufyrirtækis í 24 ár. Á því tímabili hefur það haldið áfram að vaxa og dafna. Þeir, sem þekkja Gunnar Ein- arsson, vita. að hann er harð- duglegur maður að hvaða störf- um, sem hann gengur. Hafa hon- um verið falin ýmis trúnaðar- störf. M. a. hefur hann verið for- maður Prentsmiðjueigendafélags- ins, formaður Bóksalafélagsins og í stjórn Vinnuveitendafélags ís- lands. Gunnar Einarsson er hinn mesti þróttmað'ur, vasklegur í framgöngu og hress í bragði. — Hann ér maður bóngóður og tryggur vinur vina sinna. Morgunblaðið óskar þessum dugmikla athafnamanni til ham- ingju með sextugsafmælið og ; þakkar honum margt ánægjulegt ' frá samvinnunni á liðnum árum. Sjo songlog eftir igfús Halldérsson 70 átirci gcamalt sfíúhxm- hús c-sr srá miðstöð- siýrna læk’sslsa.'HSe:?' $ m FARSÓTTARHÚSIÐ við Þingholtsstræti er nú 70 ára að aldri. Það var um eitt skeið eina sjúkrahúsið í Reykjavik. Siðar komst það í einkaeign og var leigt út, enn síðar var því aftur breytt i farsóttarhús, en þegar tókst að útrýma ýmsum landlægum far- sóttum skapaðist í húsinu rúm fyrir aðra starfsemi — aðstoð við lömunaxsjúklinga og lækningu geðbilaðra og þunglyndissjúklinga. Þannig er þetta gamla hús nú bækistöð ungra lækna, sem farið hafa inn á nýjar brautir í geðlækningum. Sigfús Halldúrsson. NÝLEGA er komið út söngva- lagaheftið Sjö 'sönglög, eftir hinn vinsæla listamann Sigfús Hall- dórsson. Hafa mörg þeirra komið út áður, en eru nú orðin ófáanleg. Munu því margir fagna útkomu þessa sönglagaheftis Sigfúsar. Lögin sem í heftinu eru, eru þessi: Við Vatnsmýrina, við ljóð eftir Tómas Guðmundsson. Kem- ur þetta lag nú út í fyrsta skipti. Hin lögin eru þessi: Vögguljóð, við ljóð eftir Kára Sigurðsson, í dag, við ljóð eftir Sigurð Sig- urðsson frá Arnarholti, Tondel- eyo, við ljóð eftir Tómas Guð- mundsson, Við eigum samleið, llagný og Við tvö og blómið. russn- i Bandaríkjunum NEW YORK, 28. des. — í viðtali við bandaríska blaðið U. S. News And World Report hefur Rúss- inn Gouzenkó, ssm á sínum tíma kom upp um njósnastarfsemi Rússa í Kanada, sagt, að senni- legt sé, að mörg hundruð rúss- neskir njósnarar starfi í Banda- ríkjunum um þessar mundir. — Fái þeir gífurlegar fjárfúlgur til að standa straum af njósnum sínum. — Eru margir þeirra í nánu sambandi við rússneska sendiráðið í Washington, segir Gouzenko, en aðrir í beinu sam- bandi við Moskvu. — NTB-Reuter. NYTIZKU TÆKI Blaðamönnum var í gær boð- ið að skoða farsóttarhúsið. María Maack yfirhjúkrunarkona, sýndi þeim, borgarstjóra og nokkrunr bæjarráðsmönnum, sjúkrastofurn ar og sundlaug litla, sem komið hefur verið fyrir í viðbyggingu er reist var við húsið 1949, en þessi sundlaug kemur að órnet- anlegu gagni við lækningu íam- aðra. Var farsóttarhúsið um eitt skeið fullskipað lömunarsjúkling um og hafa mörg hundruð slikir sjúklingar notið góðs af þessari litlu sundlaug, í viðbyggingunni, er bærinn lét byggja við farsótt- arhúsið. FYRSTU SJÚKRAHÚSIN Eftir að húsið hafði verið skoð- að, rakti Jón Hjaltalín prófessor, sem frá 1920 hefur verið yfir- læknir á farsóttarhúsinu, sögu hússins í stórum dráttum. Prófessorinn gat þess í upp- hafi, að fyrsta sjúkrahúsið, sem í Reykjavík var komið upp, hafi verið á þeim stað sem Hjálp- ræðisherinn er nú. Þar stóð gamalt veitingahús, en fyrir for- göngu nokkkurra einstaklinga var því húsi breytt árið 1866 í sjúkrahús. Árið 1883 var svo sjúkrahús reist við Þingholtsstræti, þar sem nú er farsóttarhúsið. Einnig þar voru einstaklingar að'verki. T.l 1902 var þetta eina sjúkrahúsið, sem rekið var í bænum, en það ár var Landakotsspítalinn reist- i ur. 1930 var Landsspítalinn reist- ur og nokkru síðar hóf iíknar- felagið Hvítabandið rekstur sam- neínds sjúkrahúss. • Á síðari árum hefur svo bær- inn tekið við. Sjúkrahælinu í Arnarholti var komið upp 1945, heilsuverndarstöðin er um það bil að verða fullgerð og byrjað er á byggingu bæjarsjúkrahúss. SAGA FARSÓTTARHÚSSINS j Eftir að Landakotsspítalinn var byggður árið 1902 fékk Lækna- skólinn afnot af sjúkrahúsinu í Þingholtsstræti og stóð svo til 1911 er Háskólinn tók til starfa. Eftir það var húsið í Þingholts- stræti notað sem íbúðarhús. Síðan rakti prófessorinn, hvernig umhorfs var í bænum er hann kom hingað árið 1910. Voru þá þrjár farsóttir útbreiddar hér, taugaveiki, barnaveiki og skarlat- sótt. Sjúkrahúsrými fyrir slika iarsóttarsjúklinga var tvær til þrjár stofur í þakhæð Landakots- spítalans. Var þar aðeins rúm fyrir þá sem veikastir voru, hin- ir urðu að liggja í heimahúsum. En ástandið versnaði enn næstu ár, hélt prófessorinn áfram, því nunnurnar sögðu okkur upp hús- næðinu. Eftir mikið þjark við borgarstjóra, Knud Zimsen, tókst að fá neðstu hæð franska spítal- ans við Lindargötu um nokkurra ára skeið, síðar var flúið í sótt- varnarhúsið í Selsvör, sem var kalt, óvistlegt og óhentugt til slíkrar starfsemi. Þá tók bæjarstjórnin á sig rögg og keypti sjúkrahúsið við Þingholtsstræti, gerði á því breyt ingar og í febrúar 1920 hófst þar rekstur farsóttarhúss Reykjavík- ur. María Maack var ráðin for- stöðukona þess og kom hún ak- andi með tvo taugaveikissjúk- linga á vörubifreið daginn sem húsið var tekið til afnota. SIGUR UNNINN A FARSÓTTUNUM Ótaldir eru þeir sjúklingar, sem hlotið hafa aðhyllingu í far- sóttarhúsinu, en þegar tókst að útrýma íarsóttunum nokkru fyr- ir 1930, var húsið tekið til afnota fvrir berklasjúklinga. Um 1940 hefst enn nýr þáttur í sögu hússins. Þá fá þar inni sjúklingar er þjást af vírus-sjúk- dómum (lömunarveiki, heilá- himnubólgu o. fl.) en þeir sjúk dómar tóku að gera vart við sig hér á landi um það leyti. Flestir voru slíkir sjúklingar er Akur- Framh. á bls 12.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.